Þjóðviljinn - 24.11.1977, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 24.11.1977, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJ6ÐVILJ1NN iFimmtudagur 24. nóverober 1977 Happdrætti Þjóöviljans 1977: Umboösmenn Umboðsmenn Happdrættis Þjóðviljans 1977 Rey kjaneskjördæmi: Keflavik: Sandgerði: Karl Sigurbergsson, Hólabraut 11 Grindavfk: Gerðar: Sigurður Hallmannsson, Heiðarbraut 1 Njarðvíkur: Sigmar Ingason, Þórustig 10. Hafnarfjörður: Þorbjörg Samúelsdóttir, Skúlaskeiði 26, Garðabær: Hilmar Ingólfsson, Heiðarlundi 19, Kópavogur: Alþýðubandalagið, Björn Ólafsson Vogatungu 10. Seltjarnarnes: Stefán Bergmann, Tjarnarbóli 14. Mosfellssveit: Runólfur Jónsson, Gerði. Vesturland: Akranes: Sigrún Gunnlaugsdóttir, Vallholti 21, Borgarnes og nágrenni: Flemming Jessen, Helgugötu 6. Heilissandur-Rif: Hólmfriður Hólmgrimsdóttir, Bárðarási 1 Ólafsvik: Kristján Helgasón, Brúarholti 5 Grundarfjörður: Matthildur Guðmundsdóttir, Grundargötu 26 Stykkishólmur: Birna Pétursdóttir, Silfurgötu 47. Búðardalur-Dalir: Kristjón Sigurðsson, Vestfirðir: A-Barðastr.sýsla: Jón Snæbjörnsson, Mýrartungu. V-Barðastr.sýsla: Unnar Þór Böðvarsson, Tungumúla. Patreksfjörður: ' Boili Ólafsson, Bjarkargötu 7. •Tálknafjörður: Höskuldur Daviðsson, Eyrarhúsum. Bíldudalur: Jörundur Garðarsson, Grænabakka 8 Þingeyri: Guðmundur Friðgeir Magnússon Flateyri: Guðvarður Kjartansson Suðureyri: Þóra Þórðardóttir Bolungarvik: Guðm. Ketill Guðfinnsson, Þjóðólfsv. 7. tsafjörður: (Ásdis Ragnarsdóttir, Neðstakaupstað Djúp: Astþór Agústsson, Múla. Hólmavík, Strandir Þorkell Jóhannsson, Hólmavik. Norðurland vestra: I Hvammstangi-V.Hún: Eyjólfur Eyjólfsson, Strandgötu 7 Blönduós-A-Hún: Jón Torfason, Torfalæk. Skagaströnd: Friðjón Guðmundsson, Sauðárkrókur, Skagafjörður: HuldaSigurbjörnsd.,Skagfirðingabr. 37 Hofsós og nágr: GIsli Kristjánsson Siglufjörður: Kolbeinn Friðbjarnars., Hvanneyrarbr. 2 Norðurland eystra: Ólafsfjörður: Viglundur Pálsson, ólafsvegi 45 Dalvik: Hjörleifur Jóhannsson, Stórhólsvegi 3 Akureyri: Haraldur Bogason Norðurgötu 36 Húsavik: Snær Karlsson, Uppsalavegi 29 S.-Þing: Þorgrimur Starri Björgvinsson, Garði Raufarhöfn, N-Þing: Angantýr Einarsson, Raufarhöfn. Austurland: Gisli Jónsson, Múla Vopnafjörður: Sigriður Eyjólfsdóttir, Ásbyrgi Borgarfjörður: Guðrún Aðalsteinsdóttir, Útgarði 6 Egilsstaðir: Jón Loftsson, Hallormsstað Hérað: Jón Árnason, Finnsstöðum. Agúst Þorsteinsson, Logarfelli 7 Seyöisfjörður: Inga Sveinbjarnardóttir, Gilsbakka 34. Neskaupstaður: Alþýðubandalagið, Kristinn ívarsson Blómsturvölium 47. Eskifjörður: Hrafnkell Jónsson, Fossgötu 5. Reyðarfjörður: Arni Ragnarsson, Hjallavegi 3. Fáskrúðsfj.: Baldur Björnsson, Hafnargötu 11. Breiðdalsv. og nágr: Guðjón Sveinsson, Mánabergi. Djúpivogur: Már Karlsson, Dalsmynni Höfn-A-Skaft: Benedikt Þorsteinsson, Ránarslóð 6 Suðurland: V-Skaft: Jón Hjartarson, Kirkjubæjarklaustri. Vík-Mýrdal: Magnús Þórðarson, Vik Hella: Guðrún Haraldsdóttir Hvolsvöllur: Birna Þorsteinsdóttir, Selfoss: Gyða Sveinbjörnsdóttir, Vallholti 23 Stokkseyri: Einar Páll Bjarnason Laugarvatn: Guðmundur Birkir Þorkelsson Hrunamannahr: Jóhannes Helgason, Hvammi. Gnúpverjahreppur: