Þjóðviljinn - 22.04.1978, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22 april 1978
AF STJÓRNMÁLAFLOKKI
Hugmyndir Forn-grikkja um sköpun
jaröarinnar voru — ef ég man rétt — aö í
upphafi hafi allt verið gapandi tómt, eins
konar Ginnungagap, en það nefndu grikkir
,,Kaos". Elstu heimspekingar grikkja
hugsuðu sér víst að í Kaosi hefði verið
formlaus og tilgangslaus blanda alls þess
sem siðar myndaði hina mótuðu tilveru,
,,Kosmos". í goðafræði grikkja segir siðan
frá þvi að uppúr ,,Kaosi" hafi móðir jörð
eða ,,Gaia" sprottið.
Margir eru þeirrar skoðunar að ástandið í
islenskum stjórnmálum núna rétt fyrir
kosningar sé ekki ósvipað og ringulreið
Kaosins áður en móðir jörð steig uppúr því
s.s. ,,tilgangslaus blanda".
Þá hyggja margir að ringulreiðin í
íslenskum stjórnmálum sé slík að næsta
vonlítið sé að nokkur glæpist á að setja
krossinn á réttan stað, en ef það hendir þá
sé nærtækasta skýringin að viðkomandi
hafi gleymt gleraugunum heima, hann
hrjái elliglöp, eða hann sé genginn í barn-
dóm.
Sauðtryggir áhangendur Sjálfstæðis-
f lokksins barma sér sáran yf ir því að f lokk-
urinn gleymi endrum og eins þeirri skyldu
sinni að berjast fyrir hagsmunum auðkýf-
inga. Flokknum er jafnvel velt uppúr því
miður geðslega svaði, að hann sé að verða
krataflokkur, en verra hnjóðsyrði er víst
ekki hægt að segja um nokkurn stjórnmála-
flokk. Sömu ákúrur fær raunar Alþýðu-
bandalagið, sem af mörgum er talið að
nálgist það að vera demókratískur flokkur
(Það er ógaman að setja svona lagað á
þrykk). Þá segja sumir að rikrar tilhneig-
ingar hafi löngum gætt i Framsóknar-
flokknum að verða krataf lokkur, en við í
þéttbýlinu þurfum nú að vísu ekki að vera
að ergja okkur yfir þeim flokki. Fram-
sóknarflokkurinn er hagsmunaflokkur
sveitamanna og verður þess vegna ekki
kosinn í þéttbýli.
Glöggir menn hyggja að þegar málið er
skoðað ofaní kjölinn þá komi í Ijós að eini
flokkurinn í landinu, sem ekki geti talist
krataf lokkur, sé Alþýðuf lokkurinn, en eins
og alþjóð veit hefur það um langt árabil
verið aðalstef numál þess flokks að
koma örfáum kjósendum sínum í vinnu hjá
Tryggingarstofnun Ríkisins.
Ástandið í islenskum stjórnmálum er,
sem sagt mjög líkt þeim óskapnaði, sem
móðir jörð steig uppúr í árdaga samkvæmt
mýþu grískrar goðafræði. Og viti menn.
Ekki er annað að sjá en hið sama ætli að
gerast í islenskum stjórnmálum. Uppúr
kaosi íslenskra stjórnmála er að rísa nýr
flokkur, flokkur, sem miklar vonir eru
bundnar við, flokkur sem þegar hefur sett
fram stefnuskrá sína á auglýsingasíðum
Dagblaðsins, flokkur sem veit hvað hann
vi11 og veit hvað hann ætlar að bjóða kjós-
endum uppá. Til aðgreiningar frá hinum
flokkunum kallar þessi flokkur sig hvorki
meira né minna en ,,Stjórnmálaf lokkinn." Á
stefnuskrá þessa flokks er það einkum
þrennt, sem ætlunin er að beita sér fyrir. 1.
