Þjóðviljinn - 16.04.1978, Blaðsíða 6
6 — ÞJÓÐVILJINN
en ég hætti þvi þegar annir fóru
að kalla meira á, þvi mér fannst
ég ekki geta gefið mig nógu mikið
að starfinu. Ef maður ætlar aö
vera sæmilegur fréttaritari, ligg-
ur töluvert mikil vinna á bak við
það.
Of fáir gista
Við spyrjum Pál um leiðsögu-
mannsstarf hans og túrismann i
Eyjum.
— Ferðamannastraumur hefur
aukist og þróast, þannig að það
var orðin þörf fyrir leiðsögumann
hér i Eyjum. Fjölmargar ferða-
skrifstofur senda ferðamanna-
hópa hingað, þó sérstaklega
Kynnisferðir. Fólkið kaupir þá i
einum ,,pakka” hjá skrifstofunni
i Reykja vik flug fram og til baka,
akstur til og frá flugvelli, skoðun-
arferð, heimsókn f náttúrugripa-
safnið og e.t.v. bátsferð, ásamt
mat á hóteli. Lika er hægt að fá
gistingu, en þvi miður er það of
fátt fólk sem kemur hingað til að
gista. Flestir koma að morgni og
fara aftur að kvöldi. Og maður
reynir að leiðbeina fólki hvernig
það geti varið deginum hér i Eyj-
um.
Tjaldstæði i Herjólfsdal
— Eru þetta ekki mest Utlendir
ferðamenn?
— JU, það er mikið um Utlend-
inga, sem koma hingað. Annars
kemur hingað mikið af skóla-
krökkum á vorin, einkum i mai,
og gista hér i svefnpokaplássum á
hóteli eða farfuglaheimilinu, sem
skátar reka hér. I Herjólfsdal er
nú komin mjög góð aðstaða fyrir
ferðamenn og nýtur hUn vaxandi
vinsælda. Þar eru tjaldstæði og
mjög góð hreinlætisaðstaða.
Ekkert gjald er tekið fyrir tjald-
stæði, bara beðið um að menn
gangi snyrtilega um, og allir hafa
gertþað hingað til. Þessi aðstaða
hefur verið talsvert mikið notuð,
en það var ferðamálanefnd bæj-
arins sem kom henni á fót á sl.
sumri.
Náttúrufegurð og fugla-
lif.
— Hvað hrifur ferðamenn mest
hér, og hvað kemur þeim mest á
óvart?-
— Ferðamenn sýna yfirleitt
geysilegan áhuga á Eyjum. Mest
kemur fólki á óvart, hvað bUið er
aðgeramikiðhérá þessum stutta
tima frá gosinu. Það er algeng
spurning hvernig fólk þori að bUa
á stað eins og Vestmannaeyjum,
Vestmannaeyjar:
SERSTÆO NMTURUFEGURO
OG FJÖLBREYTT FUGMLÍF
„Hér er einstakt tækifæri til aö kynnast því hvernig
maðurinn hefur sigrast á náttúruöflunum, ”
segir Páll Helgason leiðsögumaður með meiru
Vestmannaeyjar eru fjölsóttur ferðamannastað-
ur og eftir gosið hefur ferðamannastraumur þangað
aukist til muna. Samgöngur við Eyjarnar hafa lika
batnað mjög, einkum eftir að nýi Herjólfur var tek-
inn i notkun árið 1976. Skipið heldur uppi daglegum
ferðum milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar, og
með tilkomu þess stórjukust möguleikar á að flytja
bila auk þess sem samgöngur við Vestrnannaeyjar
urðu öruggari. Flugfélag íslands heldur uppi áætl-
unarflugi til Eyja, og Bjarni Jónasson er með reglu-
bundið áætlunarflug á Selfoss og Hellu.
Páll Helgason er leiðsögumað-
ur i Eyjum og tekur á móti ferða-
mannahópum frá ýmsum ferða-
skrifstofum. Hann ekur lika rút-
unni sem flytur flugfarþega til og
frá flugvellinum og siðan i
nóvember hefur hann rekið bila-
leigu með fimm bilum, svo hann
hefur i nógu að snúast. Páll hefur
reyndar fengist við margvisleg
störf. Og það kemur i ljós, að i
eina tið var hann fréttaritari
Þjóðviljans i Eyjum.
— Ég hafði geysiíega gaman af
þvi, sagði Páll. — Ég sendi blað-
inu fréttir og myndir frá Eyjum,
vegna Surtseyjar- og Heima-
eyjargosanna. Flestallir hafa les-
ið mikið um gosið á Heimaey og
halda að ekki sé búið að gera hér
svona mikið eftir gos. Eyjarnar
bjóða upp á alveg sérstaka
náttúrufegurð, og þær eru lika
draumaland fyrir fuglaskoðara.
