Þjóðviljinn - 29.10.1977, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 29.10.1977, Blaðsíða 7
Laugardagur 29. október 1977 þjóÐVILJINN — SÍÐA 7 Við opinberir starfsmenn höfum margt lært í verkfallinu, og höfum ekki sagt okkar síðasta orð. Með reynslu þessa verkfalls í huga þurfum við að vinna að því að við getum staðið enn sterkar að vígi í næstu átökum Svandis Skúla- dóttir, fulltrúi í menntamála- ráðuneytinu Vid og Morgunblaðið „Þaö er athyglisvert, hvernig verkföll geta haft áhrif á fólk”, segir i Reykjavikurbréfi Morgunblaösins s.l. sunnudag. Og siöan tekur hiö „óháöa” fréttablaö, sem „rétt hefur BSRB-mönnum hjálparhönd” að greina þessi áhrif með ná- kvæmni læknisins: „Fólk sem venjulega er ókvalrátt og frem- ur farsælt i starfi og stjórnar geöi sinu af kurteisi og tillits- semi viö aöra, umhverfist allt i einu, eins og það hafi tekið ein- hverja hatramma umferðar- pest. Ný og áöur óþekkt skap- gerðareinkenni koma i ljós og það getur jafnvel oröið ósann- gjarnt, órökvist, taugabilaö og ofstopafullt”. Þetta er sú eink- unn sem „nokkrir verkfalls- nefndarmenn BSRB” fá hjá rit- stjóra þessa útbreiddasta blaös landsins. Þar sem ekki er sfðan rætt um framkvæmd verkfalls- ins almennt, þá veröur af þessu varla dregin önnur ályktun, en aö i þessu birtist megineinkenni verkfallsvörslunnar. Sleitulaust hefur svipuð lýsing verið gefin i biaöinu af hinum ýmsu þáttum verkfallsins. Samtimis þessu reynir svo blaðið allt hvaö það getur aö etja saman ýmsum launþega- hópum, sem allir vita aö eiga samleiö. Mjög ákveðnar getgát- ur eru settar fram um þaö hvernig forustumenn ASI liti á málin og þeir siöan nærri grát- bændir að gefa yfirlýsingar um þaö aö blaöiö hafi getið sér rétt til. Morgunblaöiö litur á þaö sem sjálfsagöan hlut að meö þessum fyrstu kjarasamningum, sem BSRB gerir sem fullgildur samningsaöili, þá sé einungis verið aö fá fram sömu kjara- bætur og launþegasamtök innan ASI fengu i sumar! Og náist eitt- hvað fram yfir þaö, þá hljóti ASI aö taka það svo sem veriö sé aö skeröa hlut félagsmanna ASÍ. Auðvitað er félagsmönnum ASI jafnt sem félagsmönnum innan BSRB ljóst að meö þessum samningum er forusta BSRB ekki einungis aö semja um kjör meölima sinna i fyrsta skipti meö verkfallsvopniö i hönd, heldur er þessi barátta eldskirn félagsins ogforystuliðs þess, þar sem árangur baráttunnar hefur ekki einungis gildi vegna þeirra kjarabóta, sem nást, heldur ekki siður fyrir þá baráttu sem samtökin eiga eftir aö heyja á komandi árum. Þvi er samstaöa BSRB og ASl ekki siður mikil- væg en samstaöa félaga innan BSRB. Margt hefur sföustu tvær vik- urnar birst i Morgunblaöinu sem er i senn broslegt og lær- dómsrikt fyrir félaga BSRB. Hæst ber þar bréf og viötal viö fráfarandi ráðuneytisstjóra fjármálaráöuneytisins, hann gerði okkur i senn heitt i hamsi og skemmti okkur. Ég á ekki endilega viö þaö, þegar hann benti okkur á að viö ættum ekki aö vera eins voðalega ágjörn og hann, heldur ekki þegar hann útskýröi fyrir okkur aö við værum eins og fé, sem rekiö væri i rétt, heldur þegar hann tók sér fyrir hendur aö reyna aö hræöa opinbera starfs- menn frá þvi aö taka aö sér verkfallsvörslu. Þegar hann haföi útskýrt hvernig hann komst i kaffistofuna, þ.e. mötu- neyti stjórnarráðsins, er haft eftir honum: „Taldi hann þá (verkfallsverðina tvo) ekki hafa veriö ofsæla af þvi” (stálhnef- anum, samanber grein Jóns Múla Arnasonar), svo kemur rúsinan i pulsuendanum: „Þar sem báöir mennirnir ynnu i stjórnarráöinu, og geröu vafa- laust áfram eftir verkfall.” Hvernig ætli nú þessum handaglaöa manni gangi i sam- skiptum sinum viö verkamenn- ina á Grundartanga, ef þeir veröa nú ágjarnir og fara i verkfall? Bæöi i verkfallinu og eftir þaö? Viö, opinberir starfsmenn höfum margt lært á verkfallinu og höfum ekki sagt okkar siö- asta