Þjóðviljinn - 03.02.1978, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 03.02.1978, Blaðsíða 16
DlQÐMMN Föstudagur 3. febrúar 1978 Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. 81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóöviljans I slma- skrá. i dag veröur byrjað aö láta vélar Kröfluvirkj- unar hinnar margumtöl- uðu snúast, og verða vélarnar reynslukeyrðar fram til 15. — 20. febrúar. Þá verða legur vélanna teknar upp og skoðaðar og ef allt reynist í lagi, er fyrirhugað að í lok þessa mánaðar verði farið að keyra vélarnar fyrir al- vöru. Gangsett í Að sögn Gunnars Inga Gunnarssonar verkfræöings eru aðeins 3 borholur virkar, og raunar eru það aöeins tvær sem eitthvert gufumagn aö ráði fæst úr. Gufa sú sem reiknað er með að nú fáist er á bilinu 60 til 70 tonn á klukkustund, en til þess aðfullnýta vélarnar þarf um 300 tonn af gufu á klukkustund. Og þessi 60 til 70 tonn af gufu nægja til aö framleiða um það bil 5 mgw. af rafmagni. Gunnar sagöi það vera ákvöröun stjórnvalda, hvort og' eða hvenær frekari boranir eftir 1.«........... Þrjár borholur eru nú virkar og búist er við 5 mgw. rafmagns framleiðslu gufu hæfust. Hann taldi llklegt að reynslan af keyrslu virkjun- arinnar nú myndi hafa áhrif á frekari ákvaröanatöku I sam- bandi viö frekari gufuöflun. dag | Svo mikið hefur veriö ritaö og ! rætt u Kröfluvirkjun, ekki siður I en Kröflusvæöið, sem hefur ris- ■ ið og sigið, skolfið og titrað nú i | rúm tvö ár, að engu skal þar við ■ bætt hér. En þó má minna á nú, I þegar vélar virkjunarinnar fara J að snúast I fyrsta sinn, að senni- ■ lega hefur ekkert mannvirki I verið reist á Islandi, sem jafn JJ mikill styrr hefur staðið um og | Kröfluvirkjun. Þeir sem þar ■ hafa verið I vörn, biða sjálfsagt | spenntir eftir árangrinum nú og m vona það besta, vitandi það að ■ óvinaherinn biður færis með at- ’ lögu ef illa ver. —S.dór Heilbrigðiseftirlit ríkisins Rannsakar ísraelskar appelsínur Kvikasilfurseitrun hefur fundist í appelsinum frá ísrael erlendis í gær var hafist handa við að rannsaka appelsínur frá israel, sem seldar eru hér á landi vegna kvika- silfurseitrunar, sem vart hefur orðið í appelsínum frá israel í Hollandi. Þar í landi hefur fólk veikst eftir að hafa borðað isra- elskar appelsínur. Að sögn Olafs Schram, hjá Heildverslun Björgvins Schram, sem flytur inn Jaffa-appelsinurn- ar frá Israel, á það að sjást utan á appelsinunum, ef eitrinu hefur verið úðað á þær, en hafi þvi verið sprautaði þær, eíga þær að rotna. Hér á iandi hefur ekki borið neitt á slikum skemmdum, en til öryggis voru tekin sýni til rann- sóknar. Þvi er haldið fram að arabisk- ir skæruliðar hafi eitrað appelsin- urnar og hallast menn helst að þvi,að eitrinu hafi verið komíð i appelsinurnar i verslunum i Hollandi, en ekki i Israel, og að þarna sé um staðbundið vanda- mál að ræða, enda hefur slikrar eitrunar hvergi orðið vart nema i Hollandi,að sögn. Niðurstöður rannsóknarinnar hér á landi ættu að liggja fyrir i dag. —S.dór Lítil loðnu- veiöi Þrátt fyrir mjög gott veðiveður á loðnumiðunum sl. tvo sólar- hringa hefur eftirtekja bátanna sem veiðarnar stunda verið rýr, aðeins um 8 þúsund lestir, sem 21 bátur hefur fengið, en ef allt hefði verið með felldu hefði þessi floti átt að geta skilað um það bil 20 þúsund tonnum á þessUm tlma. I gær, siðdegis, höfðu 13 skip til- kynnt