Þjóðviljinn - 24.11.1977, Side 2

Þjóðviljinn - 24.11.1977, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. nóvember 1977 Skrifið — eða hringið í slma 81333 Umsjón: Guðjón Friðriksson Oddur Jónsson spyr Oddur Jónsson. vistmaöur á Hrafnistu, haföi samband við blaðið og taldi sig órétti beittan hvað áhrærir greiöslu ellilauna. — Er það þá fyrst til að taka, sagði Oddur, að er ég var 67 ára taldi ég mig eiga rétt á ellilaun- um. Er ég hugðist vitja þeirra fékk ég það svar, aö þar sem ég stundaði ennþá vinnu yrði ég aö biöa. Og rétt er það, aö ég var ennþá að basla við að vinna þeg- ar svo bar undir,þótte.t.v. væri meira af vilja en mætti þvi ég var þá farinn að tapa sjón. Ég skildi nú ekki þessa sanngirni en viö þetta sat og þessa aura hef ég aldrei fengið og tel mig þvi eiga þá inni. Liöu núárin og loks fékk ég ellilaun, rúmlega sjöt- ugur að aldri. En þá kom annað i ljds, sem ég hef aldrei getaö skilið. Ellilaun min reyndust lægri en þeirra, sem yngri voru. Mig minnir að sá munur hafi numið á þriðja þús. kr. á mán- uði. Ég spurði lögfræðing hvort þetta fengi staðist. Já, sagði hann, lögin eru svona. — Finnst þér þetta réttlátt, spuröi ég? — Ja, ekki hef ég búið til lögin,ann- aö svar fékk ég ekki. Og enn líða árin og nú er ég á Hrafnistu. Fyrir nokkru fór ég til forstjóra trygginganna og sagöist vera kominn til að sækja min ellilaun. Mér var sagt að ég fengi ekki neitt þvi ég væri á sjúkradeild og launin gengju beint þangaö. Og nú spyr ég: Hver hefur dæmt mig á sjúkra- deild? Ekki hef ég oröið var viö neitt læknisvottorð um það? Ekki hef ég orðið var viö neina læknisskoöun til aö byggja á dóm um vist á sjúkradeild. Ég klæði mig sjálfur, hátta sjálfur, fer út á hverjum degi ef ekki er vitlaust veöur. Hvað er að? Jú, ég er blindur. Og svo lærbrotn- Páll Hildiþórs: Fjallkonuljód Bínu rauðsokku (Mannlifs myndir VI) Er ég Bláskógaheiðin á bak við vélamenninguna, við hreina og ósnortna ljóð heiðarinnar og öræfanna Islands lag máttur þess og dýrð i töfrum hinnar nóttlausu voraldrarveraldrar? Nei. Er ég álfkonan i dularheimum þjóðsögunnar, ljósið i lampa kynslóðanna i gegnum hin löngu vetrarmyrkur hin fórnandi þjáning og gleði i hinum þunga straum áranna? Nei. Er ég hin gifta ambátt barnamaskina, vinnudýr i kúgunarkerfi karldýrsins? Nei. Er ég hin brosmilda dúkka, sem vill láta kjassa sig og færa sér morgunkaffið i rúmið á morganna. Nei. Nei. Hvað þá? Ég er hvunndagurinn i brimi og stormi strandarinnar hin flatbrjósta kona i bláum galla bónuskerfisins háþrýstisvæðið i islensku efnahagslifi, morgunsól hraðfrystihúsanna, traktorsgleði landbúnaðarins, sópranrödd kirkjukórsins i hinu hnignandi karlaveldi þjóðarinnar. (1977) aði ég en það gréri i hvellinum og ég geng hér um eins og ekk- ert hafi i skorist, það vita allir hér. Hvað á ég að gera á sjúkra- deild? Er hægt að setja menn á sjúkradeild og taka af þeim ellilaunin þótt þeir hafi ekkert þar að gera? Ég fæ ekki einu sinni að vita hvað ellilaunin eru há svo ég geti sett þau á skatt- skýrslu. Ég er mjög óánægöur með þetta og þvi til ég spyrja og vænti svars frá þeim, sem með þessi mál fara: 1. A maður, sem er orðinn 67 ára, ekki rétt á ellilaunum, þótt hann sé enn eitthvað að basla við að vinna? 2. Ef svo er, á ég þá ekki þessi eliilaun inni hjá rikinu úr þvi ég fékk þau ekki greidd? 3. Er þaö eölilegt og réttlátt að eldri menn fái lægri ellilaun en hinir yngri? 