Þjóðviljinn - 31.12.1977, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. desember 1977
Hæstaréttardómur í VL-máli
gegn Helga Sæmundssyni:
Sýknadur
af refsi-
kröfum
Málskostnadur felldur niður
Hinn 22. desember sl. var
kveðinn upp dómur i Hæstarétti
i VL-máli gegn Helga Sæmunds-
syni. Niðurstöður voru þær að
dómur undirréttar var staðfest-
ur og Helgi Sæmundsson sýkn-
aður af öllum refsikröfum og
málskostnaður fyrir Hæstarétti
felldur niður. Segir i dómnum:
„Ummæli þau, sem stefnt er út
af, þykja ekki fara út fyrir mörk
leyfiíegrar gagnrýni i umræðu
um þjóðmál og verða þvi ekki
talin refsiverðar móðganir né
aðdróttanir”. Tvenn ummæli
Helga voru dæmd dauð og
Helgi Sæmundsson
ómerk. Þau eru „ameriskir Is-
lendingar” og „eru þetta
umskiptingar?”
Dóm Hæstaréttar kváðu upp
varadómararnir Halldór
Þorbjörnsson, Guðm. Ingvi
Sigurðsson, Jón Finnssón,
Unnsteinn Beck og Þorsteinn
Thorarensen. Hrafnkell
Ásgeirsson hrl. var verjandi
Helga.
—GFr
Reyðarfjörður:
í 12 yindstigum
Stórtjón
1 fyrradag gekk mikið veður yf-
ir Austfirði og olli niiklu tjóni á
Reyðarfirði en annars staðar var
það óverulegt. Skv. upplýsingum
Páls Bergþórssonar veðurfræð-
ings mun vindhæðin hafa komist
upp i 12 vindstig hér og þar en i
norðan- eða norðvestanátt getur
orðið gifurlega hvasst af fjöllum
þar eystra.
Björn Jónsson, fréttaritari
Þjóðviljans á Reyðarfirði, sagði
að veðurhæðin hefði orðið mest
milli ki. 5 og 6 siðdegis á fimmtu-
daginn.’Þá fuku talsvert á annað
hundrað járnplötur af írystihús-
inu og rigndi ma. yfir kaupfélag-
ið. Þar brotnuðu 7 rúður og sumar
mjög stórar. Mikið fjaðrafok varð
inni i húsinu en sem betur fer
slasaðist enginn alvarlega. Þó
munu einhverjir hafa skorið sig á
glerbrotunum.
Plötur fóru vfðar af húsum m .a.
'auk hálft þak af nýlegu ibúðarhúsi
og partur af þaki af nýju verslun-
arhúsi hjá Lykli h.f. Skarhmt þar
frá fóru og plötur af fbúðarhúsi og
skemmdu bfla stórkostlega.
Skammt frá þorpinu fauk 7
tonna vöruflutningabill út af veg-
inum og er nú nánast ónýtur, all-
ur skældur og snúinn. t Sóma-
staðagerði fauk hluti af hænsna-
húsi.
Þorpið er nú allt þakið i plötum
og rusli og sagðist Björn Jónsson
aldrei hafa lent i öðru eins veðri i
þau 20 ár sem hann hefur verið
búsettur þar. I gærdag var komið
ágætisveður.
—GFr
Vinscelasta bitafjölskytdan
á íslandi —Ma*da929
.ijíafet!iW)!i*fes
Öskum ötlum
víóskiptavinum okkar
gleóilegs nýs árs
og þökkum vióskiptin
á liónum árum.
BÍLABORG HF
r
Akvörðun um fiskverð:
Dregst líklega
fram í janúar
Skv. lögum á Verðlagsráð
sjávarútvegs að ákveða nýtt fisk-
verð nú um áramótin. Akvörð-
uninni hefur nú verið visað til
yfirnefndar en formaður hennar
en Jón Sigurðsson forstöðumaður
þjöðhagsstofnunar. Þjóðviljinn
hafði samband við hann i gær og
var á honum að heyra að litlar
likur væru á að ákvörðun um fisk-
verðið næðist á réttum tfma að
þessu sinni. Þetta er nokkuð snúið
núna vegna þess hversu illa málin
standa hjá fiskverkendum, sagði
Jón. Fundur var hjá yfirnefnd i
gærmorgun og annar nú i
morgun. 1 fyrra var fiskverð
ákveðið á réttum tima en oft áður
hefur það dregist fram i janúar.
