Þjóðviljinn - 14.12.1977, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 14.12.1977, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagurinn 14. desember 1977 Helgi J. Halldórsson: Stafsetning og verndun tannhljóda Ég haföi ekki hugsaö mér aö skrifa meira um stafsetningu að sinni, einkum þar sem ég á i miklum kennslu- og prófönnum nú fyrir jólin. En nú hefur það loksins gerst að zetu- og tann- hljóðaverndari skrifar fræðilega um nauðsyn þess að hafa zetu I is- lensku máli og jafnframt nauðsyn þess að vernda tannhljóð. Það gerði Jóhannes Halldórsson og birti i Morgunblaöinu 8. des. sl. Þar sem hann nefnir nafn mitt get ég ekki látið hjá liða að svara honum þó að Halldór Halldórsson prófessor geri það raunar i sama blaði. Jóhannes bregður mér um að ég taki ekki mark á Islenzkri málf ræði handa æðri skólum eftir Halldór Halldórsson. Þaðgeri ég. Hún liggur venjulega á skrif- borðinu minu og ég fletti oft upp i henni meðan ég annaöist þáttinn Daglegt mál. En ég reyni að foröast að rugla saman óskyldum atriðum. Ég hef einnig lesið og kennt almennar kennslubækur i stafsetningu sem hafa verið notaðar undanfarna áratugi. í þeim öllum stendur að stofn sagna finnist i nafnhætti nútiðar. Hið sama segir I bók Haildórs Halldórssonar, íslensk réttritun, 1974. t kennslu hef ég raunar ávalit bætt þvi við að þetta eigi fyrst og fremst við veikar sagnir. Sterkar sagnir hafa fleiri en einn stofn vegna hljóðskiptanna. Þess vegna hefur verið ritað staf- setning og flutningur en ekkijstaf- settning og fluttningur en sá ritháttur er raunar nær framburði. En eigi að lita svo á að veiku sagnirnar að setja og flytja hafi sérstakan stofn i lýsingarhætti þátið- ar, sett og flutt, á þá ekki að rita stafsettning og fluttningur? Er ekki vafasamt að halda i rit- máli tvirituöu t, sem fellur brott í eðlilegu talmáli, en neita að hafa það tviritað þar sem eðlilegur framburður virðist krefjast þess. Ég nefni þessar sagnir aðeins sem dæmi. Margar sagnir beygjast eins. En sé hætt að miða stofn veikra sagna eingöngu við nafnhátt, eins og gert hefur veriö, og lýsingarháttur þátiöar verði gerðurað sérstökum stofni, er þá Sam staða komin út Komið er út 4. tbl. Samstöðu, sem Baráttuhreyfing gegn heimsvaldastefnu gefur út. Samstaða er eina timaritið um erlend málefni, sem út kemur hér á landi. Blaöið leitast viö að kynna baráttu kúgaðra þjóða og alþýöu hvarvetna i heiminum og berjast geg« heimsvaldastefnu, i hvaða mynd sem hún birtist. 1 blaðinu er grein um vaxtar- speki og þróunaraðstoö eftir Gisla Pálsson. örn Ólafsson skrifar um kúgunarkerfið I Suður-Afriku, Tómas Einarsson um hinn nýja samning um Panamaskurðinn og Hjálmtýr Heiödal um Kambódíu. Ólafur Gislason skrifar um fyrir- hugaö heimsmót æskunnar i Hav- ana. Þá eru tvær þýddar greinar, um S-Ameriku og þróun kapital- ismans I Afriku. Samstaöa er seld i lausasölu i Bókabúð Máis og menningar, Bóksölu stúdenta og Rauöu stjörnunni viö Lindargötu. —eös ekki hætta á að sitthvaö fari úr skorðum. Ef við skrifum staf- settning og fluttningur, miðum viö stofn þátiðar, er þá ekki hætta á að menn fari að troða inn tvirituðu t þar sem það á alls ekki að vera samkvæmt uppruna og riti t.d. gættni og viðleittni? Er ekki betra að halda sig við þá gömlu og traustu reglu, sem notuð hefur verið undanfarna áratugi, að stofn sagna (veikra) finnist i nafnhætti, þó aö sú regla standist kannski ekki fullkomlega fræðilega? 