Að breyta stjórnarskrá lýðveldisins íslands
2. Að gerbreyta skattafyrirkomulagi hér á
landi og auðvelda i f ramkvæmd. 3. Að taka
aðstöðugjald af NATO.
Sagt er frá því á auglýsingasíðu Dag-
blaðsins orðrétt að á ^Skemmtilegum og
fræðandi kvöldfundi" hafi „nær eingöngu
verið rætt um stjórnarskrárbreytinguna.
Kom þá i Ijós að mikill áhugi var fyrir
breytingunni, en ekki skildu allir hvað um
var að ræða".
Það hefði óneitanlega verið gaman að
vera á þessum f undi þar sem fundarmenn
hafa setið eins og vankaðir bolakálfar á
skemmtilegum og fræðandi kvöldfundi,
fullir áhuga á einhverju, sem þeir botnuðu
hvorki upp né niður í.
í dentíð var Nasistaflokkurinn jafnan
kallaður ,, Flokkurinn" til að greiningar f rá
því fyrirbrigði. Þá hafa stofnendur ef til
vill óttast að flokknum yrði ruglað saman
við ,,Hornaf lokkinn". Vonandi verður þess-
um tveim flokkum ekki ruglað saman, þótt
. þeir séu um margt líkir. Eitt eiga þeir
Stjórnmálaflokkurinn og Hornaflokkurinn
a.m.k. sameiginlegt, en það er að langa til
að láta heyrast í sér og freta hressilega.
Annars heyrðist þessi vísa um daginn og
var sögð úr herbúðum ,,Stjórnmálaf lokks-
ins":
Óánægðir íhaldsmenn
una í draumum stórum
Stjórnmálaflokk þeir stofna senn
með stuðningsmönnum fjórum. Flosi.
í Fíladelfiu-
2 í dag
Skagfirska söngsveitin
Tónleikar
kirkju kl.
og á mánudagskvöld
Skagfirska söngsveitin hefur nú
aft undanförnu æft kantötuna
Oliveto Calvary eftir breska tön-
skáldift Jaines II. Maunder. Er
liún viAamesta verkefnið sem
Auglýsinga-
síminn er
81333
uúÐv/um
körinn hefurtekið til flutnings að
þessu.
Höfundurinn, James H.
Maunder, fæddist i London 1858
en lést 1920. Hann var söngstjóri
og organisti við ýmsar kirkjur i
nágrenni Lundúna og kórþjálfari
við Lyceum Theatre og kunnur
kantötuhöfundur. Kantata sú,
sem Skagfirska söngsveitin flyt-
ur, fjallar um pislarsögu Jesú,
atburöina i Getsemanegarðinum
og krossfestinguna.
Söngsveitin hefur æft þetta
verkefni frá þvi i haust, haft að
jafnaði tvær æfingar i viku en
þrjár til fjórar upp á siðkastið.
Má þvi ljóst vera, að félagar
sveitarinnar leggja mikið á sig
fyrir sönginn en enginn telur það
eftir.
Einsöngvarar með kórnum að
þessu sinni eru þau Margrét
Matthiasdóttir, Ruth Magnússon,
Friðbjörn G. Jönsson, Halldór
Vilhelmsson, Hjálmar Kjartans-
son og Hjálmtýr Hjálmtýsson.
Árni Arinbjarnar leikur á orgel
undir sönginn. Hefur hann áður
leikið með Söngsveitinni en henn-
ar fasti undirleikari er annars og
hefur verið um mörg ár ölafur
Vignir Albertsson, pianóleikari.
Skagfirska söngsveitin mun að
þessusinni halda tvenna tónleika
þar sem kantatan verður flutt.
Verða þeir báðir i kirkju Fila-
delfiusafnaðarins Hátúni 2, hinn
fyrri kl. 17 i dag og hinn síðari á
mánudagskvöldið.
