Þjóðviljinn - 05.11.1977, Side 6

Þjóðviljinn - 05.11.1977, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. ndvember 1977 Rauösokkahreyfingin Iltur á þaö sem hlutverk sitt: — aö berjast fyrir nýju sam- félagi jafnréttis og frelsis, — aö berjast gegn kúgun og hverskonar árásum á alþýöu, — aö starfa meö verkalýös- hreyfingunni og öörum aö sameiginlegum mark- miöum, — aö berjast gegn þvf aö fóiki sé mismunaö vegna kynferöis sins, — aö efla sjálfsvitund, félagsþroska og baráttu- vilja kvenna, — aö styöja baráttu kvenna um allan heim gegn kúgun og afturhaldi, — aö berjast fyrir aukinni samneyslu. Rauösokkahreyfingin berst fyrir full- komnu jafnrétti kynjanna á öllum sviöum þjóðfélags- ins. Hún setur fram skýrar kröfur um ráðstafanir sem stuöla aö jaf nrétti og stefnir að f jöldabar- áttu fyrir þeim. Baráttumál Rauðsokkahreyf- ingarinnar eru: Rauðsokkahreyfingin berst fyrir fullkomnu jafnrétti kynjanna á öllum sviðum þjóðfélagsins. Hún set- ur fram skýrar kröfur um ráðstafanir sem stuðla að jafnrétti og stefnir að fjöldabar- áttu fyrir þeim. Baráttumál Ra uðsokka hrey f i nga r- innar eru: — Lifvænleg laun fyrir átta stunda vinnu- dag — — Full atvinna fyrir alla — — Atvinnuöryggi fyrir alla — — Jöfn laun fyrir sam- bærilega vinnu — — Sami réttur til allrar vinnu — — Jafnrétti til náms — — Samfelldur vinnu- dagur og mötuneyti I skólum — — Góð og ókeypis dagvistun fyrir öll börn — — Sex mánaða fæðingarorlof fyrir alla — — Kynferðisfræðsla í skólum — — ókeypis getnaðar- varnir — — Frjálsar fóstureyðingar Umsjón: Dagný Kristjánsdóttir Elísabet Gunnarsdóttir Helga ólafsdóttir Helga Sigurjónsdóttir Silja Aðalsteinsdóttir kkah Út í hött að tala um jafnrétti við óbreytt þj óðskipulag 1 þessum mánuði eru 7 ár siöan Rauösokkahreyfingin var form- lega stofnuö á fjölmennum fundi I Norræna húsinu. Kveikjan aö stofnun hreyfingarinnar var hin svokallaða „nýja kvennahreyf- ing” sem á árunum fyrir 1970 skaut upp kollinum í Evrópu. Konur i þessari hreyfingu þóttu hafa róttækar vinstri skoöanir, en þær voru jafnframt róttækar á öörum sviöum, t.d. þegar þær I tilraun sinni til að varpa af sér hefðbundinni kvenimynd héldu mikla brennu á brjóstahöldum á Ráðhústorginu i Kaupmannahöfn á þeim forsendum aö aðeins lltill hluti kvenna hefði raunverulega not fyrir þessa flik. Sumir þess- ara kvenfrelsishópa hafa nú tvistrast og margvislegar hug- myndafræðilegar stefnur oröiö ofan á meöal þeirra. Rauösokkahreyfingin á Islandi hefur starfaö óslitið á þessum sjö árum og án efa haft mikil áhrif á skoðanamyndun almennings i jafnréttismálum. Árangur af starfinu er þannig tvimælalaus þó aö ekki sé hægt að bregöa mæli- stiku á þann árangur og meta hann á tölulegan mælikvaröa. Hvað var hér á ferðinni? A fyrstu árum hreyfingarinnar var meira en nú rætt um hana i fjölmiðlum. Það var eölilegt, hér var eitthvaö nýtt á ferðinni, jafn- vel eitthvað „sniðugt” sem gam- an var að kynna sér. Starfshættir hennar vöktu lika athygli, en allt frá upphafi var félagsform hreyf- ingarinnar nýmæli. Ekki var kos- in formleg stjórn, heldur var ákvörðunarvaldið i höndum starfshópa. Þeir þurftu ekki að leita eftir samþykki stjórnar til að vinna ákveðin verk, heldur einungis láta miðstöð vita við hvað þeir væru að fást. Hlutverk miðstöðvar var aðeins að vera tengiliður milli hópanna og veita upplýsingar um hreyf- inguna út á við eftir þörfum. Baráttan fyrir frjálsum fóstur- eyðingum setti töluverðan svip á starf okkar fyrstu árin og I kjölfar hennar var samþykkt á Alþingi ný löggjöf um þetta efni sem að visu gekk mun skemur en Rauð- sokkar hefðu viljað. Það má einn- ig rifja upp aö hugmyndin um als- herjarverkfall Islenskra kvenna á degi SÞ 1975 kom upp innan Rauðsokkahreyfingarinnar? og tók hreyfingin að sjálfsögðu mik- inn þátt i að undirbúa aðgerðir þann dag. I upphafi markaði hreyfingin sér ekki stefnu í almennum þjóð- félagsmálum, en starfið beindist að ýmsum aðstæðum i þvi þjóð- félagi, sem viö búum 4 svo sem barnaheimilismálum og að vekja athygli á stöðu kvenna svo sem hinni rlkjandi kvenimynd. Sósialisk