Þjóðviljinn - 03.02.1978, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJOÐVILJINN Föstudagur 3. febrúar 1978
FJARSVIKAMALIN RÆDD A ALÞINGI
Eftirlit í bankakerfinu
O er ófullnægjandi
Þórarinn
Olafur
Eins og greint er annars
staðar frá í biaöinu, þá
gerði óiafur Jóhannesson
dómsmálaráðherra þing-
mönnum i gær grein fyrir
stöðunni í hinu svokallaða
Landsbankamáli. Er ráð-
herra hafði lokið máli sínu
urðu nokkrar umræður.
Þ jóðarmeinsemd
Benedikt Gröndaltók fyrstur til
máls og sagði að bréf þau er ráð-
herra hafði lesið fælu i sér svör
við þeim fyrirspuri)um er Sig-
hvatur Björgvinsson hafði beint
til ráðherra i siðustu viku. Þá
sagði hann að þetta væri ekki eina
málið af þessari tegund sem þjóð-
in hefði frétt af. Fjármálaóreiða
væri nú orðin þjóðarmeinsemd
sem taka þyrfti fastari tökum en
hingað til.
Lúðvik Jósepsson sagöi að mál
þetta vekti þá spurningu hvernig
háttað væri eftirliti i bankakerfi
okkar. 1 Landsbankanum væri
starfandi allfjölmenn endur-
skoðunardeild og Bankaeftirlit
BLÖNDUVIRKJUN:
60 ferkílómetrar
lands undir vatn
rikisins teldi viss öryggisatriði
betri i þessum banka en öðrum.
En þrátt fyrir þetta þá gæti það
gerst i stórri og mikilvægri deild
bankans að fjársvik færu þar
fram siðustu átta ár. Skjöl varð-
andi málið lengra aftur munu
ekki vera til.
Eftirlitið
ófullnæg jandi
Þessi staðreynd benti til þess að
eftirlitið i bankakerfinu væri
ófullnægjandi. Bankamálaráð-
herra yrði þvi að fylgjast vel með
rannsókn þessa máls og draga
nauðsynlegar ályktanir af málinu
þannig að hægt væri að koma við
betra eftirlitskerfi. Sjálfsagt væri
að veita Alþingi upplýsingar um
gang málsins, þannig að þingið
geti myndað sér skoðun á þvi
hvað eigi að gera i öryggismálum
bankanna. Alþingi ætti ekki að
láta sér nægja að bankarnir
segist vera að gera ákveðnar ráð-
stafanir til að fyrirbyggja svona
atburði, heldur ætti að koma til
beinna aðgerða Alþingis.
Gæsluvarðhald óþarft
Langar umræður urðu i neöri
deild Alþingis síöast liöinn miö-
vikudag um frumvarp iönaöar-
ráðherra um virkjun Klöndu. Páll
Pétursson mælti mjög gegn sam-
þykkt frumvarpsins, en hann flyt-
ur ásamt Ragnari Arnalds og niu
öðrum þingmönnum Alþýöu-
bandalags, Framsóknar og Al-
þýöuflokksins þingsályktunartil-
lögu um virkjun Héraðsvatna hjá
Villinganesi.
Samkvæmt frumvarpi Gunnars
Thoroddsen skal ríkisstjórninni
heimilt að fela væntanlegri Norð-
urlandsvirkjun eða öðrum að-
ila að reisa og reka vatns-
aflstöð við Blöndu í Blöndu-
dal i Austur-Húnavatns-
sýslu með allt að 150 MW afli
og gera nauðsynlegar ráö-
stafanir á vatnasvæði árinnar
til að tryggja rekstur virkjunar-
innar. Ennfremur að leggja aðal-
orkuveitu frá orkuverinu til teng-
inar við aðalstofnlínu Norður-
lands og meiriháttar iðjuvera.
Páll Pétursson sagði að ljóst
væri að Blanda yrði ekki virkjuð
nú á næstunni samkvæmt þeirri
virkjunartilhögun sem fælist i
frumvarpinu, nema með þvi að
selja mestalla orkuna til orku-
freks iðnaðar. Virkjunin væri allt
of stór fyrir almennan raforku-
markað á Norðurlandi, og
einnig og stór fyrir almennan
markað á landinu öllu nema
i tengslum við sérstök stór verk-
efni á sviði orkufreks iðnað-
ar. Enn augljósara væri þó, að á-
form um Blönduvirkjun, sem
kæmu beint I kjölfar ákvörðunar
um Hrauneyjarfossvirkjun, hljóti
að vera tengd stórfelldum hug-
myndum um byggingu erlendrar
stóriðju á fyrri hluta næsta árs.
