Þjóðviljinn - 30.03.1978, Side 12
12 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Fimmtudagur 30. mars 1978
Fyrirlestur í
MIR-salnum
1 kvöld, fimmtudaginn 30. mars kl. 20.30,
heldur verslunarfulltrúi Sovétrikjanna,
Vladimir K. Vlassof, fyrirlestur i MÍR-
salnum, Laugavegi 178 um viðskipti ís-
lands og Sovétrikjanna. Syndar verða
kvikmyndir, m.a. „Niðjar Ingólfs”
(Patomki Ingolfura), Islandskvikmynd
sem sovéskir kvikmyndagerðarmenn tóku
i tiléfni 1100 ára afmælis Islandsbyggðar
1974. Þetta er frumsýning kvikmyndar-
innar hér á landi.
Aðgangur er öllum heimill meðan húsrúm
leyfir.
Stjórn MÍR
Hvammstangi —
Skjaldarmerki
Hreppsnefnd Hvammstangahrepps hefur
ákveðið að efna til samkeppni um gerð
skjaldarmerkis fyrir kauptúnið. Veitt
verða ein verðlaun, krónur eitt hundrað
þúsund. Tillögum skal skila á skrifstofu
Hvammstangahrepps fyrir 1. mai næst-
komandi og skulu þær merktar dulnefni,
en nafn og heimilisfang fylgi með i lokuðu
umslagi.
Hreppsnefnd Hvammstangahrepps.
Lögmenn!
Munið aðalfund lögmannafélags íslands
að Hótel Loftleiðum, Leifsbúð kl. 14 á
morgun, föstudag og árshóf félagsins,
sama dag kl. 19, i Lækjarhvammi, Hótel
Sögu.
Stjórnin
BIFREIÐAEIGENDUR
Athygli er vakin á að eindagi þungaskatts
er 1. april n.k. Dráttarvextir leggjast á
ógreidd gjöld frá gjalddaga sem var 1.
janúar s.l., hafi þau ekki verið greidd að
fullu fyrir 1. april.
Fjármálaráðuneytið
Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garöabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboð
SIMI53468
Tökum aö okkur
smiði á eldhúsinnréttingum og skápum,
bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur
um breytingar á innréttingum. Við önn-
umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og
inni. Verkið unnið af meisturum og vönum
mönnum.
T résmíða verkst æðið
Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613
Glúmur Hólmgeirsson skrifar um
BJARGRÁÐIN
Rikisstjórnin okkar skipaöi
eitt sinn nefnd, sem leggja
skyidi á ráðin hvernig stjórna
ætti fjármálum þjóðarinnar i
framtiðinni og ráða bót á dýrtið
og verðbólgu. Eitthvaö hefur
nefndinni liklega farist þetta
óhönduglega þvi þegar stjórnin
fer að skoða þessi ráð nefndar-
innar fleygði hún þeim öllum og
lagði fyrir Alþingi, þegar þaö
kom saman eftir jóialeyfi, sln
ráð i lagaformi, og fékk þau
samþykkt af þingiiö sinu.
óráðin afturgengin
Reyndar voru þau nú ekki
mjög frumleg, nánast hin sömu
og notuð hafa verið nú um ára-
tuga skeið, þegar átt hefur að
ráða niðurlögum dýrtiðar og
verðbólgu, og ætið leitt af sér
aukna dýrtið og verðbólgu. Allt
af sama ráðið: Gengisfelling og
árás á kaup launafólks. Verð-
bólguvaldurinn var og er alltaf
of hátt kaup launafólks og of
hátt gengi krónunnar.
Kaupsamningar voru gerðir
um mitt s.l. ár, með atbeina
rikisstjórnarinnar, milli verka-
fólks og vinnuveitenda, sem fólu
i sér ákvæði um kauphækkanir
samkvæmt visitölu. Rétt furyr
áramótin samdi rikisstjórnin
svo um kaup og kjör við opin-
bera starfsmenn, og voru þar
sömu ákvæði um kauphækkanir
samkvæmt visitölu.
Mótmælaalda
Eitt af ákvæðum verðstöðv-
unarlaga rikisstjórnarinnar var
ákvæði um að eigi skyldi greiða
nema hálfa visitölu á laun. Eins
og kunnugt er reis almenn mót-
mælaalda launafólks við þessi
ákvæði og taldi brotin á sér lög,
með þvi að ógilda ákvæði i ný-
gerðum launasaningum. Rikis-
stjórnin reis öndverð gegn mót-
mælum launafólks og taldi
rikisstarfsmenn vera að fremja
lögbrot með mótmælum sinum
og hét þeim afarkostum ef þeir
létu ekki af mótmælum.