orö. Meö reynslu þessa verkfalls i huga þurfum viö aö vinna aö þvi aö viö getum staöið enn sterkar aö vigi I næstu átök- um. Viö þurfum aö treysta sem best við getum innri samstööu og viö þurfum aö koma upp verkfallssjóöi til aö geta staöiö betur aö vigi næst. Viö þurfum einnig aö vinna aö þvi aö lögun- um um verkfallsréttinn veröi breytt, þannig aö hann veröi svipaöur og gildir fyrir önnur launþegasamtök. Við, opinberir starfsmenn, þurfum væntanlega bráölega aö gera upp fjárhagsstööu okkar. Verkfallið hefur vissulega oröiö okkur dýrkeypt. Viö munum varla þurfa aö reikna þaö „tap” sjálf, ég á ekki von á ööru en aö Morgunblaöiö reikni þaö ná- kvæmlega út fyrir okkur. Væri þaö nú ekki upplagt aö vinna upp a.m.k. hluta af þvi „tapi”, helst allt, með þvi aö hætta aö kaupa Morgunblaöiö þó ekki væri nema þar til „tapiö” hefur verið unnið upp. Þær sem útskrifuöust: Aftari röö frá vinstri: Edda Guðmundsdóttir, Björk Dúadóttir, Haildóra G. Arnadóttir, Axel Sigurösson skóiastjóri, Sigriöur Ó. Þ. Sigurðardóttir, Heiga K. Jónsdóttir og Guðbjörg Hilmarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Hólmfriður H. Ingvarsdóttir, Margrét G. Karlsdóttir, Regina Sveinsdóttir, Fjóla Haraldsdóttir, Herdls Sæmundardóttir og Eyrún Antonsdóttir. A myndina vantar Margréti Sigurðardóttur. 13 NÝIR LYFJATÆKNAR Lyfjatæknaskóli Islands útskrif- aði fyrir skömmu 13 nýja lyfja- tækna. Skólanum er ætlað það hlutverk að tæknimennta aðstoð- arfólk viö lyfjagerð og lyfjaaf- greiðslu. Námið tekur 3 ár og er það bæði verklegt og bókleg. Skólastjóri er Axel Sigurðsson lyfjafræðingur. Lyfjatæknar hafa stofnað með sér félag og bera nú merki við störf sin sem er gyllt letur á blá- um grunni. Alyktanir frá lands- þingi Þroskahjálpar Svofelldar ályktanir voru gerö- ar á landsþingi Þroskahjálpar sem haldið var 15. og 16. okt. s.l. og voru þær samþykktar sam- hljóöa. 1. Landsþingiö bendir á nauðsyn fyrstu þjónustu fyrir foreldra þroskaheftra þ.e. upplýsinga- starfsemi allt frá þvi aö grein- ing barnsins fer fyrst fram. Þessa þjónustu gætu heilsu- gæslustöðvar veitt að nokkru leyti. 2. Landsþingiö bendir á aö hinn þroskahefti hafi jafnan rétt til almennrar þjónustu, sem öör- um borgurum er veitt t.d. i leikskóla, á dagheimilum og skóladagheimilum. 3. Landsþingiö vill skora á stjórn- völd að sjá svo um, aö ekki skorti fé til þess aö framkvæma reglugerö um sérkennslu sem sett var 1. júni s.l. 4. Landsþingið leggur áherslu á nauösyn þess, aö öll sú besta þjónusta fyrir þroskahefta, sem hægt er aö veita i nútima þjóðfélagi sé fyrir hendi i hverjum landshluta. Lands- þingiö minnir á nauðsyn skjótr- ar uppbyggingar nauösynlegr- ar þjónustu eins og vinnumiöl- unar, verndaðra vinnustaöa, fjölskylduheimila og dvalar- heimila fyrir alla þá, sem á slikri þjónustu þurfa aö halda. 5. Nauösynlegt er að daggjöid til starfandi dvalarheimila séu hækkuö til þess aö þeim sé gert kleift aö ná markmiðum sem unnið er að, en ekki nást meö daggjöldum þeim, sem nú eru i gildi. 6. Landsþingið bendir á nauðsyn á auknu samstarfi foreldra og starfsfólks og beinir þvi til stofnana fyrir þroskahefta að beita sér fyrir stórauknu sam- starfi við foreldra. 7. Landsþingið vill beina þvi til stjórnar Þroskahjálpar, og allra aðildarfélaganna aö stór- auka alla fræöslu og umræöu um málefnið og vinna aö þvi, að öll fræösla um þroskahefta sé aukin i skólakerfinu, meðal al- mennings og fyrir foreldra. 8. Stofnþing landssamtakanna Þroskahjálpar skorar á heil- brigðisráðherra aö beita sér fyrir þvi að tannlæknatæki er Lionshreyfingin gaf til þjónustu viö þroskahefta veröi tekin 1 notkun i samræmi viö niöur- stöðu nefndar skipaöri af heil- brigðisráðuneyti, Styrktarfél- agi vangefinna I Reykjavik og Tannlæknafélagi Islands.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.