Þjóðviljinn - 30.03.1978, Qupperneq 11
Fimmtudagur 30. mars 1978 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 11
Frá heimsókn Margrétar Danadrottningar I islenska sýningarsvæðiO. — A myndinni má sjá Margréti
Danadrottningu, Per Andersen, formann Scandinavian Clothing Council sem fslenskir útflytjendur eru
aðilar að, John Ljunggreen, framkvæmdastjóra samtakanna, og (Jlf Sigurmundsson, framkvæmda-
stjóra (Ttflutningsmiðstöðvar iðnaðarins.
Harðnandi sam-
keppni í ullariðnaði
Dagana 16.-19. mars fór fram
I Kaupmannahöfn kaupstefnan
Scandinavian Fashion Week I
Bella Center I Kaupmannahöfn.
Þetta er I 25. skipti sem þessi
sýning er haldin og alls tóku 788
fyrirtæki þátt I sýningunni þar
af 8 islensk. Þau voru: Álafoss,
AIis, Gráfeldur, Hilda, Les-
Prjón, Prjónastofa Borgarness,
Röskva og Iönaðardeild
Sambandsins.
Ivar Norgaard viðskipta-
ráðherra Danmerkur opnaði
sýninguna, og Margrét Dana-
drottning skoðaði sýningar-
deildirnar á sýningunni.
Tvær islenskar sýningar-
stúlkur gengu um sýningar-
svæðið I íslenskum fatnaði og
dreifðu kynningarefni um
islensku sýningardeildina, sem
var nú mjög vel staðsett á
sýningunni. Við inngang inn i
nýja sýningarhöll sem nú var
notuö i fyrsta skipti.
Þessi sýning hefur tvimæla-
laust mjög mikið kynningarlegt
gildi fyrir islenska útflytjendur.
Sýninguna sóttu alls milli tvö og
þrjú hundruö blaðamenn og
mjög gott samstarf hefur tekist
við kynningardeild sýningar-
innar.
Sala islensku fyrirtækjanna
gekk vel á sýningunni þó liti út
fyrir aö gróft prjón og þjóðlegur
fatnaður sé ekki eins mikið i
tisku og verið hefur. Éinnig er
lját að samkeppni við erlenda
framleiðslu úr islensku ullar-
bandi fer nú vaxandi, oft þannig
aö um nákvæmar eftirlikingar
islenskra ullarvara sé að ræða.
I
■
I
■
I
■
I
■
I
I
■
I
■
I
■
I
8
i
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
i
■
I
i
■
I
■
I
i
■
I
■
I
■
I
i
■
I
■
I
'ÚÉWMMti
Aðaifundur Félags
íslenskra kvik-
myndagerðarmanna
Harmar
hlutinn
sinn
vid úthlutun lista-
mannalauna
Hér má sjá eina myndaslðuna úr sænska blaðinu „Svensk Omnibus
tidning’’ um sérleyfishafa á Islandi.
Helgaö íslenskum
sérleyfishöfum
Timarit sænskra sérleyfishafa,
„Svensk Omnibus tidning”, 2.
hefti 1978 er nær eingöngu helgað
islenskum sérleyfishöfum eftir að
blaðamaður þessa sænska blaðs
hafði ferðast vitt og breitt um Is-
land með rútum.
Mjög margar myndir fylgja
greininniogermikiðgertúr þeim
erfiðleikum, sem islenskir sér-
leyfishafar eiga við að glima hér
á landi vegna slæmra þjóðvega,
þröngra brúa og vegleysa sem oft
á tlðum eru á leið þeirra. Sá er
skrifar þessa grein heitir Göran
Werner.
Aðalfundur Félags Islenskra
kvikmyndagerðarmanna var
haldinn fyrir páskana. Um 40
kvikmyndagerðarmenn eru nú I
félaginu. A fundinum voru rædd
ýmis mál og gerð eftirfárandi
ályktun:
„Félag kvikmyndagerðar-
manna harmar að úthlutunar-
nefnd listamannalauna skuli enn
á ný hafa opinberað ókunnugleika
sinn á tilveru kvikmyndagerðar i
landinu.”
A fundinum var kjörin stjórn og
skipa hana Þorsteinn Jónsson,
formaður, Sigurður Sverrir Páls-
son, varaformaður, Isidór
Hermannsson og Páll Stein-
grimsson.
Pípulagnir
Nylagnir, breyting
ar, hitaveitutenging-
ar.
Sími 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir kl, 7 á
kvoldin)
KÍM:
Mikið starf á
síðastliðnu árí
Aðalfundur Kinversk-Islenska
menningarfélagsins (KtM) var
haldinn að Hótel Esju 20. mars sl.
t skýrslu formanns kom fram, að
starfsemi félagsins var með
mesta móti á siöasta ári. Hingað
kom til lands kinversk vináttu-
sendinefnd á vegum félagsins,
kvikmundasýningar voru haldn-
ar, listamenn frá Kina héldu hér
fjölsótta tónleika, islensk sendi-
nefnd hélt á vegum félagsins til
Kina siðastliðið haust og efnt var
til almennra fcrða til landsins,
sem tæplega 50 manns tóku þátt I.