Villinganesvirkjun I Héraðs-
vötnum væri hins vegar af þeirri
stærð, að hún falli vel að þeirri
aukningu raforkumarkaðarins,
enda gæti hún verið fullnýtt i
þágu landsmanna allra á rúmu
ári. Um Villinganesvirkjun riki
einnig einhugur heimamannu, en
þvi sé hins vegar ekki að heilsa
hvað varði Blöndu, enda sé þar
um að ræða geysilega röskun á
náttúrufari. Þar sé áformað að
mynda miðlunarlón og kæmi gró-
ið land, 60—70 ferkm, til með að
sökkva. Þetta land væri stærra en
öll tún i Austur-Húnavatnssýslu
og væri landið gott og gjöfult, og
með öllu óvist að þessi landspjöll
yrðu bætt.
Pálmi Jónsson lýsti stuðningi
við frumvarpið og mikilvægt að
það væri afgreitt á þessu þingi.
Væri frumvarpið i samræmi við
þá stefnu sem hann taldi nauð-
synlegt að fara i orkumálum.
Þórarinn Þórarinsson gagn-
rýndi það atriði frumvarpsins að
engum ákv. aðila væri falin fram-
kvæmd og væri hér um að ræða
svipaðan galla og i sambandi við
Kröfluvirkjun. Myndi hann þvi
ekki treysta sér til að styðja
frumvarpið óbreytt. Hann taldi
þó, að að þvi myndi koma að
Blönduvirkjun yrði byggð. Sagði
hann að eðlilegast væri að
afgreiða málið þannig að rikis-
stjórninni yrði faliö að láta halda
áfram hönnun verksins og láta
framkvæma nánari rannsóknir.
Skyldi frumvarpið lagt fram að
þvi loknu.
Ef menn vildu hins vegar fá
þetta frumvarp samþykkt i ár,þá
yrði að breyta 1. gr. og fela fram-
kvæmdina Landsvirkjun.
Gunnar Thoroddsen sagði, að
nægar rannsóknir bentu til að hér
væri um að ræða mjög hagkvæma
virkjun og þvi ekki þörf að fresta
málinu. Ef 1. gr. yrði breytt, þá
taldi hann réttast að fela Raf-
magnsveitum rikisins fram-
kvæmd verksins.
Hinir
hvítu
f,ýja
SALISBURY 26/1 Reuter — Hin-
um hvitu ibúum Ródesiu fækkar
jafnt og þétt vegna fólksflótta úr
landi, enda þótt fregnir hermi að
hugsanlegt sé að stjórn hvitra
manna takist að ná samkomulagi
við þau samtök blökkumanna,
sem ekki standa að skæruhernað-
inum gegn stjórninni. 1 júni s.l.
voru hvitir landsmenn um
268.000, en eru nú um 263.000.
Flóttinn úr landi varð s.l. ár
meiri en nokkrusinni fyrr frá þvi
að stjórn hvitra manna sleit sam-
bandinu við Bretland 1965.
Albert Guömundsson sagði að
hinn ákærði i þessu máli, er væri
gamall vinur sinn, hlyti að hafa
ákveðin mannréttindi. Hann hefði
nú játað brot sitt, en þrátt fyrir
það hefði gæsluvarðhald hans
veriðframlengt um mánuð. Sagð-
ist hann hafa það eftir lögfræðingi
hins ákærða aö þessi framlenging
myndi ekki koma að neinu gagni.
Sagðist hann vilja fá upplýst á
hvaða forsendum gæsluvarð-
haldið væri framlengt.
Þórarinn Þórarinsson sagði að
það væru fleiri mál er snertu
bankastarfsemina sem nauðsyn-
legt væri að fá upplýsingar um.
Skattayfirvöld hefðu fengið
upplýsingar um inneignir Islend-
inga i dönskum bönkum. Gjald-
eyriseftirlitið hefði nú upplýs-
ingar um þessar innistæður og
Seðlabankinn hefði skrifað við-
komandi aðilum og farið þess á
leit við þá að þeir skili gjaldeyrin-
um i islenska banka.
Ekki nóg að fá
peningana.
Þórarinn sagði að eðlilegt væri
að Seðlabankinn léti fara fram
athugun á þvi hvort framið hafi
verið brot á gjaldeyrislöggjöfinni,
en láti sér ekki nægja að biðja um
að þessum peningum verði skilað
i isl. banka. Bað hann banka-
málaráðherra að kanna hvort
Seðlabankinn ætlaði sér að láta
þá málsmeðferö nægja að pening-
unum væri skilað. Þá minntist
hann einnig á nauðsyn þess að fá
upplýsingar um hvernig gengi
rannsókn á máli þvi er varðaði
skipakaup erlendis.
ólafur Jóhannesson banka-
málaráðherra sagði varðandi
spurningu Alberts að málið væri
ekki komið á hreint og þvi áfram-
haldandigæsluvarðhald nauðsyn-
legt. Málið heföi ýmsa anga, t.d.
varðandi hvernig fjármagninu
hefði verið ráðstafað.
Dönsku reikningarnir, sagöi
Ólafur, eru fyrst og fremst mál
skattyfirvalda. Málið yrði kannað
þannig i Gjaldeyriseftirlitinu,
að ef um sök væri að ræða,þá yrði
kært i málinu.
Danski listinn
Ólafur sagðist vilja taka það
fram að ekki fælist i gjaldeyris-
löggjöfinni að menn væru ætið
skyldugir til að skila gjaldeyri.