Halla Guðmundsdóttir, Ásum. Skeið-ölfus: Ólafur Auðunsson, Fossheiði 26 Selfossi. Flói: Bjarni Þórarinsson, Þingborg. Hveragerði: Sigmundur Guðmundsson, Heiðmörk 58, Þorlákshöfn: Þorsteinn Sigvaldason, Reykjabraut 5 Vestmannaeyjar: Jón Traustason, Hásteinsvegi 9. — Þeir sem hafa fengið senda giróseðla eru beðnir að greiða þá sem fyrst. — Giróreikningur Happdrættisins er hlaupa- reikningur 3093 i Alþýðubankanum i Reykja- vik. — Skilum er veitt móttaka á skrifst. Alþýðu- bandalagsins að Grettisgötu 3, Reykjavik — I simí 17-500, og i afgreiðslu Þjóðviljans að Siðumúla 6, Reykjavik. Ný höfn á Akur- eyri Fyrsta áfanga lokið Akureyri. Séö út á Pollinn og til Oddeyrar. Vaðlaheiði Ibaksýn. Unnið er að þvi að koma upp nýrri vöruhöfn á Akureyri. A hún að koma sunnan Oddeyrar og ná norður fyrir Oddeyrar- tangann út að frystihúsi KEA. Lokið hefur nú verið við nýja bryggju sunnan Oddeyrar. Er það 140 m. langur viðlegukantur og hluti af fyrirhugaðri höfn og fyrsti áfangi hennar. Við kant- inn er 8 m. dýpi. Næsta skrefið verður 100 m. langur kantur við Oddeyrina austanverða. Er hann á fjögurra ára fram- kvæmdaáætlun. Atta ár eru nú liðin sið- an byrjar var á hafnargerðinni. A öðru ári kom babb i bátinn þar sem hönnun hafnarinnar þótti áfátt og varö nú hlé á fram- kvæmdum fram á árið 1975. En nú er þessum fyrsta áfanga sem sagt lokið. Akureyrarhöfn er stærsta vöruflutningahöfn utan Reykja- vikur. Námu flutningar um höfnina á sl. ári 125 þús. lestum og er það helmigsaukning frá 1973. Um 700 skip komu i höfn- ina á árinu 1976. -mhg Þáttur bóndakonunnar í bú- skapnum gleymist allt of oft 1 nýútkomnum Frey birtist bréf frá Dagnýju Guðmunds- dóttur á Eyri I Flókadal, þar sem hún ræðir um hlut bónda- konunnar I búskapnum. Land- póstur telur að þarna sé fjallað um efni, sem erindi eigi til fleiri en lesenda Freys og jafnvel ekki hvað sist til ýmissa þeirra, sem ætia má að sjái Frey ekki, — og tekur sér þvi bessaleyfi til að birta það: „Mig langar til að skrifa örfá- ar linur um bændafólk og bændakonur yfirleitt. Set ég hér fram minar skoðanir, og e.t.v. eru það skoðanir fleiri kvenna, alla vega vona ég að svo sé. A þessum jafnréttistimum hefur mikið verið rætt og ritað um konur og stöðu þeirra i þjóð- félaginu, samkvæmt þvi ætti ég e.t.v. að segja, að troðið hafi verið á bændakonum i gegnum árin og þær látnar hafa það erf- iðara en þörf krafði. Þó ætla ég ekki að halda sliku fram. Engu að síður munu orð min fjalla mest um sveitakonur. Ég er viss um, að það fyrir- finnst margt fólk, sem veit og viðurkennir, að bóndi, og þá meina ég bóndi i þess orös fyllstu merkingu, hefur aldrei staðið algerlega einn að búi sinu, þvi sem unnið hefur verið og breytt til batnaðar á misjafn- lega löngum tima. Bóndinn er að sjálfsögðu sterkasti þátturinn i búskapn- um, en bóndakonan er hinn sterki þátturinn, sem alltof oft gleymist, þegar rætt er um bændur og búskap. Af einhverjum ástæðum, sem fróðlegt væri að fá að vita, hverjar eru, vill þetta oft gleymast. Er fólk virkilega svona sorg- lega fákunnandi, að það haldi, að eiginkona og húsmóðir I sveit hafi engum öðrum skyldum að gegna en innanhússstörfum, svo