Þá voru haldnir fundir um
kinversk málefni og blaðaútgáfu
var nokkur a vegum félagsins.
Formaður gat þess I skýrslu
sinni, að islenskir fjölmiðlar
hefðu fjallað allmikið um kin-
versk málefni og væri fréttaflutn-
ingur ærið misjafn. Taldi hann,
aö sjónvarpið gætti ekki nægi-
legrar hlutlægni i fréttum sinum
ogvonaðist til, að úr skorti þeim,
sem er á kinversku efni i dagskrá
þess, yröi bætt.
Þá kom það fram, að i haust er
væntanlegur hingað listdanshóp-
ur frá Tibet og fyrirhugaö er að
minnast 25 ára afmælis félagsins'
á ýmsan hátt.
Nú eru félagsmenn KÍM rúm-
lega 300 talsins og gengu 67 nýir
félagar i það árið 1977.
Þá minntist formaður á það, að
tslands hefði alloft verið getið i
kinverskum fjölmiðlum undan-
farið og væri það að nokkru leyti
fyrir tilhlutan KIM. Væri það að
vonum, enda hefðu samskipti
þjóðanna farið vaxandi á ýmsum
sviðum og ættu enn eftir að auk-
ast.
Stjórn félagsins var öll endur-
kjörin, en hana skipa Arnþór
Helgason, formaður, Dr. Jakob
Benediktsson, varaformaður,
Anna Einarsdóttir, ritari, Ölafur
Elimundarson, gjaldkeri og
Kristján Jónsson, meðstjórnandi.
Ný frímerki
Póst- og simamálastofnunin
gcfur út tvö ný frimerki 2. mai nk.
Frimerkin eru Evrópufrlmerki
1978, I flókknum Merkisbygging-
ar. Þröstur Magnússon teiknaði
frimerkin, sem bæði eru marglit.
Þau eru prentuð hjá Courvoisier
S.A., La Chaux-De-Fonds í
Sviss.
Annað frimerkið er að verðgildi
80 kr. og með mynd af Viðeyjar-
stofu. Viðeyjarstofa var byggð á
árunum 1752-54. Hún varbyggð að
frumkvæði Skúla fógeta sem bú-
staður landfógeta.
Arkitekt hússins var danskur
maöur, Nicolai Eigtved. Hann
var þekktur arkitekt á sinum
tima og meðal verka hans má
nefna konungshöllina Amalién-
borg.
Nú er upnið að breytingum á
húsinu þar sem þáð er fært nær
sinu upprunalega útliti.
Bygging Viöeyjarstofu brýtur
blað i sögu húsagerðarlistar á Is-
landi. Hún er fyrsta steinhúsið og
jafnframt þvi lang stærsta iveru-
hús þeirra daga. Af þessum
ástæðum má telja Viðeyjarstofu
meðal merkisbygginga, sé miðið
við aðstæður þess tima.
Hitt frimerkið er 120 króna
merki með mynd af Húsavfkur-
kirkju. Kirkjan var byggð árið
1906. Hana teiknaði Rögnvaldur
ÓJafsson, en hann var fyrsti is-
lenski húsameistarinn, og er
kirkjan hans fyrsta verk sem
reist var.
Húsavikurkirkja er svo kölluð
krosskirkja, byggð úr timbri. Hún
er ein af merkisbyggingum þjóð-
arinnar á timburhúsaöld, sem
stendur frá þvi skömmu fyrir
aldamótin 1800 til 1918, að talið er.
-eös
Skreiðar á
spyrðubandi
eða samtöl á ritvél
Við sl. áramót var gefið út rit-
verkið „CONVERSATION” eftir
Einar Guðmundsson og Jan Voss.
Annars vegar er um að ræða
isl/þýskan texta — hins vegar er
meðfylgjandi þýðing bókarinnar
á þýsku og islensku.
E.G. hefur áður gefið út bækur,
m.a. „Lablaða hérgula” og
„Flóttinn til lifsins.” Jan Voss er
V-þýskur myndlistar-og bókar-
gerðarmaður, sem dvalið hefur
langdvölum hér á landi á undan-
förnum árum, og tekið þátt i
sýningum i Galleri SÚM og viðar.
„CONVERSATION” er samtal
á ritvél milli höfundanna, sem
átti sér stað árið 1975 (gefið út það
ár I takmörkuðu upplagi);
byggist það á þáverandi
kunnáttuleysi i móðurmáli hvors
annars, en tilgangurinn var sá að
reyna að láta hugsanirnar mæt-
ast eftir föngum.
tsl/þýski textinn kemur nú út i
annarri útgáfu. Einnig fylgja með
þýðingar, em önnuðust þeir Diet-
er Roth og Magnús Pálsson.
Þannig er um að ræða tvær bækur
i einu hylki, kannski má segja að
þær séu eins og sitthvor skreiðin á
spyrðubandinu.
Litill hluti upplagsins fer á
markað á tslandi. Otgefandi er
Edition Lebeer-Hossmann i
Bruxelles og Hamborg.
Grafik h.f. prentaði.