Þjóðviljinn - 30.03.1978, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 30. mars 1978
Úrslitaleikur Bikarkeppni KKÍ í kvöld:
Gerðu 49 síðast
en hvað gera
þeir í kvöld?
Mlkið einvígi í kvöld í höllinni þegar
þeir mætast Rick og Dunbar. Síðast er
liðin léku gerðu þeir báðir 49 stig
I kvöld klukkan 20.00
gefst íslenskum íþrótta-
unnendum kostur á að sjá
þá snillinga Dirk Dunbar
og Rick Hockenos leika
hér i síðasta sinn að
sinni. Þá leika iþrótta-
félag Stúdenta og Valur
til úrslita i Bikarkeppni
ís
KKi. Stutt er síðan þessi
lið léku i 1. deildinni og þá
sigraði Valur með litlum
mun. Þá áttu þeir Dunbar
og Rick sinn besta leik
hvor fyrir sitt félag og
skoruðu báðir 49 stig. Er
engu líkara en að þeir
leiki aldrei betur en þegar
þeir leika gegn hvor öðr-
um.
Valsmenn hafa aldrei
unnið Bikarinn og sömu
sögu er að segja um stúd-
entana. Það er því öruggt
að bæði liðin koma til
leiks hungruð i sigur.
Vonlaust er að reyna að
spá um úrslit leiksins.
Hann getur farið á hvorn
veginn sem er. Má eigin-
lega segja að sá Banda-
rikjamannanna,sem fær
félaga sína til að vinna
betur með sér, sigri.
Valsmenn hafa verið óheppnir
i siðustu leikjum sinum i
íslandsmótinu. Þeir töpuðu t.d.
fyrir íslandsmeisturunum KR
með aðeins eins stigs mun i ein-
um mest spennandi leik sem
fram hefur farið hér. Þeir voru
mjög óheppnir að tapa þeim leik
sem sýnir að þeir eru eitt af
bestu liðum hér um þessar
mundir ef ekki það besta.
VALUR
Allir bestu leikmenn Vals
leika með i kvöld.
Stúdentar hafa aldrei unnið til
verðlauna i körfuknattleik eftir
að þeir leikmenn sem nú leika
með liðinu tóku við. Hljóta þess-
ir leikmenn eins og Bjarni
Gunnar Sveinsson og Steinn
Sveinsson að vera orðnir lang-
eygir eftir verölaun fyrir alla
Umsjón: Stefán Kristjánsson
A þessari óvenjulegu
mynd sést Dirk l»nnbar
leika á Njarðvikinga fyrr
i vetur. Allir þeir sem
hafa áhuga á að sjá
körfuknattleik eins og
hann gerist bestur ættu
ekki að láta Ieikinn f
kvöld fram hjá sér fara.
Þetta er siðasta tækifæri
til að sjá þessa snillinga
leika listir sinar.
þá vinnu sem þeir leggja á sig.
Stúdentum hefur annars
gengið frekar illa i yfirstand-
andi tslandsmóti og ekki haft
heppnina með sér þegar þörfin
fyrir hana hefur veriö hvað
mest.
Það munu eflaust margir
mæta i höllina og sjá siðustu
viðureignina á körfuboltavellin-
um i vetur.
Spá Þjóðviljans er að ÍS vinni
með tveggja stiga mun.
SK.
Borussia vann
Liverpool
Það verður ekki annað
sagt en að möguleikar Liv-
erpool á að komast áfram í
Evrópukeppni meistara-
liða séu miklir eftir að liðið
tapaði aðeins 1:2 fyrir
Borussia Munchenglad-
back frá V-Þýskalandi í
gærkvöldi.
Það var á 28. minútu leiksins að
Borussia tók forustuna meö
marki Wilfried Hannes og þannig
var staðan i leikhléi.
1 siðari hálfleik leit lengi vel út
fyrir að þetta yröi eina mark
leiksins. en þegar aðeins þrjár
minútur voru eftir af leiknum
skoraði David Johnstone dýrmætt
mark fyrir Liverpool. Það mark
gildir sem tvö er liðin- leika að
nýju á Anfield i Liverpool 12. april
n.k. En Adam var ekki lengi i
Paradis.
Ekki var boltinn búinn aö rúlla
á milli margra leikmanna Bor-
ussia eftir mark Liverpool þegar
einum sóknarmanni Þjóðverj-
anna var brugöið 25 metrum frá
marki Liverpool. Rainer Bonhof
átti 26 ára afmæli i gær og hann
hélt upp á daginn með þvi að
„negla” knettinum beint i mark
Liverpool og sigur Borussia varð
staðreynd, þrátt fyrir að Daninn
litli Alan Simonsen léki ekki með
Borussia. Hann er meiddur á fæti.
