Þjóðviljinn - 31.12.1977, Síða 25

Þjóðviljinn - 31.12.1977, Síða 25
Laugardagur 31. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — S1ÐA25 Gleðilegt nýár BRIDGE Llfnsión: Balduí Knstjansson Olafur Ldrusson Helstu viðburðir ársins ’77 Nú I árslok 1977 vill bridge- þáttur Þjóöviljans fara stutt- lega yfir helstu viöburöi, sem tengjast sögu bridge þetta ár. Fyrst veröur á vegi okkar sveit Hjalta Eliassonar, sem bar ægishjálm yfir flesta keppi- nautasinaá árinu. Sveitinsýndi mikiö öryggi i þeim mötum sem hún spilaöi f, og gott ef hún bar ekki sigur úr býtum I þeim flestum. Sveitina skipa, auk Hjalta, þeir Asmundur Pálsson, Einar Þorfinnsson, Guölaugur R. Jóhannsson og Orn Arnþórs- son. Sveitin bar sigur úr býtum i Islandsmóti i sveitakeppni, vel fyrir ofan næstu menn, sem var sveit ólafs Lárussonar, en hún var skipuö i bland ungum og reyndum og eldri. Auk Ólafs voruHermann Lárusson, Bene- dikt Jóhannsson, Hannes R. Jónsson, Gestur Jónsson og SigurjónTryggvason I sveitinni. Kom frammistaöa sveitarinnar nokkuö á óvart. 1 þriöja sæti varö svo sveit Stefáns Guö- johnsens, en auk hans voru i sveitinni Simon Simonarson, Höröur Arnþórsson, Þórarinn Sigþórsson og Hallur Símonar- son. i Islandsmót 1 tvimenning einokaöi pariö Höröur Arnþórs- son og Þórarinn Sigþórsson, og sigruöu þeir meö miklum glæsi- brag. Þeir eru einnig núverandi Reykjavlkurmeistarar i tvi- menning. Báöir titlamir eru þeir fyrstu, sem pariö hlýtur. Gott afrek þaö. I 2. sæti i íslandsmótinu I tvi- menning uröu nokkuö aö óvörum ungir menn frá Akra- nesi, sem komust inn i mótiö sem varapar. Það voru þeir Jón Alfreðsson og Valur Sigurösson. Valur hefur oft staöiö sig meö miklum ágætum fyrr á sterkum mótum en Jón hefur ekki fyrr komist I verölaunasæti i stórmóti I bridge. 1 þriöja sæti uröu svo Stefán Guöjohnsen og Simon Simonarson. Bikarkeppni BSt, sveita- keppni,var hrundiö af staö i ár. Alls tóku 32 sveitir þátt i keppn- inni sem var meö útsláttarfyrir- komulagi. Þegar upp var staöiö, eftir gifurlega jafnan úrslita- leik, varð sveit Armanns J. Lárussonar sigurvegari. Auk Ármanns voru Jón Páll Sigurjónsson, Haukur Hannes- son, Sævin Bjarnason og Vilhjálmur Sigurösson I sveit- inni. Þaö var sveit Jóhannesar Sigurössonar úr Keflavik, sem mátti bita í þaö súra epli aö tapa á jöfnu fyrir Armanni og co. í sveit Jóhannesar vorui Einar Jónsson, Guömundur Ingólfsson, Karl Hermannsson, GIsli Torfason og Magnús Torfason. Bikarmeistarar I tvimenning uröu þeirfélagar frá Hornafiröi Jón Gunnar Gunnarsson og Gunnar Karlsson. Þeir komu út meö góöa skor og voru vel aö sigrinum komnir. Jón Gunnar er nú kominn til Sigluf jaröar, en Gunnar til Reykjavikur. Reykjavfkurmóti I tvi- menning er nýlokiö. Eins og fyrr sagöi báru þeir Hörður Amþórsson og Þórarinn Sig- þórsson sigur úr býtum eftir geysiskemmtilega keppnivið þá Guðlaug R. Jóhannsson og örn Arnþórsson, sem höfnuöu i 2. sæti. Guðlaugur og öm, sem tóku forystu fyrri daginn og hrein- lega stungu alla af, gáfu allmik- iö eftir siðari daginn, sem var alveg nóg fyrir Hörö (bróöur Arnar) og Þórarin. Þessi tvö pör, auk Hjalta og Asmundar, skipuöu landsliö tslands á Evrópumótinu sl. sumar. Og i 3. sætinu á Reykjavikur- mótinu höfnuöu þeir frændur Helgi Jónsson og Helgi Sigurös- son, báöir ungir læknanemar; sem hafa