Þjóðviljinn - 05.11.1977, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. nóvember 1977
Texti: Al Ljósm: EIK
Skrifstofa Dagsbrúnar heimsótt
i þættinum ,,Vinna og
verkafólk" hefur að und-
anförnu verið fjallað um
einstaka vinnustaði og þá
hefur starf verkalýðsfé-
laganna oft borið á góma.
I þetta sinn lögðum við
leið okkar á skrifstofu
Dagsbrúnar að Lindargötu
9 en það hús eiga Verka-
mannafélagið Dagsbrún
og Sjómannafélag Reykja-
víkur í sameiningu.
Á skrifstofu Dagsbrúnar starfa
6 menn en einn þeirra Halldór
Björnsson hafði verið kallaöur út
á vinnustað þegar okkur bar að,
en viðtöl viö hina 5 fara hér á eftir
Lesstofa og hluti af bókasafninu
Einn af hyrningarsteinum
yerkalýdshreyfingarinnar
Eðvarð Sigurðsson hefur veriö
formaður Dagsbrúnar frá árinu
1961, en starfsmenn Dagsbrúnar
eru 6 talsins.
Það hefur orðið geysileg breyt-
ing á allri aðstöðu félagsins þann
tima sem ég hef setið i stjórn
þess, sagði Eðvarð, þegar við
inntum hann eftir stöðu félagsins.
Þau réttindi og hlunnindi sem
menn hafa nú af þvi aö vera
félagsbundnir i verkalýðsfélagi
eru orðin miklu meiri og fjölþætt-
ari en áður. Verkalýðsfélögin
hafa sifellt farið inn á ný sviö og
eru nú orðin mun meirí
tryggingaraöili fyrir verkafólk en
áður.
Eðvarð Sigurösson
Mestu valda þar sjóðir félag-
anna, lifeyrissjóðir, orlofssjóðir
og styrktarsjóðir.
Hlutfallsleg stærð Dagsbrúnar
hefur aö visu minnkað jafnhliða
þeirri breýtingu sem orðið hefur i
þjóöfélaginu með hraðri at-
Þjónustu- og tæknigreinar hafa
vaxið mikið og eru orðnar stór
hluti af verkalýðshreyfingunni.
Dagt brún er þvi ekki lengur sú
yfirgnæfandi stærð sem hún áður
var, en áhrifin hafa ekki dvinað
að sama skapi, Dagsbún er og
verður einn af hyrningasteinum
verkalýðshreyfingarinnar á
Islandi.
Hér á skrifstofunni rikir ekki
ströng verkaskipting og flest mál
berum við hver undir annan. Þó
kemur fyrir aö menn vilji hitta
formanninn og engan annan eins
og gengur.
Þann tima sem alþingi situr er
ég hér á skrifstofunni að morgni
dags og á föstudögum, annars á
hverjum degi
Ég hef á undanförnum árum
dregið mig æ meir út úr samn-
ingamálunum, sem lengi voru
mitt sérsvið Þau störf hafa þvi i
vaxandi mæli lagst yfir á sam-
starfsmenn mina hér.
Guðmundur J. Guðmundsson
Oftast hægt ad leysa málin
hér á skrifstofunni
Það má segja að skrifstofan hér
sé eins konar leiðbeininga- og
upplýsingamiðstöö fyrir félags-
menn og raunar marga fleiri,
sagði Guðmundur J. Guðmunds-
son varaformaður Dagsbrúnar.
Þaö er margt i þjóðfélaginu
sem miðast við Dagsbrúnarkaup-
ið og algengt að bæjarbúar og
menn úr óliklegustu áttum hringi
hingaö til að fá upplýsingar um
það.
Dagsbrúnarmenn vinna mjög
fjölbreytt og oft sérhæfð störf og
þá koma til greina alls kyns sér-
samningar sem kannski er ekki
auðvelt aö túlka, þegar út I deilu á
vinnustaðnum er komiö.
Félagsmenn vinna við fisk-
vinnu, hafnarvinnu, byggingar-
vinnu, eru aðstoðarmenn ýmissa
iðnaðarmanna, vinna við bensin-
afgreiðslu, i rikisverksmiðjunum
og svo mætti lengi telja. Við þetta
bætist siðan vaktaálag eða annað
álag og ef menn fá ekki greitt
samkvæmt samningum eða fá
alls ekki greitt leita þeir hingað.
Oftast er hægt að leysa málið i
gegnum sima eða með viðtali hér
á skrifstofunni, en auðvitað verð-
ur oft aö fara út á vinnustaðinn
eða þá til einhvers þriðja aðila til
að fá úrlausn mála.
Þá leita menn hingaö ef slys
hefur orðið á vinnustaðnum, þá
þarf kannski að óska rannsóknar
og leita skaðabóta, allavega að fá
greidda veikindadaga sem af þvi
hljótast og siðan tekur styrktar-
sjóöur félagsins við.
Félagsmenn leita lika aðstoöar
varðandi persónulega hagi sina,
skattframtöl og þess háttar, þá
kemur fyrir að mæöuf félags-
manna, ef þeir eru ungir heim-
sækja okkur hér eða þá eiginkon-
urnar.
Þannig fáumst viö hér bæði við
félagsleg og persónuleg vanda-
mál af ýmsu tagi, og liklega eru
tengslin við einstaka félagsmenn
óviða meiri en hér i verkalýðs-
félögum.
Það sem verður aö bæta veru-
lega er aðstaðan úti á vinnustöð-
unum, og þvi verkefni verðum viö
starfsmenn Dagsbrúnar aö ein-
beita okkur að. Meö nýrri tækni
og stórvirkum vinnuvélum verð-
ur að herða mjög eftirlit meö
öryggisráðstöfunum sem viða eru
ekki beysnar.
Hjá Eimskip sem er næst
stærsti vinnuveitandi Dags-
brúnarmanna er komið gott
mötuneyti og aðbúnaöur allur til
sérStakrar fyrirmyndar og hjá
þeim stærsta^Reykjavikurborg^er
ástandið nokkuö gott.
Þvi miöur er þetta mjög á hinn
veginn á ýmsum smærri vinnu-
stöðunum og eftirlit með úrbótum
þar verður að herða, jafnframt
þvi sem við veröum að efla
fræðslustarf og þjálfun innan
félagsins.