Þjóðviljinn - 31.12.1977, Blaðsíða 30
30 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. desember 1977
Launagreiöslur hjá Eimskip
Til fyrirmyndar
sagöi Guömundur J. Guðmundsson
Eins og skýrt var frá i Þjóðvilj-
anuin i gær borgaði Eimskipa-
félag íslands ekki út laun til
verkamanna á fimmtudag, eins
og venjulega, og lögðu tveir
vinnuflokkar niður vinnu af þeim
sökum.
Guðmundur J. Guðmundsson
varaformaður Dagsbrúnar hafði
samband við Þjóðviljann i tilefni
af þessari frétt blaðsins og vildi
leiðrétta þann misskilning, sem
lesa má af henni, að launakerfi
Eimskips sé veikbyggt og að
óregla sé á greiðslum vinnulauna
þar.
„Eimskip er næst stærsti
vinnuveitandi Dagsbrúnar-
manna”, sagði Guðmundur ,,og
það er ekki aðeins að útborganir
hjá þessum atvinnurekanda eru
til einstakrar fyrirmyndar, heldur
í dag?
Þjóðviljinn hringdi i Arna
Gunnarsson ritstjóra Alþýðu-
blaðsins i gær og spurði hvernig
samningar blaðsins við Reykja-
prent fengu.
Hann sagðist ekkert vilja segja
um málinenbúastvið að sæifyrir
endann á þeim fyrir hádegi i dag.
Við munum skýra frá samning-
unumogöllusem þeim við kemur
i fyrsta blaði eftir áramót ef þetta
er þá ekki búið spii, sagði Arni.
einnig greiðslur launatengdra
gjalda, svo sem i lifeyrissjóð,
orlofssjóð og félagssjóð.
Við vitnum jafnan til þessarar
skiivisi Eimskips, þegar við erum
að ströggla við aðra vinnuveit-
endur á félagssvæðinu,” sagði
Guðmundur, „sem margir
hverjir greiða ekki launatengdu
gjöldin á réttum timum.”
Um vanhöld á greiðslum á
fimmtudag sagði Guðmundur, að
i samningum verkamannasam-
bandsins væri ákvæði um að
greiða mætti út á föstudegi ef
greitt væri i peningum, og hefði
Eimskip þvi talið sig vera i rétti
til þess að draga launagreiösl-
urnar um einn dag.
Ástæðan var veikindi eins
starfsmanns á launadeild
Eimskips og einnig það að ekkert
Eins og fram hefur komið áður
hefur okkur verið boðin aðstoð frá
A-pressunni og verkalýðssam-
böndunum á Norðurlöndum.
Okkar hugmynd er að iiða ekki út
af. Það yrði heldur sárt fyrir þá
sem eru að reyna að styðja við
bakið á verkalýðshreyfingunni,
hvort sem þeir eru i Alþýðu-
bandalagi eða Alþýðuflokki, að
tapaðist eitt málgagn hennar.
Fyrir okkur er þetta fyrst og
fremst hagsmunabarátta, sagði
Arni að lokum. __(jpr
var unnið á mánudegi, sem var
annar i jólum, og voru tölvuút-
reikningar þvi ekki tilbúnir.
„Eftir að þetta varð ljóst,”
sagði Guðmundur, „urðu menn
sammála um að hef ja vinnu á ný
ef greitt yrði út á föstudags-
morgni, sem og var gert.”
—A1
Ásakanir læknis:
Flýtt fyrir
dauda van-
heilla ung-
barna
LONDON. Læknir einn i London
hefur gefið til kynna að sumir
starfsbræður sinir gefi vanheiium
eða vansköpuðum ungbörnum of
stóra skammta af lyfjum og van-
næri þau tii dauða.
Dr. Margaret Whete, sem á
sæti á borgarráði, bar fram þess-
ar ásakanir á blaðamannafundi.
Var hún að boða upphaf herferðar
gegn þessu atferli.
„Okkur hefur um tima verið
kunnugt um, að ýmsir læknar
hafa notað vafasamar aðferðir
sem ieiða til láts vanheilla barna,
með ofgjöf lyfja og vannæringu”
sagði dr. White.
Hún kvaðst hafa undir höndum
skýrslur frá hjúkrunarkonum
sem sýna að tilfellum fer fjölg-
andi. Þar segir á þá leið, að
börnin séu svo dösuð af sterkum
lyfjum að þau geti ekki hrópað á
fæðu, þeim er þá gefið minna og
endirinn verður sá að þau deyja
úr hungri.
Hjúkrunarkona ein tók til máls
á blaðamannafundinum og
kvaðst hafa sagt upp starfi til að
mótmæla meðferð á fjögurra
mánaða gömlu vansköpuðu
barni. Hún hvatti fleiri af starfs-
fólki heilbrigðisþjónustunnar til
mótmæla.
Samtökdr. Whitevilja beita sér
fyrir löggjöf sem herðir á rann-
sóknum á dauða ungbarna.