staöiö sig glæsilega þaösem af er keppnistímabilinu i vetur. Vert er aö minnast á frammi- stööu kvennaparsins Höllu Bergþórsdóttur og Kristjönu Steingrímsdóttur. Þær náöu 5. sætinu, og hafa iöulega veitt karlpeningnum haröa keppni slöustu árin. Til dæmis náöu þær st öllur 5. sæti I lslandsmóti i tvim. 1974 og spiluöu þaö ár (þe. Halla og Vigdis, fyrir Kristjönu) á OL I tim. 1974. Reykjavikur- móti I sveitakeppni 1977 lauk meö sigri sveitar Hjalta Elias- sonar. I 2. sæti varö sveit Þóris Sigurössonar, en auk hans spil- uöu i sveitinni Höröur Blöndal, Guömundur Pétursson, Sig- tryggur Sigurösson, Jón Asbjörnsson og Gunnar Guö- mundsson. Islandsmótieinmenning, sem jafnframt er firmakeppni BSÍ, fór fram sl. vor. Sigurvegari i þvi móti, eftir haröa keppni, varö kempan Jóhann Jónsson frá Siglufirði. Sá er veitti honum mestu keppnina og hafnaöi i 2. sæti, var ólafur Lárusson (enda ætt- aöur af sömu slóöum...) Og í þriöja sæti varö Júliana Isebarn. Þessi þrjú skáru sig nokkuð úr og náöu góöu heildarskori, sem hvert um sig heföi dugaö til sigurs fyrri tslandsmóta 1 einmenning. Hæstri einstakri skor náöu Zophanias Benediktsson 126, Ólafur Láruss. 125 og frú Júliana Isebarn 124. Þrjú stig- hæstu firmu uröu: 1. Skeljungur (spilari Zophanias) 2. Loftleiðir (spilari Ólafur L.) 3. Bernhard Petersen (spilari Júliana). Eins og fyrr sagöi sendi tsland liö á EM 1977. Þaö voru Asmundur — Hjalti, Guölaugur — örn og Hörður — Þórarinn. Alls tóku 22 lönd þátt i mótinu sem er svipaö og fyrri ár. Arangur Islands var undir meðallagi, en liöiö hafnaöi i 15. sæti. Liðiö náöi ágætum árangri fyrri hluta mótsins og stóö þá vel i þeim bestu, en þegar slga tók á mótiö, kom úthaldsleysi i veg fyrir frekari árangur. Enda er ekki lengur spurt um árangur liða sem fara frá Islandi til keppni i'bridge, heldur er spurt, komumst viö á mótiö? Þegar slikar hugsanir þjá menn kemst litiö annaö aö, og þaö er atriöi sem veröur aö laga. Akveöa veröur meö löng- um fyrirvara, hvort skuli vera meö i einstökum mótum fram- tiöarinnar, siöan getum viö haf- iö raunhæfan undirbúning innan þeirra marka sem áhuga- mennskan býöur upp á. Onnur landsliö frá tslandi tóku ekki þátt i neinu móti ööru en þessu. Enginn spilari fór t.d. á EM I tvÍmenningi,og veröur aö segjast sem er, aö litiö og þröngt er athafnasviö bridge- spilara á Islandi I dag. Vonir standa þó til, aö næsta ár veröi lengi i minnum haft, þvi þá veröur m.a. NM hér á landi, sent verður ungl.-liö á EM-ul 1978 i Skotlandi, og næsta ár er Olympluár. Auk þessa veröur BR meö gestamót á Loftleiöum, þar sem erlendir gestir munu sækja okkur heim. Og næsta ár er einnig afmælisár Bridgesam- bandsins. Og hérmeð lýkur yfirliti yfir helstu viöburöi ársins sem er aö liða og þess komandi. Þátturinn óskar iandsmönn- um öllum gleöilegs árs og friö- ar. Frá BR Þættinum hefur borist dag- skrá félagsins eftir áramót, og er hún i helstu atriöum þessi: 4. jan. verður nýárskaffikvöld félagsmanna.og á dagskrá verö- ur Landstvimenningur (bikar- keppni), ásamt fleiru. Sveitakeppni 11. jan — 1. febr. alls 4 kvöld. Monrad 16 spila leikir. Þátttaka tilkynnist 4. jan, en 2 efstu sveitir fá rétt til þátt- töku i m.fl. aöalsv.k. Board A Matchkeppni sveita 8. febr. — 1. mars 4 kvöld Hámarksþátttaka 16sveitir. Þátttaka tilkynnist 1. febr. Arangur