sem barnauppeldi, matseld og sliku? Hvernig ættu þeir bænd- ur, sem nú i dag eru vel stæöir, og hafa unnið sig upp, hægt og sigandi, að hafa getað það nema vegna þess, að þeir áttu góða konu, sem var fús til að bera sinn hlut af erfiðinu? Það segir sig sjálft, aö stðr- framkvæmdir krefjast mikilla átaka, vinnuafls og fjármagns. Vinnuafl er oft af skornum skammti I sveitunum, og bændafjölskylda leggst á eitt til að afkasta sem mestu. Ég hygg, að fremur fáir bændur fari út i miklar fram- kvæmdir, án þess að hafa ein- hvern skuldabagga á herðum sér, þegar framkvæmdinni er lokið, eins og dýrtiðin er i dag. Bændur finna fyrir dýrtiðinni engu siður en menn, sem aðrar atvinnugreinar stunda. Samt er bóndinn við það starf, sem gefur hvað mest tengsl og mesta snertingu við lifriki nátt- úrunnar. Anægjan samfara hversdags- legum störfum er mikil. Það er sifellt eitthvað nýtt að veita at- hygli og svo sannarlega hægt að finna fleira út úr starfi bónda en strit og basl. Alla vega vona ég að bændur mættu finna sig vel heima I starfi sinu, og ég hef svo ekki fleiri orð um þetta”. Dagný Guðmundsdóttir Frá Raufarhöfn: Sum arloðnusild veiðin á Raufarhöfn gekk ágætlega að þessu sinni, enda hafa hvorki meira né minna en 20 bátar landað þar 13.400 lestum af loðnu. Til samanburðar má' geta þess, að á sumarvertiðinni sl. ár lönduðu á Raufarhöfn 7 loðnu- bátar 2.660 tonnum. Um miðjan okt. landaði togarinn Rauðinúpur um 50 tonnum. Um það leyti varð hann Raufarhöfn F ramleidsluver dmæti 1,2 milj. á íbúa fyrir þvi óhappi, að spilið bilaði og varö hann þvi að fara i slipp. Var það bagalegt vegna atvinn- unnar þvi þá var aöeins báta- fiskinn við að vera. Framkvæmdir standa yfir við bátahöfnina. Ganga þær prýði- lega og verður fyrsta áfanga verksins lokið nú. Að sumri er áformað að byggja timbur- bryggju við hafnargarðinn. Gangi allt aö óskum verður hafnargerðinni lokið að hausti. Verður þá kominn 200 m langur viðlegukantur fyrir litlu bátána. Þá hefur sundlaugarbygging- unni þokað áfram, þótt fram- kvæmdir tefðust að visu vegna þess að þörf var talin á aö gera. breytingar á teikningu. Aformað er að halda þessu verki áfram að vori. Tónlistarskólinn byrjaði 1. okt. I honum eru 35 nemendur en fjölgar trúiega töluvert eftir áramótin. Skólastjóri er Karl Jónatansson en auk hans kennir Jóhann Jónasson frá Ormars- lóni. Von er svo á öðrum kenn- ara um áramót. Er það Eng- lendingur og mun hann kenna á pianó eða fiðlu. Til vegarins yfir Melrakka- sléttuna voru veittar I ár 18 milj. kr. Frá þeirri upphæð dróst svo kostnaður eins og t.d. við að koma vinnuvélum á staðinn. Það er þvi naumast hægt aö segja að þessi vegagerð gangi i neinum loftköstum og ekki hófst verkið fyrr en i okt. i haust, og fannst mörgum að fyrr hefði mátt vera. Vel mætti gefa þvi auga i sambandi við þessa vegagerö og aðrar nauðsyn- legar framkvæmdir þar á norðurslóðum, að ibúar Raufar- hafnar framleiddu á s.l. ári verðmæti fyrirum 600 milj. kr., eða sem svarar 1,2 milj. á hvern ibúa I þorpinu, og mundi ein- hversstaðar þykja þokkaleg frammistaða. —mhg VQF. f Umsjón: Magnús H. Glsflason

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.