Þjóðviljinn - 03.11.1977, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 03.11.1977, Blaðsíða 10
Hin nýja og fullkomna bifreið björgunarsveitarinnar. Fullbúin sjúkrabifreiö afhent Borgfiröingum Hinn 22. október sfðastliðinn var björgungarsveitinni OK Borgarfirði, afhent fullbúin sjúkrabifreið, sem félagar I Kiwanisklúbbnum Jöklum i Borgarfirði höfðu safnað fé til. Fjárframlögin voru frá 270 heimilum norðan Skarðsheiðar i Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, en fjár var einnig aflaö með dansleikjahaldi og töðugjöldum. Klúbbfélagar hafa unnið við innréttingu, frágang og málningu á bílnum i sumar og er kostnaðar- verð bifreiðarinnar tæpar 2 miijónir kröna. Formaður Björgunarsveitar- innar Oks, Jón Þórisson veitti bif- reiðinni móttöku, þakkaði gjiíina og sagði að staðsetning fuilbúinnar sjúkrabifreiðar i uppsveitum Borgarfjarðar myndi lfklega draga ögn úr áhyggjum fólks vegna brottflutn- ings h é r a ð s 1 æ k n i s i n s fráKleppjárnsreykjum til Borgarness. Einnig tóku til máls Hannes Hafstein, framkvæmdast jóri SVFI, Bragi Nielsson, læknir, Haukur Júliusson og Sigriður Jónsdóttir auk forseta Jökla, Finnboga Arndal, en hann afhenti bifreiðina. Sprungur í steinsteypu Ervin Poulsen, prófessor við dönsku verkfræðiakademiuna i Kaupmannahöfn flytur fyrirlest- ur i boði verkfræði- og raunvis- indadeildar Háskóla tslands i dag kl. 15:00 i Tjarnarbæ (áður Tjarnarbió). Efni fyrirlestursins er sprungumyndun i steinsteypu. öllum er heimill aðgangur. Byggingarmeisturum og bygg- ingarmönnum er sérstaklega boðið til þess að hlýða á erindi Er- vin Poulsens. Minningargjöf Ásu Wright Frú Eirika Eyjólfsson og Þor- grimur St. Eyjólfsson, útgerðar- maður i Keflavik hafa afhent Slysavarnarfélagi tslands kr. 135.000 frá frú Asu Guðmunds- dóttur Wright. Skömmu fyrir andlát sitt ánafnaði frú Asa ákveðinni peningaupphæð til SVFt sem minningargjöf um for- eldra sina læknishjónin frú Arn- disi Jónsdóttur og Guðmund Guð- mundsson er siöast var læknir i Stykkishólmi. SVFt þakkar minningargjöf þessa er varið verður til eflingar sjóslysavarna samkvæmt ósk gefandans. (Fréttatilkynning) MINNING Sigrún Björnsdóttir Fædd 13.2. 1921 Dáin 25.10. 1977 Við hið sviplega fráfall Sigrún- ar Björnsdóttur, frænku minnar, verður huganum reikað aftur i timann til æskuára okkar en við vorum nær jafnaldra. Mér er minnisstætt þegar það barst til okkar að Björn föðurbróöir minn hygðist flytjast suður með fjölskyldu sina og hugði ég gott til þvi að ég vissi aö hann átti fjórar dætur á liku reki og ég. Að visu komu þau ekki öll saman strax og eftir var ein dóttir i fóstri hjá Kristni föðurbróður á Biönduósi. En fljótlega voru þau oröin fjögur frændsystkinin hér, þrjár systur og einn bróöir. Tókst strax vin- átta með mér og systrunum enda áttum við samleið i skólum um hrið. Björn frændi minn var einhver indælasti maður, sem ég hefi kynnst, greindur og fróður og hafði lag á að tala við alla, bæði okkur unglingana og þá sem eldri voru. Þorbjörg, kona hans, var mikilhæf kona, músiköisk og list- feng i höndum. Það var þvi ánægjulegt að koma á heimili þeirra og öilum tekið vel þó aö efnin væru ekki mikil þvi að þetta voru tlmar atvinnuleysis og kreppu. Frá þessum ágætu for- eldrum hlutu þau systkin gott vegarnesti. Þegar Sigrún óx upp varð hún myndarlegasta stúlka, há og grönn og vakti