veitir einni sveit rétt til þátttöku i m.fl. aðal- sveitakeppninnar. Meistarakeppni i tvimenning 7. mars til 5. april, alls 4 kvöld. Barometer 2 flokkar. Hvor 16 Framhald á bls. 3 0 75 ára ' Jóhann J. E. Kúld Mér er sagt að Jóhann Kúld sé 75ára i dag. Ég vil nota tækifærið i tiiefni af afmælinu og þakka Jóhanni fyrir mikið og gott sam- starf viö mig og fyrir hans mikla og óeigingjarna starf, sem hann hefur unnið með skrifum I Þjóö- viljann um sjávarútvegs- og fisk- veiðimál. í þau tvö skipti, sem ég hef átt sæti i rikisstjórn og haft með stjórn sjávarútvegsmála að gera naut ég góðs samstarfs viö Jóhann Kúld og fékk frá honum Menuhin vill bjarga föngum í Uruguay PARtS. Hinn heimskunni fiölu- > snillingur, Yehudi Menuhin, hef- ur hvatt alla tónlistarmenn til aö neita aö koma fram i Uruguay þar til argentinski pianóleikarinn Miguel Angel Estrella og aörir fangar þar i landi hafa veriö látn- ir lausir. Estrella, sem er fertugur, kom fyrir herrétt I Montevideo i Uruguay fyrir tveim dögum sak- aður um aðild aö argentinskum skæruliðasamtökum. Hann var handtekinn 16. desember. 1 bréfi til franska blaðsins Le Monde segir Menuhin m.a.: ,,Ég hvet starfsbræöur mina og áheyr- endur þeirra til að fordæma þá sem hafa handtekið Miguel Angel Estrella og neita að aðstoða þá, leika fyrir þá eöa starfa fyrir þá þar til hinum saklausu hefur ver- iö sleppt úr haldi.” margar ábendingar og mörg góö ráð. Jóhann er. eins og flestir vita sem nokkuð hafa fylgst með sjávarútvegsmálum hér á landi siðustu áratugi, gagnfróður um allt sem lýtur að-sjávarútvegi og fiskveiöum.Hannhefur lika varið meginhluta ævi sinnar sem sjómaður, eða I störf, sem eru i nánum tengslum við fiskveiðar og fiskverkun og aðra þá vinnu, sem sjávarútvegsfólk verður aö inna af hendi. Jóhann starfaði lengi hjá Fisk- mati rikisins. Þar vann hann brautryðjandastarf á sviði frétta- miðlunar og upplýsingaþjónustu fyrir fiskimenn og fiskverkendur. Ég efast ekki um að störf Jóhanns á þessu sviði hafa fært þjóðarbú- inu hundruð miljóna i verðmeiri framleiðslu. Þekktastur er Jóhann senniléga fyrir skrif sin I Þjóðviljann um fiskimál. Greinar hans um þau efni hafa örugglega verið mikiö lesnar, enda hef ég oft orðið þess var á ferðalögum mlnum um landið, að vitnaö er i upplýsingar Jóhanns i þessum greinum. Ég er sannfæröur um að þeir eru margir, sem á 75 ára afmæli Jóhanns vilja, um leiö og þeir árna honum heilla, þakka honum fyrir greinarnar um fiskimál. Slikt þakklæti mun Jóhann fá frá sjómönnum og sjávarútvegsfólki ilandiog frá útgerðarmönnum og öörum þeim, sem áhuga hafa á sjávarútvegsmálum. Jóhann Kúld er ekki aðeins afburöavel að sér á sviði sjávarútvegsmála; hann er einnig ágætur rithöfund- ur og hefur sent frá sér góðar og athyglisverðar bækur. Jóhann er lika gamall og þraut- reyndur baráttumaður úr verka- lýðshreyfingunni. t þeirri baráttu hefur hann alltaf verið I fremstu röð og hvorki látið hótanir né bliö- mæli aftra sér frá að halda þaö strik, sem hann hefur talið rétt- ast. Jóhann hefur skipað sér i raðir Islenskra sósíalista og með þeim hefur hann unnið öll sln starfsár af dugnaði og samviskusemi, eins i og honum er lagið. Ég færi Jóhanni mlnar bestu árnaðaróskir á 75 ára afmælinu. i LUðvik Jósepsson Á 75 ára afmæli Jóhanns Kúlds A 75 ára afmæli Jóhanns