Þjóðviljinn - 24.11.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 24.11.1977, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 24. nóvember 1977ÞJÓÐVILJINN — SIÍ>A 3 er/endar fréttir i stuttu ntáti Andreotti vill ekki spilla samstarfi við kommúnista RÓM 21/11 Reuter — Giulio Andreotti, forsætisráöherra Italiu, sagöi i dag aö hann liti svo á, aö samvinna stjórnar hans, sem er minnihlutastjórn Kristilegra demókrata, viö kommúnista nyti góös álits er- lendis, og mun hann þar eink- um eiga viö Vesturlönd. Andreotti, sem nýkominn er heim úr opinberri heimsókn til Kanada, sagöi aö erlendis værilitiöá þaö meö velþóknun aö italski kommúnistaflokkur- inn og fjórir aörir stjórnar- andstööuflokkar heföu ásamt Kristilega demókrataflokkn- um gert sáttmála um aö bjarga italska þjóöfélaginu frá núverandi hættuástandi. Andreotti kvaöst engu vilja um þaö spá hvaö þetta sam- starf, sem veitir kommúnist- um veruleg áhrif á stefnu stjórnarinnar, entist lengi. En hann bætti þvi viö aö erlendis væri Italia illa ræmd fyrir stjórnarkreppur, og sjálfur kvaöst hann staöráöinn I aö gera ekkert, sem stytt gæti lif- daga núverandi stjórnar. Arafat (i miöiö) á fundi meö öörum PLO-leiötogum I Damaskus — samstaöa meö Sýrlandi gegn sýrland og PLO gegn Sadat DAMASKUS 22/11 Reuter — Sýrland og aöalsamtök Pale- stlnumanna (PLO) hvöttu I dag almenning I Arabalöndum til þess aö gera allt, sem á hans valdi stæöi, til þess aö gera aö engu þaö, sem i yfir- lýsingunni er kallaö „samsæri Sadats og heimshreyfingar sionista.” Var tilkynning gefin út um þetta eftir aö þeir Hafes al-Assad Sýrlandsforseti og Sadat. i hvetja Egypta Jasser Arafat, leiötogi PLO, höföu setiö saman á fundum. 1 yfirlýsingunni eru egypska þjóöin og herinn hvött til aö láta engan bilbug á sér finna gagnvart meintum svikum stjórnar Sadats viö málstaö Araba. — 1 frétt frá Amman, höfuöborg Jórdaniu, segir aö Jórdanlustjórn leggi nú aö Sýrlendingum aö draga úr hörkunni I afstööu sinni til Sadats. Öjlugasti jarðskjálfti ársins BUENOS AIRES 23/11 Reuter — Mikill jarðskjálfti varö I morg- um I fjórum löndum Suöur-Ameriku og olli mestu tjóni I Argen- tinu, samkvæmt fregnum sem enn hafa borist. Er sagt aö um 50 manns hafi farist af völdum jarðskjálftans þar I landi og um 250 slasast. Þetta er öflugasti jaröskjálftinn I heiminum þaö sem af er árinu. Kanadískt Watergate OTTAWA 22/11 Reuter — Kanadiska stjórnin reyndi i dag fyrir rétti aö stööva óháöa rannsókn á meintum njósnum Konunglegu kanadisku ridd- aralögreglunnar, en svo nefn- ist voldugasta og frægasta lögreglustofnun Kanada. Rannsóknir hafa leitt I ijós sönnunargögn, sem benda til þess aö riddaralögreglan hafi gert sig seka um ólöglegar hlerarnir, brennur og ýmis- legt annað i þeim dúr gagn- vart stjórnmálaflokkum, sem yfirvöld gruna um athafnir gegn stjórninni. Málarekstur þessi hófst þegar fram komu ásakanir um að riddaralögreglan hefði 1972 