Akvörðun um loðnuverð sem -
einnig á að taka nú um áramót
hefur lika verið visað til yfir-
nefndar en formaður hennar er
Ólafur Daviðsson. Jón sagði að i
þvi tilviki væri málið einfaldara
að fást við þar sem allir 3 þættir
þess stæðu allvel þe. veiðarnar,
vinnslan og kjör sjómanna. Þó er
óliklegt að verðið á loðnunni verði
ákveðið fyrir áramót. —GFi
Strætisvagnar
Reykjavíkur
t dag gamlársdag aka Strætis-’
vagnar Reykjavikur samkvæmt
timaáætlun laugardaga i leiðabók
SVR fram til um kl. 17, en þá lýk-
ur akstri strætisvagna.
A morgun nýársdag hefja
strætisvagnar akstur um klukkan
14, og er siðan ekið þann dag sam-
kvæmt timaáætlun helgidaga i
leiðabók SVR.
Sjá Dagbók — siðu 31.
Gengiö lækkadi
um tæp 11%
Gengissigið fram til 12.
desember frá ársbyrjun 1977 nam
10,6%, en á sama tima hækkaði
erlend myntl um 11,9% hér á
landi.
Gengisskráning islensku krón-
unnar er reiknuð út eftir stöðu
gagnvart öllum öðrum gjaldmiðl-
um og með tilliti til viðskipta okk-
ar við viðkomandi lönd.
Þetta tæplega 11% gengisfall'
varð aðallega á siðari hluta árs-
ins, því fram til 1. júliféll islenska
krónan aðeins um tæpt 1%.
Á síðari hluta ársins féllu svo
Norðurlandakrónurnar og
Bandarikjadollarinn lækkaði
einnig gagnvart yeni og V-þýsku
marki, og fylgdi krónan þessum
breytingum.
Þann 12. desember hafði
svissneski frankinn hækkað hvað
mest i verði, eða um 25,8%.
V-þýska markið hækkaði um
16.6%, Bandarikjadollar um
8,8%, danska krónan um 8,7% sú
norska um 8,9%, Sterlingspundið
um 16.1%, japanska yenið um
19.8%, franski frankinn um
10,6%, portúgalskir escudos um
3%.
Hins vegar hefur sænska krón-
an lækkað um 0,2% á þessu ári og
spænskir pesetar hafa lækkað um
7,9%.
—AI.
Rís upp raf-
eindaidnaður
í Vík?
Eins og fram hefur komið hér i
blaðinu hefur veigamikilli stoð
undir atvinnulifi Vlkur i Mýrdal
verið kippt undan þcgar lóran-
stöðinni á Reynisfjalli er nú
lokað. t júni i sumar skipaði
félagsmálaráðherra atvinnu-
málanefnd V-Skaftafellssýslu
með sérstöku tilliti til Vikur i
Mýrdal. Formaður nefndarinnar
er Sigurður Guðmundsson hjá
Frainkvæmdastofnun rlkisins og
sagði hann i samtali við blaðið i
gær að margir fundir hefðu verið
haldnir i nefndinni og likur væru
nú að nýstofnað fyrirtæki I raf-
eindaiðnaði, Rafrás sf. i
Reykjavik, flytti sig þangað
austur fyrir atbeina ncfnd-
arinnar. Sigurður sagði að raf-
eindaiðnaður væri nú i miklum
vexti hvarvetna og hann hefði
tröllatrú á þvl að Rafrás gæti
orðið að stóru fyrirtæki I Vík.
Þá sagði Sigurður að ekki væri
óliklegt að einhverjir af starfs-
mönnum lóranstöðvarinnar gætu
fengið vinnu við þetta fyrirtæki.
Þá hefur nefndin beint þeim til-
mælum til Landsimans að hús
lóranstöðvarinnar 5 að tölu yrðu
ekki seld á almennu uppboði
heldur yrði vinnandi fólki á
staönum auðveldað að eignast
þau. Þa hefði hreppsfélagið hug á
að festa kaup á einu þeirra með
það i huga að framleigja það til
aðstandenda Ratrásar ef úr
verður að fyrirtækið flytji starf-
semi sina til Vikur.
—GFi
Auglýsið í
Þjóðviljanum