Félagið telur sig hafa heimildir
fyrir þvi, að 500 af um 2500
börnum sem fæðast með vissa
bæklun i hrygg, séu svelt til bana
á fyrstu mánuðum ævi sinnar.
Frá og með 1. janúar 1978 hækkar
brunabótamat um 35%.
SKIPAUTGCRB RIKISIJCS
M.s. Hekla
fer frá Reykjavik fimmtu-
daginn 5. janúar vestur um
land I hringferð.
Vörumóttaka
alla virka daga til 4. janúar
tii Vestfjarðahafna, Norður-
fjarðar, Siglufjarðar, Ólafs-
fjarðar, jAkureyrar, Húsa-
víkur, Raufarhafnar, Þórs-
hafnar og Vopnafjarðar.
M.s. Esja
fer frá Reykjavik mánudag
9. janúar austur um land i
hringferð.
Vörumóttaka
alla virka daga til 7. janúar
til Vestmannaeyja, Aust-
fjarðarhafna, Þórshafnar,
Raufarhafnar, Húsavikur og
Akureyrar.
Torfi
Framhald af bls. 7.
baki. Komst hann um kvöldið aö
Borgargarði, sem er smábýli i út-
jaöri Djúpavogs og tók þar gist-
ingu. Búendur I Borgargarði 1884
munu hafa verið hjónin Jó'n Jóns-
son frá Núpi og Anna Jónsdóttii
frá Veturhúsum.
Heim komst svo Magnús me?
kaupstaðarvarning sinn næsts
kvöld. Og bráttfórum búr og eld
hús I Vindborðsseli ferskur ilmui
af kornvöru, kaffi og töbaki. A
næsta degi ukust þar jólaannir
þvi að kaffi varð að brenna og
korn að mala i jólalummurnar
Lika var fram tekin fjöl og
tóbaksskurðarjárn, þvi að rjóliö
varð að skera frá Brownsbræör-
um f borginni við sundin blá.
Ekki verður hjá þvi komist, að
skýra hér frá þvi, hvað dvaldi
vöruskipið „Onnu”, sem brást
vonum Austur-Skaftfellinga á
haustnóttum 1884. Allir töldu vist
að skipið hefði farist I hafi með
manni og mús; slikt var ekki óal-
gengt að Atlantshafið með sina
djúpu Islandsála grandaði einu
veikbyggðu seglskipi i haust-
stormum. ísland var ekki I nein-
um tengslum við veröldina hand-
an hafsins, og fréttir til landsins
bárust ekki hingað eftir öðrum
leiðum, en með bréfum, sem oft
voru lengi á leiðinni. Verslunar-
stjóripn, Jónsen á Papósi, vissi
ekkert meira en aðrir um afdrif
skipsins,og þótt hann beindi sjón-
auka sinum öðru hvoru til hafs,
bar þar ekkert markvert fyrir
augað.
En hinn 9. mars árið 1885 rak
sunnanpóstur koffortahestana
sina heim traöimar I Hólum, og
þegar búiö var að opna póstkoff-
ortin, kom þar i ljós sendibréf til
Jónsens & Papósi, stimplað i
Kaupmannahöfn. A næsta degi
var riðið með þetta merkis
bréf upp á Papós og Jönsen af-
hent það. Þetta bréf
hafði þá þær fregnir að færa, að
„Phil” skipstjóri á „önnu”
hefði komið skipi sinu til Nor-
egs á jóladaginn 1884 — rétt
um sama leyti og heimilisfólk i
Vindborðsseli á Mýrum var að
gera sér dagamun með ilmandi
kaffiog tóbaki. Hafði skipið lask-
ast eitthvað i ofviðri og varð þvi
að leita hafnar i Noregi i tvö
skipti til viðgeröar. Svo bar það
til á annan I páskum, sem þá bar
upp á 7. april, að bjarmaði fyrir
seglum á Lónsvikinni,og brátt var
vöruskipið Anna lagst við festar á
legunni á Papósi, eftir 215 daga
hrakninga á hafinu milli Islands
og Danmerkur. Fregnin um
skipskomuna fór eins og fagnað-
arbylgja um byggðir Austur-
Skaftafellssýslu, og næsta daga
glumdu götutroðningar héraðsins
undan hesthófum ferðamanna,
sem ýmist voru á leið i kaupstað-
inn eða á heimleiö meö vörur.
Ekki skilaði þó Papósskipið öll-
um vörum farsæUega á land, þvi
aðsamkvæmtskipsskjölum vant-
aði einn kassa með forklæöadúk
og meðölum.
Sýslumaöur Austur-Skaftfell-
inga, Sigurður Ólafsson. sat þá á
Kirkjubæjarklaustri,og var tafar-
laust sent til hans, til aö kæra
vöruþjófnaðinn. Ekki var unnt aö
ná til sýslumannsins nema með
því móti að skrifa honum kæru-
bréf og að senda hraöboða með
það vestur að Kirkjubæjar-
klaustri. Var til þeirrar ferðar
fenginn trúveröugur maður, Páll
Þorsteinsson, móöurafl Valdi-
mars I Amanesi. Páll fékk til
feröarinnar nokkra úrvals feröa-
hesta, enda var hann aöeins 12
daga á leiöinni fram og til baka.
