Þjóðviljinn - 03.02.1978, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 03.02.1978, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. febrúar 1978 Háskólatónleikar Háskólatónleikar verða i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut laugardaginn 4. febrúar kl. 17. Camilla Söderberg blokkflautuleikari og Snorri örn Snorrason gitar- og lútuleikari flytja renaissance-dansa og verk eftir Telemann, Britten og Hans Martin Linde. Aögöngumiðar kosta 600 kr. og fást við innganginn. Tónleikadeild Háskólans TILKYNNING Til iaunagreiðenda er hafa i þjónustu sinni starfsmenn búsetta i Kópavogi Samkvæmt heimild i 7. tölulið 103. gr. reglugerðar nr. 245/1963 er þess hér með krafist af öllum þeim er greiða laun starísmönnum búsettum i Kópavogi, að þeir skili nú þegar skýrslu um nöfn starfsmanna hér i umdæminu sem taka laun hjá þeim, nafnnúmer, heimilisfang og gjald- daga launa. Jafnframt skal vakin athygli á skyldu kaupgreiðanda til að tilkynna, er launþegar hætta að taka laun hjá honum og þeirri ábyrgð er kaupgreiðandi fellir á sig ef hann van- rækir skyldur sinar samkvæmt ofansögðu eða vanrækir að halda eftir af launum upp i þinggjöld samkvæmt þvi sem krafist er. 1 þeim tilvikum er hægt að innheimta gjöldin hiá kaupgreiðanda. svó sem um eigin skuld væri að ræöa. Bæjarfógetinn í Kópavogí Blaðberar Vinsamlegast komið á afgreiðslu blaðsins og sækið rukkunarheftin. Afgreiðslan opin: mánud. — föstud. frá kl. 9-17. Þjódviljinn Síðumúla 6 sími 81333 HÚSAVIÐGERÐIR Tökum að okkur viðhald á húseignum, svo sem járnklæðn- ingar, gluggaviðgerðir, þéttingar og viðgerðir á stein- steyptum þakrennum o.fl. Erum umboðsmenn fyrir þétti- efni á steinþök, asbest-þök og þéttiefni i steinsprungur. Viö gerum bindandi tilboð i verkefnin. Hagstæðir greiðsluskil- málar. Verkpantanir i sima 41070. Hafa bændur lítinn áhuga á landbúnaðar rannsóknum? Á blaða m anna fundi, sem haldinn var hjá Kannsóknar- stofnun landbúnaðarins skömmu fyrir jól var fuiiyrt af hálfu stofnunarinnar, að isienskir bændur sýndu rann- sóknastarfseminni litinn áhuga. Bent var jafnframt á, að vanda- mál iandbúnaðarins yrðu best leyst meðaukinni rannsókna- og tilraunastarfsemi. Ráðunautar Búnaðarfélags Islands og héraðsráðunautar eiga að miðla upplýsingum til bænda og koma á framfæri til þeirra niðurstöðum tilrauna. Þvi var leitað álits tveggja ráðunauta hjá BUnaðarfélagi Islands og þeir spurðir hver væri þeirra reynsla varðandi áhuga eða áhugaleysi bænda á rannsókna- og tilraunastarf- seminni i landinu. Fyrst var spurður Ólafur E. Stefánsson, nautgripartíctar- ráðunautur, en hann hefur starfað hjá Búnaðarfélaginu i aldarfjórðung. „Ég er það kunnugur stjórn og starfsemi Rannsóknarstofn- unar landbúnaðarins og til- raunaráði hennar, að ég hlýt aö álita, að þessi ummæli um áhugaleysi bænda i skýrslu til fréttamanna hafi verið tekin saman i flýti af einhverjum, sem ekki er málum nægjanlega kunnugur, og láðst hafi aö leiðrétta þessa röngu staðhæf- ingu. Bændur eru vissulega áhuga- samir um rannsóknir i landbún- aði. Gagnrýni þeirra i þessum málum hefur mér virst beinast frekað að þvi, að rannsókna- starfsemin sé of litil og niður- stöður tilrauna birtist of seint á sumum sviðum. Siðustu árin hefur tekist að breyta Rannsóknastofnuninni úr stofn- un, sem lengst af hafði fáum starfsmönnum á að skipa i hverri deild nema i sauðfjár- rækt og engum i sumum veiga- miklum greinum, i myndarlega stofnun, sem er að verða betur búin tækjum og hefur nú fjöl- mennt starfslið áhugasamra velmenntaðra, manna. Það er ekki að búast við þvi, vegna eðlis starfa þeirra, að rannsókn- ir þeirra á öllum sviðum komi strax að haldi i búskapnum, en þeirra mun gæta i stöðugt rikara mæli með hverju ári, sem liður. Það kann að vera, að bændur vanmeti að einhverju leyti starfsemi stofnunarinnar vegna þess, að tilraunastöðvar hennar viðsvegar um landið hafa verið i svelti fjárhagslega og ekki getað haldið uppi eðlilegri