Þjóðviljinn - 24.11.1977, Síða 8

Þjóðviljinn - 24.11.1977, Síða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. nóvember 1977 Viðtal við Þorgrím Starra Alyktun um landbúnaöarmál var merkasta samþykkt nýafstaftins landsfundar AlþýOubandalagsins, segir Þorgrlmur Starri f þessu viOtali. Offramleidslukenningin er stórkostleg blekking Einn af fuiltrúum á ný- afstöðnum landsfundi Alþýðubandalagsins var Þorgrímur Starri/ bóndi í Garði i Mývatnssveit. Þegar Þorgrímur leit inn til Þjóðviljans var kær- komið tækifæri notað til þess að rabba við hann um landsfundinn, og fannst blaðamanni liggja beint við að spyrja fyrst: Alþýðubandalagið eitt fær mótað slíka stefnu — Hvaö þótti þér merkast þeirra mála, sem fjallaö var um á nýafstöönum landsfundi, Þorgrimur? — Þaö er fljótsagt. Þaö var ályktunin um landbúnaðarmálin. Þaö hefur nefnilega ekki veriö til nein stefna i landbúnaöarmálum i íslandi. Þess geldur landbún- aðurinn fdag. Engin starfsgrein i landinu getur siöur staöist happa og glappa stefnu kapitalismans, með tilheyrandi sveiflum og hringavitleysu. Það er undan þessari röngu og háskalegu póli- tik, sem landbúnaðurinn og bændur stynja i dag, og þar eru þeir ekki einir á báti, þótt þeir veröi verst úti. Borgaraflokk- arnir bera ábyrgö á þvi hvernig komiö er. Frá þeim er þvi alls engrar stefnu aö vænta i land- búnaöarmálum. Alþýöubandalagið er eini flokk- urinn, sem eðli málsins sam- kvæmt er fær um að móta slika stefnu. Það þarf sósialska yfirsýn til slikrá hluta, meta gildi land- búnaðar i þjóöfélaginu i viðustu merkingu, byggja upp stefnu i landbúnaðarmálum út frá sjónarmiðum samvirks sam- félags en ekki sundurvirks i einu og öilu, eins og það kapítaliska er. Ég tel þvi hiklaust það merkasta, sem liggur eftir nýafstaðiö flokksþing Alþýðubandalagsins þá ályktun, sem samþ. var á landsfundinum um landbúnaöar- mál, þskj. nr. 29, og einnig þaö plagg, sem er þskj. nr. 13 og ber yfirskriftina: Grundvöllur land- búnaöarstefnu Alþýöubanda- lagsins.: Undirtitill: Til úrvinnslu fyrir landbúnaöarnefnd. Meö samþ. landsfundar á ályktuninni um landbúnaöarmál hefur Alþbl. skuldbundið sig, svo sem sjálf- sagt var, til að styöja bænda- stéttina meö ráöum og dáö i þvi striöi, sem hún verður nú, vegna ráösmennsku borgaraflokkanna, aö heyja fyrir lifi sinu. og forystu- mönnum bænda til stór- skammar I niðurlagi þessarar sam- þykktar eru gefin fyrirheit um ráðstefnu á vegum flokksins i byrjun næsta árs, þar sem fjallaö veröur sérstaklega um stefnu- mörkun i landbúnaðarmálum. Þar veröur byggt á þeirri gagn- merku samþykkt á þskj. nr. 13. Ég vil benda á, að stefna Alþýðu- bandalagsins i islenskum atvinnumálum, sem þaö skákar fram gegn þeirri sjálfsmorös- stefnu afturhaidsins aö láta erlenda auöhringi yfirtaka islenska atvinnuvegi er botnlaus, sé ekki stefna i landbúnaöar- málum lögö fram i nafni flokksins, vandlega unnin og felld inn I islenska atvinnustefnu. Fyrir þessu eru augljós rök, sem ekki ætti að þurfa aö tiunda hér. — Nú er mikið rætt um land- nýtingu og ofbeit i þvi sambandi. Hvert er álit þitt á þvi máli? — Það er sjálfsagt mál aö gefa þessu gaum. Við megum aldrei horfa fram hjá náttúruverndar- sjónarmiðum. Landvernd og landnýting er tvimælalaust hags- munamál bænda. Þótt sumir áliti bændur skemmdarvarga á þessu sviði,þá eru bændur eina stéttin, sem þarna hefur beinna hags- muna að gæta. Og þvi er þeim best trúandi fyrir þessari varð- veislu. Offramleiðslukenningin er biekking — Hvað viltu segja um offram- leiðslukenninguna? — Ég er fyrir löngu oröinn upp- gefinn á þessu eilifa