Þjóðviljinn - 05.11.1977, Síða 1
UOWIUINN
Laugardagur 5. nóvember 1977 —42. árg. 247. tbl.
Vandi fiskvinnslunnar leystur til áramóta
Nýrra ráðstafana
þörf í ársbyrjun
— segir í athugun Þjódhagsstofnunar á afkomu
frystihúsanna
Hvorki í stefnuræöu forsætis-
ráðherra á Alþingi né i nýútkom-
inni athugun þjóðhagsstofnunar á
afkomu frystihúsanna er að finna
neinar ákveðnar tillögur um
frambúöarlausn á þeim vanda
sem fiskvinnslan teiur sig eiga
viö að etja. Þ jóðhagsstof nun telur
I skyrslu sinni að vandi frystihús-
anna hafi verið leystur til ára-
móta, en það sé skammgóöur
vermir, þvi að um áramót risi
vandinn á ný i kjölfar launahækk-
unar I. des. og krafa um fisk-
verðshækkun fframhaldiaf þeim.
Viömiöunarverð Verðjöfnunar-
sjóðs fyrir freðfisk og saltfisk hef-
ur veriö hækkað um 7%, en það
þýðir 5% hækkun á skilaverði til
vinnslustöðvanna. Þá hefur rikis-
stjórnin ákveðið að afurðalán
Áfram land-
ris fyrir
norðan
í Mývatnssveit var i gær alhvit
jörð og kuldalegt um aö litast, en
veður var stillt og nokkuð gott,
eins og stúlkan á Skjálftavaktinni
orðaði þaö f gær.
Annars var allt við þaö sama á
skjálftavaktinni i gær, landris
heldur áfram hægt og bitandi og
skjálftum hefur ekki f jölgað.
___________________—AI.
Bardagi
Sambíumannaog
Suöurafnkumanna
LUSAKA, PRETÖRIU 3/11
Reuter - Til bardaga kom í gær
milli sambfsks og suöurafrisks
herliðsá landamærum Sambiu og
Caprivi-ræmunnar, sem er hluti
af Namibiu og liggur aö landa-
mærum Sambiu á milli Angólu og
Botsvana. Eins og gjarnan vill
verða segja aöilar slna söguna
hvor af viöureigninni. Samblu-
menn segja suöurafriskt herliö,
stutt stórskotaliði og flugvélum,
hafa ráðist á sambisku borgina
Sesheke, sem er skammt frá
landamærunum, og hafi ein suð-
urafrisk flugvél verið verið skotin
niður. Talsmaður suöurafriska
hersins segir hinsvegar að
Sambiumenn hafi hafið bardag-
ann með skothrið á suðurafriska
landamæravarðstöð og neita þvi
aö suðurafrikumenn hafi oröið
fyrir nokkru tjóni.
Suöurafrikumenn greina einnig
frá árásum liösmanna SWAPO,
sjálfstæðishreyfingar Namibiu,
þar á landamærunum, en SWAP0
hefur griöland bæði i Sambiu og
Angólu. Sambiumenn segjast
einnig hafa skotið niöur flugvél úr
flugher Ródesiustjórnar við
Viktoriufossa, sem eru i fljdtinu
Zambezi, er skiptir löndum meö
Ródesiu og Sambiu.
verði hækkuð til samræmis við
breytinguna á skilaveröinu.
Þjóöhagsstofnun telur að við
þessi rekstrarskilyröi sé brúttó-
tap fiskvinnslunnar I ár 0 til 2.5%.
Fiskvinnslustöðvar á Vest-
fjörðum og Noröurlandi-eystra
eru best settar og skila flestar
brúttóhagnaði, en f öðrum lands-
hlutum er ástandiö verra, og þó
sérstaklega á Suöurlandi og Vest-
urlandi, þar sem um alvarleg
staðbundin vandamál er aö etja.
A næstunni verður til reiðu sér-
stakt lánsfé allt að 500 miljónir
króna, til þess að létta undir með
rekstri fyrirtækja á þessu svæði.
Þjóöhagsstofnun leggur til i at-
hugun sinni aö gerðar verði ýms-
ar kannanir á rekstri fiskvinnslu-
stöðva með það i huga að auka
hagkvæmni án þess aö stefnt sé
að vaxandi afkastagetu sem við-
ast sé nægileg. Hvorki frá rikis-
stjórn né Þjóöhagsstcfnun eru
settar fram neinar mótaðar til-
lögur um hvernig þessu mark-
miði skuli náð.
—ekh.
Forsætisráöherra
í stefnuræðu:
Boðaði
skatta-
hækkun
Tekjuskattur verN þyngri
á næsta ári heldur en I ár,
Skattvisitalan verður sett
31% hærri en i ár, eða sem
samsvarar hækkun verölags
miili ára. Vegna hækkandi
tekna verður því skattheimt-
an mun þyngri.
Þetta kom fram i stefnu-
ræðu forsætisráðherra á
þingi og sagði hann aö þar
sem laun hækkuðu meira en
verðlag og eftirspurn færi
vaxandiværi nauðsynlegt að
beita beinum sköttum til
þess að draga úr þenslunni.
Kaupmáttur tekna ykist um
8% og nauðsynlegt væri að
draga úr honum meö skatt-
heimtu.