starf- semi af þeim sökum. Þetta hafa bændur fyrir augum. Þó eru þarna á undantekningarog ástæða til að endurskipuleggja starfsemi sumra stöðvanna án þess endilega að auka umsvif. Ástæða er til að leiðrétta þá alhæfingu, sem fram mun hafa komið við fréttamenn, að vandamál landbúnaðarins yrðu best leyst með aukinni rann- sókna- og tilraunastarfsemi. Vandamál ladbúnaðarins eru flóknari en svo, að saðhæf- ing sem þessi eigi við. Auk verðlagsmála og skipulagn- Vaff- Ell-vísa Nýlega kom eftirfarandi vísa hér inn úr dyrunum : Vaff-EH kæru veslingar, viröast æruþrotnir. Eru nær þvi aumingjar, andlega hæruskotnir. ingar landbúnaðarframleiðslu, vinnslu og sölu, þá er margt annað, sem stuðlar að framför- um en rannsóknarstarfsemin, þótt hún sé mikilvæg og eigi vaxandi hlutverki að gegna. Mér kemur i hug, að enn hefur sáralitið verið gert I Rann- sóknastofnun landbúnaðarins i nautgriparækt, sem er sú bú- grein, sem ég er kunnugastur. Þar hefur vantað aðstöðu og sérfræðinga, þótt úr sé að rætast nú. Samt er þetta sú búgrein, sem 1 áratugi hefur skapað helming verðmætis allrar land- búnaðarframleiðslunnar til bænda. 1 þessari grein hafa samt sennilega orðið meiri framfarireni nokkurri annarri. Þar á bak við liggur ræktunar- starf hundraða og jafnvel þúsunda bænda, sem haldið hafa afurða — og ættarskýrslur yfir gripi sina, og úr þessum gögnum hefur verið unnið i stofnun bænda, Búnaðarfélagi Islands , sem jafnframt hefur leiðbeint um fóðrun, og siðasta aldarfjórðunginn hafa héraðs- ráðunautar bæst f hóp leiðbeinenda”. Þannig svaraði Ólafur E. Stefánsson, nautgriparæktar- ráðunautur, spurningunni um áhugaleysi bænda á rannsóknarstarfseminni. Sama spurning var lögð fyrir Arna G. Pétursson, sauðfjárræktarráðu- naut, en hann hefur gegnt þvi starfi hjá Búnaðarfélagi Islands siðastliðin 15 ár. Árni svaraði: „Engir tveir einstaklingar eru alveg eins. Aldur, uppeldi, menntun, reynsla og kunnug- leiki móta sterkt. Eg hefi þá reynslu af bændum i heild, að þeir séu opnir fyrir hagnýtum hlutum. Yngri bændur treysta eðlilega að jafnaði betur til- raunaniðurstöðum. Oftar hefi ég heyrt bændur tala um þörf á meirirannsóknum og tilraunum heldur en of mikið væri að gert.Hinsvegar hef ég ekki merkt, að hið opinbera telji mikla þörf á auknum rannsókn- um I þágu atvinnuveganna. Kjaramálin virðast vera mál málanna i voru þjóðfélagi i dag, meira að segja tilrauna- og rannsóknamenn una illa að biða viku eftir réttlátu kaupi sinu”. (Heimild: Uppl.þjón. landb.). —mhg. :" KS f * ^1 • r **** Frá Húsavik. Frá samvinnustarfi S-Þingeyinga Frá áramótum til októberloka 1977 jókst vörusala Kaupfélags Þingeyinga á Húsavik um 32,4% en það helst trúlega nokkuð i hendur við verðhækkun á þessu timabili. Nokkuð var þó aukn- ingin mismikil eftir verslunar- deildum en mest var hún i Véla- deild félagsins. Fjárhagsstaða félagsins út ávið varnúnokkru lakari en árið áður. Stafar það af aukinni dýrtið, hækkun á vörulagerum og að nokkru af fjárfestingum sem þó voru ekki miklar að þessu sinni. Veruleg áhrif hafði það og i þessa átt, að mjólkurvörubirgð- ir hafa hlaðist mjög upp. Segja má, að byggingu mjólkursamlagsins sé nú að mestu lokið. Er þarna um að ræða endurinnréttingu á gamla húsinu, viðbyggingu vegna ostaíramleiðslunnar, mikinn nýjan vélabúnað, mjólkur- tanka, kaup á þremur mjólkur- tankbilum, og tankvæðingu i sveitunum. Þetta voru mjög mikilsverðar framkvæmdir fyrir mjólkurframleiðsluna i héraðinu og ber að fagna þvi', að þessum framkvæmdum ernú að mestu lokið. En þungt er þtta á höndum á sama tima og mjólk- urvörubirgðir aukast stöðugt. Annan desember opnaði Kaupfélagið nýja bygginga- vöruverslun á Vallholtsvegi 10. Að þeirri framkvæmd hefur verið unnið allt árið og var mikil þörf orðin fyrir bætta aðstöðu við verslun með by ggingavörur. Er verslunin nú i vistlegum og rúmgóðum húsakynnum á tveimur hæðum. —mhg VOf Umsjón: Magnús H. Gíslason

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.