Þjóðviljinn - 29.10.1977, Síða 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. október 1977
Laugardagur 29. október 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Öskjuhlíðarskólinn i
Reykjavík hefur nú um
eins árs skeið gert
athyglisverða tilraun með
svonefnda starfsdeild.
Þeir unglingar í skólanum
sem hafa náð 16 ára aldri
fara út á hinn almenna
vinnumarkað/ í hálfsdags-
vinnu/ og eru jafnframt
a.m.k. fyrsta árið í skólan-
um hálfan daginn. Okkur
langaði til að forvitnast
svolítið um þennan þátt í
starfi öskjuhlíðarskólans
og héldum því þangað einn
morguninn að afloknu
verkfalli opinberra starfs-
manna. Þar var spjallað
við skólastjórann, Jóhönnu
Kristjánsdóttur og tvo
kennara, Fjölni Ásbjörns-
son og Hörn Harðardóttur.
140 nemendur í
80 manna skóla
Viö byrjum á þvi aö forvitnast
um skólann og nemendurna.
— Oskjuhliðarskóli þjónar öllu
landinu, og þetta er þriöja starfs-
ár hans. Skólinn varð til við
samruna tveggja skóla sem áður
störfuðu, Höfðaskóla, sem
Reykjavikurborg rak, og skóla
fjölfatlaöra. Hér i skólanum eru
tvær aðaldeildir, fyrir þroskaheft
en kennsluhæf börn og fyrir fjöl-
fötluð börn. Nemendur eru nú 140,
en skólinn er aðeins gerður fyrir
80 nemendur. A næsta ári er
reyndar fyrirhugað að byggja við
skólann 1500 fermetra hús, þar
sem verður iþróttaaðstaða, þ.e.
leikfimisalur, sundlaug, sjúkra-
þjálfun og heilsugæsla og nokkrar
kennslustofur.
Um 10% fara í aöra
skóla á hverju ári
— Hvaö eru mörg þroskaheft
og fjölfötluö börn á öllu landinu?
— Það er ekki vitaö nákvæm-
lega, en talið er aö slik börn séu
2—3% af hverjum árgangi.
Meginstefnan er sú, að sem flest
þeirra geti stundaö sitt nám i
grunnskóla og að þeim fari fækk-
andi, sem þurfa aö sækja sér-
skóla. Hér á landi eru færri i
sérskólum en annars staöar i
Evrópu. Við stefnum að þvi að
hver krakki geti fariö i almennan
skóla um leið og hann hefur náð
ákveðinni undirstöðu hér hjá okk-
ur. Um 10 af hundraöi nemenda
fara að jafnaöi héöan á hverju ári
i aöra skóla, en eftir verða þá þeir
sem erfiðast eiga með að tileinka
sér bóklegt nám og þau fara siðan
i starfsdeildina þegar þau hafa
aldur til.
Tengslin við for-
eldrana eru mikilvœg
— Eru tengsl nemendanna viö
skólann nánari hér en í öörum
skólum?
— Þau sækja mikið hingað, og
lika þau sem eru hætt i skólanum,
— þau koma t.d. oft á skóla-
skemmtanir. Þessi skóli er meiri
uppeldisstofnun en venjulegir
skólar og krakkarnir hafa meiri
Marta Guðjónsdóttir hefur starfaö i Vörumarkaöinum siöan i fyrra og er duglegur og góöur starfskraft-
ur aö sögn Danieis verkstjóra sins.
„Meö starfsdeildinni
er ísinn brotinn”
Rætt við skólastjóra og kennara í Öskju-
hlíðarskólanum um nýjung í starfi skólans
tengsl við skólann en almennt
gerist. Hér starfar lika foreldra-
og kennarafélag og er talsvert
fjör i starfsemi þess. Félagið
vinnur að sameiginlegum hags-
munamálum foreldra og kennara
með hag nemenda fyrir augum
fyrst og fVemst. Foreldratengslin
eru skólanum mjög mikilvæg.
— Starfar einhver forskóli,
sem börn sækja, áöur en þau
koma hingaö?
