Þjóðviljinn - 31.12.1977, Side 12

Þjóðviljinn - 31.12.1977, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur .31. desember 1977 Annáll erlendra Niagarafossar f klakaböndum. Snemma á árinu uröu gifurleg frost I Bandarikjunum, sem leiddu mjög glögglega i ljós hve illa landsmenn og húsakynni þeirra eru undir hverskyns orkuskort búin. Carter for- scti taldi sighafa með frosterfiðleikum fengið tromp á hönd I baráttu sinni fyrir orkusparnaði, en þegn- ar hans hafa verið mjög tregir til að samþykkja nokkuð það sem getur dregið úr firnalegu orkubruðli þeirra. Enn sem fyrr eru það oliurisarnir og hagsmunir þeirra sem ráða feröinni. Atvinnuleysingjar i Vestur-Þýskalandi. Mikið atvinnuleysi er oröið stöðugt einkenni kapitaliskra iðnríkja. Tæknivæðingin hefur fækkað fólki í iðnaði og auk þess hafa alþjóðlegir auðhringir i vaxandi mæli flutt vinnuaflsfreka framleiðslu til þróunarlanda þar sem laun eru lág og verkalýðshreyfing yfirleitt bönnuö. Gifurlega stór hluti atvinnuieys- ingja — eða allt að helmingur — er ungt fólk um tvítugt sern fær enga vinnu, hvort sem það er skólagengið eða ekki; margir spá að i þessu fóikieinmittsé að gcrjast pólitisk reiðisem innan skamms muni brjót- ast út með miklum krafti. Einkum sér þessa merki á Haliu. Miklar óeirðir urðu i Kairó og öðrum borgum Egyptalands I janúar. Sadat forseti lét afnema niðurgreiðslur á nauðsynjavarningi og upp- skarmikla reiði alinennings sem hafði á götum úti hátt um yfirstéttar- bilifi forsetans og vildarvina hans. Sadat hefur orðið æ háðari rikum arabiskum olíurikjum og Bandaríkjunum efnahagslega, en kjör al- mennings hafa versnað. i kosningum sem fram fóru á Ind- landi í mars lauk löngum valda- ferli Kongressflokksins og Indiru Gandhi. Spilling i stjór>sýslu, ger- ræðisleg framfylgd ófrjósemisað- gerða i hinu barnmarga og fá- tæka landi, ritskoðun og hcrlög, sem hún hafði stjórnað eftir um tima — allt olli þetta miklu hruni flokks Indiru. Seinna á árinu var hún handtekin fyrir misferli i stjórnsýslu, en sieppt fljótt aftur — sýnir myndin Indiru skömmu eftir handtökuna. Enn erbúist við ,,Watergate”-málaferlum yfir forsætisræaöherranum sem var. o o Til Lagos i Nigeriu komu i janúar 15 búsundir manna frá 57 löndum til að taka þátt i menningarhátið afriskra þjóða og afriskættaöra. Af þessu varð mikið og alldýrt sjónarspil, en fremsti rithöfundur Nigeriu, WoleSoyinka, kallaði það „hátið skriffinnanna” þar sem leiötogadýrk- un setti listum einatt stólinn fyrir dyrnar. Mikil alda forvitni um Hitler fór um Þýskaland, og þótti mörgum nóg um þær vinsældir. Það kom á daginn við könnun, að yngri kyn- slóð Þjóðverja hefur lygilega óljósar hugmyndir um Foringj- ann og verk hans. Þ Hrifning Norðmanna af olfuauði sinum beiö mikinn hnekki þegar leiðslurbrotnuðu I miklum stormii aprillok á oliupallinum Bravo. Með erfiðismunum tókst að stöðva lekann, en þá voru 25 þúsundir smálesta af oliu farnar i sjóinn. Mannréttindi voru mjög á döfinni, ekki sist um austanveröa Evrópu. Nokkur hundruð manna skrifuðu undir „Mannréttindaskrá 77” I Tékkóslóvakiu, þar sem mótmælt var m.a. atvinnuofsóknum á hendur miklum fjölda manna. 1 Póllandi ofsóttu yfirvöid meðýmsum hætti þá» samstarfsnefnd verkamanna og menntamanna, sem hafði verið komið á fót til varnar fyrir þá, sem i fyrra tóku þátt i upphiaupum vegna verð- hækkana. 1 Sovétrikjunum fylgdi leynilögreglan þeirri stefnu að reyna að koma sc/n flestum þekktum andófsmönnum úr landi. Myndin er frá kröfugöngu stúdenta i Krakow; þeir kenna lögreglunni um dauða eins af félögum sinum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.