Þjóðviljinn - 23.11.1977, Qupperneq 10
ltt SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 23. nóvember 1977
Stórgóður leikur
lagði grunninn að
Gísla og Björns
góðum sigri Vals
Valsmenn unnu mjög
góðan og sannfærandi sig-
ur yfir íR-ingum i Reykja-
víkurmótinu í handknatt-
leik í gærkvöld. Eftir að
IR-ingarnir höfðu byrjað
vel, sóttu Valsmenn mjög í
sig veðrið og með Gísla
Blöndal og Björn Björns-
son sem aðalmenn tryggðu
þeir sér 23-20 sigur. Leikur
Vals var oft á tíðum stór-
góður, og verður gaman að
sjá þá leika í Evrópu-
keppninni hér á föstudag,
gegn ungversku meistur-
unum Honved, en þá verða
allir landsliðsmenn þeirra
með.
tr-ingar tóku strax forustuna i
leiknum og komust i 4-1 og virtist
stefna i burst. En Valsmenn tóku
sig heldur betur á og fyrr en varði
voru þeir búnir að jafna 4-4. Jafn-
vægi var nú i fáeinar minútur, en
á siðustu min, hálfleiksins sigu
Valsararnir framúr og i hálfleik
var staðan 11-7.
Siðari hálfleikurinn var mun
jafnari. Munurinn var þetta 4-5
mörk út nær allan leikinn, en ÍR-
ingum tókst reyndar að minnka
muninn i eitt mark, 19-18. Á loka-
minútunum átti Björn svo stór-
leik, skoraði hvert markið af öðru
og tryggði Val sigurinn.
Með þessum sigri bæta Vals-
menn stöðu sina i mótinu mjög
mikið. Þeir höfðu aðeins hlotið 5
stig, en efstu liðin voru komin
með 8 stig. Ir-ingarnir eru enn i
öðru sæti i mótinu með 8 stig, en
einum leik fleira en Vikingur.
1 leiknum i gærkvöld voru það
þeir Gisli Blöndal og Björn
Björnsson sem voru mennirnir á
bak við sigur Vals. Þeir skoruðu
15 af mörkum liðsins og voru ÍR-
ingarnir i miklum vandræðum
með þá. Framan af var það Gisli
sem skoraði og tóku IR-ingarnir
hann þá úr umferð, en það dugði
skammt, Björn tók bara við og
raðaði mörkunum. Einnig reyndu
IR-ingar að taka Bjarna Jónsson
úr umferð og trufla þannig spil
Valsara, en allt kom fyrir ekki. 1
Valsliðinu voru ungir leikmenn
sem allir komu mjög vel frá
leiknum og eru þeir leikmennirn-
ir sem Valur verður að treysta á i
framtiðinni.
Ir liðið var frekar dauft i þess-
um leik. Baráttan var litil og
áhuginn einnig. Sá kraftur sem
var i liðinu i upphafi mótsins virð-
ist horfinn með öllu og betur má
ef duga skal, ef þeir ætla sér að
vinna Reykjavikurmeistaratitil i
ár. t liðinu eru ungir og efnilegir
leikmenn en einnig gamalreyndir
kappar eins og Vilhjálmur Sigur-
geirsson og Sigurður Svavarsson
sem reynast alltaf vel. Ásgeir
Eliasson knattspyrnumaðurinn
kunni, átti ágætisleik með ÍRlið-
inu, en liðið saknar greinilega
Brynjólfs Markússonar.
Mörk Vals: Gisli 8, Björn 7,
Steindór Gunnarsson og Gisli
Arnar Gunnarsson 3 hvor, Karl
Jónsson og Bjarni Jónsson 1 mark
hvor.
Mörk ÍR: Vilhjálmur og Jó-
hannes Gunnarsson 4 hvor, Guð-
mundur Þórðarson 3, Sigurður 3,
Asgeir 2, Steinn, Olafur og Jó-
hann Ingi 1 mark hver.
Páll iærði
Víking sigur
Víkingar bættu tveimur
stigum i safn sitt er þeir
sigruðu KR-inga með 23
mörkum gegn 20 í
Rey kja víkur mótinu í
handknattleik á mánu-
dagskvöldið. Leikurinn var
slaklega leikinn af beggja
hálfu og lítið augnayndi.
Það voru KR-irigar sem
skoruðu fyrsta mark leiksins og
var Ólafur Lárusson þar aö verki.
Jón Sigurösson jafnaði leikinn
fyrir Viking en siðan skoruðu KR-
ingar þrjú mörk i röð og breyttu
stöðunni i 4:1 sér i hag. Sami
munur héist siðan til loka hálf-
leiksins en i leikhléi var staðan
11:8 KR i vil.
I siðarihálfleik virtust Vikingar
öllu ákveðnari og þegar siðari
hálfleikur var hálfnaður hafði
þeim tekist að jafna metin 16:16.
Siðan var nokkurt jafnræði með
liðunum eða þar til á lokamin-
útunum að leikur KR varð hvorki
fugl né fiskur og Vikingar sigruðu
örugglega með 23 mörkum gegn
20 eins og áður er getið.
Það var fyrst og fremst stór-
leikur þeirra Páls Björgvins-
sonar og Steinars Birgissonar,
sem lék áður með Fylki, sem skóp
sigur Vikings. Til samans skor-
uðu þeir 13 mörk eða meira en
helming allra marka Vikings. Þá
má ekki gleyma markvörslu Rós-
mundar Jónssonar en hann varði
meðal annars tvö vitaköst.