Stjórnandi Skagfirsku söng-
sveitarinnar er sem áður
Snaebjörg Shæbjarnardóttir og
eru söngmenn um 60. —mgh
Fyrirheit hugleiöslumanna:
AHar þjóðir eru
ósigrandi
Maharishi Mahesh Yogi heitir
maður sem alloft hefur verið i
fréttum. Hann varð maður vin-
sæll þegar innhverf ihugun var
sem mest i tisku fyrir nokkrum
árum.
Ihugun er ekki eins eftirspurð
og þá, en Maharishi er ekki af
baki dottinn. Hann hefur nú kom-
ið sér fyrir i Seelisberg i Sviss og
hefur þaðan stofnað Alheims-
stjórn. Að undanförnu hefur þessi
stjórnsent frá sérmikiðaf frétta-
bréfum, og berast þau meira að
segja til Þjóðviljans.
Flest fjalla þau um nýja her-
ferð sem Maharishi nú boðar.
Hann telur það mikilla meina bót,
ef sem flestar þjóðir fást til að
senda til hans i læri herforingja
og hermenn.
Handa þessu fólki hefur hann
búið tii ihugunaráætlun sem á aö
gera hermenn upplýstari þegna i
góðu jafnvægi, styrkja vald
þeirra jafnt á sál og likama og
„gera félagslega hegðun þeirra
rikulegri” eins og þar segir.
Maharishi telur, að með þvi að
láta eins og eitt prósent manna af
hverri þjóð stunda ihugun svo
sem tuttugu minútur kvölds og
morgna á degi hverjum, þá muni
samræmi og þroski breiðast út
um alla þjóðarvitundina og þjóðin
þar með verða ósigranleg.
Hann segir að með þessu móti
geti herinn gegnt þeirri skyldu
sinniað tryggja öryggi þjóðarinn-
ar. Og honum þykir það liggja i
augum uppi, að þegar allar þjóðir
eruorðnar ósigrandi með þessum
hætti, þá sé heimsfriðurinn þar
með tryggður.
Hinn indverski jógi hefur fundið
hollenskan liðsforingja, Cram-
winckel að nafni, til aðveraæðsti
maður Herráðs Alheimsstjórnar
sinnar.
Leiðrétting við
fréttir af líkamsárás
í siðustu viku var frá þvi greint i
fréttum, að ráðist hafi verið á tvo
menn i húsi við Hrisateig hér i
borg og þeim veittir alvarlegii
áverkar.
Annar þessara manna hefur
komið að máli við Þjóðviljann og
óskað eftir að koma á framfæri
leiðréttingum við blaðafréttir áf
þessu máli.
Hann kvaðst i fyrsta lagi vilja
taka fram að frétt i einu dagblað-
anna um að eitthvert „partý”
hafi staðið yfir i húsinu við Hrisa-
teig þegar árásin var gerð sé al-
röng.
Þeir tveir, sem fyrir árásinni
urðu, hafi átt sér einskis ills von,
annar verið sofandi en hinn að bú-
verkum. Þá hafi sex menn snögg-
lega ráðist inn i ibuðina og hafið
átök.sem leiddu til misþyrminga
á þeim tveimur mönnum, sem
fvrir voru i ibúðinni. Þegar
árásarmennirnir hurfu á braut
gat hvorugur hinna slösuðu björg
sér veitt, en fólk úr annari ibúð i
sama húsi kom á vettvang, þegar
það heyrði kallað á hjálp. Var
náð i sjúkrabil og lögreglu og
mennirnir báðir, sem ráðist hafði
verið á, fluttir á slysadeild
Borgarspitalans, þar sem annar
þeirra var lagður inn til meðferð-
ar, en hinn fékk að fara heim,
þegar gert hafði verið að sárum
hans.
Viðmælandi Þjóðviljans tók
fram, að hann teldi ámælisvert
þegar saklausir menn og alsgáðir
yrðu óvænt fyrir slikri árás, þá
væri frá þvi greint i blöðum, að á
þeim hafi verið „lumbrað” i
„heljarmiklu partýi”.