Þjóðviljinn - 31.12.1977, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 31.12.1977, Blaðsíða 19
Laugardagur 31. desember 1977 ÞJOÐVILJINN — StÐA 1» Schlnderhannes og aftaka hans árift 1803. Hann notterhi sérGyðingahatur. • • HROIHOTTUR veruleiki og þjóösaga jafnan fylgir I kjölfar fjármála- óstjórnar. Sú fjármálastjórn, sem ein- kennist af gengislækkunum og si- felldum skatta-álögum og stjórn- lausri veröbólgu, felur I sér misk- unnarlausa verðrýrnun peninga, og sifellda ógildingu á gerðum samningum. Gengislækkun þýðir niðurskurð á innlendu sparifé og á eignum lifeyrissjóöa. Gengislækkun þýðir lika ógild- ingu á kaupgjaldssamningum, sem hátiðlega hafa verið undir- skrifaöir. Gengisiækkunarstefnan leiðir af sér verðbólgu og magnar sið- spillingu. Stjórnmálastaðan við áramót Við þessi áramót er aðeins hálft ár til næstu alþingiskosninga. Sennilega eru nii fleiri kjósend- ur en oftast áður óákveðnir i af- stöðu sinni til stjórnmálaflokka. Það stafar m.a. af pólitiskri ring- ulreið og mótsagnakenndum staðhæfingum um orsakir þess, sem hefir verið að gerast. Astandið i Sjálfstæðisflokknum er lýsandi dæmi um fálm og fát og upplausn af þessu tagi. Þar ægir saman alls konar skoðunum og kröfum og þar koma fram gjör- ólikar stefnur I flestum málum. Þegar foringjar flokksins sam- þýkkja að leggja á nýja skatta á skatta ofan, þá koma aðrir, und- irforingjar i flokknum, og segja að stéfna flokksins sé að lækka skatta. Og þegar rikisstjórn flokksins eykur f sifellu umsvif rikisins, koma aðrir I flokknum og segja að þeir vilji „báknið burt”. Deilurnar um aronskuna er kapituli út af fyrir sig. Þar eru báðir deiluaöilar sammála um grundvallaratriðið, þ.e. hernámið sjálft. Þeir eru hins vegar ósam- mála um, hvernig græða skuli á hernámi og hvernig gróðanum skuli skipt. Upplausnin i Sjálfstæðisflokkn- um hefir náð hámarki með til- komu Dagblaðsins. Það hefir I skrifum sinum dregiö óþyrmilega fram andstæðurnar I flokknum. Þar er t.d. ekki legið á þvi að kaup Viöishússins sé pólitiskt hneyksliog nánast fjárdráttur til vissra afla I flokkskerfinu. Sjálfstæðismennirnir við Dag- blaðið draga heldur enga dul á, að Visir sé gerður út af heildsalahópi i Sjálfstæðisflokknum og Morgun- blaðið sé fyrst og fremst málgagn hagsmunahóps i kringum Geir Hallgrimsson. Enginn vafi er á þvi, að Dagblaðiö hefir verkað eins og sprengja i Sjálfstæöis- flokknum. Það hefir beinlinis tætt lið flokksins i sundur, afhjúpað hvert skandalamálið af öðru og rifið i sundur blekkingarvef flokksforystunnar. Þannig hefir Dagblaðið orðið fulltrúi ýmis kon- ar uppreisnar-afla I Sjálfstæðis- flokknum. Það hefir lika haft þau áhrif, að Visir hefir leyft sér að deila all-hart á vissa aðila i flokknum og hefir Gunnar Thoroddsen eink- um orðiö fyrir baröinu á honum. Upplausnin I Sjálfstæðisflokkn- um er tvimælalaust mikil. Þeir eru ekki margir, sem telja sér fært aö verja stefnu flokksins og gerðir hans i rikisstjórn. Umbrotin I Sjáifstæðisflokkn- um hafa haft sín áhrif inn i aðra flokka, sennilega þó mest I Al- þýðuflokknum. Alþýðuflokkurinn var kominn illa eftir þrásetu sina I stjórn með Ihaldinu. Þar var þvi allt i upplausn fyrir. Nú er svo komið fyrir Alþýðu- flokknum, að hann á aðeins 3 full- trúa á Alþingi, til hans er varla hægt að telja lengur þá Jón Héöinsson og Eggert. Prófkjör flokksins hafa sýnt, að hann er tæpast lengur samfelldur flokkur, og að þvi leyti sem hann kallar sig flokk, veit enginn hvers konar flokk þar er um að ræða. Staða Alþýðuflokksins er I dag mjög tvisýn. Hið gamla, trausta flokksfylgi minnkar stöðugt og varla er hægtað skilja þær deilur, sem opinberlega hafa farið fram á milli frambjóöenda flokksins, á annan veg en þann, að þar séu á ferðinni illvígir andstæðingar og menn