Frystihúsin á
Suðvesturlandi og
Suöurlandi
Of mörg og
illa nýtt
Sjá baksíðu
Skrifstofa
Dagsbrúnar
heimsótt
SJA OPNU
Úrbœtur í almanna-
tryggingamál-
um allar að frum-
kvœði verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Rœða Svövu
Jakobsdóttur
síðu 10
Handprjónasamband íslands:
STOFNFUNDUR I
DAG í GLÆSIBÆ
r
Björn Jónsson, forseti ASI, ávarpar fundinn
1 dag kl. 14 hefst i Glæsibæ
stofnfundur Handpr jónasam -
bands islands.
Verk Salóme Fannberg bera þess sterk einkenni að hún hefur verið
búsett i Breiöafjaröareyjum
Ofið í þang í Flatey
1 dag verður opnuð sýning
þriggja myndlistarmanna i
kjallara Norræna hússins. Rich-
ard Valtingojer sem er fæddur
1935 i Austurriki en hefur verið
búsettur hér siðan 1960 sýnir þar
37 teikningar og 12 grafikmynd-
ir. Myndirnar eru allar gerðar
sl. 6 ár. Magnús Páisson (f.
1929) sýnir 5 objekta sem allir
eru gerðir á þessu ári. Myndir
hans eru symbóliskar með
miklu skopi. Bæði Richard og
Magnús hafa sýnt oft áður en
þriðji sýnandinn Salóme Fann-
berg sýnir nú i fyrsta sinn. Hún
er fædd 1951 og lærði I Lista-
skóla Barcelona. A sýningunni
eru 17 ofin verk sem bera þess
sterk einkenni að hún var búsett
i Flatey á Breiöafirði i meira en
hálft ár. Ull og þang koma t.d.
fyrir I mörgum myndum henn-
ar. Sýningin er opin daglega frá
kl. 2-10 og stendur til 20. nóvem-
ber. —GFi
Þegar hafa á fimmta hundrað
manna viðsvegar aö af landinu
tilkynnt þátttöku i samtökunum.
A fundinum i Glæsibæ I dag
veröa þrir gestir frá verkalýös-
félögunum, og munu þeir flytja
ávarp.
Þeireru: Björn Jónsson, forseti
ASl, Aðalheiöur Bjarnfreösdóttir,
formaður Sóknar, Sigurður
Magnússon, stjórnarformaöur
Rafafls.
Fundarstjóri verður Arn-
mundur Backmann, lög-
fræðingur.
Fyrir fundinum liggja tillögur
um stjórnarkjör og formannskjör
i samtökunum og einnig tillögur
að lögum þeirra.
Tiliaga verður lögð fram um aö
hækka söluverð lopapeysanna til
endurseljenda og útflytjenda, en
takist samningar ekki við endur-
seljendur er tillaga um að sam-
tökin snúi sér beint aö útflutningi
milliliðalaust, en hefur þegar
verið gerð könnun á þeim mögu-
leika.
Tillaga veröur einnig gerö um
að minnst 250 kr. fáist á timann
fyrir prjónaskapinn, frágang og
þvott.
Hulda Gisladóttir sem er for-
maður undirbúningsnefndar
fundarins sagði I samtali viö
Þjóðviljann I gær að greinilegt
væri að allflestir væru sammála
um nauðsyn þessa félagsskapar.
Við erum stærsti hópur
framleiöenda i landinu, ef undan
er skilin bændastéttin, sagði
Hulda, og ekki óeðlilegt að við
bundumst samtökum um að bæta
kjör okkar og breyta verslunar-
háttunum.
Undirtektir hafa lika verið
mjög góðar. Við höfum hvarvetna
fengið mikinn stuðning og
skilning ekki hvaö sist hjá
forystumönnum I Alþýöu-
sambandi Islands.
—AI
Happdrætti Herstöðvaandstœðinga:
Dregiö 15. nóv.
Senn líður að því að
dregið verði i Happdrætti
Samtaka herstöðvaand-
stæðinga. 15. nóvember
n.k. Fjöldi útgefinna miða
er 15.000 og verð hvers
miða er 250 krónur.
Vinningar i happdrættinu eru
250 talsins samtals að andvirði kr.
853.000.
Þeir eru:
Myndlistaverk:
1. Asgerður Búadóttir: Vefnaður.
Verð 80000 kr.
2. Sigurður Thoroddsen: Mynd
Verð 50000 kr.
3. Messiana Tómasdóttir: Mynd-
verk. Verð 40000 kr.
4. Guðrún Svava Svavarsdóttir:
Teikning. Verö 40000 kr.
5. Jón Reykdal: Dúkrista. Verö
19000 kr.
Til góðra nota:
6-25. Keflavikurgönguskór,
sterkir og endingargóðir. Verð
4500 kr. samtals 90000 kr.
Ritverk:
27-50. Málverkabækur Máls og
Menningar, 6 bindi. Verð hvers
flokks 3600 kr. samt. 90000 kr.
51-75. Þórbergur Þóröarson:
Ólikar persónur. Verö 3600 kr.
samtals 90000 kr.
Hljómplötur:
76-100. Jóhannes úr Kötlum.
Sóleyjarkvæöi. Verð 2400 kr.
samtals 60000 kr.
101-150. Þokkabót: Fráfærur.
Verö 2290 kr. samtals 114500 kr.
151-200. Olga Guörún: Kvöld-
fréttir. Verð 2790 kr. samtals
139500 kr.
210-250. Böðvar Guðmundsson:
Þjóöhátiðarljóð 1974 + plakat um
Variö land, verð 800 kr. samtals
40000 kr.
Enn eru til óseldir miöar á
skrifstofu samtakanna i
Tryggvagötu 10 og upplýsinga má
leita i sima 17966