— Já, það er forskóli starfandi
aö Sæbraut 1, Seltjarnarnesi
(Kjarvalshúsinu). Þar er leik-
tækjaþjónusta og foreldrar geta
komið með börn sín, allt frá
nokkurra vikna gömlum, og feng-
ið ráöleggingar. 1 skólanum er
pláss fyrir 12 börn. Sérfræðingar
leggja svo á ráðin um það, hvert
börnin fara þaðan. Sum fara i al-
menna skóla, sum hingað eða i
Lyngás.
Starfsdeildin
— Svo viö sndum okkur nú aö
starfsdeildinni. Hvaö olli þvi aö
. ákveöiö var aö koma henni á fót?
— Voriö 1976 vorum viö með
svo mörg börn hér sem höföu lok-
ið skólaskyldu, að við sáum að
eitthvað þyrfti að gera til að
hjálpa þeim að komast i vinnu.
Starfsdeildin byrjaöi svo I fyrra-
haust, og þetta er þvi annað árið
sem hún starfar.
— Hvernig er þetta skipulagt
og hvaö eru margir unglingar I
starfsdeildinni?
— Nú eru 14 nemendur i starfs-
deildinni, þar af 8 sem þegar eru
komin i vinnu, en i fyrra voru alls
16 I deildinni. Þau eru I allskonar
hálfsdags vinnu og vinna ýmist
fyrir eða eftir hádegi og eru svo
hér i skólanum hinn helming
dagsins. Þau sækja 17 kennslu-
stundir á viku. Námiö miðast
mjög við hagnýta hluti. 9 stundir
eru i bóklegum greinum, en 8 i
handavinnu, vélritun og mat-
reiöslu. Allir þessir unglingar eru
16 ára og eldri.
— Hvar starfa þau?
— Þau vinna ýmiskonar störf,
t.d. hjá ölgerðinni Agli Skalla-
grimssyni, Hagkaup, Strætis-
vögnum Reykjavikur, Vöru-
markaðinum, Vélamiðstöð
borgarinnar, Lesprjóni og á
Landspitalanum.
Gott samband milli
skóla og vinnustaðar
— Hvernig er sambandiö milii
skóla og vinnustaöar?
— Það er yfirleitt mjög gott og
náið. Þeim er vel tekið á vinnu-
staö, enda er ráðningin vel undir-
búin fyrirfram. Ef erfiðleikar
koma upp á vinnustað er reynt aö
grafast fyrir rætur þess sem úr-
skeiðis hefur farið. Krakkarnir
leita hingaö með vandamál sem
upp koma og reynt er að leysa
þau i samráði viö atvinnurekand-
ann. Kennararnir hér þekkja
nemendurna og allar þeirra hlið-
ar. Þegar þeim er útveguð vinna,
er reynt aö nýta þeirra áhugamál
og sjá svo um, að þeir komist i
starf sem þeir ráða viö.
— Hvernig eru viöhorf krakk-
anna tii starfsins?
— Þau eru mjög ánægö meö
vinnuna. Aöeins örfáir þeirra sem
byrjuðu i fyrrahaust hafa helst úr
lestinni. Mörg vinna enn á sömu
stööum og i fyrra og sum þeirra
el-u komin i heilsdagsstarf. Þau
ganga inn á venjulega kauptaxta
og eru mjög samviskusöm i
starfi. Þau vinna verk sitt vel ef
þau ráða við þaö og eru mjög
áhugasöm að standa sig vel.
Þessir krakkar eru yfirleitt góðir
i umgengni og fyrtast ekki við
verkstjórn eða leiðbeiningar.
Margir hafa óskað eftir að fá að
vera áfram i starfsdeildinni eftir
fyrsta árið. Við höfum litið pláss
fyrir þau, en þó eru hér þrir
áfram frá i fyrra að hluta til, þ.e. i
bóklegu námi. Annars er ætlunin,
að eitt ár eigi að nægja i starfs-
deild, en siðan geti þau haldið
áfram i vinnu upp á eigin spýtur.