um afla samtals 5300 lestir en sólarhringinn á undan til- kynntu 8 skip um afla, samtals um 30 þúsund lestir. Flotinnheldur sig nú út af Mel- rakkasléttu og Langanesi. — S.dór. Kaupstaður? A fundi hreppsnefndar Egil- staðahrepps 17. janúar var samþykkt að óska þess við Alþingi að Egilsstaðahreppi verði veitt kaupstaðarréttindi frá og með sveitarstjórnarkosningunum I vor. Þá var samþykkt að vlsa tillögunni til alinennrar skoðana- könnunar meðal ibúa hrcppsins og fari hún fram fyrir 20. mars. „Fattiggubbar” — fátæklingar eða ölmusumenn — heitir ljós- myndasýning sem nú hefur verið opnuð I Norræna húsinu. Þar sýn- ir finnski ljósmyndarinn Markús Leppo myndir af tréskurðar- myndum sem haföar voru I finnskum kirkjum til þess að taka á móti peningum: Þetta voru myndiraf fólki, sem stóð með út- rétta hönd við kirkjudyr. Sýning Leppos mun fara um öll Norður- löndin og kemur hún fyrst til ts- lands. Myndina tók LR f Norræna húsinu I gær af ljósmyndaranum og einu verka hans. Útflutnfngur á Guðbjörn Guðmundsson hefur að undanförnu verið að ieita fyrir sér með sölu á heyi úr landi og munu fyrstu sendingarnar þegar farnar til Noregs. Ævan Hjartarson, ráðunautur á Akureyri, sagði okkur að frá Eyfiröingum væru farin 50 tonn. Það væru Guöbjörn Guðmunds- son og Bústólpi, sem stæðu fyrir sölunni og hefði heyið veriö selt til Noregs. Verðið er 19—20 kr. fyrir kg., komið á bryggju. Heyið er fengið viðsvegar að úr Eyjafirði. Gert er ráð fyrir að talsvert meira af heyi verði flutt þaðan út, jafnvel 200—300 tonn, áleit Ævarr Hjartarson. Pétur Björnsson, fram- kvæmdastjóri hjá Guðbirni Guðjónssyni, sagði að þessi út- flutningur væri nú i rauninni heyi til ennþá á tilraunastigi. Ekki væru þó nein vandkvæði á um söluna sjálfa. Hinsvegar væri flutning- urinn út töluvert vandamál. Kaupendur úti taka ógjarna á móti nema tiltölulega litlu af heyi i einu,og það eykur á erfiðleika gagnvart skipafélögunum að geta ekki flutt talsvert mikið i hverri ferð. Pétur Björnsson kvað dálitið Noregs hafa verið selt út af heyi úr Borgarfirði. Norðmönnum likar heyið vel, og telur Pétur Björns- son allar horfur á að unnt ætti að vera að fly'tja út nokkra skips- farma á ári. — Við höldum áfram að vinna að þessu, sagði hann, — þetta er „spennandi” mál fyrir landbún- aðinn. —mhg Reykjavíkur- skákmótiö: Dregið um töfluröð í kvöld Flestir stórmeistar- arnir komnir til landsins i kvöld kl. 21.00 verður dregið um töfluröð keppenda á Reykja- víkurmótinu i skák, sem hefst að Hótel Loftleiðum á morgun, laugardag, og hefst fyrsta umferö kl. 14.00. Flestir erlendu skákmeistar- anna eru nú komnir - til landsins; komu i gær og fyrra- dag. Þó kemur enski meistarinn Miles ekki fyrr en i dag, þar sem hann var að ljúka keppni á skák- móti i Hollandi. — S.dór. Banaslys á Egflsstöðum Banaslys varð i umferð- inni á Egilsstöðum I fyrra- kvöld. Það var um kl. 19.00 að ökumaöur fólksbifreiðar hugðist aka framúr annarri bifreið á veginum rétt austan við Lagarfljótsbrúna.en lenti við það framan á vöru- bifreið, sem kom á móti. Ökumaður fólksbifreiðarinn- ar, karlmaður á sjötugs- aldri, lést samstundis við áreksturinn, sem var mjög harður, svo haröur að fóiks- bifreiðin er gerónýt og vöru- bifreiðin inikið skemmd. Þetta er fyrsta banaslysið i umferðinni hér á landi á þessu ári. —S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.