athygli fyrir hið fagra dökka hár, sem var þykkt og liöað. Hún var hinn mesti fjör- kálfur og man ég að móður minni fannst gaman að fá hana I heim- sókn. Kom hún stundum og hjálp- aði henni við húsverk og hafði móöir min orð á hve rösk hún væri og húsleg en það fannst henni helst á skorta um sina eigin dóttur. Sigrún hafði glöggt auga fyrir kimni og sagði vel frá. Hún lagði alltaf gott til málanna og var mjög góð öllum sem lltils máttu sin. Ung að árum kynntist hún eftir- lifandi manni sinum, Þorsteini Einarssyni, húsgagnabólstrara. Þau gengu i hjónaband 17. júll ár- ið 1942. Þegar ég kom fyrst á heimili þeirra vakti það eftirtekt mina hve allir hlutir virtust vald- ir af fáguöum smekk þó að efni væru ekki mikil fremur en hjá öðru ungu fólki um þær mundir. Þegar þau eignuöust húsið að Sörlaskjóli 10, þar sem þau hafa nú búið i nær þrjátiu ár, naut þessi góöi smekkur þeirra sin enn betur og hygg ég að þar hafi þau verið mjög samvalin. Þau voru ákaflega samrýnd og þeir eru ekki margir dagarnir, sem þau hafa ekki dvaliö saman, enda var Sigrún Þorsteini einnig til aðstoð- ar um skeið á verkstæði hans. Eina dóttur eignuðust þau, Ingi- björgu hjúkrunarfræðing. Um nokkurt skeið átti Sigrún við vanheilsu að búa en tók þvi með æðruleysi og oft gamansemi. En nú i seinni tið virtist heilsan fara batnandi. Siðasti fundur okkar Sigrúnar var á ánægjulegum hljómleikum Elisabetar Erlingsdóttur, frænku Þorsteins, og áttum þar góða stund saman. Þannig er gott aö minnast hennar. Megi ánægjustundirnar sem þau Þorsteinn, Sigrún og Ingibjörg áttu saman verða þeim huggun I harmi. Geröur Magnúsdóttir Mig langar til að minnast minn- ar góðu vinkonu, með örfáum orðum, sem kvaddi þennan heim allt of fljótt og snögglega. Vinkona mln um langt árabil, Sigrún Björnsdóttir, Sörlaskjóli 10, Reykjavik, er jarðsett i dag. Mig setti hljóða er ég frétti lát hennar. Sigrún var sérstakur per- sónuleiki og stafaði frá henni mikil heiðrikja.var hún næm fyrir öllu mannlegu og vildi alltaf láta gott af sér leiða. Mikið hefur hún reynst minni fjölskyldu traust og trygg, alltaf komin til aö gera lifið bjartara með nærveru sinni og góðvild. Hun var sannarlega sól- armegin i lifinu og þarf ekki að kviða heimkomunni til æöri heima. Ung giftist hún Þorsteini Ein- arssyni, húsgagnabólstrara, og áttu þau einadóttur barna Ingi- björgu hjúkrunarfræðing. Var Sigrún mikil hamingjukona I slnu hjónabandi og átti gott og traust heimili, sem hún mat mikils. Við finnum hvað fátækleg orð gera litiö, þegar dauðinn er annars- vegar, maður er til litils máttug- ur. Megi góður Guö styrkja Þor- stein og Ingibjörgu I þeirra miklu sorg. Far þú i friði, friöur Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt ERNA, Þegar kær systir er kvödd, streyma ljúfsárar minningar fram I hugann. Sigrún fæddist 13. febrúar árið 1921 á Rútsstöðum I Svinadal, i Austur-Húnavatnssýslu. Var hún hið fjórða af sex börnum hjón- anna Þorbjargar Kristjánsdóttur frá Reykjum á Reykjabraut i Húnavatnssýslu og Björns Magnússonar frá Ægissiðu á Vatnsnesi. Sigrún var falleg telpa, létt og kvik á fæti, dökkhærö og hrokkin- hærð með blá, geislandi augu, sem oft leiftruðu af gáska. Þegar Sigrún var niu ára, fluttu for- eldrarnir til Reykjavfkur með fjögur af börnum sinum. Ingi- björg, elsta dóttirin var látin, en yngsta dóttirin Jónina var