Menn gætu með margvislegum
löglegum hætti öðlast erlendan
gjaldeyri sem þeir þyrftu ekki að
skila I islenska banka.
Hann gæti ekki á þessu stigi
málsins sagt hvort rétt væri að
birta danska listann, en margar
gróusögur væru þó farnar að
ganga um þennan lista. Af illri
nauðsyn gæti svo farið að birta
yrði listann.
Hvergerðingar
Fundur verður haldinn I Alþýðubandalagi Hveragerðis i kaffistofu
Hallfríðar mánudaginn 6. febrúar klukkan 20.30. Fundarefni: 1. Inn-
taka nýra félaga. 2. Framboð vegna sveitarstjórnarkosninga. 3. önnur
mál. —Mætið vel og takið með ykkur nýja félagsmenn. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akranesi og nágrenni
Framhaldsfundur (frá 30. janúar) verður haldinn á föstudaginn 3.
febrúar i Rein kl. 20.30. Mætum vel og stundvislega. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið Kópavogi — Árshátið
Árshátið félagsins verður haldin i Þinghóli laugardaginn 4. febrúar og
hefst hún klukkan 19.30 með borðhaldi. Húsið opnað klukkan 19.00. Mið-
ar fást hjá Lovisu sími 41279 eða 41746. Verð kr. 4.000. — Fjölmennið.
Nefndin.
Alþýðubandalagið i Laugardal, Árnessyslu:
Framhaldsstofnfundur
Framhaldsstofnfundur Alþýöubandalagsins i Laugardal, Arnessýslu,
verður haldinn i Hlið, Laugarvatni.þriðjudaginn 7. febrúar kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf. 2. Kosningabaráttan.
A fundinn koma Garðar Sigurðsson, Baldur Óskarsson og Svavar
Gestsson.
Stjórnin. /
Árshátið Alþýðubandalagsins Akureyri
Arshátið Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin laugardáginn
18. febrúar i Alþýðuhúsinu. Fjölbreytt skemmtidagskrá. Hljómsveit
Orvars Kristjánssonar leikur. Miðaverð 3.500 kr. Vinsamlegast til-
kynnið þátttöku á skrifstofu Norðurlands 21875 eða hjá Óttari Einars-
syni i 21264fyrir mánudaginn 13. febrúar. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið i Borgarnesi og nærsveitum
Fundur i Snorrabúð mánudaginn 6. febrúar klukkan 8:15.
Da.gskrá:. Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga
a) Kosning starfsnefnda
b) Tillaga um að viðhafa forval
Stjórnin
Lúðvik
Ný þingmál:
Frumvarp
um Kvik
myndasafn
og
Kvikmynda-
sjóð
Eftirtalinn þingmál hafa
nýlega verið lögð fram á Al-
þingi:
Frumvarp til laga um
Þjóðleikhús. Frumvarpið er
nú lagt fram i fimmta sinn,
og er nokkuð breytt frá þvi
að það var lagt fram síðast.
Frumvarpið er ríkisstjórn-
arfrumvarp.
Frumvarp til laga um
Kvikmyndasafn islands og
Kvikmyndasjóð. Frumvarp-
ið gerir ráð fyrir stofnun
Kvikmyndasafns og Kvik-
myndasjóðs. Frumvarpið er
stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga um
breytingu á lögum um þing-
farakaup alþingism anna.
Frumvarpið er flutt af Gylfa
Þ. Gislasyni og Ellert B.
Schram og gerir ráð fyrir þvi
að laun alþingismanna verði
ákveðin af kjaradómi.
Frumvarp tii laga um
kaupstaðaréttindi til handa
Selfosskauptúni. Flutnings-
menn eru Ingólfur Jónsson,
Þórarinn Sigurjónsson,
Garðar Sigurðsson og Guð-
laugur Gislason.
Frumvarp til laga um af-
nám laga um Fiskimálaráö.
Frumvarpið er stjórnar-
frumvarp.
Leidrétting
Sverrir Haraldsson á Borgar-
firði eystra bað Þjóðviljann fyrir
eftirfarandi leiðréttingu:
, ,1 viðtali sem blaðamaöur
Þjóðviljans átti við mig og birt
var i Þjóðviljanum sl. þriðjudag,
gætir svolitillar ónákvæmni frá
minni hálfu, sem ég tel rétt að
leiðrétta.
Þar sem ég tala um svo kallaða
réttindalausa kennara, gildir þaö
aðeins um sl. 3 ár,-og þótt nefndur
væri einn kennari, sem hér hefur
verið, þá var þaö ekki meining
mín að fara að bera saman á
nokkurn hátt þá aökomumenn,
sem hér hafa verið kennarar. Hér
vartildæmiságæturkennari meö
Háskólapróf i fyrra vetur, Barði
Þorkelsson frá Reykjavik.
Viðvíkjandi fjölda kennara vil
ég taka fram, að við skólann
starfa nú,auk skólastjóra, 2 fasta-
kennarar og 2 stundakennarar”.