Þjóðviljinn - 03.11.1977, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 03.11.1977, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. nóvember 1977 Málgagn sósíalisma, verkalýöshreyfingar og þjódfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviijans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Svavar Gestsson. Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsbiaöi: Árni Bergmann. Auglýsingastjóri: úlfar Þormóösson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Sfðumúla 6. Simi 81333. Prentun: Biaöaprent hf. Blettur á íslenska 95,0 miðað við 100 1971, en hins vegar hefur tryggingin sjálf ekki skerst jafnmikið og almenni elli- og örorkulifeyririnn. Þar er skerðing kaupmáttarins samt nokkur, eða t.d. frá 165,9 1974 niður i 161,4 að meðaltali á sl. ári. steypu og moka til sin verðbólgugróð- anum. Þennan verðbólgugróða mætti auðvitað skattleggja og nota skattinn til þess meðal annars að bæta kjör aldraðra og öryrkja. En það hefur ekki verið gert og verður ekki i valdatið núverandi rikis- þjóðfélaginu Kjararannsóknarnefnd hefur nýlega sent frá sér tölulegar upplýsingar um þróun kaupmáttar lifeyristryggingabóta á undanförnum árum. Er þar um að ræða bætur til aldraðra og öryrkja, auk barna- lifeyris og mæðralauna. Kaupmáttur elli- og örorkulifeyris var 80,8 1964 miðað við 100 árið 1971. Hæst komst lifeyristegund þessi i 89,5 á viðreisnarárum Alþýðu- flokksins og Sjálfstæðisflokksins, miðað við 100 fyrir allt árið 1970. Þegar Magnús Kjartansson varð tryggingaráðherra beitti hann sér fyrir stórfelldum hækk- unum á elli- og örorkulifeyri og hélst sú hækkun i raun allt til ársins 1974 er vinstristjórnin fór frá völdum. Kaup- máttur elli- og örorkulifeyris var frá 115,5-117,1 á vinstristjórnarárunum miðað við 100 að meðaltali árið 1971. Strax og hægri stjórnin tók við var skertur kaup- máttur elli- og örorkulifeyris. Á 2. fjórð- ungi þessa árs, 1977, var kaupmátturinn Kaupmáttur barnalifeyris og mæðra- launa hefur einnig verið skertur tilfinnan- lega á valdaárum hægristjórnarinnar. Nú kemur þessi talnaruna sjálfsagt engum á óvart og sist þeim sem búa við svo þröngt hlutskipti að þurfa að lifa af þessum bótum. En tölurnar sýna ekki aðeins öfugþróun i tilteknum málaflokki þjóðfélagsins; þessar tölur eru til marks um pólitiska stefnu. Það er vissulega ekki visvitandi fjandskapur einstakra ráð- herra eða einstakra stjórnarþingmanna við gamalt fólk, einstæðar mæður eða öryrkja, sem ræður úrslitum i þessum efnum. Hér er einfaldlega um það að ræða að Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi verið andvigur félagslegri þjónustu og Fram- sóknarflokkurinn berst núorðið einnig gegn samneyslu. Með þeim hætti verður sifellt minna til ráðstöfunar á vegum rikisbúsins, einnig til aldraðra og öryrkja. Hin andfélagslega stefna forstumanna stjórnarflokkanna kemur þess vegna niður á þeim sem minnst mega sin og enga aðstöðu hafa til þess að mynda svonefnda þrýstihópa i þjóðfélaginu. Hins vegar þýðir minni samneysla aukinn gróða ákveðinna einstaklinga, skjólstæðinga stjórnarflokkanna, þeirra sem vaða lánsfé úr bankakerfinu i axlir, fjárfesta i stein- stjórnar Framsóknarflokksins og Sjálf- stæðisflokksins. í staðinn verða aldraðir og öryrkjar að búa við stöðnun og afturför i kjörum sinum, bákn verðbólgugróðans leggur æ þyngri byrðar á herðar þeirra. 