Þjóðviljinn - 05.11.1977, Page 2
2 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. nóvember 1977
AF MÁLÓTTA
Þegar Halldór Laxness var inntur eftir því í
sjónvarpsviðtali í fyrrahaust, hvaða skoðun
hann hefði á bókstafnum setu, svaraði hann
því til.að á meðan alþingismenn notuðu tím-
ann til að þref a um þennan bókstaf, væri ef til
vill hægt að vona að þeir gerðu ekkert annað
verra af sér á meðan.
Þessi ummæli koma ósjálfrátt uppí hugann,
þegar löggjafarsamkundan er farin að „drepa
tímann" meðþví að hræra í íslenskri stafsetn-
ingu rétt einu sinni.
Það fer ekki hjá þvL að þessi ummæli
Halldórs hafi vakið menn til umhugsunar um
það hvort ekki væri rétt að nýta kenningu hans
og f á Alþingi það verðuga viðf angsef ni að f ást
aðeins við stafsetningu,og er þá visast að þing-
inu yrðu ekki á nein teljandi mistök og afglöp,
að ekki sé nú talað um svik og pretti, enda
yrðu f járlögin og annað dægurþras að víkja
fyrir setunni.
Tillaga mín er í stuttu máli sú að taka ekki
aðeins inní málið setuna, heldur og ýmis önnur
fyrirbrigði sem eru til þess fallin að sýna það
svart á hvítu, að sá sem skrifar kann sitt
móðurmál svo til hlýtar að hann verður að
teljast sendibréfsfær og sumir jafnvel rúm-
lega það.
Ef einhver hefur til dæmis einhverntímann
haldið að Sverrir Hermannsson sæti á þingi til
að þjóna einhverjum hagsmunum einhverra,
þá hefur þingmaðurinn nú rækilega afsannað
þá kenningu, því ekki fer lengur milli mála
hvert erindi hann átti á þing, sem sagt að
varðveita setuna. Svo hann haf i nú erindi sem
erfiði langar mig að vekja athygli hans og
þeirra ellefu þingmanna úr f jórum þingflokk-
um, sem um þessar mundir leggja fram
þingsályktunartillögu um nýja stafsetningu, á
eftirfarandi:
Það er ekki aðeins setan, sem þarf að taka
uppí ritmálið, heldur og f jölmörg önnur fyrir-
brigði sem notuð hafa verið í skrif uðum texta.
Nægir í því sambandi að benda á einn
fremsta íslenskufræðing allra tíma, Rasmus
Kristján Rask, en hann notaði í skrifuðu ís-
lensku máli allar frönsku kommurnar
l'accent circonflexe, l'accent aigu og l'accent
grave („svá fásjen kénning"). Þá er vert að
benda ellefumenningunum á, að í sjö aldir
höf um við orðið að skrifa íslenskt mál án þess
að bera gæf u til að hafa afnot af tilbrigðum af
bókstaf num O, nef nilega O með króki neðanúr
„0", og 0 með striki í gegnum // 0" að ekki sé
nutalað um tvennskonar„Æ"„AE" og „OE".
Raunar eru til bækur f rá 19. öld þar sem þessir
bókstafir eru aðgreindir og nægir í því sam-
bandi að benda á Jón Þorkelsson rektor
Latínuskólans.
Gylfi Þ. Gíslason sagði í umræðum um set-
una á Alþingi eitthvað í þá átt að til þess að
geta orðið góður rithöfundur þyrfti maður að
vita uppruna þeirra orða, sem skrifuð væru,
kunna reglur um setu og þá væntanlega brúka
bókstaf þennan. Rétt er að benda Gylfa á það
að faðir hans Þorsteinn Gíslason var á langri
ævi mikilvirkur rithöfundur og verður honum
sjálfsagt aldrei brugðið um það að hafa ekki
getað komið hugsun á blað, þótt hann aldrei
notaði bókstaf inn setu. Sama má raunar segja
um H.K.L. og fleiri af okkar fremstu rithöf-
undum.
