Þjóðviljinn - 31.12.1977, Síða 13
Laugardagur 31. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
íðinda árið 1977...
Kosiö var i tsrael f mal og komst til valda hægrisinnaö
bandalag, Likud, undirforýstu Manahems Begins, eins þeirra manna
sem ákafast hefur beitt sér fyrir útþenslustefnu i nafni „sögulegra
landamæra” israels. Ekki þótti þaö bæta úr skák, aö Begin var á sinum
tima foringi hryöjuverkasamtaka sem börðust gegn Bretum og Aröb-
um iPalestinu! Begin hefur tekiö upp haröa hægristefnu i efnahags-
málum, en Verkamannaflokkurinn reynst ráöalaus eins og hann var
orðinn i langri stjórnartiö. Undir árslok hefur Begin komiö nokkuö á
óvart eins og siöar er aö vikiö. Myndin sýnir Begin meö rétttrúuðum
stuðningsmanni.
Styrjöld hefur mánuöum saman geisað milli Eþiópiu og Sómaliu. Sóm-
alir notfærðu sér erfiðleika byltingarstjórnar Mengistús, sem hefur átt
ihöggi við sundrungu og aðskilnaðarsinna I Eritreu og komu (il liös viö
landa sina i suðausturhluta Eþiópiu (Ogaden). Sómöium hefur veitt
betur. Þessi styrjöld hefur opinberað undarlegt stórveldatafl. Sómalir
höfðu verið vinveittir Sovétrikjunum og veitt þeim flotaaöstööu, en
cftir að Sovétmenn vinguðust viö Eþiópa og sendu þeirn vopn, sneru
þeir við blaðinu og ráku Sovétmenn úr landi og vilja nú aöstoö frá
Vesturlöndum og Arabarikjum. Eþiópar voru aftur á móti áöur i góð-
um tengslum viö Bandarikjamenn. Myndir sýnir Sómali undir vopnum
I Eþiópíu.
Bandalag frönsku verkalýösflokkanna, sósialista og kommúnista,
hafði veriö sigursælt — i borgarstjórnarkosningum fyrr á árinu höföu
þeir m.a. náð meirihluta i 22 af 39 stærstu borgum og skoðanakannanir
bentu til þingmeirihluta þeirra á næsta ári. En i sumar hóf kommún-
istaflokkurinn haröa gagnrýni á bandamcnn sina sósiaiista, sakaði þá
um að viija siá af sameiginlegri stefnuskrá, semja til hægri og svo
framvegis. Þessiharða skothrið hefur valdið mikilii ringulreið á vinstri
væng franskra stjórnmála (á hægri væng er hún að sönnu engu minni)
og allavega hefur drcgið úr sigurhorfum vinstrisinna. ítalskir félag-
ar franskra kommúnista i Evrópukommúnisma hafa verið óhressir
yfir þessari þróun. Myndin sýnir Marchais og Mitterand, leiðtoga
sósialista og kommúnista á erfiöum samningafundi. ,—,
t júni fóru fram kosningar á Spáni I fyrsta sinn eftir aö Franco var
steypt af stóli. Miöflokkasamsteypa Suárezar forsætisráöherra fékk
næstum þvi helming þingsæta, en sósialistaflokkurinn vann og ágætan
sigurog hlautum þriðjung þingsæta. Kommúnistaflokkurinn, sem lýt-
ur foryStu hins umdeilda talsmanns Evrópukommúnisma, Carillos,
hlautni 10% atkvæða. Suárez, sem hérséstá myndinni, hefur oröiö að
láta undan fyrir kröfum Katalóna og Baska um sjálfstjórn.
Lance-eldflaug, buröareldflaug
fyrir neindarsprengjur (nev-
trónusprengjur). Fátt eða ekkert
jákvætt gerðist i afvopnunarmál-
um á árinu. Heldur dró úr likum á
stórvcldasamkomulagi um þau
mál með þvi, að Carter for-
setisamþykkti fjöldaframleiöslu
á atómvopnum, sem eyöa lifi en
láta mannvirki i friöi. svokölluö-
um nevtrónusprengjum. Margir
sérfræðingar telja að þar með
aukist líkur á að atómvopnum
veröibeitt i átökum hernaöar-
blakkanua. Það var eftirtektar-
vert að eftir tilkomu þessarar
sprengju og krussskeytisins svo-
nefnda hafa Bandarikjamenn
miklu minna en áður taiaö um aö
Rússar heföu hernaöarlega yfir-
burði yfir þá, eða þvi sem næst.
i fyrsta skipti siðan Bitlaæöiö gekk yfir hefur evrópskur popphópur
náð ótviræðum heimsvinsælduin.Hérerátt viö sænsku sveitina ABBA,
sem er ofarlega á blaöi hjá sovéskum unglingum, hvaö þá þeim sem
nær búa. Þaö var mikill blaðamatur á árinu að tiunda tekjur Abba og
einkamál.
Bretar héldu i sumar upp á aldarfjórðungssetu Elisabetar drottningar i
hásæti. Þessi aldarf jórðungur var cinmitt timi uppiausnar hins við-
lenda breska heimsveldis og þvi voru ýmis hátiöaskrif ekki laus viö
angurværð og eftirsjá. En ljósinyndarar og minjasalar áttu sér góöa
daga og túrismi til Brctlands hefur aldrei veriö meiri.