Þarf aukinn skilning
á þessum málum
— Eru til nokkur lög eöa reglu-
geröir um siika starfsþjáifun
þroskaheftra og fjölfatiaðra?
— Nei, þaö eru engin lög til um
þetta. Hinsvegar eiga allir aðrir
unglingar kost á einhverju fram-
haldsnámi. Þótt krakkarnir hér
hafi ekki staðist hin tilskyldu
próf, finnst okkur að þau eigi lika
rétt á starfsþjálfun eöa einhvers-
konar framhaldsnámi til þess aö
þau komist út i lifiö. Við hljótum
að stefna að þvl, að sem allra
flestir verði sjálfbjarga, geti lifaö
eölilegu lifi og séu sem allra
minnst upp á aðra komnir. Frum-
varp um framhaldsnám liggur nú
fyrir til umsagnar hjá ýmsum
aöilum. Félag Islenskra sérkenn-
ara fjallaði um það á slðasta
fundi sinum og benti á, að i frum-
varpinu kæmi ekki nægilega vel
fram að gert væri ráð fyrir fram-
haldsnámi og starfsþjálfun fyrir
þau börn sem ekki ljúka grunn-
skólanámi. Það er vonandi að
skýr ákvæöi þar um komist inn I
þessi lög. Það þarf lika aukinn
skilning á þessum málum I þjóð-
félaginu.
— Fara margir af nemendun-
um hér beint út á vinnumarkaö-
inn?
— Já, stór hluti þeirra fer út á
vinnumarkaðinn og er gjaldgeng-
ur þar. En við vitum ekki hve
margir okkar fyrri nemenda
hafa fasta vinnu. Þaö hefur engin
könnun verið gerð á þvi, en slik
könnun mun nú vera i bigerð.
— Eruö þiö vongóö um aö
starfsdeildin beri góöan ávöxt?
— Unglingarnir hér eru
þroskaheftir á fleiri en einu sviöi
og sumir þeirra eru likamlega
fatlaðir. Við trúum þvi, að með
þvi að styöja svona við bakið á
þeim meðan þau eru aö byrja I
vinnu, séu möguleikar þeirra
meiri en ella. Megnið af þeim hef-
ur aldrei unniö áður og meö
starfsdeildinni er Isinn brotinn.
Það eru svo margir góöir kostir i
hverjum einstaklingi fyrir utan
námsgetuna. Viö reynum að
rækta þá kosti og þeir eiga að
koma nemendum okkar vel þegar
út I lifiö kemur.
—eös
Jóhanna skólastjóri er hér aö bera fram morgunmatinn I einum bekknum i öskjuhliöarskólanum. Þeir sem rétta upp hönd vilja fá jógúrt!
Jóhanna Kristjánsdóttir skóla- Hörn Haröardóttir kennari. Fjölnir Asbjörnsson kennari.
stjóri.
Ingólfur Eliesarson starfar I vélamiöstöö Reykjavikurborgar. Hér er hann t.h. ásamt Oddgeiri verk-
stjóra að gera við foriáta dælu.
Frædslufundir á vegum
Sveinafél. húsgagnasm.
A komandi vetri mun Fræöslu-
nefnd Sveinafélags húsgagna-
smiða efna til sérstakra fræðslu-
funda. Fundirnir verða einu sinni
imánuði, á timabilinu frá nóvem-
ber og fram i mars. Þeir veröa
ýmist haldnir I húsakynnum
félagsinsað Hallveigarstig 1 eöa i
Iönskólanum.
Viðfangsefni fundanna og
málshefjendur verða:
Þriðjudaginn 8. nóvember: Yfir-
borösmeöferð viöar.
Aðalsteinn Throarensen iðnskóla-
kennari.
Þriðjudaginn 6. desember: ls-
lenska valdakerfiö.
Ólafur Ragnar Grimsson prófess-
or.
Þriðjudaginn 10. janúar: Fram-
leiöslusamvinnufélög iönaöar-
manna. Siguröur Magnússon raf-
vélavirki.
Þriðjudaginn 14. febrúar:
Oryggismál húsgagnaverkstæða.
