Þjóðviljinn - 03.02.1978, Blaðsíða 11
Föstudagur 3. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
HM-keppnin í Danmörku:
Rússar og V-Þjóðverjar
leika til úrslita í HM
Danir leika um 3.-4. sæti gegn A-þjóðverjum og Júgóslavar og
Pólverjar um 5.-6. sæti. Tvö mörk komu i veg fyrir að Danir léku
til úrslita.
Það er nú ljóst að það verða
Rússar og V-Þjóðverjar sem
leika til úrslita á HM i Danmörku.
Siðustu leikirnir voru leiknir i
gærkvöldi og urðu úrslit þau að
Danmörk sigraði Sviþjóð með 18
mörkum gegn 14 og V-Þjóðverjar
og Rúmenar gerðu jafntefli 17:17.
Þá sigruðu Rússar Pólland 18:15
og A-Þjóðverjar og Júgóslavar
gerðu einnig jafntefli 16:16. Þá
var einnig leikið i keppninni um 9.
til 12 sætið og þar gerðu Spánverj-
ar sér litið fyrir og sigruðu Tékka
24:21. Ungverjar unnu siðan Jap-
ani 30:26.
Það er grátlegt fyrir Dani að
það munar aðeins tveimur mörk-
um að þeir leiki til úrslita i keppn-
inni. Sovétmenn komast i úrslita-
leikinn með aðeins betra marka-
hlutfall. En hvað um það, hér er
staðan i riðlunum eins og er eftir
leikina i gærkvöldi:
V-Þjóðverjar 3 1 2 0 49:44 4
A-Þjóðverjar 3 1 2 0 48:46 4
Júgóslavia 3 1 1 1 46:50 3
Rúmenia 3 0 1 2 49:52 1
B-riðill:
Rússland
Danmörk
Pólland
Sviþjóð
3210 58:50 5
3210 59:53 5
3 1 0 2 61:60 2
3003 49:64 0
— SK.
Dunbar gerði út
Hann skoraði 42 stig. Staðan í hléi var 42:38 ÍR í hag,
iR-ingar og Stúdentar
léku í gærkvöldi i islands-
mótinu í körfuknattleik og
lauk leiknum með sigri IS
sem skoraði 98 stig gegn 88
stigum IR-inga. Staðan í
leikhléi var 42:38 IR i hag
en það var stórleikur Dirks
Dunbar sem tryggði siðan
sigur IS og skoraði hann
t.d. 20 stig á fyrstu 7 mín-
útum síðari hálfleiks og
breytti stöðunni i 68:59 sér í
hag og eftir það var ekki að
spyrja að úrslitum leiks-
ins. Það verður ekki sagt
að þessi sigur IS hafi verið
sanngjarn. Langt því frá.
Það sem gerði það að verkum
Úrslit á innanhússmóti UMSK
sem haldið var fyrir stuttu urðu
þessi:
An atrennu
Langstökk karla:
1. Bjar'ki Bjarnason
Afturelding 2,98
2. Hreinn Jonasson
Breiðablik 2,96
3. Hafsteinn Jóhannesson
Breiðablik 2,94
Án atrennu
Langstökk kvenna:
1. tris Jónsdóttir
Breiðablik 2,49
2. úlfhildur Haraldsd.
Afturelding 2.18
3. Lilja Sveinbjörnsd.
Afturelding 2,10
Án atrennu
Þristökk karla:
1. Hreinn Jónasson
Breiðablik 8,90
2. Hafsteinn Jóhanness.
Breiðablik 8,67
3. Jón Sverrisson
Breiðablik 8,58
að ÍR-ingar gengu ekki með bæði
stigin að viðureign lokinni var
þeirra mikla óheppni sem elti þá
allan leikinn. Það var oft grátlegt
að sjá hversu ódýrar körfur IS
voru t.d. i fyrri hálfleik.
En gangur leiksins var i stuttu
máli sá að Dunbar skoraði fyrstu
körfu leiksins en siðan var mjög
jafnt á með liðunum eða þangað
til i byrjun seinni hálfleiks en
staðan i leikhléi var eins og áður
sagði 42:38 1R i hag. t siðari hálf-
leik tók Dunbar af skarið og skor-
aði hverja körfuna á fætur ann-
arri og skaut hann IR-ingana bók-
staflega i kaf uppá eigin spýtur.
Aðr'ir leikmenn voru bara inná til
að fylla töluna. En Dunbar stóð
fyrir sinu eins og venjulega og
hann sá öðrum fremur um sigur
IS að þessu sinni. Leiknum lauk
siðan með sigri IS 98:88.
