Þjóðviljinn - 31.12.1977, Qupperneq 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. desember 1977
Annáll erlendra tíðinda árið 1977
Arið einkenndist af vaxandi andófi gegn atómraforkuverum. Um tutt-
ugu ára skeiö var þvi spáð aö atómvisindi myndu leysa öll orkuvanda-
mál. En kjarnorkuverin, sem hafa notið margháttaðrar efnahagslegr-
ar fyrirgreiðslu, reynast dýrari og þá sér i lagi hættulegri miklu en
menn hafði grunað — til dæmis þegar þeir voru að selja Alusuisse Is-
lenska vatnsorku fyrir iitiö. Víða kom til átaka milii lögreglu og um-
hverfisverndarmanna — einkum i Þýskalandi og Frakklandi. Myndin
er frá Cress-Malville i Frakklandi,en þar var barist af hörku við kjarn-
orkuver i smiðum I ágúst.
Þeirri frétt var vel tekið i október, að friðarverðlaunum Nóbels hefði
verið skipt á milli friðarhreyfingar norðurirskra kvenna og alþjóða-
samtakanna Amnesty Internationai, sem berjast fyrir rétti og frelsi
pólitiskra fanga hvar sem er i heiminum. Myndin sýnir hópstöðu á veg-
um Amnesty fyrir utan ræðismannsskrifstofu Suður-Kóreu i Hamborg.
A ítaliu og i Þýskalandi höfðu sig
mjög i frammi sveitir sem telja
byssu og sprengju höfuðvopn i
pólitiskri baráttu. Nokkrir menn
féllu fyrir kúlum þeirra — en
myndin sýnir einn hermdarverka-
manna að verki i Milanó. Umsvif
þessara hópa hafa I báðum lönd-
um verið notuð af hægrisinnum til
að koma glæpaorði á vinstrisinna
yfirleitt, og i Þýskalandi hafa
magnast ofsóknir á hendur
vinstrisinnum og öilum sem hafa
andmælt móöursýki og tilburðum
til lögreglurikis.
Carter Bandarikjaforseti, sem hér sést ásamt einum helsta ráðgjafa
sinum, Brzezinski, var mjög á milli tanna bandariskra blaða. Hann
háði árangurslitið striö við þingið um frumvarp sitt um orkusparnað,
og er ekki séð fyrir endann á þvi máli enn. Mesta athygli vakti þó, hve
harða hrið Carter gerði að Sovétrikjunum og bandamönnum þeirra
fyrir brot á mannréttindum, og álitu margir að þetta með öðru þýddi
nýtt kalt strið milli risaveldanna. En þegar liða tók á árið gerðist Cart-
er allur varfærnari i tali um þau mál, enda höfðu mannréttindaræður
forsetans einnig spillt sambúð hans við mörg vinariki Bandaríkjanna,
sem eru litil fyrirmynd i mannúð.
Sögulegust urðu átök við meðlimi og bandamenn svonefndrar Rauðu herdeildar i Þýskalandi. Þeir
tóku m.a. formann þýska atvinnurekendasambandsins, Schleyer, höndum.Einnig hertóku þeir vestur-
þýska þotu, fulla af farþegum, og kröfðust þess aö helstu liösmenn Baader-Meinhofsamtakanna yröu
látnir lausir fyrir gislana. Bonnstjórnin varð ekki við þeirri kröfu, Schleyer var myrtur, en sérþjálfuð
hersveit frelsaði gislana I þotunni (sem hér sést) meö skyndiáhlaupi i Mogadishu i Sómaliu. Nokkru
siðar f römdu þrir helstu eftirlifandi forystumenn Baader-Meinhof hópsins sjálfsmorð i fangelsi — meö
mjög grunsamlegum hstti. Þetta gerðist i október.
Bréznef flytur ræðu á fundi Æðsta ráðsins sovéska í byrjun október og
gerir grein fyrir nýrri stjórnarskrá landsins, sem samþykkt var I til-
efni 60 ára afmælis Októberbyltingarinnar. Þar er forræði Kommún-
istafiökksins á öllum sviðum þjóðlifs Itrekaö afdráttarlaust. Brésnjef
hafði fyrr á árinu sameinað embætti forseta og flokksforingja f sinni
persónu.
Begin forsætisráðherra israels við hlið Sadats Egyptalandsforseta á
fundi á þingi israels, Knesset, I Jerúsalem 20. nóvember. Skyndileg
heimsókn Sadats til israels voru óvæntustu tiðindi ársins. Þó Sadat láti
annað i veöri vaka er liklegt að hann stefni á sérfrið við ísrael, meöal
annars vegna mikilla efnahagsörðugleika heima fyrir. Palestinuarab-
ar og mörg Arabariki hafa fordæmt þetta tiltæki Sadats og lýst hann
svikara við málstað Araba.
Að lokum skulum við leggja til að
furöulegustu tiðindi ársins hafi
verið þau þegar Bokassa, forseti
Miðafrikulýðveldisins, gerði
sjáifan sig að keisara. Bokassa
lét gera sér hásæti dýrt, kórónu
með 5000 demöntum, margra
metra langa krýningarkápu.bauö
þúsundum gesta og pantaði
handa þeim hálft annað tonn af
lúxusmat frá Paris. Þetta dýra
spaug kostaði um þriðjung árs-
tekna þessa fátæka rikis. Þaö eru
einkum Frakkar sem borga brús-
ann, en Bokassa er sagður bestur
vinur Frakkiands I Afriku (um-
mæli Giscards d’Estaings)