Þröstur Helgason iönskólakenn-
ari.
Þriðjudaginn 14. mars: Dagblöö-
in og flokkarnir. Vilmundur
Gylfason menntaskólakennari.
Þessir fræðslufundir eru liöur I
þvi að auka félagsstarfið meöal
húsgagnasmiöa i Reykjavik, en
auk þeirra er allt starfsfólk hús-
gagnaverkstæða hvatt til að
sækja fundina. Þaö er von
Fræöslunefndarinnar að sem
flestir húsgagnasmiöir sjái sér
fært að taka þátt i þessu starfi
með þvi aö sækja fundina og taka
þannig virkan þátt i þeirri um-
ræðu sem þar fer fram. Óhætt er
aö fullyrða að viöfangsefni þess-
ara fræöslufunda er fjölbreytt og
athyglisvert og eigi erindi til
mjög margra.
Játvarður Jökull Júlíusson:
Afrek Heima-
manna s.f.
722 tonn af þangm jöli eru farin
til útlanda með Urriöafossi. 70
tonn eru eftir til sölu innanlands.
Verðá tonni: 64 þús. kr.,söluverö
alls kr. 50.688.000,00 — fimmtiu
miljónir sexhundruö áttatlu og
átta þúsund krónur. Rekstrar-
hagnaöur um 10 milj. kr.
Þetta er útkoman af rekstri
Heimamanna s.f. á Þörunga-
vinnslunni á Reykhólum i 3 mán-
uöi, júli-sept.
Þegar sá rekstur var leyfður og
Heimamönnum s.f. voru lánuö öll
tæki og aðstaða Þörungavinnsl-
unnar hf. voru þeir skilmálar, að
Heimamenn s.f. skiluðu helmingi
rekstrarhagnaðar, (ileigu). Hlut-
verki Heimamanna s.f. er lokiö i
bili, samkvæmt hlutarins eöli.
Þau samtök eiga lof skilið fyrir
margt. Þau eru vel að þvi komin
að úthluta um þaö bil 5 milj. kr.
milli 30 manna við þangöflun og
verksmiðurekstur i uppbót á fullt
kaup. Hér á viö með sanni, að
þess skal getið, sem gert er.
AfrekHeimamanna s.f. er fjór-
þætt:
I fyrsta lagi að sigrast á vantrú
rikisstjórnarinnar s.l. vor og
knýja fram þennan rekstur I sum-
ar.
I öðru lagi að ómerkja álit og
tillögur „úttektarnefndar” rlkis-
stjórnarinnar, sérfræðinga, sem
veltu máli Þörungavinnslunnar
fyrir sér i 4 eða 5 mánuöi og fundu
enginráötil neins nema að leggja
niður,loka, rifa eða selja. Þvilikir
vitringar.
1 þriöja lagi að gerbreyta formi
og skipulagi þangvinnslunnar,
færa ábyrgð og hagnaöarvon yfir
á þangskurðarmennina og leggja
tveim af hverjum þremur þang-
skuröarprömmum, — og sanna
ágæti þeirra samtimis.
í fjórða lagi að einfalda rekst-
urinn, sanna, aö nóg er að hafa
Játvaröur Jökull Jiillusson
einn yfirmann, auk skipstjórans á
Karlsey, I stað yfirmanna yfir
botnlausum tapreksti siöustu
tveggja ára.
Þetta er afrek, sem vert er að
halda á lofti og ærin ástæða til að
þakka eins og hvaöeina, sem vel
er gert.
Segi einhver sem svo, að þarna
sé jafnframt kveðinn upp áfellis-
dómur yfir stjórn Þörungavinnsl-
unnar, þáerþað rétt,en aöeins að
vissu marki. Sú stjórn var búin að
gera tillögur um flest, sem
Heimamenn s.f. framkvæmdu,
búin að sjá villu sins vegar og tók
virðingarveröa afstöðu og var og
er fundvis á nýmæli. En á ,,út-
tektarnefnd” iönaðarráöherra
veröur ekki lof boriö. Þaö veit sá,
sem allt veit.
Játvarður Jökull Júliusson.