Án atrennu Hástökk karla: 1. Bjarki Bjarnason Afturelding 1,35
2. Jón Sverrisson Breiðablik 1,30
3. Jósep Asmundsson Gestur 1,37
Hástökk karla:
1. Hafsteinn Jóhanness. Breiðablik 1,85
2. Bjarki Bjarnason Afturelding 1,60
3. Jón Sverrisson Breiðablik 1,50
4. Guðmundur Guðm.ss. Gestur 1,95
Hástökk kvenna: 1. tris Jónsdóttir Breiðablik 1,50
2. Inga Úlfsdóttir Afturelding 1,35
3-4 Úlfhildur Haraldsd. Afturelding 1,25
3-4 Lilja Sveinbjörnsd. Afturelding 1,25
Eftir þennan sigur eru Stúdent-
ar enn með i toppbaráttunni. En
liðið verður að leika betur en að
þessu sinni ef það ætlar sér að
gera stóra hluti, hluti sem ekki
hafa gerst áður — ná i tslands-
meistaratitilinn. Dunbar var
stigahæstur að þessu sinni með 42
stig.
IR-ingar voru óheppnir að tapa
þessum leik. Þeir voru óheppnir
með skot úr dauðafærum. Bestan
leik að þessu sinni átti Þorsteinn
Hallgrimsson og hefur hann ekki
leikið betur i vetur. Stigahæstur
var hins vegar Kristinn Jörunds-
son með 22 stig og lék hann vel.
Dómarar voru þeir Guðbrandur
Sigurðsstíh og Hilmar Viktorsson
og dæmdu þeir mjög vel. Voru-
samkvæmir sjálfum sér og gerðu
fá mistök.
— SK.
Rvk. mót í
Borðtennis
Reykjavikurmeistaramótið i
borðtennis verður haldið i
Laugardalshöllinni sunnudaginn
12. febrúar n.k.
Keppt verður i öllum aldurs-
flokkum (unglingar yngri en 13
ára 13—15 ára og 15—17 ára,
stúlkur 17 ára og yngri, flokki
fullorðinna,svo og old boys).
Keppt verður i einliða- tviliða-
og tvenndarleik. — Keppt verður
með Dunlop-borðtenniskúlum.
Þátttaka tilkynnist formönnum
borðtennisdeilda félaganna i
Reykjavik eða á skrifstofu IBR
sima 35850.
Skráningu lýkur föstudags-
kvöldið 10. febrúar.
Russi
hættur
Einn frægasti skiðamaður
Svisslendinga Bernhard Russi er
hættur keppni að eigin sögn.
Ástæðuna fyrir ákvörðuninni seg-
ir hann vera persónulegar annir.
„Það er kominn timi fyrir mig
að hætta. Skiðakeppnir hafa verið
stór þáttur i lifi minu og það er
kominn timi til að fara að sinna
öðrum áhugamálum.”
SK
Mörg góö afrek
á innanhússmóti
UMSK
af við ÍR
en þá tók Dunbar sig til
A myndinni sjást tveir góðir fyrrverandi IR-ingar þeir Kolbeinn
Kristinsson og Kristinn Jörundsson.
Stenmark vann
Ingemar Stenmark frá Svi-
þjóð varð i gær heimsmeistari i
fyrsta sinn. Keppt var i Gar-
misch-Partenkirchen i Vestur-
Þýskalandi og var keppnis-
greinin stórsvig. Ingemar fékk
timann 3.23,50 og var tveimur
sekúndum á eftir næsta manni
sem var Andreas Wensel frá
Lichtenstein og þriðji varð landi
hans Willi Frommelt.
Eins og áður sagði er þetta
fyrsti sigur Stenmarks i heims-
meistarakeppni, en rétt er að
vekja athygli á þvl.að ekki er
um að ræða hina svokölluðu
heimsbikarkeppni á skiðum.
Sigur Stenmarks ' að þessu
sinni var nokkuð sérstæður.
Ég var
bara hinn rólegasti og reyndi að
renna mér eins vel og ég gat og
árangurinn varð sigur”, sagði
þessi ungi og sigursæli Svii að
lokum.
Næsta keppnisgrein er svig^og
verður keppt á sunnudaginn.
— SK
Tueart til Cosmos
Hinn frábæri útherji Man. City
Dennis Tueart var i gærkvöldi
seldur til New York Cosmos.
Kaupverðið er 250 þús. pund og
er það mesta sem félagið hefur
greitt fyrir enskan leikmann.
Tueart mun skrifa undir samn-
inginn i næstu viku. Hann hefur
verið á sölulista siðan i nóvember
og hefur hann sex-sinnum klæðst
enska landsliðsbúningnum og er
af mörgum talinn i dag besti út-
herji sem leikið hefur þar lengi.
— SK.