Þjóðviljinn - 29.10.1977, Blaðsíða 16
MOBVIUINN
Laugardagur 29. október 1977
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt aö ná i blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348.
^ 81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóðviljans i sima-
skrá.
Merkilegt framtak á Kleppi:
Fyrirtæki er
framleiöir
byggingahluta
A fimmtudag var blaðamönn-
um boðið að lita á fyrirtækið
Bergiðjuna við Kleppsspitalann
sem framleiðir byggingahluta.
Tiiefnið var að Kiwanisklúbbarn-
ir hafa safnað miklu fé til kaupa á
tækjum i fyrirtækið og voru nú að
fara á stað með nýja söfnun.
1 Bergiðjunni vinna að staðaldri
um 12 sjúklingar af Kleppi við
framleiðslu veggeininga sem eru
þannig úr garði gerðar að utan á
er marmaralag en plasteinangr-
un að innanverðu og festingar
fyrir veggklæðningu. Þessar eitv
ingar eru uppfinning Baldurs
Skarphéðinssonar umsjónar-
manns á Kleppi en Jóhannes Sig-
urðsson forstjóri fyrirtækisins
hefur útfært hugmyndina nánar.
Þessar veggeiningar hafa nú ver-
ið notaðar i 12 hús hérlendis og
eru flest þeirra einbýlishús.
Tómas Helgason héit ræðu og
talaði um þörfina á svokölluðum
vernduðum vinnustöðum eins og
Bergiðjan er. Slikir yinnustaðir
væru nauðsynlegir fyrir sjúkl-
inga, fyrrverandi sjúklinga og ör-
yrkja. Væri nú mikill hugur i
mönnum að koma upp fleiri
vernduðum vinnustöðum úti i bæ.
Flestir sjúklingar sem vinna i
Bergiðjunni eru á leið af spitalan-
um.
Bergiðjan hóf framleiðslu i mai
1976 og er i örri framþróun, en
starfsemin er miðuð við það að
hún geti borið sig.
— GFr
Einbýlishús sem er byggt aðhluta úr veggeiningum frá Bergiðjunni á Kleppi.
una (Ljósm.: — eik). Tveir starfsmenn Bergiðjunnar við marmarasteypu (Ljósm.: — eik).
H eilbrigðismálaráð
Vítir frágang
klóaksins og
krefst úrbóta
Heilbrigðismálaráð
Reykjavíkurborgar sam-
þykkti samhljóða á fundi
sínum í gær tillögu öddu
Báru Sigfúsdóttur um að
//víta þann framgangs-
máta sem orðið hefur á
klóaklögn í Seljahverfi" og
krefst heilbrigðisráð þess
að „þegar i stað verði haf-
in framkvæmd samkvæmt
kröfu borgarlæknis um
viðhlitandi lausn á mál-
inu".
Adda Bára sagði i samtali við
Þjóðviljann i gær að kröfur borg-
arlæknis sem vitnað er i sam-
þykktinni væru um að bætt yrði
inn fleiri brunnum og að byggt
yrði yfir frárennslið.
Adda Bára Sigfúsdóttir.
Heilbrigöisráð samþykkti að sá
frágangur sem látinn hefur verið
viðgangast á klóaki i Seljahverfi
að undanförnu væri brot á 67. gr.
heilbrigðisreglugerðar og hefði
greinin verið þverbrotin, með þvi
að ekki hafi verið leitað leyfis
ráðsins áður en gengið var frá
frárennslinu og þar sem frágang-
urinn væri með öllu óviðunandi.
— AI.
67. gr. heilbrigðisreglugerðar frá 1972:
Þar scm frárennsli frá salernum og öftru skólpi verftur ekki veitt
i göturæsi efta aftra almenna skólpveitu skal veita þvl eftir vatns-
heldum holræsum I rotþrær og skal leita um þaft fyrirmæla heil-
brigftisnefndar hvcrju sinni.
BORGARSTJÓRI:
Eg ber ábyrgðina
Blaðamaður Þjóðvilj-
ans fór i viðtal til borg-
arstjóra i gær, en hann
hefur móttöku fyrir
borgarbúa á þriðjudags-
og föstudagsmorgnum
frá kl. 10.30.
. Umræðuefnið var opið klóak i
Seljahverfi i Breiðholti sem Þjóð-
viljinn hefur vakið athygli á.
Borgarstjóri vildi ekki láta hafa
mikið eftir sér um það mál, enda
biði hann og borgarráð nú eftir
kostnaðaráætlún og tillögum um
úrbætur frá borgarverkfræðingi.
Bjóst borgarstjóri við að fá þær i
hendur i næstu viku.
Aðspurður sagði borgarstjóri
að ekki væri hægt að skella
ábyrgð þessa ástands á neinn em-
bættismann borgarinnar. Borg-
arstjóri sjálfur hlyti að bera
ábyrgðina.
— AI.