Þjóðviljinn - 14.12.1977, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 14.12.1977, Blaðsíða 11
Miðvikudagurinn 14. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA' 11 bækur bækur bækur bækur Tvær Bókaforlagsbækur: Flöskuskeyti og Löggumamma Bókaforlag Odds Björnssonar á Akureyri hefur gefiö út nýja ung- lingabók eftir Ragnar Þorsteins- son. Heitir hún „Flöskuskeytiö”. Þetta er þriöja bókin um ævintýri tviburanna Silju og Sindra, en fyrri bækurnar hafa hlotiö lof m.a. fyrir „spennandi atburöarás úr raunsæislegu efni geröa, meö skýrum mannlýsingum, lifandi náttúru og landsháttalýsingu”. RAGNAR ÞORSTEINSSON Bókin er 135 bls. Sama forlag hefur gefiö út nýja barnabók eftir Hreiöar Stefáns- son kennara og heitir hún „Mamma mín er lögga”. Nafniö segir talsvert um efni sögunnar: tvö systkini verða fyrir þeirri sjaldgæfu lifsreynslu aö móöir þeirra gengur I lögregluna. Bókin er 86 bls., myndir teiknaöi Þóra Siguröardóttir. Fyrsta bókin um leyni- lögreglumanninn Lúkas Æskan hefur gefið út bókina „Lúkas og leyndarmál frúarinn- ar” eftir Jo Pestum. Þetta er leynilögreglusaga. Aðalsögu- hetjan, Luc Lukas er fyrrverandi leynilögreglumaöur, sem hefur snúið sér aö hestaræktun. En hann á mjög erfitt með aö yfir- gefa sitt fyrra starf. Þaö er eins og hin dularfullu mál elti hann. Hverjir hræða gamla konu i þeim tilgangi aö sölsa undir sig eigur hennar? Lúkas glfmir viö gátuna i þessari bók. Bókin er 86 bls. og er hin fyrsta i bókaflokki um Lúkas. Þýöandi er Ingibjörg Jónsdóttir. Prentsmiöj- an Oddi prentaöi bókina og bók- band annaðist Sveinabókbandiö. —eös. I IMfrftMtP' Þjóð- trú og þjúð- sagnir Þjóðsögur og sagnir og marg- vislegur alþýðlegur fróðleikur, sem myndast meöal alþýöu allra siöaöra þjóöa og lifir oft og tiöum öldum saman óskrásettur á vör- um hennar, er réttilega i háveg- um haföur og varöveittur vel af þjóðlegustu fróöleiks- og visinda- mönnum þjóðanna. Arið 1908 kom út á Akureyri sérstætt safn þjóösagna sem nefndist Þjóðtrú og þjóðsagnir. Oddur Björnsson prentmeistari hafði annast söfnun til þess og kostaði útgáfuna, en sira Jónas Jónasson á Hrafnagili bjó safnið til prentunar og skrifaði merkan formála um þjóötrú og þjóösagnir og menningarsögulegt gildi þeirra. Þjóðsagnasafn Odds Björnssonar er löngu uppselt. Eigi alls fyrir löngu fannst i dóti Odds Björnssonar böggull meö þjóðsagnahandritum, sem greini- lega var frá hinni fyrstu söfnun hans. Sögumenn og skrásetjarar voru allmargir, þar á meðal Odd- ur Björnsson sjálfur. En flestar sögurnar hafa þeir skrásett Benedikt Guðmunds-son (1879—1919) kennari frá Hring- veri á Tjörnesi og Theódór Friðriksson rithöfundur (1876—1948) á árunum 1907—1911. Augljóst er aö séra Jónas hefur lesið handritiö yfir, leiörétt staf- villur og vikið viö oröalagi eftir þvi sem betur fór. Steindór Steindórsson frá Hlöö- um hefur nú búiö til prentunar þessa nýju og auknu útgáfu af þjóðsagnasafni Odds Björnssonar og gefur Bókaforlag Odds Björns- sonar bókina út. Teikningar geröi Þóra Siguröardóttir og kápu- teikningu Kristján Kristjánsson. Bókin er 362 bls. Draumur um veruleika íslenskar sögur um og eftir konur Helga Kress i Hvernig skrifa íslenskar konur um kynsystur sínar? Hver er þáttur kvenna í íslenskri bókmenntasögu? um útgáfuna I bókinni Draumur um veruleika er birt efni eftir 23 konur, meðal þeirra eru ýmsir fremstu rithöf- undar þjóðarinnar. Bókinni er ætlað að vekja at- hygli á þvi að til eru islenskir kvenrithöfundar, þótt ekki fari mikið fyrir þeim i bókmenntasögum eða lestrarbókum. Jafnframt veitir hún innsýn i hugarheim kvenna, viðhorf þeirra og vitund á hverjum tima. Helga Kress hefur valið sögurnar og ritað ýtar- lega inngangsritgerð: Um konur og bókmenntir. BWB Skemmtileg bók — og forvitnileg jMál og menning Sinfóníuhljómsveit íslands T ónlelkar i Háskólabfói föstudaginn 16. desember kl. 20.30. Stjórnandi: J.P. JACQUILLAT Einleikari: ROBERT AITKEN Efnisskrá: Mozart — Sinfónia nr. 31 Mozart — Flautukonsert I G-dúr Atli Heimir Sveinsson — Flautukonsert De Falla — Þríhyrndi hatturinn. Aðgöngumiðar seldir I Bókabúð Lárusaí? Blöndal, Skóla- vörðustig, Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar og viö innganginn. NB. Askrifendur, vinsamlega athugið breyttan tónleika- dag. MYNDIN AF KÓNGINUM heitir hún, nýja bókin eftir Gunnar M. Magnúss. Þetta er fimmtugasta bók Gunnars. Snjallar og skemmti- legar smásögur. Auðugt mál og lifandi mannlýsingar. BIÐSTÖÐ 13 eftir Orn Bjarnason er lífsreynslusaga ungs manns sem sekkur djúpt — en stendur á vegamótum í bókar- lok. HULIÐSHEIMUR eftir Árna Óla er bók um íslensk þjóðfrgeði. Hér sýnir höfundur hin nánu tengsl milli trúar og hjátrúar frá örófi alda. SETBERG

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.