kjaftæöi um offramleiöslu. Hér er ekki um neina offramleiöslu aö ræða, i réttum skilningi þess orö. Hér er hinsvegar sölutregða, sem búin er til af stjórnvöldum. Verölag á búvörum var hækkað óeölilega meö lækkuöum niðurgreiöslum, samtimis þvi sem mögnuð var veröbólga, sem þessi rlkisstjórn hefur gert og haft að aöalmark- miöi og sem hefur leitt af sér si- hækkandi rekstrarkostnað bú- anna og hinsvegar stórminnkandi kaupmátt launafólks i landinu, sem er meginhluti þeirra neyt- enda, sem kaupa okkar fram- leiöslu. Ef samræmi væri milli framleiðslukostnaðar á landbún- aðarvörum og kaupgetu þá væri núverandi smjörfjall löngu bráðn- að i mögum almennings á Islandi. Og kjötútflutningur fallinn niöur undir núll. Þessi framleiðsla hef- ur ekki aukist undanfarin ár svo neinu nemi, enda hefur það sýnt sig, að þegar veriö hefur heil- brigðari stjórn i landinu, meö þátttöku Alþýöubandal. að þá hafa horfið smjörfjöll og kjöt- haugar, sem fyrir voru frá tið fyrrverandi afturhaldsstjórna. Á þaö má benda, að ekki skeikar miklu að dilkakjötsframleiðslan sé nálægt þvi að vera 60 kg. á mann I landinu, ef frá eru dregnir 20 þús. manns, sem annaðhvort fyrir bernskusakir hafa ekki tekið tennur til að tyggja kjöt, eða eru búnir að missa þær fyrir elli sak- ir. Ég held, að þessi afturhalds- pólitik hafi ekki enn breytt svo neysluvenjum þjóðarinnar að landsmenn yfirleitt myndu kjósa sér þrjár máltiðir á viku af svo á- gætum mat, ef að verð hans væri i samræmi við kaupgetu, miðað við annað, sem á boðstólum er. Þetta er hið sanna. Offram- leiðslulygin er undirstaðan at ráðstöfunum Stéttarsamb. bænda og annara slikra aðila og þess- vegna eru ráðstafanir þeirra rangar og fjandsamlegar bænd- um. I samþykktum Alþýðubanda- lagsins kemur einmitt fram það sjónarmiö, sem ég er hér að túlka. Vísitölubúið algjört há- mark — Hver er skoðun þin á áróðr- inum fyrir sifellt stækkandi bú- um? — Hann hefur nú ætið verið á- byrgðarlaust blaður, og gleggsta dæmið um stefnuleysið i landbún- aðarmálum. Þetta sifellda kapp- hlaup um stækkun búa i höndum einyrkjans er sömu ættar og si- aukin eftirsókn launamanna og verkafólks um lengingu vinnu- tima og eftirvinnu. Bæði frá hag- kvæmnis- og félagslegum sjónar-. miðum er visitölubúið algjört há- mark á bústærð einyrkjans og I flestum tilvikum of stórt. Vitan- lega geta verið stærri bú i félags- rekstri,en bústærðin á hvern ein- stakling yrði ekki meiri fyrir það. Það örlaði á skilningi á þessu á Stéttarsambandsfundinum, og það má virða það, sem vel er gert, þvi það er ekki svo margt I þá átt. Beinir samningar við rík- isvaldið — Nú er rætt um það að leggja niður sex-mannanefndina og taka i þess stað upp beina samninga við rikisvaldið um afurðaverðið. Hver er afstaða þin til þess? — Ég tel tvimælalaust rétt að taka upp beina samninga. Full- trúar neytenda I sex-manna- nefndinni eru umboðslausir, eins og allir vita. Samningar beint við rikisvaldið er það eina, sem vit er i, enda er rikisvaldið sá aðili sem mestu ræður um verðlags- þróunina I landinu og efnahags- mál og getur þvi, að þvi er virðist, riftað öllum ákvörðunum, sem aðrir taka, á sama hátt og sifellt er verið að eyðileggja þá samn- inga, sem gerðir eru við launa- fólk. Takist ekki samningar við rikisvaldið verða bændur að nota þann rétt sem þeir hafa eins og aðrir til að beita samtakamætti sinum. Niðurgreiðslur og útflutn- ingsuppbætur — Hvað viltu segja um hinar umdeildu niðurgreiðslur? — Niðurgreiðslur landbúnað- arvara eru mál stjórnvalda, hvort þau vilja heldur fara þá leið eða að halda uppi forsvaranleg- um