i fóstri hjá fööurbróður slnum, Kristni Magnússyni á Blönduósi og konu hans Ingileifi Sæmundsdóttur. Bernsku- og æskuár okkar systkinanna I Reykjavik voru timi kreppu og atvinnuleysis, en áhyggjur af basli og erfiðleikum hurfu eins og dögg fyrir sól i ná- vist Sigrúnar. Hún söng og hló og dansaöi og fyllti húsið af kátfnu. Þegar hún var sjö ára, kenndi ég henni undirstöðuatriði i lestri, enda var ég fjórum árum eldri. Skólaganga barna I sveitum landsins hófst þá um tiu ára ald- ur, svo að lestrarkennsla hvildi á heimilunum. En ekki var það slð- ur dýrmætt, sem Sigrún miðlaði mér, þvl að hún kenndi mér að dansa og gerði mig þar með hlut- genga i félagsllfi skólafélaga minna. A ég alla þá ánægju, sem dans veitir ungu fólki Sigrúnu að þakka þvl að ég hafði ekki efni á Út er komin barnabókin Elsku Mió minn eftir Astrid Lindgren, þann núlifandi barnabókahöfund sem nú nýtur einna mestrar frægðar; hún er höfundur Linu langsokks, Emils i Kattholti og fleiri merkra persóna. Þýðandi er Heimir Pálsson. Elsku MIó minn er ævintýra- saga og svipar á ýmsan hátt til sögunnar Bróðir minn Ljóns- að fara i dansskóla og þorði ekki út á gólfiö með félögum mlnum vegna vankunnáttu minnar, en Sigrún þurfti ekki að fara I dans- skóla, þvi að það var eins og hún heföi þessa hrynjandi meöfædda. Arið 1942 giftist Sigrún eftirlif- andi manni sinum, Þorsteini Einarssyni húsgagnabólstrara. Nokkrum árum siðar byggðu þau sér hús i Sörlaskjóli 10 I Reykja- vlk og bjuggu þar slðan. Þau eignuðust eina dóttur, Ingibjörgu, sem nú er hjúkrunarkona. Sam- vistir Sigrúnar og dóttur hennar voru hiö fegursta á æviskeiði Sigrúnar. Ég held, aö aldrei hafi borið skugga á þá gleði, sem Sig- rún hafði af dóttur sinni, sem hún unni heitt. Aldrei minntist Sigrún á vanda- mál I sambandi við börn og ung- linga, hefur ef til vill bægt slíkum erfiðleikum frá með natni sinni viö fjölskyldu sina og heimili ásamt kærleika sinum til allra barna og næmum skilningi á eðli þeirra og þörfum. Sigrún hafði mikið yndi af heimili sinu og var manni sfnum samhent I að fegra það með fallegum, handunnum munum. Mikil gestrisni rlkti á heimili þeirra hjóna og var öllum jafnvel fagnað, ungum og öldnum, skyld- um og óskyldum. Slðasta sunnu- daginn, sem hún liföi vorum við systurnar gestir á heimili hennar. Voru þau hjónin búin að gera nokkrar breytingar á heimilinu og var Sigrún mjög glöö. Þennan dag sá ég hana i siöasta sinn. Jarpa liðaða hárið var orðið hvitt og myndaði umgjörð um fritt andlitið, en bláu augun voru jafnskær og þegar hún var barn og ljómuöu af þeirri heiðrikju hugans, sem einkenndi hana alla ævi. Ég kveð Sigrúnu systur mlna meö kærri þökk og votta eigin- manni hennar og dóttur hluttekn- ingu I söknuði þeirra. Sigurlaug Björnsdóttir. hjarta sem út kom I fyrra; hér er skapaöur ævintýraheimur sem er skyldari stórtiöindum okkar ald- ar en það sögusvið sem menn þekkja af skyldum bókum. Þessi saga var lesin i morgun- stund barnanna i útvarpi fyrir nokkrum árum. Bókin er prýdd mörgum myndum eftir sænsku listakonuna Ilon Wikland. tltgef- andi er Mál og menning. Blaöberar Vinsamlegast komið á afgreiðslu blaðsins og sækið rukkunarheftin. Afgreiðslan opin: mánud. —föstud. frá kl. 9-17. Þjóðviljinn Síðumúla 6 sími 81333 Ný bók frá Máli og menningu Elsku Mió minn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.