Þjóðviljinn - 24.11.1977, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. nóvember 1977
Starfsmaður
Þjóðviljans
þjálfar hol-
lenska
landsliðið í
nútímafim-
leikum
Dana Jónsson, fimleikaþjálfari
og starfsmaöur Þjóöviljans, er á
leiö til Hollands, þar sem hún er
landsliösþjálfari i nútimafimleik-
um. Dana, sem þjálfar hjá Gerplu
nokkra tima i viku, fékk boö frá
hollenska íþróttasambandinu,
þegar hún var stödd i Sviss, aö
fylgjast meö heimsmeistaramót-
inu i nútimafimleikum, um aö
koma til Hollands og þjálfa lands-
liöiö i hálfan mánuö. Dana, sem
getur ekki unniö fyrir sér hér meö
þjálfun, er sum sé aö þjálfa eitt af
sterkari landsliöum heims um
þessar mundir. Einkennilegt.
— G.Jóh.
Reykjavíkurmótið í körfubolta:
KR-ingar sigursælir
Aöeins einum leik er nú ólokið
I Reykjavikurmótinu i körfu-
knattleik og er það úrslitaleik-
urinn i 2. fl. karla þar sem
eigast við lið 1R og Fram.
KR-ingar hafa sigrað i þrem-
ur flokkum af sex sem er mjög
góður árangur. Sigruðu þeir i
Mfl. karla, 1. fl. karla og 4. fl.
karla. Erkifjendurnir ÍR-ingar
hafa góða möguleika á að vinna
tvo flokka. Þeir hafa nú þegar
sigrað i þriöja flokkgog vflt-ður
að segjast eins og er að þriöji
flokkur 1R er einn sá sterkasti
sem undirritaður hefur séð. 1 2.
fl. karla hefur ÍR mjög góða
möguleika á að sigra.
Það er samdóma álit manna
sem fylgst hafa með Reykja-
vikurmótinu i ár að það hafi
sjaldan eða aldrei verið jafn vel
ieikið. Má eflaust rekja það til
erlendu þjálfarana sem þjálf-
uðu flokkana en með misjöfnum
árangri þó. En tökum þá fyrir
einstaka fiokka.
Mfl. karla: Þar báru KR-ingar
sigur úr býtum eins og flestum
er eflaust kunnugt. Sigruöu þeir
i öllum sinum leikjum og unni
þvi flokkinn meö fullu húsi
stiga.
1. fl. karla: Þar var sama sagan
og i mfl. karla. KR-ingar örugg-
ir sigurvegarar. Margir gamlir
og góðir kappar léku meö, s.s.
Gunnar Gunnarsson, Hjörtur
Hansson og Jón Otti ólafsson.
2. fl. karla: Þar er um hörku-
baráttu að ræöa milli IR og
Fram. Bæöi liöin töpuöu einum
leik i mótinu sjálfu, 1R fyrir
Fram meö einu stigi og Fram
fyrir Val. Það verður þvi aö
leika hreinan úrslitaleik milli
tR og Fram og fer hann fram i
Hagaskóla á laugardag. Þar
veröur örugglega hart barist og
erfitt að segja til um úrslit.
Margir snjallir leikmenn leika
meö liðunum. Af IR-ingum má
nefna Kristján Sigurösson sem i
dag er fyrirliði unglingalands-
iiösins og hefur leikiö marga
m.fl.-leiki fyrir IR. Ákaflega
„tekniiskur” leikmaður meö
gott auga fyrir spili. Framarar
tefla m.a. fram stærsta
miðherja i islenskum körfu-
knattleik i dag, Flosa Sigurös-
syni, sem i dag er 2.09 m á hæð.
Verður hann örugglega IR-ing-
um erfiöur, þvi Flosi er i mikilli
framför og með meiri hörku og
ákveðni á hann örugglega eftir
aö verða einn besti miðherji i
körfuknattleiknum hér er fram
liða stundir. En eitt er vist aö
það verður enginn svikinn af þvi
að leggja leið sina i Hagaskól-
ann á laugardaginn. Leikurinn
hefst kl. 14.00.
3. fl. karla: Þar báru IR-ingar
sigur úr býtum og þurftu ekki að
hafa mikið fyrir þeim sigri.
Sigruöu þeir alla sina mótherja
meö miklum yfirburöum.
Samanlögð stigatala var 222:88
sem er glæsilegur árangur. IR^
ingar hafa á sinum snærum
marga mjög efnilega leikmenn i
3. fl. s.s. Sigurjón Sigurðsson
(bróöur Kristjáns sem áður er
getiö), Guðmund Guðmundsson
og Guðjón Þorsteinsson, en allt
eru þetta núverandi unglinga-
landsliðsmenn sem eiga örugg-
lega eftir að spjara sig vel i
framtiðinni. Einnig má nefna
leikmenn eins og Björn Jónsson
og Kristján Oddsson.en allt eru
þetta gífurlega efnilegir leik-
menn.
4. fl. karla: I 4. fl. var um hörku-
keppni að ræða og fór svo að
lokum aö KR-ingar stóöu uppi
sem sigurvegarar eftir hörku-
keppni við IR. Leik þeirra
innbyrðis lauk með aðeins eins
stigs sigri KR sem skoruðu 19
stig gegn 18 stigum IR-inga. Og
þar með var þriðji Reykja-
vikurmeistaratitillinn kominn i
höfn. Greinilegt að KR-ingar
hafa ekki tapað á þvi að fá til sin
bandariskan þjálfara. Áhuginn
hefur aukist og árangurinn
lætur ekki á sér standa.
