Þjóðviljinn - 27.01.1978, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 27.01.1978, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fösludagur 27. janúar 1978. Gunnar Steinn skrifar frá HM Einar Karlsson Ijósmyndari SgBf f Björgvin Björgvinsson átti stórleik meö tslenska landsliöinu á móti Sovétmönnum, en leikiö var i Árósum. Björgvin var fyrirliöi liösins aÖ þessu sinni. Ljósmynd þessa tók eik- ljósmyndari Þjóðviljans og var hún simsend i gær kvöldi. / Hörkubarátta í fyrsta leik Islands í HM-keppni: Island geröi sovésku rísunum illilega bilt við Það er óhætt að segja það fullum fetum, að frammistaða Islenska landsliðsins hér i Árósum 1 kvöld gegn ofurefiinu frá Sovétrikjunum var langt framar vonum, enda þótt marka- talan gefi það ekki til kynna. Það var ekki fyrr en rétt fyrir leiks- lokin að Sovétmenn tryggðu sér sigur f krafti leikreynslu sinnar en skömmu áður hafði ísland minnkað muninn úr fimm mörkum, sem þeir voru undir i leikhléi, niður i eitt mark. Með mikilli þrautseigju náði Islenska liðið að saxa jafnt og þétt á for- skotSovétmanna og lagði Gunnar Einarsson i markinu þá stóran skerf til baráttunnar. Hvað eftir annað bjargaði hann meistara- lega, varði vitaköst, skot úr hraðaupphlaupum og langskot. Islenska liðið fékk, þegar staðan var 17:16 fyrir Sovétmenn, tvö tækifæri til að jafna metin endan- lega, en sóknarloturnar fóru þá forgörðum og Sovétmenn héldu sinu. Fimm marka forskot þeirra i leikhléi var meira en tslending- arnir gátu ráðið við, en framan af, i þessum leik, var frammi- staða Islenska liðsins frekar fálmkennd og óörugg. Voru gerð mikil mistök i sókninni i fyrri hálfleik og varnarleikurinn var ekki upp á hið besta. Má það ef- laust rekja til þess að besta varnarleikmanni íslenska liðsins Arna Indriðasyni var visað úr höllinni fyrir að hindra hraðaupp- hlaup Sovétmanna með þvi að gripa til knattarins þegar hann sat á varamannabekk liðsins. Voru þetta mikil mistök og afdrifarik fyrir Islenska liðið. Ekki er hægt að segja annað en heildarútkoman úr þessum leik sé mjög góð, þrátt fyrir að mörg góð marktækifæri hafi verið mis- notuð. Gangur leiksins var i stuttu máli sá að Sovétmennirnir byrjuðu af miklum krafti og eftir nokkrar minútur leit út fyrir að landinn fengi þarna stóran skell. Sovétmenn skorðuð 2:0 og komust siðan i 5:2e» tslendingarnir réttu smám saman úr kútnum og minnkuðu muninn niður i eitt mark er þeir náðu stöðunni 7:8. En lokakaflinn var slæmur. Sovétmenn skoruðu sex mörk gegn tveimur það sem eftir var hálfleiksins og höfðu þvi yfir i leikhléi 14:9. Og hlutirnir voru endurskipu- lagir. Islenska liðið notaði leik- hléið til hins ýtrasta og kom gjör- breytt inná i siðari hálfleik eins og áður segir og dyggilega hvatt af hátt i fimm hundruö Islend- ingum tókst þeim þvi að velgja Sovétmönnunum verulega undir uggum. Staðan breyttist úr 10:15 i 12:15 og siðan 15:16 og komu 12., 13., og 14. mark Islands þá öll úr vel heppnuðum hraðaupphlaup- um. Siðan mátti sjá á markatöfl- unni stöðurnar 16:17 og 18:17 en þá skoruöu Sovétmennirnir fjög- ur mörk gegn aðeins einu og tryggðu sér verðskuldaöan sigur, þvi vissulega sýndu þeir skemmtilegan leik hér i kvöld þó aðallega hefðu þeir yfirburði i likamsstyrknum. Mörk íslands skoruðu: Axel Axelsson 5 (3v) Björgvin Björgvinsson 3 Geir Hallsteinsson 3 Einar Magnússon 3 Gunnar Einarsson 2 Þorbergur Aðal- steinssoneitt mark og Janus Guð- laugsson einnig eitt mark. Mark- hæstur Sovétmanna var Massi sem skoraði 4 mörk. Hin gamla kempa Maximov átti að venju mjög góðanleik og skoraði hann 3 mörk. Sovétmenn léku aö þessu sinni án eins af bestu handknatt- leiksmönnúm Sovétrikjanna Klimov, en hann var meiddur lit- illega. Sænskir dómararþeir Nilson og Olson dæmdu leikinn af mikilli röggsemi og héldu leiknum allan timann f skefjum, ef frá er talin brottvisun Arna Indriðasonar, fékk aðeins einn leikmaður að hvila sig i tvær minútur;en það var Axel Axelsson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.