framið innbrot i frétta- stofu vinstrimanna i Montre- al. Ráöherrar Kanadastjórnar neita aö svara spurningum um meint ólöglegt afhæfi riddara- lögreglunnar og stjórnin sakar stjórnarandstöðuna um aö reyna aö flekka skjöld lögregl- unnar. Hermenn flýja austuryfir AUSTUR-BERLIN 21/11 Reuter — Austurþýska frétta- stofan ADN skýrði svo frá I dag aö vesturþýskur hermaö- ur, sem um sfðustu helgi ók herbll á fullri ferö gegnum landamæravaröstöö á vegum Vesturveldanna og komst yfir á austurþýskt yfirráöasvæöi, heföi beöist hælis I Austur- Þýskalandi sem pólitiskur flóttamaður. Fréttastofan kvaö yfirvöld hafa beiöni hans til athugunar. Haft er eftir vesturþýskum heimildarmönnum aö nokkuö hafi verið um þaö að vestur- þýskir hermenn hafi flúiö til Austur-Þýskalands sföustu ár- in, en hinsvegar eru austur- þýsk yfirvöld oftast fréttafá um þaö, hvort þeir fá þar landvistarleyfi eður ei. INDLAND; Mannskæðasti fellibylur á þessan NÝJU-DELHI 23/11 Reuter — Aö minnsta kosti um 10.000 manns hafa farist af völdum fellibyls, sem skall á suöurindverska fylk- inu Andhra Pradesh á laugardag- inn, og er þetta mesta tjón af völdum fellibyls á. Indlandi á þessari öld. Björgunariiö reynir nú aö ná til einangraðra svæöa, þar sem matarleysi og sjúkdóm- ar ógna lifi fjölda fólks. Gifurlegar flóööldur gengu yfir stór svæöi viö ósa fljótsins Krishna og á Guntur-svæðinu og sópuöu algerlega burt yfir tuttugu þorpum. Kólera hefur þegar brot- ist út i búðum, þar sem flóttafólki af flóöasvæðunum hefur verið safnaö saman. Haft er eftir ráö- herra I stjórn Andhra Pradesh aö hjálparstarfið væri algerlega ófullnægjandi og teföu þrætur embættismanna mjög fyrir þvi. 1864 gekk fellibylur yfir nokk- urnveginn sama svæöið og grand- aöi um 35.000 manns I borginni Machilipatnam einni. Skæöasti fellibylurinn á Indlandi til þessa á siöari árum skall á fylkinu Órissa fyrir norðan Andhra Pradesh I nóvember 1971 og varö nærri 10.000 manns aö bana. Omögulegt hefur enn reynst aö meta þann skaða, sem fellibylur- inn hefur valdið á uppskeru og eignum. Svæði þetta er frjósamt og mikilvægt akuryrkjusvæöi, og hefur uppskeran eyöilagst þar á stórum svæöum og þúsundir hús- dýra farist. Annar fellibylur gekk fyrir tiu dögum yfir fylkið Tamil- nadú, fyrir sunnan Andhra Pradesh, og olli einnig miklu tjóni. í einni frétt er þvi haldiö fram aö allt aö 20.000 manns hafi farist i Andhra Pradesh. Egyptar svara öðrum Arabarikjum: Úrelt viðhorf KAIRÓ 23/11 Reuter — Egypsk stjórnarvöld hafa lokaö upp- lýsingamiöstöö Palestinumanna i Kairó og skrifstofu Fata, stærstu skæruliöasamtaka Palestinu- manna. I siöastliöinni viku lokuöu Egyptar útvarpsstöö Palestinu- manna i höfuöborg sinni. Jafn- framt hefur 15 Paiestinumönnum veriö visaö úr landi. Hér er greinilega um aö ræða viöbrögö egypskra yfirvalda gagnvart haröoröri gagnrýni Palestinumanna á Sadat Egypta- forseta vegna heimsóknar hans til Israels. Stjórnarvöld