Ætlunin með þessum linum
um Reykjavikurmótið var aðal-
lega sú að vekja áhuga fólks á
leikjum yngri flokkanna sem i
flestum tilfellum gefa leikjum
hinna eldri ekkert eftir. Einnig
að auka áhuga strákanna
sjálfra, sem er engu minna
atriði.
SK.
Nábye hættir í
mesta bróðerni
„Það er algjör firra, að við sé-
um að reka Olfert Nábye sem
þjálfara liðsins. Hið rétta er, aö
Olfert hefur ekki getað sinnt
þjálfarastöðunni sem skyldi
vegna vinnu sinnar og þvi fór
hann fram á að fá -að hætta.
Hann taldi ekki rétt aö hann
væri þjálfari liðsins vegna hins
litla tima sem hann hefur aflögu
frá vinnu. Olfert hefur þjálfað
liöið allt aö þvi i sjálfboðavinnu
og erum við honum mjög þakk-
látir fyrir. Það er hins vegar
rétt, að Davið Jónsson hefur
verið spurður að þvi hvort hann
geti tekið við liðinu, en þaö er
enn óráðið.” Það var Bergur
Jónsson, formaöur handknatt-
leiksdeildar Armanns, sem
hafði samband við blaðiö og bað
um að leiðrétting kæmi fram,
vegna fréttar sem birtist I gær.
Hlutaðeigandi eru beðnir vel-
virðingar á þvi, aö rangt hefur
verið farið með málið, og von-
umst við til að þjálfaramál
þeirra Armenninga leysist á
farsælan hátt.
— G.Jóh.
V alsmenn ætla sér að vlnna upp
12 marka forskot Honved-liðslns
Síðari leikurinn verður á morg-
un í Laugardalshöll kl. 20.30
Valsmenn leika slðari leik
sinn gegn ungversku meistur-
unum Honved I Evrópukeppni
meistaraliöa I Laugardalshöll á
föstudagskvöld. Valsmenn eru
bjartsýnir á að þeim takist að
vinna umm 35-23 tapið og það að
Honved-liðiö er afar slakt á úti-
velli styrkir þá skoöun þeirra.
Leikurinn I Ungverjalandi var
illa leikinn af Vals hállu. Þeir
voru fljótfærir og varnarleikur-
inn var I molum. Oft á tiðum
stóðu þeir hreinlega og horfðu á
leikmenn Honved leika listir
sinar og „litiö vantaði uppá að
þeir færu að klappa, svo mikil
var snilli þeirra,” sagði einn af
forráðamönnum Vais eftir fyrri
leikinn. En annaðkvöld ætla
Valsararnir aö sýna klærnar og
sigra meistarana Honved og
gera leikinn einn af eftirminni-
legri leikjum ársins.
t liði Honved eru 7 landsliös-
menn og hafa allir leikmenn
liðsins leikiö með ungverska
landsliðinu, að einum undan-
skildum. Leikmenn Honved eru
allir mjög góðir,en nokkrir bera
þó af. Ber það fyrst aö nefna
Peter Kovach, tveggja metra
risa, sem er glfurlega skotharð-
ur og leikinn. Kovach sem er að-
eins 22 ára hefur Ieikið 86 iands-
leiki. Fyrirliði liðsins, er Joszef
Kenyeres og hefur hann geysi-
legan stökkkraft og er mjög
sterkur leikmaður. Hann er tal-
inn jafn góður og Pólverjinn
Klempel, sem er talinn einn af
bestu hándboltamönnum heims.
Markvöröur liðsins er Gabor
Veroczi einn af bestu markvörð-
um I heiminum.
Honved-liöið er mjög vel und-
irbúiö liö. Þeir þjálfa tvisvar á
dag, alla vikuna, og þurfa ekki
að hafa áhyggjur af vinnu, þvi
þeir eru allir I hernum og gera
ekkert annað en að leika hand-
knattleik.
En á föstudagskvöld kl. 20.30
4 fáum viö að sjá þessa snillinga
og hvort þeir eru eins mistækir
á útivelli og sagt er.
Valsmenn voru svo óheppnir
að Stefán Gunnarsson, fyrirliöi
liðsins,slasaðist við vinnu og er
óvíst hvort hann getur leiki
með. Bjarni Jónsson má ekki
leika með liöinu i Evrópukeppn-
inni, vegna félagaskipta, en að
öðru leyti verða þeir með sitt
sterkasta lið.
Lið Hoved er þannig skipað:
Markmenn:
12. Veroczi Gabor
16. Bakos Istuan
Aðrir leikmenn:
2. Zuber Titusz.
3. Kovacs Peter.
4. Fuzes Gyula.
5. Tuffinger Alajos.
6. Kenyeres Jozsef.
7. Szabó Laszló.
8. Kovacs Mihaly.
9. Kocsis Pál.
10. Urszuly Janos.
11. Kakkay Zsigmond.
12. Veroczi Gabor
G.Jóh.
Peter Kovács, ein mesta skytta ungverska .
Valsmönnum aö stöðva hann annað kvöld?