Þjóðviljinn - 31.12.1977, Side 11
Laugardagur 31. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
ballans til þróunar marxismans
er fólgið i þvi, að ræna skal
brauðinu frá stórum og rikum
útlendum kapitalistum og gefa
það smáum, fátækum og inn-
lendum. Islenskir kapitalistar
eru miög hrærðir yfir þVi að sjá
Lúðvik og þá i hlutverki Hróa
hattar, enda eiga þeir ekki góðu
að venjast. Nýleg barnagæla
þeirra, Kátir eru karlar, hefst
þannig:
Lúlli er Ijóti karlinn
en hann leikur sér við mig...
Harðlínukommar eru æflr yfir
þessari stefnu vegna þess að
þeir i bernskum ofstopa sinum
halda, að kapitalistar séu allir
sama tóbakið. Allaballakomm-
ar eru hinsvegar klókir, og vita
að þeir innlendu fara á hausinn
hvort sem er, og verða glaðir
hverjum pilsfaldi sem þeir geta
haldið i á leið yfir hin straum-
þungu Kúðafljót i atvinnulifsins
táradal.
Bomsaraboms
Margt var hugvitsamlega
bruggað i fjármálum. Til dæmis
var ákveðið að selja mennta-
málaráðuneytinu Viðishúsið
fyrir 680 miljónir, enda þótt sér-
vitrir ihaldsmenn vilji hafa
stjórnina alla á Arnarhólnum og
kommarnir af illkvittni sinni
kölluðu húsið lekan geymslu-
skúr. Margir halda að i þessu
máli hafi mestu ráðið fjármála-
snilld eigandans. En það er mis-
skilningur eins og flest annað
sem sagt er. Hér er nefnilega
um að ræða slóttugt ráðabrugg
ungtyrkjanna i Sjálfstæðis-
flokknum, þeirra sem ætla elsku
rikið okkar lifandi að drepa og
hrópa: báknið burt. Þeir ætla að
láta flytja allt menntaskóla-
báknið inn I Viðishús, sem siðan
hrynur einn góðan veðurdag. Þá
hrynur mikið bákn og undir þvi
grafast allir kommarnir, sem
sitja i ráðuneytinu og ala börnin
okkar upp i leti, zetuleysi, aga-
leysi, klámi og vilja ekki að
börnin lesi Bibliuna og Matthias
Johannessen. Það verður mikið
bomsaraboms. Þá verður mikið
um fögnuð og faðmlög og Milton
Friedman flýgur i garð.
Afrek okkar allra
Enn eitt snilldarbragc er það,
sem ekki má i gleymsku falla,
þótt það sé orðið svo snar þáttur
af öllu okkar lifi, að bráðum tek-
ur enginn eftir þvi. Þetta
snilldarbragð er verðbólgan.
Róttæklingar segja að visu að
hún sé andskotans auðvaldinu
að kenna og Mogginn segir að
hún sé að kenna heimtufrekju
verkalýðsins —• eða þá þvi að
þjóðin öll hefur fallið i synd eins
og ísraelsmenn forðum þegar
þeir hoppuðu kringum gullkálf-
inn hans Arons, sem var langa-
langafi hans Arons okkar. Þetta
er bull eitt og vitleysa, svo i
hreinskilni sé talað. Verðbólgan
er engum að kenna. Hún er
þvert á móti öllum að þakka.
Hún er sameiginlegt afrek
þjóðarinnar og framlag hennar
til lausnar á þeim deilum og
árekstrum, sem hrjá vansælt
mannkyn allt frá Góðvonar-
höfða til Angmagsalik.