Ekki lítið að þakka
Nú voru launasamningarnir
við rikisstarfsfólk gerðir til
tveggja ára og þá að sjálfsögðu
undirskiliö aðbáðir aðilar stæðu
við samningana allan tilskilinn
tima. Hvernig er ríkisstjórninni
stætt með þessar ádeilur slnar á
opinbera starfsmenn þegar hún
sjálf byrjar á þvi að brjóta ný-
gerðan samning við starfsmenn
með ákvæðum um niðurfellingu
vísitöluuppbótar að hálfu? Eða
má hún brjóta samning að
ósekju? Stjórnarliðið telur að
kaupmáttur launa haldist
óbreyttur þótt visitöluuppbótin
sé skert. Hvernig i dauðanum
má slíkt ske? Fyrst er krónu-
fellingin, sem hækkar á einu
bretti skuldasúpu okkar erlend-
is um miljaröa, hún hækkar
verð allra innfluttra vara, sem
veldur aukinni dýrtið I landinu.
Ekki er það liklegt til að bæta
hag verkafólks, svo það geti þol-
að kaupskerðingu. Það er ekki
langt siðan þessi bjargráðalög
komu til framkvæmda, en eru
þegar farin að verka. Dynur nú
hver verðhækkunarauglýsingin
á fætur annarri á manni. bað er
ekki litið, sem alþýða þessa
lands á að þakka núverandi
stjórnarliði. Hún minnist þess
vonandi við kjörborðið i vor.
Það eru fleiri en launatóikio 1
landinu, sem ekki eru ángæðir
með bjargráðalög rikisstjórnar-
innar. Hraðfrystihúsaeigendur
telja sig þurfa mun meiri geng-
isfellingu eða annan ómaga-
styrk.
Það er táknrænt að þessar
kvartanir koma svo til allar af
þeim stöðum landsins, þar sem
samvinnufélög eru litt þekkt i
atvinnulifi og verslun en hin há-
lofaða samkeppni er að mestu
einráð. Eitthvað hlýtur að vera
þarna að ef fiskverkunarhús
geta ekki staðið undir rekstri,
þegar verð á freðfiski er ein-
muna hátt á erlendum mörkuð-
Skortur á samvinnu
Hér virðist augljóst að vantar
samvinnu milli þeirra, sem
veiða fiskinn og þeirra, sem
verka hann. Það þarf að vera
eitt samvinnufélag, sem rekur
hvoru tveggja.
Svo er hitt enn fráleitara, að
sérhagsmunamenn séu að reisa
mörg frystihús á stað, sem ekki
þarf nema eitt. Þar verður
niðurstaðan sú, að ekkert húsið
verður fullbúið svo sem vera
ber til sinna nota og hver eig-
andinn reynir að troða skóinn
niður af hinum, jafnvel með
yfirboðum i hráefni. Ekkert
húsið ber sig og þá er hlaupiö
með betliskálina til rikisins.
Skyldi ekki höfuðorsök kvein-
stafanna liggja hér? Sérhags-
munasamkeppnin er sjaldan til
góðs.
Glúmur Hólmgeirsson,
Vallakoti, S-Þing.
I
■
I
■
I
i
j
i
■
I
■
I
■
I
■
I
i
■
I
■
I
■
I
■
I
I
■
I
■
I
■
I
i
■
I
■
I
■
I
i
■
I
■
I
■
I
Betri heyverkun |
Gt af erindi formannafundar
búnaðarsambandanna um
bætta heyverkun samþykkti
búnaðarþing eftirfarandi álykt-
un:
Búnaðarþing leggur rika
Fjárskortur hamlar
starfsemi B.í.
Við gerð fjáriaga fyrir árið
1978 var ýmsum tiliögum Bún-
aðarfélags Islands um fjárveit-
ingar tii starfsemi þess visað á
bug. Af þeim sökum samþykkti
Búnaðarþing eftirfarandi álykt-
un:
„Búnaðarþing vekur athygli á
þeim mikla niðurskurði á vel'
rökstuddum tillögum Búnaðar-
félags Islands um framlög til
starfsemi félagsins viö fjár-
lagagerð fyrir árið 1978. Þess
vegna hefur ekki tekist að af-
greiða fjárhagsáætlun félagsins
hallalausa þrátt fyrir mikla að-
gæslu um meðferð fjármuna.
Búnaðarþing skorar á fjár-
veitingavaldið að sjá svo um, að
Búnaðarfélag Islands hafi
framvegis þau fjárráð, að það
geti haft nauðsynlega umsjón
með framkvæmd þeirra laga,'
sem þvi er falið af rikisvaldinu
að sja um framkvæmd á.”
-mhg
áherslu á, að gert veröi verulegt
átak til bættrar heyverkunar I
landinu.
bar sem fóðuriðnaðarnefnd
þeirri, er landbúnaðarráðherra
skipaði á árinu 1976, var falið að
taka heyverkunarmálin tii með-
ferðar, felur þingið stjórn Bún-
aðarfélags Islands að hutast til
um við nefndina, að hún skili
áltii um þessi mál sem fyrst.
Jafnframt felur þingið stjórn
Búnaðarfélags Islands að efna
til nánara samstarfs við Rann-
sóknarstofnun landbúnaðarins
og búnaðarsamböndin um rann-
sóknir og leiðbeiningar til
bættra heyverkunar hjá bænd-
um. -mhg.
VC/
Umsjón: Magnús H. Gíslason
I
■
I
■
I
i
■
I
i
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
n
I
■
I
■
I