Allt það málþóf sem að undanförnu hefur
verið viðhaft útaf íslenskri stafsetningu er
sjálfsagt gott og blessað, en þó ber að hafa það
hugfast að lögboðin stafsetning er ekki nema
tæplega fimmtíu ára gamalt fyrirbæri. Allt
það sem íslendingar hafa ritað í hartnær ell-
efu aldir, hafa þeir orðið að setja saman án
þess að geta stuðst við lagakróka um ýmsa
bókstafi og aðrar reglur og formúlur um
skrifaðan texta. Sannleikurinn er sá að í síð-
astliðin fimmtíu ár hefur sú tilhneiging verið
rikjandi meðal þeirra sem þóst hafa til þess
kjörnir að segja landslýð hvernig skrifa beri
móðurmálið, að lögbjóða svoflóknar reglurum
hið skrifaða orð, að almenningur í landinu er
hættur að þora að drepa niður penna. Við ligg-
ur að f ólk sé hætt að þora að skrif a niður skila-
. boð á blað, hvað þá að setja saman sendibréf,
af ótta við að blotta sig. Hér er komin orsökin
fyrir hinni margumtöluðu pennaleti íslend-
inga. Stefán Karlsson handritasérfræðingur
hafði raunar betra orð yfir þetta fyrirbæri,
þegar hann f jallaði um íslenskt mál í útvarp-
inu, en hann kallaði það „málótta".
Ég vil að lokum skora á íslenskunemendur
að fara varlega í það að læra lögboðna ís-
lenska stafsetningu, hún er að miklum hluta
rugl, einkum setningafræðin, en leggja sig
f ram við að skrif a á skil janlegu máli, það sem
hugurinn býður, setja kommur bara þar sem
mönnum finnst þær eiga að vera, stóra stafi
aðeins þar sem mönnum finnst þeir tilheyra,
en setur og upsilon þar sem okkur f innst gam-
an að hafa slíka stafi. Þá fyrst kemur að því
að málótti og pennaleti landsmanna hverfur
eins og dögg fyrir sólu.
Sagt er að Konráð haf i ort þessa vísu, þeg-
ar Rask vildi festa notkun á l'accent
circonflexe í skrifað íslenskt mál:
Aldrei fékk ég fyr komplex
af fákunnáttu minni,
en lögboðinn laxansirkonflex
leggst mér þungt á sinni. Flosi.
1. deild sovéska meistaramótsins:
21 árs skákmaður
kveður sér hljóðs
Undankeppni sovéska
meistaramótsins er nú langt á
veg komin. Þessi keppni, eöa
réttara sagt mót, er skipaó mörg-
um af fremstu skákmönnum So-
vétrikjanna og 6 efstu sætin gefa
sæti I alsovéska meistaramótinu
sem fer fram i lok ársins. Af 18
keppendum á mótinu eru 10 þátt-
takenda alþjóölegir stórmeistar-
ar sem segir betur en nokkur orö
hversu langfremstir Sovéskir
skákmenn eru. Aö loknum 14.
umferöum af 17 var Gennadi Kuz-
min efstur haföi hlotiö 9,5 v. I 2.
sæti var Grigorjan meö 9 c. og I 3-
4. sæti komu þeir V. Tukmakov
sem tvlvegis hefur teflt hér á
landi og Alexander Kotsjev. Kot-
sjev er langyngsti þátttakandinn
á mótinu aöeins 21 árs og árang-
ur hans þvl mjög glæsilegur.
Hann hefur ekki tapaö einni ein-
ustu skák sem lýsir vel öryggi
þessa unga skákmanns.
Athygli vekur mjög slægleg
frammistaöa stórmeistaranna
Vaganinas og Taimanovs en þeir
skipa nú eitt af botnsætunum.
Hvltt: A. Beljavskl
Svart: R. Vaganian
Benkö-bragö
1. d4 Rf6 3. d5 b5!?
2. c4 c5
JBenkö-bragöiö svokallaöa. Þaö
nýtur mikilla vinsælda vegna
hinnar snörpu stööubaráttu sem
venjulega fer i hönd. Fyrir peöiö
fær svartur opnar línur á drottn-
ingarvængnum sem mótvægi.)