1 fyrri greinum minum lagði ég megináherslu á að halda sem mestu jafnvægi milli fram- burðar og stafsetningar. Bókstaf- irnir eru tákn málhljóðanna og þau verða best vernduð með þvi að kenna framburð. Ég nefndi dæmi um mjög slæmar ritvillur semhægtværi að komaiveg fyrir meö meiri og betri framburðar- kennslu. En til þess þarf að ákveða islenskunni frambúrð. Jóhannes minnist litt á fram- burð nema það sem hann kallar latmælisframburð og virðist þá eiga við brottfall tannhljóða. Hvað sem hljóðfræðingar segja um þá nafngift. Jóhannes virðist eindregið neita að viðurkenna það brottfall tannhljóða sem verður i talmáli. Hann spyr: „Er sam- ræmi að rita annars vegar sest (sett+st) en hins vegar skekkst (skekkt+st)?” Já, samkvæmt minni málvitund er svo. Tann- hljóðin falla þama brott I eðlileg- um framburði en gómhljóðin haldast. A grein Jóhannesar sést vel I hvillkar ógöngur þetta ofurkapp að vernda tannhljóö ieiðir. Það elur ekki aðeins af sér tann- hljóðahröngl heldur teygir það menn til málspjalla. Jóhannes segir: „Gimilegt til fróðleiks um það spor I átt til stafsetningar eftir latmælisframburði, sem stigið var siðsumars 1973 og itrekað var vorið 1974, er að virða fyrir sér nokkur sagnorð með rótskertu stofnunum viö hlið óskertra stofna, sem ellefumenn- ingarnir vilja varðveita með reglum þingsályktunartil- lögunnar: Hráefnið hefur nýst (nýttst) illa. Vastu (vattstu) bandið? Börkur hefur flest (flettst) af trjánum. Ribbaldar hafa veist (veittst)aö smælingjum. Hrepp- stjórinn hefur fest (fettst) við uppheföina. Þú bast (battst) á/ baggann. Það hefur brest (brettst)upp á faldinn.” Þó að sagnir I islensku teljist beygjast bæði i germynd og mið- mynd er hæpið að eðlilegt sé að nota hverja einustu sögn i þeim báðum myndum jöfnum höndum, jafnt i samsettum tiöum sem ósamsettum. Þó að sögnin að fetta sé fullkomlega eðliiegí ger- mynd er hæpið að þvinga hana inn i samsetta tið i miðmynd. Jó- hannes virðist telja eðlilegt mál að segja: „Hreppstjórinn hefur fettstvið upphefðina.” Ég spyr: Segir þetta nokkur maður eða setur á prent? Er ekki eðlilegra að segja að upphefðin hafi stigið hreppstjóranum til höfuðs, hann gangi nú fatturog hnakkakerrtur, jafnvel uppstertur? Sama er að t segja um sögnina að bretta. Hún fer mjög illa i samsettri tfð miö- myndar. Einnig þarf að beita nokkurri aðgát viö notkun sterku sagnanna að vinda og binda. En til eru ýmsar leiðir. Varasamt er aö rigskorða sig við ákveönar málfræðireglur. Það gera ekki þeir sem hafa vald á góðu máli. Þeirhugsa um málið sjálft. Oft er smekksatriöi hvenær viö notum samsettar tiðir eða ósamsettar. Merkingarmunur þarf ekki að vera neinn eða hverfandi. T.d. væri liprara mál að snúa við tiðanotkun i setningunum: „Þú bast (battst) baggann.” „Það hefur brest (brettst) upp á fald- inn.” Þá mundu þær hljóða þannig: Þú hefur bundið baggann. Það brettist upp á faldinn. 1 staö setningarinnar: „Vastu (vattstu) bandið?” er eðlilegra aö segja: Hefur þú undið bandiö eða ertu búinn að vinda bandið? Ég tek mönnum vara fyrir aö líta svo á að með þessu sé verið að vikja sér undan vandanum. Þetta er aðeins spurning um málsmekk og oröa- val. Margar sagnir fara illa i samsettum tiðum, einkum i miðmynd. Svo er um þær sagnir sem Jóhannes nefnir. En séu þessar sagnir notaöar — og þá i þeim setningum sem Jóhannes nefnir — tel ég þekkilegra mál að viðurkenna i ritmáli þaö brottfall sem verður i talmáli. Ég undan- skil þó sögnina að fetta. Hana tel ég ónothæfa i samsettri liðinni tíð i miðmynd Þeir sem rita gott mál nota samsettar tiðir ekki meira en nauðsyn krefur. Snorri Sturluson kunni þá list að nota samsettar tiðir I hófi. Einn er sá munur á máli islenskra fornsagna og máli nútföar að nú nota menn meira samsettar tiðir sagna. Er það málinu venjulega til lýta þó aö stundum geti farið betur á að nota samsetta tið én ósamsetta. Af þessum sökum hef ég alltaf lagt mikla áherslu á að kynna nemendum minum fornmálið og talið æskilegast að hafa fornritin með þeirri stafsetningu sem fell- ur best að daglegu máli hvers tima, þ.e. nútimastafsetningu. Þess vegna var það vondur gern- ingur þegar alþingismenn ætluðu á sinum tima aö koma I veg fyrir að íslensk fornrit væru prentuð með nútimastafsetningu. Ég hef áður látið þá skoðun i ljós að ritæfingar, sem samdar voru til að kenna