kaupmætti meðal almennings og haga efnahagsmálum á þá lund að á jafn ágætu landbúnað- arlandi og Islandi sé hægt að reka búin þannig, að bændur hafi ekki lægri tekjur en aðrir, miðað við sitt vinnuframlag, án þess að neinar niðurgreiðslur þurfi að koma til i viðskiptum við velmeg- andi neytendahóp. Útflutningsuppbæturnar marg- umtöluðu eru auðvitað ein ofboðs- leg hringavitleysa, enda fyllilega samboðnar aðferðir núverandi stjórnvöldum, sem með skipuleg- um hætti, eins og áður er lýst, hafa skapað sölutregðu á iand- búnaðarvörum á innlendum markaði. Þeir, sem óskapast mest yfir útflutningsuppbótum og þeim háu fjárhæðum, sem i þær fara, hafa ekki, mér vitanlega, getið um aðrar útflutningsupp- bætur, sem nú er verið að inn- heimta hjá landsfólkinu og sem efalaust velta á svimháum upp- hæðum, en þar á ég við sihækk- andi raforkuverð, sem að stórum hluta gengur til aö gefa hálft afl Búrfellsvirkjunar úr landi. Og bráðlega bætist Grundartangi við með álika hluta af Sigölduvirkj- un. Bóndastaðan krefst fjöl- þættrar menntunar — Hver er afstaða þin til stjórnar á fjárfestingu i landbún- aði? — Hún er tvimælalaus nauð- syn, enda bent á það i ályktun- inni. Þvi er vitaskuld ekki að leyna, að kjör bænda eru ákaflega misjöfn. Þar ber mjög margt til svo sem misjöfn landgæði bú- jarða og heilla héraða, svo og hvernig hverjum einstökum bónda tekst að inna sitt starf af hendi. Það er misjafn sauður i mörgu fé, og sumir bændur eru ekki starfi sinu vaxnir og reka bú sin illa. Það er hinsvegar rétt að taka það fram, sem sjaldan eða aldrei er gert, aö bóndastaðan krefst fjölþættari menntunar og kunnáttu heldur en nokkurt annað starf i þjóðfélaginu, eins og bú- skapur þarf að vera rekinn i dag. Það eru þvi margir kallaðir en fá- ir útvaldir, eins og viðar. Þar fyr- ir er það auðvitað einn liðurinn i nauðsynlegri og nýtilegrí land- búnaðarstefnu, að halda landinu I byggð og aðstoða þá bændur, sem lakar eru settir af ýmsum ástæð- um. Ber þú sjálfur f janda þinn —- Telur þú að bændur sinni stéttarmálefnum sinum eins og vert væri? — Nei, alls ekki. Þeir eru ekki nándar nærri nógu stéttvisir. Og þó að til séu voldugar félagsstofn- anir eins og Stéttarsamband bænda og Búnaðarfélag Islands, já.og kaupfélögin, þá er hinn al- menni bóndi ekki nándar nærri nógu virkur þátttakandi I stjórn- un þessara samtaka. Þess vegna geta þau ódæmi gerst, að félags- samtökum bænda er iðulega skákað i fylkingarbrjóst með at- vinnurekendum I kjarabaráttu launþega. Þar með eru þeir að berjast beint gegn hagsmunum sjálfra sin, þvi það er auöskiliö mál, að þvi meiri kaupgeta sem er hjá launþegum, þeim mun betra verð 'óg þvi ’méíri salá’ á framleiðslu bænda. Á þessu verða bændur sjálfir vitaskuld að ráða bót hið bráðasta. Hinsvegar tel ég það hörmuleg tiðindi þegar stjórn Alþýðusam- bands íslands tekur þátt i þeim kór, sem jarmar hæst um offram- leiðslu-lýgina I dag. Það tel ég að stjórn ASl hafi gert með þvi að setja frám þá kröfu, i sambandi við hækkun á verði landbúnaðar- afurða, að bændur taki á sinar herðar sölutregðusyndabagga is- lenskra stjórnvalda. Leigupenninn — Hvað viltu segja um áróður Dagblaðsins og Alþýðublaösins gegn islenskum landbúnaði? — Um kratana hef ég nú lítið aö segja, þeir verða vonandi að núlli I næstu kosningum, svo að það er stutt i að þeirra fleipur sé ekki þess virði að svara þvi, og væri best að þeirra mas væri gleymt, nema þá sem víti til varnaöar. Um Jónas greyið á Dagblaðinu vil ég segja þér, Magnús minn, aö út Framhald á 14. siðu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.