stefna Rauðsokkahreyfingin hefur haldið tvö þing, hið fyrra á Skóg- um 1974 en hið siðara I Reykjavik I fyrra. Á ráðstefnunni 1974 mark- aði hreyfingin sér sósialiska stefnu og eftir það hefur meira en áður verið leitað eftir samstarfi við konur úr verkalýðshreyfing- unni og mest áhersla lögð á stöðu kvenna sem láglaunafólks þrátt fyrir lagaákvæði um launajafn- rétti. Á þinginu i fyrra voru gerð- ar nokkrar breytingar á skipulagi hreyfingarinnar vegna aukinna umsvifa hennar. Grundvallar- hugmyndinni um frjálst starf vinnuhópa var þó ekki I neinu raskað. Fjölgað hefur verið i mið- stöð og nú er skylda að fjórir hóp- ar starfi að staðaldri,en þeir eru: Húshópur, sem sér um rekstur húsnæðis hreyfingarinnar að Skólavörðustig 12. Vilborg Dag- bjartsdóttir gaf þvi nafnið Sokk- holt^og er það vel til fundið,enda venjulega nefnt þvi nafni núorðið. Þá skipuleggur húshópur einnig vaktii; en daglega er opiö i Sokk- holti frá kl. 5 til 6.30. Auk þess er opið hús fyrsta laugardagsmorg- un i hverjum mánuði frá kl. 10.30-12. Verkalýðsmálahópur er einnig fastur starfshópur og heldur fundi á hverju miðvikudagskvöldi. Sá hópur er sá fjölmennasti nú og einnig starfaði hann af miklum krafti I fyrra. Þriðji fasti starfs- hópurinn er dreifbýlishópur, en hlutverk hans er að hafa sam- band við jafnréttisfólk úti á landi. Að lokum starfar blaðhópur að staðaldri en hann sér um útgáfu málgagns hreyfingarinnar, „For- vitin rauð”, en 6. hefti blaðsins kom út 1. des. s.l. Veigamesta breytingin sem orðið hefur á stafsháttum hreyfingarinnar eru svokallaðir ársfjórðungsfundir sem haldnir eru f jórum sinnum á ári. Á þeim fundum ber að taka ákvarðanir um öll stærri málefni hreyfingarinnar og verði ágrein- ingur ræður einfaldur meirihluti úrslitum I atkvæöagreiðslu A ársfjórðungsfundunum er alltaf Framhald á 14. siðu Frá Tónlistarfélagi Akureyrar: Philip Jenkins heldur tónleika í dag Starfsár Tónlistarfélags Akureyrar hófst að þessu sinni með tónleikum Sigríðar E. Magnúsdóttur, söngkonu, og ólafs Vignis Albertssonar píanóleikara i Borgarbíói miðvikudag- inn 26. okt. Húsfyllir var á þeim tónleikum og undir- tektir áheyrenda mjög góðar. A öðrum tónleikum Tónlistar- félagsins leikur hinn vel þekkti pianóleikari Philip Jenkins I dag, 5. nóv. kl. 17. Hann leikur einnig i Norræna húsinu 6. nóv. kl. 20.30. PhiJip Jenkins kemur nú frá London þar sem hann er búsettur og starfandi sem prófessor i pianóleik við Konunglega tónlistarskólann. Við lokapróf frá sama skóla hlaut Philip Jenkins Dove-verðlaunin, sem eingöngu eru veitt fyrir frábæra frammi- stöðu i hljóðfæraleik. Ariö 1958 sigraöi hann i alþjóölegri pianó- samkeppni, sem stórblaðið The Daily Mirror efndi til, og 6 árum siðar vann hann aftur alþjóðlega samkeppni pianóleikara um Harriet Cohen verðlaunin. Hann var einn meðlimur Trio of Lond- on, sem hlaut mikla viðurkenn- ingu fyrir tónlistarflutning sinn viða um lönd. A sfðasta ári stofn- aði hann, ásamt Guönýju Guömundsdóttur fiðluleikara og Hafliða Hallgrimssyni selloleik- ara trfd, sem leikiö hefur á nokkr- um stöðum hér á landi, I London og á listahátiðinni i Bergen, við frábærar undirtektir áheyrenda og gagnrýnenda. Þetta sama trió lék Trimple-konsertinn eftir Beethoven ásamt Sinfóniuhljóm- sveitinni i opnunartónleikum hliómsveitarinnar i haust. Philip Jenkins hefur haldið tónleika viða um Evrópu, leikið I útvarp og sjónvarp, einnig inn á hljómplötur verk eftir ýmsa heimsfræga snillinga. Hann var um árabil kennari viö Tónlistarskólann á Akureyri og átti miklum vinsældum að fagna á mörgum tónleikum, sem hann hélt þar, m.a. flutti hann og kynnti allar pianósónötur Mozarts. A efnisskránni að þessu sinni er: Sónata og fantasia eftir Mozart, stef og tilbrigöi eftir Fauré, marzurkarog impromp.tu eftir Chcpin og sónata. eftir pólska tónskáldið Szymanovski, en siðasttalda tónverkið er eitt hið vandasamasta, sem skrifað hefur verið fyrir pianó. Aðgöngumiöar á Akureyri eru seldir i bókabúðinni Huld og við innganginn 2 klst. fyrir tónleika. sþ/mhg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.