Þegar sýslumaður svo geystist i
hlað á Papósi, var vörukassinn
fyrir löngu kominn I leitirnar. En
kaupstaðurinn iðaði af lifi og fjöri
feröamanna því fólk kom hvaðan
æva að, tii að ná sér I kornlúku
kaffi, sykur og rjól — og konurnai
til að kaupa sér klúta.
Torfi Þorsteinsson
i.EIKFRlAG
REYKIAViK.UK
SKALD-RÓSA
3. sýning þriðjudag. Uppselt.
Rauð kort gilda.
4. sýning föstudag kl. 20:30.
Blá kort gilda.
5. sýning 8. janúar kl. 20:30.
Gul kort gilda.
SKJALDHAMRAR
miðvikudag kl. 20:30.
SAUMASTOFAN
fimmtudag kl. 20:30.
Fáar sýningar eftir.
Miðasaian i Iðnó er lokuð I dag
og sunnudag 1. janúar. Opnar
mánudaginn 2. janúar kl.
14:00. Simi 1 66 20.
GJeðilegt ár!
Bridge
Framhald á bls. 25
para. Meistarakeppni sveita 12.
april — 31. mai, 7 kvöld. Þátt-
taka i 1. flokk tilkynnist 5. april,
en 8 sveitir skipa m.fl. sem velj-
ast þannig: 4 sveitir eiga rétt
frá siðasta ári, 1 úr hraðsveita-
keppninni sl. haust 2 úr sveita-
keppninni sem hefst 11. jan., og
1 úr Board A Match-keppninni,
alls 8 sveitir.
Og loks Barometer-keppnin
að Loftleiðum 4. og 5. mars.
Þátttakendur valdir sérstak-
lega (boðsmót), en spilað verð-
ur að Loftleiðum.
Nánar síðar.
Spilað er á miðvikudögum, i
Domus Medica. Keppnisstjóri
verður eftir áramót Agnar
Jörgensson. Keppnisstjóri fyrir
áramót var Páll Hjaltason.
Frá Reykjanesi
Reykjanesmótinu i sveita-
keppni, undanúrslit, verður
framhaldið annan sunnudag,
þ.e. sunnudaginn 8. janúar.
Lýkur þá undankeppninni. Spil-
að er i Þinghól, Kóp. Spila-
mennska hefst stundvislega kl.
13.00 Fjórar (4) efstu sveitirnar
i hverjum riðli komast I úrslit,
auk meistara fyrra árs.
Reykjanessvæðið á nú rétt á 5
sveitum inn I Islandsmót, auk 2.
varasveitar.
Undankeppni fyrir tvimenn-
inginn verður auglýst nánar sið-
ar. Þará svæðið réttá lOpörum
inn i íslandsmót, sem er mjög
gott hlutfall.
Frá Ásum
Aðalsveitakeppni félagsins
verður framhaldið mánudaginn
9. jan. Þá verður spiluð 5. um-
ferð, og mætast þá m.a. sveitir
Jóns Hjaltasonar og Sigtryggs
Sigurðssonar.
Frá TBK
Væntanlegir keppendur i
aðalsveitakeppni félagsins eru
minntir á, að hún hefst fimmtu-
daginn 5. janúar n.k. Þátttöku-
tilkynningar skuii hafa borist
fyrir þann tima, til Éiriks
Helgasonar s: 16548. Hann mun
einnig veita alla þá aðstoð sem
hægt er til myndunar sveita
þeim pörum er þess óska. Spilað
er i M.fl og l.fl.
Keppnisstjóri er Agnar
Jörgenson. Spilað er i Domus
Medica, og hefst keppni kl.
20.00.
Frá Skák-Bridge
keppninni...........
A miðvikudaginn var, hófst
árleg keppni BR-TR sem kaUast
„Ská k-B ridge ’ ’-keppnin.
Undanfarin ár, hafa bridge-
menn borið „léttan” sigur úr
þessum viðskiptum, hvað sem
nú gerist?
Þátturinn mun skýra frá úr-
slitum er þau liggja fyrir. Lið
bridgemanna er þannig skipað:
Karl Sigurhjartarson — Þórar-
inn Sigþórsson, Jón Baldursson
— Þórir Sigursteinsson, Gisli
Hafliðason — Sigurður Þor-
steinsson, Vilhjálmur Þ. Páls-
son — Gunngeir Pétursson,
Bragi Björnsson — Magnús
Aspelund, Gestur Jónsson —
Sigurjón Tryggvason
Meðal skákmanna má nefna
þá Jón Þorsteinsson , Þráin
Sigurðsson, Jóhann Þóri, Ómar
Jónsson, Birgi Sigurðsson, Leif
Jósteinsson og Gylfa Magnús- I
son, auk annarra sterkra
manna.
Framtíö Alþýdu-
blaðsins ráðin