66 þúsund áhorfendur sáu leik-
inn. 1 sömu keppni sigraði Ju-
ventus frá Italiu liö Brugge sem
hefur forustu i 1. deildinni i Belgiu
um þessar mundir 1:0. Staðan i
leikhléi var 0:0 og áhorfendur 70
þúsund.
t Evrópukeppni Bikarhafa léku
Twente Enschede frá Hollandi og
Anderlect frá Belgiu og sigraði
Anderlect 0:1. Það var Daninn
Nilsen sem skoraöi mark Ander-
lect i siðari hálfleik. Það er þvi
ljóst að hollenska liðiö verður aö
sigra 3:0 i Belgiu,ætli þaö sér að
komast áfram.
Tveir leikir voru leiknir i
UEFA-keppninni. PSV Eindhov-
en Hollandi vann Barcelona ör-
ugglega 3:0, og svissneska liðið
Grasshoppers sigraði Bastia frá
Frakklandi 3:2. SK.
ísland tapaði fyrir Portúgal 64:74
„Við náðum ekki að sýna okk-
ar bestu hlið i dag og þvi fór sem
fór. Það er greinilegt að við er-
um töluvert á eftir hvað getu
snertir,og flestliðin erufrábær
ogmyndu standa i hvaða karla-
landsliði sem er”, sagði Jón
Kristján Sigurðsson fyrirliði
islenska unglingalandsliösins i
stuttu samtali viö Þjóðviljann
seint I gærkvöldi.
„Garðar Jóhannesson úr KR
átti einna bestan leik og skoraði
einnig mest eða 12 stig.
Strax á eftir okkur léku Belgia
og Pólland, og er skemmst frá
þvi að segja að Belgiumenn
unnu auðveldan sigur 75:52.
Nokkuð sem enginn hér átti von
á. Við eigum að leika gegn Lux-
emborg I dag og erum staðráön-
ir I aö leggja þá að velli. Þeir
eru töluvert slakari en hin liöin
hér. öllum llöur hér vel og allir
biöja að heilsa til sins heima”,
sagöi Jón Kristján fyrirliði aö
lokum”. SK.
Celtic vann
Nokkrir leikir voru leiknir I
ensku knattspyrnunni I gær-
kvöldi
Orslit þessi:
Man. Utd.—Aston Villa 1:1
Norwich—Derby 0:0
Newcastle—-Man.City 2:2
Middlesb.—Nott.For. 2:2
Þá var einnig leikið I skosku
knattspyrnunni, og fóru leikar
þannig:
Dundee Utd.—Motherw. 1:1
Hibernian—Rang. i;i
Patrick Th.—Celt. . 0:4
St. Mirren—Aberd. 1:2
Eftir jafnteflið heldur
Notthingham enn forustu sinni i
1. deild. Hefur nú fjögurra stiga
forskot á Everton og þremur
leikjum minna.
SK.
Leiðbeinendanám-
skeið t badminton
Badmintonsamband Islands
gengst fyrir A-stigs námskeiði I
badminton fyrir leiðbeinendur.
Námskeiðinu veröur tviskipt,
fyrri hluti fer fram 7, 8. og 9.
april n.k. og siðari hluti 26. 27.
og 28. mai. BSl mun veita þeim
sem ljúka báðum þessum nám-
skeiðum réttindi sem A-stigs
leiðbeinendum i badminton,
sem um leið veitir aögang aö 1.
stigs anámskeiði, sem haldiö
verður væntanlega næsta haust
og veitir þeim sem þvi ljúka 1.
stigs þjálfararéttindi.
Aðalkennari á leiðbeinenda-
námskeiðunum verður danski
þjálfarinn Jan Boye Larsen
ásamt islenskum þjálfurum.
Námsefni verður bæði bóklegt
og verklegt.
Aðgang að þessum námskeið-
um hafa allir þeir sem náö hafa
17 ára aldri og áhuga hafa á að
gerast leiðbeinendur i badmin-
ton.
Þátttakendafjöldi miðast viö
16—20 manns. Þátttökugjald er
kr. 6.000.00, og er allt námsefni
innifalið.
Þátttökutilkynningar skulu
berast til skrifstofu l.S.l.,
iþróttamiðstöðinni Laugardaí
fyrir 1. april n.k.
Einnig mun stjórnB.S.Í. veita
nánari upplýsingar.