J.E. Kúld færir Þjóðviljinn honum alúðarþakkir fyrir hans miklu störf fyrir blaðið og islenska verkalýðshreyfingu. I áratugi hefur Jóhann Kúld skrifað þáttinn Fiskimál i Þjóð- viljann og miðlað þar iesendum blaðsinsaf sinni miklu þekkingu á sjávarútvegsmálum. Þessi störf hefur Jóhann frá þvi fyrsta til þessa dags unnið sem sjálfboðaliði, og eru þeir ekki margir, sem lagt hafa Þjóðvilj- anum meira lið en Jóhann. Jóhann Jón Eiriksson Kúld er fæddur 31. des. 1902 að ökrum i Hraunhreppi I Mýrasýslu. For- eldrar hans voru hjónin Eirikur Kúld Jónsson, bóndi þar, og Sig- riður Jóhannsdóttir frá öxney á Breiðafirði. Jóhann hóf ungur sjó- mennsku og hafði stundað sjó um árabil, þegar hann settist að i Noregi árið 1923, en þar var hann búsettur I þrjú ár. A þeim árum stundaði Jóhann bæði veiðiskap og siglingar með Norðmönnum. Arið 1926 kom Jóhann heim og settist að á Akureyri þar sem hann var bú- settur I 15 ár. Þar stundaði Jóhann sjómennsku, en alllengi varð hann að dvelja á heilsuhæl- um vegna berklaveikinnar, sem víða herjaði á þeim árum. Jóhann Kúld var einn af for- göngumönnum að stofnun Sjó- mannafélags Norðurlands, sem nú heitir Sjómannafélag Akureyrar, og var hann fyrsti formaður félagsins og jafnan i stjórn þess meðan hann bjó á Akureyri. Meðan Jóhann dvaldi á Krist- neshæli, vann hann ötullega að stofnun Sambands Islenskra berklasjúklinga og gaf þá út blaðið Berklavörn. Þegar Jóhann fluttist til Reykjavikur árið 1941 starfaði hann fyrst I nokkur ár hjá bréska flotanum við björgunar- störf hér við land, en þetta var á striösárunum. Slðan tóku við störf hjá flugmálastjórn, en lengst hefur Jóhann starfað hjá Fiskmati rikisins nú á slöari ár- um. Jóhann hefur ætlö verið virk- ur og áhugasamur félagi i stjórnmálasamtökum islenskra sósialista, fyrst á Akureyri, en siðan i Reykjavik. Hann átti um sinn sæti I miðstjórn Alþýðu- bandalagsins, og var I kjöri fyrir Sósialistaflokkinn I alþingiskosningum bæöi á Snæfellsnesi og I Mýrasýslu. Þá hefur Jóhann einnig starf- að mikið i samvinnuhreyfing- unni og lengi verið formaður i deildarstjórn KRON i Reykja- vik. Um sinn átti Jóhann sæti i stjórn StBS, og i stjórn Rithöf- udafélags Islands hefur hann einnig setið JóhannKúld errithöfundur og hefur gefiö út margar bækur, flestar tengdar lifi sjómanna. Fyrsta bókin var tshafs- ævintýri, sem út kom á Akureyri árið 1939. Meðal siöari bóka Jóhanns eru: Sviföu segl- um þöndum, útkomin 1940, A hættusvæöinu, útkomin. ,1942, Um heljarslóö, útkomin 1943, A valdi hafsins útkomin 1946, Þungur var sjór, útkomin 1948. Kvæðabók hefur Jóhann og gefið út, hún kom 1955 og heitir Upp skal faldinn draga. Nú hef- ur Jóhann hafið ritun ævisögu og kom fyrsta bindi hennar — 1 stillu og stormi — út nú fyrir stuttu. Jóhann kvæntist 1927 Halldóru Þorsteinsdóttur, en hún dó sjö árum siðar. Arið 1941 kvæntist Jóhann Geirþrúði Jóhönnu, hjúkrunarkonu, Asgeirsdóttur bónda á Arngeröareyri viö tsafjaröar- djúp Guðmundssonar. Hafa þau lengi búiö aö Litlageröi 5 i Reykjavik, og þar er þeirra heimili nú. Þjóðviljinn sendir Jóhanni og fjölskyldu hans bestu árnaðar- óskir á 75 ára afmælinu. Viö þökkum Jóhanni langt samstarf, sem ætft) hefur veriö ánægjulegt og Þjóðviljanum og málstað hans til heilla. Þjóöviljinn.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.