1 öllum grannlöndum okkar er lögð megináhersla á að framfarir séu ein- kennið að þvi er varðar eftirlaun og lif- eyri, að félagsleg þjónusta batni ár frá ári. Islenska rikisstjórnin telur sér skylt að tryggja aukinn gróða ákveðinna skjól- stæðinga sinna, og i besta falli skammast hún til þess vegna þrýstings frá verka- lýðshreyfingunni og Alþýðubandalaginu, að reyna að tryggja að einstakir þættir almannatrygginganna standi þó i stað. Yfirleitt er afturförin einkennið. Þannig skerlsland sig úr: félagslegur aðbúnaður fer vernandi ár frá ári, kaupmætti elli- og örorkulifeyris hrakar. Slik pólitisk stefna ber vott um alvar- legan siðferðilegan sljóleika, hún ber vott um virðingarleysi fyrir öldruðum og ævi- starfi þeirra, tillitsleysi við öryrkja, blindu á mannleg gildi. Slik pólitisk stefna i verki er ekki aðeins pólitiskt átakamál, karp milli dagblaða eða stjórnmála- manna, hún er blettur á islenska þjóð- félaginu. —s Hœgri menn Þau tiðindi hafa gerst i islenskum stjórnmálum aö nokkrir talsmenn Sjálfstæöis- flokksins þora aö kannast við sitt rétta eöli, þora aö vera hægri menn opinberlega. Sliku hafa þeir ekki fiikaö fyrr en nú aö undanförnu. Þetta eru vissu- lega ánægjuleg tiöindi. Hugmyndafræöingur hægri- manna, Asgeir Hannes Eirlks- son, ritar grein i Dagblaöiö i gær, þar sem hann segir frá þvi aö hann eigi sér þá Glistrup og Albert aö leiötogum lifsins og stjórnmálabaráttunnar. Hefur þaö heldur ekki gerst fyrr opin- berlega aö talsmenn Sjálfstæö- isfldcksins játi þessum tveimur stjórnmálaleiötogum ást sina i sömu andránni. Asgeir Hannes hefur þá ætlan aö efna til virkr- ar starfsemi meöal hægri- manna: segir hann mikla ólgu og óánægju i Sjálfstæðisflokkn- um meö núverandi forystu Geirs Hallgrimssonar, þe. hina pólitisku stefnu forystunnar. Dekurbarn Um leiö og hægri menn skriöa úr felum er safnaö undirskrift- um innan Sjálfstæðisflokksins og skoraö á Albert Guðmundss. aö gefa kost á sér á ný jan leik til þings og borgarstjórnar. Birtast um þessi efni auglýsingar I blaöakosti Sjálfstæöisflokksins, einkum siödegisblööunum. Vit- aö er aö Albert hugsar sér aö fara i framboö á nýjan leik fái hann nægi- lega marga til þess aö skora á sig. Þá ætlar hann aö hætta viö aö hætta. Þennan leik lék Albert aftur og aftur sem formaður Knattspyrnusam- bands íslands, hætti, hætti við aöhætta o.s.frv. Þessi stjórnlist Alberts Guömundssonar minnir á óþekkan krakka meöóeölilega dekurþörf: nú er aö sjá hvort nógu margir skora á hann til Glistrup: Hinn mikli leiötogi og sameiningatákn. Fjórar hetjur geysast um stjórnmálavöilinn og sækja fast til frelsis. framboös. Og þvi skal spáö hér aö þá fer hann aftur fram fyrir Sjálfstæöisflokkinn. Stjórnunar- félagið af stað Fleiri safna aö sér fylgi en Asgeir Hannes Eiriksson og Albert Guömundsson. Stjórn- málakappinn Friörik Sófusson leitar nú hófanna hjá stuðnings- mönnum Sjálfstæöisflokksins. Friörik er framkvæmdastjóri Stjórnunarfélagsins: veröur ár- angur hans i prófkjörinu til marks um árangur eöa árang- ursleysi starfs Stjórnunarfél- agsins undanfarin ár. Lúðraþytur frelsis Ekki fara þessar hetjur einar um héröö: úr Kópavogi berst lúðraþytur frelsis um lands- byggöina alla: Hannes Gissur- arson, formaöur félags ungra ihaldsmanna stofnar samtök sem munu heita Sókn til frelsis. Þaö er einkum frelsiö i Banda- rikjunum og i Vestur-Þýska- landi sem Hannes þessi vill inn- leiða á Islandi. Hannes Gissur- arson er aö mati undirritaös langmannvænlegastur þeirra leiötoga Sjálfstæöisflokksins sem hér hafa veriö taldir upp: vonandi fær hann frelsi til þess aö halda áfram aö gera asna- spörk i rikisútvarpinu - þá verö- ur fylgi Sjálfstæöisflokksins loksins þaö sem kalla mætti „eðlilegt”. Þrátt fyrirfund með Kosygin Meöan hirömennirnir i Sjálf- stæöisflokknum fara þannig hver gegn öörum af offorsi, sit- ur Geir Hallgrimsson á sinum staö og skilur ekkert hvaö er aö gerast. Hann skilur ekki einu sinni, aö Sameiningartákn Sjálfstæöisflokksins er ekki Geir Hallgrimsson heldur Mogens Glistrup. —s.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.