nemendum aö rita z, hafi oft veriö á vondu máli Óli frá Skuld „Öli frá Skuld” eftir Stefán Jónsson er komin út I nýrri út- gáfu. Bókin er ellefta bindi i heildarútgáfu Isafoldar á barna- og unglingabókum Stefáns Jóns- sonar. Aður voru komnar: 1. Vin- ir vorsins, 2. Skóladagar, 3. Sagan af Hjalta litla, 4. Mamma skilur allt, 5. Hjalti kemur heim, 6. Björt eru bernskuárin, 7. Margt getur skemmtilegt skeö, 8. Disa frænka, 9. Fólkið á Steinshóli, 10. Hanna Dóra. Tólfta bindi rit- safnsins verður Börn eru besta fólk. Öli frá Skuld er ásamt Hjalta- bókunum að margra dómi hátind- ur i skáldskap Stefáns um lff barna og unglinga, og sjáifur taldi hann þessa sögu bestu bók sina af þvi tagi. 1 þessari bráö- skemmtilegu sögu af litla prakk- aranum Öla frá Skuld er heill hópur annarra sögupersóna meö svo skýr skapgerðareinkenni, aö lesandinn gleymir þeim aldrei. Má þar nefna foreldra Óla , ekki sist fööur hans; ömmuna gömlu, virta konu i sinni sveit; vinnu- manninn Fúsa, gamalt dyggöar- hjú, sem er auðsærður og þó ó- sigrandi I umkomuleysi sinu. Óli frá Skuld kom út fyrir rétt- um 20 árum og var á skömmum tima lesin upp til agna. Þetta er önnur útgáfa bókarinnar. Hún hefur verið flutt sem framhalds- saga i útvarpinu. Fyrir meira en og valdið málspjöllum. Þær hömruðu inn i nemendur óeðlilegt gervimál. Ég skal nefna nokkrar setningar úr slikum ritæfingum, sem settar hafa veriö á prent. Ég nefni fáar til að lengja mál mitt ekki um of en af nógu er að taka. Ég set innan sviga það sem ég tel eðlilegra og betra mál. Ég endur- tek að hér er ekki verið að vikja sérundan vandanum heldur beita heppilegra orðavali: „Það hefur heimztilla af fjalli i haust.” (Heimtur af fjalli hafa verið slæmar I haust.) „Þú galztþrjósku þinnar.” (Þú hefur goldiö þrjósku þinnar.) Þarna fer betur að nota samsetta tið. „Láztu sofa.” (Láttu sem þú sofir.) Þósögnin að láta sé eölileg inafnhætti miðmyndar: að látast, fer hún illa i boðhætti mið- myndar. „Hinir gömlu ástvinir höfðu nú lengi átzt illt við.” (Hinir fornu 'ástvinirhöfðu nú lengi eldað grátt silfur.) „Það hefur ekki nýtzt að verkum Héðins i morgun.” (Verk Héðins i morgun hafa verið. gagnslaus.) „Ýmsirhöfðuótilkvaddir beitzt fyrir málinu og litt beiðzt afsök- unar á þvi athæfi.” (Ýmsir höfðu ótilkvaddir beitt sér fyrir málinu og litt beðist afsökunar á þvi athæfi.) Hér er höfundi svo mikið i mun að koma zetu inn að hann gengur fram hjá hinum eðlilega uppruna. Fieiri dæmi tek ég ekki að sinni. Ég óttast að svipað fari um þær ritæfingar sem samdar verða til að negla i ritmái þau tannhljóö sem falla brott i eðlilegum fram- burði en sumir vilja righalda I. Þær setningar, sem Jóhannes Halldórsson ber fyrir brjósti i grein sinni i Morgunblaðinu, spá ekki góðu. Annars mega þeir sem vilja skrifa svona stil, en það eru málspjöll að fyrirskipa að kenna hann i skólum. En hafa zetuvinir og tann- hljóðaverndarar hugað að þvi hvernig stafsetningin frá 1973 fer igóðu máli — égsegigóðu máli en ekki óeölilegu gervimáli? Ef svo er ekki ráðlegg ég þeim að lesa Norðurlandstrómet, þýðingu dr. Kristjáns Eldjárns forseta. Hún er prentuð með þeirri staf- setningu sem ákveðin var 1973 og sumum er svo mikill þyrnir i auga. Ekki sakna ég þar zetu eða brottfallinna tannhljóða — hvað sem aðrir gera. í nýrri útgáfu StefánJónsson áratug kom hún út A norsku, og 1974 var hún valin í Alle Börns Bogklub i Danmörku. 1 báðum löndunum fékk hún frábæra dóma. Einar Bragi rithöfundur sér um útgáfuna á þessu ritsafni Stef- áns Jónssonar. Gylfi Gislason gerði teikningar i óía frá Skuld. Augiýsingastofa Kristinar Þor- kelsdóttur gerði káputeikningu og sá um útlit bókarinnar. óli frá Skuld er 229 bls., prentuö á góðan pappir i Isafoldarþrentsmiðju hf., sem einnig annaðist setningu og bókband. —eös 4 SAMSEHDA gegn heimsvaldostefnu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.