4. Er hægt að dæma menn á sjúkradeild, sem eru jafn hress- irog ég og hafa þannig að þeim fé? Þetta tel ég mig eiga rétt á að fá upplýst, sagði Oddur Jóns- son. Klæöiö börnin vel í kuldunum Kona hafði samband við Þjóðviljann og kvað áberandi hversu illa mörg böm væru klædd þegar frost væri og vetr- arveður. Væru þau oft á tiðum úti á kvöldin og heföu hvorki húfur né vettlinga. Vildi hún að- vara mæður um að klæða þau betur þvi aö bæði liöi þeim illa svona köldum, kannski kulda- bólgnum um hendur, og gætu auk þess fengið liðagigt. Prófkjör Xlndirritaður hefir að undan- förnu verið að reyna að koma mótmælagrein inn I blöð Sjálf- stæðisflokksins, en ekki tekist það. Hverju hefi ég viljað mót- mæla? Einfaldlega þvi, að aldrei hafa sést á framboðslista flokksins jafn margir fulltrúar peningavaldsins á þeim bæ, og nú sjást á svokölluðum próf- kjörslista. Nefnum nokkur nöfn: Þar er auðvitað Geir sjálfur (Shell, H. Ben., Nói, etc.). Guðlaugur nokkur Bergmann (heildsali, kaupm., Karnabær, Bona- parte). Albert Guömundsson (málsvari British Petroleum Company, i borgarstjórn, er umboðsmenn B.P. hugðust koma upp oliustöö rétt hjá vatnsbólum Reykvikinga, Gvendarbrunnum). Erna Ragn- arsdóttir, (kona Gests Olafsson- ararkitekts, sem undanfarin ár hefir mokaö upp milljónatugum hjá Reykjavikurborg). Hilmar Fenger (Nathan & Olsen). EllertSchram (úr þekktriheild- salafjölskyldu). Jón Ingvarsson (tsbjörninn hf., fulltrúi útgerð- arauðvaldsins). Nei. Það er ekki von að mót- mæli gegn sliku mannvali fáist birt. En, verði Sjálfstæðisfl. þessir fulltrúar aö góöu. Fyrrverandi Sjálfstæöismaöur. Þrjár Oddu- bækur Bókaforlag Odds Björnssonar hefur nýlega sent frá sér þrjár bækur um öddu, eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson, I 4. útgáfu. Bækur þessar komu fyrst út á ár- unum kringum 1950 og uröu þær strax vinsælar hjá börnum og unglingum, og hafa notið siauk- inna vinsælda, enda eru bækurn- ar skemmtilegar aflestrar og prentaðar með greinilegu letri sem börnum veitist auðvelt að lesa. Þessar þrjár bækur nefnast: Adda, Adda i menntaskóla, Adda trúlofast. öddu-bækurnar eru alls sjö talsins og allar prýddar teikn- ingum eftir Halldór Pétursson listmálara. Prentverk Odds Björnssonar prentaði. Lífshættuleg eftirför Hörpuútgáfan hefur sent frá sér nýja bók eftir enska spennu- sagnahöfundinn Gavin Lyall. Bókin er 188 bls. Skúli Jensson þýddi. Hún er prentuð og bundin i Prentverki Akranes hf. Hilmar Þ. Helgason geröi káputeikningu. Gavin Lyall starfaði um skeið sem flugstjóri i breska flughern- um og var lengi flugmálafrétta- ritari við Sunday Times og fleiri blöð. Fyrsta skáldsaga hans kom út 1961. Hann hefur hlotið „silfur- rý.tinginnsem eru verðlaun sam- bands breskra spennusagnahöf- unda. 1 fyrra kom út á fslensku Teflt á tæpasta vað en þessi bók Llfs- hættuleg eftirför gerist I Noregi. Ný íslensk skáldsaga: Jakob og ég Iðunn hefur sent á markað nýja skáldsögu eftir Gunnar Gunnars- son, sem nefnist Jakob og ég. Aðalsögupersónan er miöaldra bankaútibússtjóri. 1 lífi hans veröa skyndilega mikil straum- hvörf. Hann spyr sjálfan sig áleit- inna spurninga: Hvers vegna vil égrugla lifmitt? Hvars vegna iöa ég I skinninu að sleppa frá eðli- legriog vissriframabraut I stofn- un? Hvers vegna langar mig að spilla öllum minum venjum? Hvers vegna vil ég hlaupa frá tryggri tilveru til þess aö ramba meöal ókunnugra og glotta fram- an I gamla vini? Hvers konar flfl er ég? Upp frá þessu tekur llf hans gerbreytta stefnu. Nýttumhverfi, ný viðhorf og nýir vinir koma til sögunnar. Margþætt og hröð framvinda atburða tekur við. Flosi ólafsson leikari og rithöf- undur fylgir bókinni úr hlaði á bókarkápu og farast honum m.a. orð á þessa leið: „....áriö 1973 kom út fyrsta skáldsaga hans (þ.e. Gunnars), Beta gengur laus. Sagt hefur ver- ið um þá bók, „að allt hafi verið i botni” og eru það vist orð að sönnu. Um skáldsöguna Jakob og ég má vissulega segja eitthvað svip- að... vonlaust er að leggja hana frá sér fyrr en að lestri loknum, þvi nú beitir höfundur fyrir sig alls kyns stilbellibrögöum og þar aö auki er bókin gædd hraða I frá- sögn og er óvenjulega spenn- andi.... Bókin Jakob og ég er bráðskemmtileg aflestrar.” Setberg annaðist prentun bók- arinnar, en bundin er hún I bók- bandi Prentsmiðjunnar Eddu. Káputeikningu gerði Brian Pilk- ington. Bókin er gefin út bæði sem kilja og i' bandi.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.