Sómi vor
Verðbólgan veltir á undan sér
þeim stéttaátökum sem leiða
aðrar þjóðir i byltingu og aðra
vitleysu, skýtur þeim á þægileg-
an frest allt til þess að Surtur
slöngvir eldi yfir jörðu. Hún sér
fulltrúum verkafólks og at-
vinnurekenda fyrir miklu og
þroskandi starfi, þar sem aðilar
efla athyglisgáfu sina, þróa
reikningsgáfuna, styrkja sig i
taflmennsku og dýpka mann-
þekkinguna. Hún sér ótöldum
hagfræðingum, innlendum sem
erlendum, fyrir æsispennandi
efni i doktorsritgerðir. Hún
gefur börnum hljómburðar-
græjur, skvisum gefur hún góða
pelsa, körlum brennivin og
sendir allt móverkið til Kanari-
eyja til að slappa af i rommhaf-
inu. Hún tryggir öllum hálfa
aðra atvinnu eða tvær svo þeim
leiðist ekki aðgerðarleysið' og
þeir detti ekki i dóp nema i
hófi.
Hún eykur atvinnu lækna og
hjúkrunarliðs og styttir elli-
launatimann og sparar þannig
stórfé sem hægt er að nota i
Borgarfjarðarbrúna og aðrar
nytsamar framkvæmdir. Hún
gerir ungu fólki kleift að byggja
stórt og kemur i veg fyrir að
gamla fólkið leggist i vitleysu og
munað fyrir spariféö sitt.
Að sönnu munu allir forystu-
menn þjóðarinnar vara strang-
lega við verðbólgunni nú i ára-
mótaræðum. Eins og við öll vit-
um, er þetta barasta gamail
islenskur helgisiður, rétt eins og
kirkjan segir að sælir séu fá-
tækir — og þurfum við, heil-
brigð, ung og lifsþyrst þjóð, ekki
að hafa neinar áhyggjur af sið-
um þessum.
Liðið ár var ár gæfu og
gjörvileika, ár peninga og veltu,
ár úrræða og hugvits, sigra og
ávinninga, það var ár snilldar
og snjallræða. Með nýju ári
leggjum vér öll á nýja tinda.
Skaði
Jólafundur SINE
verður haldinn i Félagsheimili stúdenta
við Hringbraut mánudaginn 2. janúar
næstkomandbkl. 14, kl. 2.00 e.h.
Munið að þessi fundur hefur nú tekið við
hlutverki súmarþingsins. Mætum öll.
Stjórnin
Stórt framfaraspor...
Landsýn og Samvinnuferðir hafa tekið upp samstarf og
leggja nú saman starfskrafta sína og sambönd til þess að
geta veitt sem greiðasta, ódýrasta og fullkomnasta íslenska
ferðaþjónustu, um allan heim. Þessar ferðaskrifstofur eru
reknar af tveimur stærstu almenningssamtökum í landinu,
samvinnufélögunum og launþegasamtökunum. Enginn vafi
er á því að með þessu samstarfi ferðaskrifstofanna er stigið
eitt stærsta framfaraspor í íslenskum ferðamálum. Með
samstarfi sínu standa Landsýn og Samvinnuferðir ólíkt
betur að vígi en áður til að veita landsmönnum betri og
ódýrari ferðaþjónustu.
Framvegis sem hingað til annast skrifstofurnar hvers
konar ferðaþjónustu, auk skipulagðra ferða útlendinga til
landsins og fyrirgreiðslu við þá.
Samvinnuferðir
Fastar hópferðir verða famar á næsta ári reglulega til:
KANARÍEYJA, COSTA DEL SOL, JÚGÓSLAVÍU,
ÍRLANDS, LONDON, NORÐURLANDA.
Þar sem hagsýni og hagkvæmni eru fyrir hendi, eiga
nútíma vinnubrögð og tækni að geta gert fólki kleift að
ferðast áhyggju- og óþægindalaust. Góðar ferðir eiga að
geta verið öllum viðráðanlegar ef þær eru skipulagðar rétt
og með hliðsjón af efnum og ástæðum.
Landsýn og Samvinnuferðir óska félagsmönnum
verkalýðs- og samvinnuhreyfingar og öllum öðrum
viðskiptavinum sínum gleðilegs nýárs og þakka samstarf og
samfylgd á liðnu ári.
AUSTURSTRÆTI 12 REYKJAVIK
ÉÉLANDSÝN
mWs ■ ■■
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16 REYKJAVÍK