Þjóðviljinn - 24.11.1977, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.11.1977, Blaðsíða 1
UÚÐVIUINN Fimmtudagur 24. nóvember 1977 —42. árg. 263. tbl. Alþýðubanda- lagið fordæmir áróður gegn bændastéttinni SJÁ BAKSÍÐU Algjör met- afli Arið 1977 ætlar að verða algjört metaflaár. Skv. bráða- birgðatölum yfir heildarafla fyrstu 10 mánuði ársins sem Fiskifélag islands hefur sent frá sér var hann 1237.275 lestir en var á sama tíma i fyrra 865.681 lest. Er hann þvi þriðjungi meiri I ár. Mesta aflaár i sögu íslendinga var sildarárið mikla 1966. Það ár bárust á land 1243 þús. lestir. Ef jafnmikið veiðist í növem- ber og desember eins og veiddist i október sl. mun heildarársaflinn I ár nálgast 1450.000 lestir. 1 fyrra varð heildarársaflinn 985.700 lestir. I ár munar mest um loönu- aflann en 10 fyrstu mánuöi ársins var hann 764.099 lestir en sömu mánuöi i fyrra var hann 427.648 lestir. Botnfiskaflinn i ár er llka töluvert meiri en I fyrra eöa 415.320 fyrstu 10 mánuöina á móti 387.893 I fyrra. Miöaö er viö bráöabirgöatölur I fyrra lika. til aö fá réttan saman- burö. Endanlegar tölur veröa nokkuö hærri. Aflinn I október núna varö 108.188 lestiren var 41.547 lest- ir I fyrra. Mismunurinn er aö mestu leyti vegna þess aö I fyrra veiddist engin loöna. en 68.401 lestir I ár. —GFr Ragnar Antalda Formaður L.Í.Ú. ræðst heiftarlega á ríkisstjórnina: „Hefur gefist upp vid stjórn efnahagsmála” — sagöi hann í ræöu í gær „Ég tel aö uppgjöfin fyrir veröbólgunni sé svo aigjör, að menn treysti á, aö öllu verði bjargað með stöðugu gengissigi krónunnar." Þessi orð mælti Kristján Ragnarsson í setningarræðu sinni á 38. þingi Landsam- bands ísl. útgerðarmanna í gær. Fór hann hinum hörðustu orðum um rikisstjórnina og sagði að svo væri aðsjá og heyra að um algjöra uppgjöf á stjórn efnahagsmála væri að ræða. Bar hann saman ástandið eins og það var á dögum vinstri stjórnar 1974 og sagði að þá hefði verðbólguöldu verið af stýrt með bráða- birgðalögum sem nefnd voru „viðnám gegn verðbólgu" en nú sjáist engin merki þess að gripið verði til neinna ráðstafana. Stjórnmálamenn sem þannig kalla yfir sig óðaverðbólgu, virðast seint sóttir til ábyrgðar, sagði framkvæmdastjóri LÍO. —GFr Ragnar formaður þing- flokksins A fundi þingflokks Alþyöu- bandalagsins i gær var Ragnar Arnalds kjörinn formaður þingflokksins, og tckur hann viö af Lúövik Jóscpssyni, er kjörinn var formaöur Alþýöubandalags- ins á landsfundinum um siöustu helgi. Kortsnoj hefur tekið forystuna SIÁ SÍÐU 11 Boltinn út fyrir endamörk — forsætisráðherra í vanda I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I „Það er nú það” sagöi Björgúlfur Guömundsson, formaöur kjör- nefndar Sjálfstœöisflokksins, aöspuröur um hvort úrslit prófkjörs vœri bindandi um rööun á listann Það sem margir veita fyrir sér nú, eftir að Ijóst er að Albert Guðmunds- son setti forsætisráð- herrann Geir Hallgríms- son aftur fyrir sig í próf- kjöri Sjálfstæðisf lokksins í Reykjavík, er hvort nið- urröðun listans við kosn- ingar verður sú hin sama og úr prófkjörinu. Til aö forvitnast um þetta höföum viö samband viö Björg- úlf Guömundsson, formann kjörnefndar flokksins, og spurö- umst fyrir um þetta atriði. „Þaö er nú það”sagöi Björg- úlfur og hló viö. Hann sagöist hafa verið aö koma til landsins i fyrrakvöld og ætla aö halda fund um þetta mál um næstu helgi og sagðist þvi ekkert vilja um máliö segja. — En eru ekki ákveðnar regl- ur hjá ykkur um þetta? „Jú, vissulega eru lög og regiugerðir um þetta mál, en þær má teygja og toga af lög- fróöum mönnum, eins og þú veist, þannig aö ég get ekkert sagt á þessu stigi málsins.” — Koma úrslit prófkjörsins þér á óvart? „Eftir næstu helgi skal ég segja þér meira; en,jú, það kom mér sitt hvaö á óvart I úrslitun- um”, sagöi Björgúlfur, en vildi ekki aö svo komnu máli segja okkur hvaö þaö var, sem mest kom honum á óvart. Aö þvi er næst verður komiö hefur Albert Guömundsson þeg- ar boðiö forsætisráöherra að eftirláta honum fyrsta sætiö. Þvi miöur náöist ekki i Albert i gær til þess aö staöfesta þá frétt. Flokksformaðurinn er þó i vanda,þvi báöir kostir eru vond- ir, aö vera hornkerling á þing- listanum og aö sitja i náö Al- berts i öndvegi. Astandinu 1 framboösmálum Sjálfstæöis- flokksins i Reykjavik veröur best lýst meö oröum Júliusar Sveinbjörnssonar, kaupmanns, i Visi i gær: „Boltinn fer stundum út fyrir endamörk”, sagöi hann. — S.dór I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I B I B I I B I B I ■ I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.