með gjörólík stefnumið og lifsviðhorf. Framsóknarflokkurinn hefir ekki farið varhluta af innan- flokksátökum og prófkjörskröfu- mönnum. Dagblaðsumrótiö hefir lika haft sin áhrif þar I flokki. Umbrotin I Framsókn stafa þó miklu meir af þeim áhrifum sem stjórnarsamstarfiö við ihaldið hefir haft i för með sér. Ljóst er, að foringjar flolcksins eru ánægð- ir i stjórn með ihaldinu. Þeirra áætlun er að halda þvi samstarfi áfram. I flokknum eru hins vegar enn margir, sem eru mjög óánægðir með stefnu rlkisstjórnarinnar og vilja rlfa flokkinn lausan úr faðmlögum ihaldsins. Bændur eru sérstaklega óánægðir með stefnu flokksins. Þeir. hafa oröið fyrir miklu tekjiftapi vegna stefnu stjórnarinnar og þeir telja að forystumenn flokksins hafi gjörsamlega brugölzt bænda- stéttinni. Út um allt land er rikisstjórnin óvinsæl, og þess geldur Fram- sóknarflokkurinn, sem ’fullkom- lega ber sina ábyrgð á stjórnar- stefnunni. Staða Framsóknarflokksins er tvimælalaust mjög veik. Honum hefir ekki tekist að leika sina tvi- skinnungs-pólitik með sama ár- angri og oft áður. Bændur trúa ekki flokknum, félagshyggjumenn sjá og finna óheilindi hans, hernámsand- stæðingar sjá svik hans I þvl máli, og frjálslynt fólk á landsbyggð- inni finnur, að flokkurinn er á valdi Ihaldsins og samþykkir engu siður en ihaldið allar árásir á iaunafólk. Samtök frjálslyndra og vinstri manna eru ekki lengur neinn flokkur. Þingmennirnir tveir, sem Samtökin áttu, eru skildir að skiptum, enda ósammála I næst- um öllum málum. Framboð á vegum Samtakanna I næstu kosningum er ábyrgðar- laust hjal þeirra, sem virðast vera tilbúnir til að eyðileggja at- kvæði sin. Það eru blátt áfram blindir menn, sem ekki sjá aö áframhaldandi brölt Samtak- anna getur engum öðrum orðiö að gagni en fhaldinu og rikis- - stjórn þess. Ég hygg að það muni samdóma skoðun manna úr öllum flokkum, að staða Alþýðubandalagsins sé nú sterkari en hún hefir nokkru sinni áður veriö. Alþýðubandalagið er nú sam- stiiltur og sterkur flokkur. Flokk- urinn er óumdeilanlega foiíystu- flokkur verkalýðshreyfingarinn- ar og eini flokkurinn sem launa- fólk I landinu getur treyst. Alþýðubandalagið er flokkur Is- lenzkra sósialista og það er jafn- framt eini flokkurinn sem félags- hyggjufólk og sem frjálslynt vinstra fólk getur reitt sig á. Alþýðubandalagið hefur I ýtar- legu máli gert grein fyrir lang- tima markmiðum slnum i Is- lenzkum þjóðmálum. Það hefir einnig tekið skýra afstöðu til allra þýðingarmestu þjóðmála, sem nú eru á dagskrá. Það umrót, sem nú er I islenzk- um stjórnmálum, má ekki leiða til þess, að pólitiskir framagosar og rótlausir yfirborðsmenn og skvaldrarar nái til sin fylgi þeirra manna, sem nú eru að yfirgefa þá flokka, sem svikið hafa umbjóð- endur sina og leitt hafa yfir þjóð- ina það öngþveiti I efnahagsmál- um, sem öll þjóðin talar um. Það er röng stjórnarstefna, sem magnað hefir veröbólguna, sem siðan leiðir af sér siðleysi og spill- ingu. Gegn þessari stefnu hefir Alþýðubandalagiö staöið viö hlið samtaka launafólks. Valið verður þvl á milli Alþýðu- bandalagsins sem stjórnmálaafls og flokka rikisstjórnarinnar. Nýtt ár er nú að hefja göngu sina. Við skulum vona aö þaö verði öllum landsmönnum gott ár og heillarikt, og boöi nýja tima og betri tima. Ég óska öllum landsmönnum góðs komandi árs um leiö og ég þakka samstarfið á árinu sem er að liða. Lúövik Jósepsson. Hrói höttur er imynd hins göfga ræningja. Hann stelur frá þeim riku og gefur þeim fátæku, og hef- ur persónan orðiö vinsæl i sögum eins og menn vita. Um allar jarð- ir eru reyndar til sagnir um göfuga ræningja, sem gerðu hin- um riku lifið.'teitt. Það eru lika til heimildir um slika menn — einn var þýskur hét Jóhannes og kall- aði sig herra Sunnuskógar (um 1800), annar var italskur, Angeiico Duca, og setti eigin rétt i borgum Suður-ttaliu á átjándu öld, hinn þriðji var búlgarskur. Rússar eiga einn i Stenku Razin svo mætti lengi telja. En hverjir voru þessir menn I raun? Eins og sagnirnar vilja vera láta? Eða voru þeir venju- legir glæpamenn? Eða eru þeir uppspuni mestan part? Þessum spurningum reynir Helmut Höfling að svara i nýlegri bók sem heitir „Hetjur gegn Lög- um” (Helden gegen das Getetz. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að þvi er þessa garpa varðar sé ærið langt á milli skáldskapar, þjóðsögu — og veruleika. Ekki einsdæmi Duca var t.d. enginn rómantiskur bófi meö gitar undir hendi eins og Rinaldini sá sem hann varð fyrirmynd að i þekktri skáldsögu. Duca lenti i deilum við hertogann af Martina og varð að flýja frá bæ sinum. Hann fór til fjalla, kom sér upp ræningja- flokki og rændi óðalsherra og klerka. Ferill hans var ekki óvenjulegur — þetta gerðu margir þeirra sem flúðu fangelsi eða gálga.I konungsrikinu Napoli einu saman er greint frá um 3400 ræningjum nafnkenndum á 17 öld, og 17 ræningjaforingjar náðust og voru teknir af lifi. En þess er lika getið, aö stjórn landsins gerði samkomulag við um 103 foringja og 1438 liðsmenn þeirra — einn þessarra manna, Fra Diavolo, varð meira að segja yfirmaður Napolihers. Hann bauð samning Duca klæddi sig i firnalega glæstan búning og minnti i öllu framferði fremur á nútima einræðisherra en á mann „sem ris gegn rikjandi valdi”. Hann lagði fram við Ferdinand fjórða Ngpólikonung, að þeir gerðu með sér samning — „ég vil sagði ræn- ingjaforinginn, berjast við hlið yðar hátignar fyrir nýrri og rétt- Duca orðinn ab hinum rómantiska ræningja Rinaldini. látri skipan mála i landinu”. En þessi tilraun til að „hverfa aftur i skaut borgaralegs félags” mistókst. Duca hafði teflt of djarft, og tilboð hans um „nýja skipan” var Ferdinand litt að skapi. Duca var hundeltur af auknum krafti og var hann hand- tekinn árið 1784 og hengdur sköromu siöar. Þjóðsagan hefur gert úr Angelico Duca fyrst þjóðhetju og siðan uppreisnarmann gegn samfélaginu. Hann var hvorugt þegar grannt er skoðað. Ekki heldur kollegi hans i Rinarlönd- um. Jóhannes sá sem kallaður var Schinderhannes. Jóhannes i Rinarlöndum. Duca varð vinsæll af þvi hann átti i raun og veru i höggi við óðalsherra. Vinsældir Schinder- hannes voru miklu hæpnari. Schinderhannes kaus helst að ræða gyðingakaupmenn og þótti það gott athæfi á heimaslóðum hans. Schinderhannes þurfti þvi ekki á neinni sérstakri dirfsku að halda — stundum hafði hann beinlinis blessun háttsettra manna fyrir þvi að rsna Gyðinga, og ef hann réðst bara á Gyðinga i einhverju þorpi hreyfði enginn legg né lið til að hjálpa þeim. Það var ekki fyrr en Schinder- hannes óx ásmegin og hann fór einnig að ræna efnaðri bændur, að almenningsálitið snerist gegn honum. Bændurnir gripu til vopna hvenær sem ræningjarnir sáust. Schinderhannes reyndi eins og Duca að semja sig i frið við yfir- völdin, en það tókst ekki. Hann var handtekinn i mai 1802 i nánd við Limburg og voru þar að verki franskir hermenn sem þá hernumdu þessi svæði. Ari síðar hófust réttarhöld i máli þessa fræga ræningja og var hann að þeim loknum hálshöggvinn. Þennan mann hefur Carl Zuck- meyer siðar reynt að dubba til uppreisnarmanns gegn sam- félaginu i leikriti. Frumstætt andóf Breski samfélagsfræðingurinn Eric Hobsbawm segir um þetta efni: „1 vissum skilningi eru ræningjahóparnir mjög frum- stætt form andmæla gegn sam- félaginu”, Og þar eð raunveru- legir uppreisnarmenn gegn samfélaginu eru ekki finnanlegir meðal þekktra ræningja, þá eru þeir búnir til i sögum og sögnum — rétt eins og Hrói Höttur úr Skirisskógi, sem aldrei hefur verið til.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.