4. cxb5
Alexander Kotsjev
(Besta ráöiö viö fórn er aö taka
henni)
4. ... a6 5. bxa6
(Ein fjölmargra leiöa sem hvltur
á kost á I þessu afbrigöi er fram-
haldiö 5. Rc3 axb5 6. e4 b4 7. Rb5
sem á tímabili var nánast óbrigö-
ult vopn gegn Denkö-bragöinu.
Eins og alltaf hafa menn fundiö
fullnægjandi varnir gegn þessu
framhaldi)
5. .. Bxa6 10. 0-0 Rbd7
6. Rc3 g6 11. Hel Dc7
7. Rf3 d6 12. Bf4 Hfb8
8. g3 Bg7 13. Dd2 Hb4
9. Bh3 0-0
(Sjá skýringar viö 3. leik svarts.)
14. Hacl h5 16. Dxh6 Hxb2
15. Bh6 bxh6 17. e4 Bc8
X Jl (P <m. í íí tðr
Iff 4 'Wá vWx'/ 1 ■
wm m H i W
jjj i W WM i
WA (JJ (
U i 'WA, wk ■mm rnk A
& n |p 4m. m Wm.
m .m 1
18. Be6!!
(Skemmtileg mannsfórn sem
svartur getur þegiö meö góöu
móti, t.d. 18. — fxe6 19. Dxg6-Kf8
(eöa 19. — Kh8 20. Rg5 Re5 21. f4
o.s.frv.) 20. dxe6 og vinnur.)
18. .. Rf8
(Hvítur hótaöt 19. Dxg6+)
19. e5 Rg4 21. Re4!
20. Bxg4 hxg4
(Beljavski fer á kostum i þessari
skák. Hér fórnar hann manni enn
á ný Mannsfórnin stenst fullkom-
lega eins og sést á eftirfarandi af-
brigði 21. — gxf3 22. Rf6+! exf6
23. exf6 Re6 24. dxe6 fxe6 25.
Dxg6+ Kf8 26. Dh6 Kg8 27. He4!
og svartur er varnarlaus.)
21. .. I)d8 22. e6!
(Hvergi látiö staöar numiö. Meö
þessari perösfórn fær hvitur einn
meira ráörúm til frekari að-
geröa.)
22. .. fxe6
23. Rh4 De8 26. Hf3 Dg7 ,
24. dxe6 Bxe6 27. Dg5 Hb6
25. Hc3 Df7 28. Rc3!
(Feiknarlega kraftmikill leikur
sem vinnur liö. Hvitur hótar 29.
Hxf8 og viö þvi er ekki mikiö aö
gera.)
28. .. Kh7 30. Hxe6 Hf6
29. Hxf8 Hxf8 31. He3
31. .. Df7 33. Re4 Hfxf2
32. Hel Hb2 34. De3!
(Meö tvöfaldri hótun, 35. Rxfx2 og
35. Rg5-. Svartur kemst ekki hjá
skiptamunstapi I
34. .. Hf5
35. Rxf5 Dxf5
36. Hfl De5
(Eftirleikurinn
Framhaldiö v:
39. .. dxe5
40. Hxe7 c4
41. Hc7 Hxa2
42. Hxc4 Hal
43. Kg2 Ha2+
voöbótar.)
37. Rg5+ Kg7
38. Hf7+ Kg8
39. Dxe5
er auöveldur
:)
44. Kgl Hal
45. Kg2 Ha2
46. Kh3 Kg7
47. Hc6 He2
48. He6
(Þaö væri aö sjálfsögöu fásinna
aö fara I hrókakaup I þessari Svartur gafst upp. Skemmtileg
stööu.) baráttuskák.
BLAÐBERAR
Eftirtalin hverfi eru laus til umsóknar:
Neðri-Hverfisgata Kaplaskjól Meistaravellir
Laufásvegur Ytra-Seltjarnarnes
UÚÐVIUINN
8 13 33