hafa þó ekki ennþá lokað Kairó-skrifstofu PLO, aöalsamtaka Palestinu- manna, sem flest skæruliöasam- tök þeirra eru aöilar aö. Egypsk blöö svöruöu I dag fullum hálsi gagnrýni flestra annarra Araba- rikja, sem brugöist hafa illa viö heimsókn Sadats, og söI-Jiöu stjórnir þessara rikja um „sjúk- legar Imyndanir” og aö þær liföu i liðna tlmanum. Bútros Kali, settur utanrikis- ráðherra Egypta, hélt i dag fund meö ambassadorum Afrikurikja og hvattiþáóbeinttilþess að taka ekki aö svo stöddu upp stjórn- málasamband viö Israel. Flest Afrikuriki slitu stjórnmálasam- bandi viö Israel aö hvatningu Arabarikja eftir striö Israels og araba 1973. BOKASSA KEISARI Napóleon er mfn fyrirmynd PARIS 22/11 — Bokassa keisari I Miö-Afriku hefur ákveöiö aö krýna sig meö keisaralegri viö- höfn 4. næsta mánaöar og mun hann þá fara aö dæmi Napóleons mikla og setja kórónuna sjálfur á höfuö sér. Hefur þessi nýbakaði keisari hinn mesta átrúnaö á Napóleoniog segir hann vera sina fyrirmynd i hvivetna. Bokassa var áöur undirforingi i franska hernum og þjónaöi meðal annars I Indókina, enda var land hans þá frönsk nýlenda. Hann rændi völdum i Miö-Afriku 1966 og rikti fyrst sem forseti, en geröi sig aö keisara siöastliöiö ár. Er hann þá einn af þremur keisur- um, sem eftir eru I heimium, hin- ir eru mikadóinn i Japan og sja- inn i Iran. I viötali við fréttamenn sagöi Bokassa aö hér eftir ætlaöi hann aö táka upp vægari stjórn- arhætti, svo sem aö hætta aö láta skera eyrun af mönnum fyrir þjófnaö, en hann hefur til þessa oröiö frægur fyrir slikar réttar- farsaögeröir og aörar þaöan af hrottalegri. I tilefni krýningarinnar hefur keisari látið gera sér tveggja smálesta þungt hásæti úr bronsi, auk þess sem sigurbogar hafa veriö reistir aö franskri fyrir- Bokassa i „nýju fötunum keisar- ans.” mynd. Aöspuröur hvort slík dýrö stingi ekki fullmikiö i stúf viö llfs- kjör þegnanna, sem ekki munu vera upp á þaö besta, sagöi keis- ari aö ekki væri hægt aö „skapa mikla sögu án fórna.” Sagöi hann þegna sina óöfúsa til þessara fórna og hélt þvi ennfremur fram að I keisaradæminu þjáöist eng- inn af sulti eöa vannæringu, en þaö stangast á viö aörar heimild- ir. Þetta nýtilkomna keisara- dæmi er tæplega sex sinnum viö- lendara en lsland og Ibúar um j hálf þriöja miljón. ÓDÝRAR KULDAIÍLPUR no. 48 — 56 kr. 6.873.- ULLARNIÍFUR ULLARPEYSUR f jölbreytt úrval. ULLARLEISTAR LAMBHÚSHETTUR TÁTIUUR SOKKAR með tvöföldum botni STILL-LONGS ULLARNÆRFÖT Nælonstyrkt dökkblá fyrir börn og fullorðna VINNUFATNAÐUR REGNFATNAÐUR SJÓFATNAÐUR VINNUHANSKAR SJÓVETLINGAR ULLARGRIFFLUR LEÐURHANSKAR GÚMMIHANSKAR ULLARTEPPI VATTEPPI VINNUSKYRTUR Mikið úrval HERRANÆRFÓT KLOSSAR Hvítir/ svartir og brúnir með og án hælkappa. KULDASTÍGVÉL fóðruð/ reimuð. GÚMMISTÍGVÉL Reimuð SJÓSTIGVÉL GÖNGU- OG VINNUSKÓR SNYRTIVÖRUR TÓBAKSVÖRUR VASAHNÍFAR DOLKAR Ánanaustum Simi 28855

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.