Hér er eihstakt tækifæri til að
kynnast þvi, hvernig maðurinn
hefur sigrast á náttúruöflunum,
eins og uppbyggingin hér f Eyjum
ber glöggt vitni um.
— Ferðamönnum hefur fjölgað
hér mjög eftir gos?
— Já, en að visu kom alltaf
slangur af ferðamönnum hingað
til Eyja. En straumurinn hefur
aukist mikið eftir gos. Liklega
komu hingað flestir ferðamenn
1973. Aðeins dró úr ferðamanna-
straumnum ’74, en ég hygg að nú
séhann að aukast aftur. Um dag-
inn fékk ég t.d. bréf frá Kynnis-
ferðum. Þar sagði að frá miðjum
mai og fram til 20. júni séu 1884
Þjóðverjar og Svisslendingar
búnir að panta far hingað, og
munu þeir allir koma með Flug-
félaginu. Annars eru ótrúlega
margir Islendingar, sem ekki
hafa komið til Eyja, eða eru að
koma hingað i fyrsta skipti núna
eftir gos.
Hraunhitaveitan
vekur athygli
— Hvert liggur svo leiðin i
skoðunarferðunum?
— Maður reyniryfirleitt að fara
með höpinn um alla eyjuna. Byrj-
að er á að fara inn á hraunið og
segja frá sögu gossins. Hraun-
hitaveitan vekur jafnan geysi-
mikla athygli og aðdáun. Siðan er
farið gegnum bæi og niður á höfn
þá inn i Dal og út á Höfða, það
er reynt að spanna yfir alla eyj-
una. Ég bendi fólki á að skoða
Náttúrugripasafnið, sem Friðrik
Jesson og kona hans reka af mikl-
um myndarskap fyrir hönd bæj-
arins. Þau hafa byggt þetta safn
upp og Friðrik hefur stoppað upp
öll þau dýr og fugla sem i safninu
eru. Mönnum er lika boðið upp á
bátsferð. Venjulega er þá siglt
undir Bjarnarey eða vestur fyrir
Eyjar og inn i Hænuhelli. Þetta er
óskaferðfyrir alla sem hafa gam-
anaf að taka myndiraf fuglum og
koma á sjó, þvi Eyjarnar eru
geysifagrar fra sjó. Hjálmar
Guðnason og Ólafur Granz eru
með bátinn, og þeir hafa frá
mörgu skemmtilegu að segja.
Þeir gengu siðastir allra þar yfir,
sem gossprungan opnaðist.
With æXv.þest regajjds*
Trrrirrr
Hólagata
íjtöÖfí f
16 {/
V ebtaa&dáoyjar
íc#lzmd.
Þetta bréf sendi Páll til 70-80 aðila erlendis á 5 ára afmæli Heimaeyjar-
gossins og hefur fengið mörg kort og svarbréf viö þvi. 1 bréfinu segir,
aö hraunið hafi lagt þriðjung bæjarins I eyði, en nú sé hraunhitinn
notaður til að hita húsin og muni gera þaö næstu 50 árin eða jafnvel
lengur.
Mætti nýta Herjóif betur
— Telur þú að hægt væri að
auka ferðamannastraum hingað
enn meir?
—- Já, eflaust mætti það. Oft
koma t.d. hópar hingað, sem eru
komnir i timaþröng vegna seink-
unar á flugi. Það ætti að nýta
Herjólfur betur þegar ekki er
hægt að fljúga. Herjólfur er
geysilega góð samgöngubót og ég
veit ekki hvernig maður færi að
ef hans nyti ekki við. Ef Herjólf-
ur væri nýttur á þennan hátt yrðu
hóparnir hér e.t.v. eina nótt og
Framhald á bls. 7.
Þaö er algjör óþarfi að láta flugur angra sig í fríinu -
heima eða erlendis.
Takið Shelltox flugnafæluna með í sólarlandaferð-
ina - og losnið þannig við óþægileg kynni af
framandi skorkvikindum.
Fæst á afgreiðslustöðum Shell.
Olíufélagíð Skeljungur hf
Shell
Dear friand.
7o á&y the Z$rá ot January 19?B tiv* yeara hav& p&an&á
since the be^ir.nlng ctt the eruption on Höimaey.
The lava dostroyod J./? of tho to»r., hut to dey
•j.ts heat ie used to «a.r* up our ‘housea uná «ill
áa no for íhk next % yearn ov even iongar.
We are looking fórward io the future h&re on Keimaey,
Páll Helgason: „Það er
algeng spurning
hvernig fólk þori að
búa á stað eins og Vest-
mannaeyjum.”
(Ljósm.: eös)