Hjá KR var það ÍR-ingurinn
fyrrverandi Örn Guðmundsson
sem átti bestan leik. Varði hann
mark KR oft af stakri prýði, og
m.a. tvö vitaköst.
Einnig áttu þeir Þorvaldur
Höskuldsson og Haukur Ottesen
góðan leik.
Mörk Víkings: Páll Björgvinsson
7 t3v), Steinar Birgisson 6, Jón
Sigurðsson og Ölafur Jónsson 3
hver, Skarphéðinn óskarsson 2,
og Sigurður Gunnarsson og
Magnús Guðvinsson 1 mark hver.
Mörk KR: Haukur Ottesen 5,
Ólafur Lárusson 4. Þorvaldur
Guðmundsson, Friðrik Þor-
björnsson, Simon Undórsson og
Björn Pétursson, allir 2 mörk og
þeir Jóhannes Stefánsson, Þor-
varður Höskuldsson og Sigurður
Óskarsson 1 mark hver.
—SK
Góður sigur hjá Leikni
Leiknir vann góðan sigur á
Fylki i Reykjavikurmótinu i
handknattleik, i gærkvöld. Loka-
tölur leiksins urðu 30-26, eftir að
staðan i hálfleik hafði veriö 16-16.
Hafliði Pétursson var marka-
hæstur hjá Leikni með 11 mörk,
en hjá Fylki var Gunnar Baldurs-
son með 10.
Úr leik Vlkings og KR I fyrrakvöld. Jón Sigurðsson sloppinn I gegn og skorar örugglega.
Stjörnuleikur Þráins
dugði Armenningum ekki
Eftir sigurinn gegn Ár-
manni (22:21) eru Fram-
arar efstir í Reykjavíkur-
mótinu í Handknattleik. En
það er Ijóst að mikil breyt-
ing má verða á leik liðsins
ef það ætlar að halda efsta
sætinu til loka mótsins.
Liö Fram og Armanns buðu
hinum 64 áhorfendum sem lagt
höfðu leið sina i Laugardalshöll-
ina upp á nokkuð skemmtilegan
og spennandi leik þar sem liöin
skiptust á um að hafa forystu.
Armenningar byrjuðu leikinn
með miklum látum og eftir 24
minútur höfðu þeir náð góðri for-
skoti 10:5. En Framarar voru
ekki á þvi að gefast upp og tókst
að minnka muninn i tvö mörk fyr-
ir leikhlé 10:8 Armanni i vil.
Það voru siðan Ármenningar
sem skoruöu þrjú fyrstu mörk
siöari hálfleiks og svo virtist sem
þeir væru að ná afgerandi for-
ystu. En þá hrökk allt 1 baklás og
Framarar skoruðu næstu sex
mörk og breyttu stööunni i 17:15
sér i hag.
Ármenningum tókst siðan að
jafna aftur 18:18 en Framarar
voru sterkari á endasprettinum
og sigruðu með einu marki, 22:21.
Lið Fram er mjög breytt frá i
fyrra — margir ungir og efnilegir
leikmenn hafa bætst I hópinn s.s.
Björn Eiriksson, Viöar Birgisson
og óskar Jóhannesson. Bestan
leik að þessu sinni átti Gústav
Björnsson mjög snöggur og lag-
inn leikmaður. Einnig áttu þeir
Björn Eiriksson og Guðjón Er-
lendsson, sem nú lék sinn 200.
leik með m.fl. Fram, góðan dag.
Hjá Ármanni var Þráinn Ás-
mundsson langbestur og átti
snilldarleik. Einnig er vert að
geta frammistöðu þeirra Friðriks
Jóhannssonar og Jóns Vignis
sem báðir áttu góðan leik.
Mörk Fram:
Gústaf Björnsson 5, Arnar Guð-
laugsson 5 (2v), Björn Eiriksson
4, Viðar Birgisson 3, Jens Jensson
og Óskar Jóhannesson 2 hver, og
Sigurbergur Sigsteinsson 1 mark.
Mörk Ármanns:
Þráinn Asmundsson 12 (4v),
Friðrik Jóhannsson 3, Jón Vignir
og Óskar Ásmundsson 2 hver, og
þeir Björn Jóhannesson og Jón
Ástvaldsson 1 mark.
Leikinn dæmdu þeir Óli Ólsen
og Björn Kristjánsson og skiluðu
þeir hlutverkum sinum vel.
SK
Náby rekinn
A
frá Armanni?
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum sem fylgist með hand-
knattleiknum þessa dagana
hvursu illa liði Ármanns hefur
gengið. Liðið hefur innan sinna
raða marga mjög góða leik-
menn sem einhverra hluta
vegna hafa ekki náð saman sem
skyldi.
Heyrst hefur að óánægja sé
innan liðsins með þjálfarann 01-
fert Náby sem áður lék með Ár-
manni. Hver muni taka við
stöðu hans ef af brottrekstri
verður, er enn óvist, en Daviö
Jónsson sem hefur verið þjálf-
ari yngri flokka félagsins að
undanförnu hefur verið orðaður
við liðiö.
Það er ljóst að ef af þessu
veröur kemur það ser illa fyrir
liðið þegar tekið er tillit til þess
að tslandsmótið er nú i gangi og
er slæmt fyrir lið að þurfa að
skipta um þjálfara á miðju
keppnistimabili.
SK.