Þjóðviljinn - 22.04.1978, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 22.04.1978, Blaðsíða 3
Laugardagur 22 aprfl 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3' Ræningjar Moros kreflast fangaskipta Ganga kristilegir til samninga við þá? Særingaréttarhöldin í Aschaffenburg: Hitler og Neró meðal tilnefndra djöfla 21/4 ‘— Kristilegi demókrata- tlokkurinn hefur beðið Rauðu het'sveitirnar svokölluðu að gera nákvæma grein fyrir þvi, til hvers þeir ætlist i skiptum fyrir það að þyrma lifi Aldos Moro, fyrrum forsætisráðherra ítaliu. Er þetta tekið sem merki þess, að stjórnarflokkurinn sé að linast i þeirri afstöðu sinni að taka cnga samninga við mannræningjana i mál. Samkvæmt nýbirtri til- kynningu i nafni mannræningj- anna hafa þeir enn ekki tekið Moro af lifi, eins og þeir höfðu áður tilkynnt, en segjast ætla að Suður-köreanska Boeing-þotan: Villtist af leiö um þús- und mílur 21/4 — Suðurkóreönsk farþega- þota af gerðinni Boeing 707 nauð- lenti í nótt á Hvitavatni (Béloje Osero) i norðvesturhluta Rúss- lands, nánar tiltekið í Kirjála- landi (Kareliu) milli Finnlands og Ilvítahafs. Vélin var á lcið frá Paris yfir Norðurheimskauts- svæðið til Seúl, en virðist hafa villst af lcið um 1000 milur og þykir það furðu gegna. Að sögn sovéskra embættismanna laskað- ist vélin verulega við nauð- lendinguna og biðu t veir farþegar bana og nokkrir slösuðust, þar af tveir alvarlcga. 110 manns voru i flugvélinni, flestir þeirra Japanir og Suður-Kóreumenn. Sovéskir tals- menn segja að flugmenn vélar- innar, sem kom inn yfir sovéskt land á Kólaskaga, þar sem Sovét- menn hafa mikinn herbúnað, hafi virtað vettugi fyrirmæli sovéskra orrustuflugvéla, sem sendar voru til móts við hana, um að lenda á flugvelli nokkrum og haldið áfram tvær klukkustundir suður eftir uns vélin lenti á vatninu, sem lagt er þykkum is. Suður-Kórea hefur ekki stjórn- málasamband við Sovétrikin og hafa Japanir og Bandarikjamenn þvi gerst milligöngumenn. Sovét- menn hafa þegar tilkynnt Banda- rikjamönnum að þeir megi senda flugvél tif MUrmansk til að taka við áhöfn og farþegum hinnar veg a vi Utu farþegaþotu. Suðurkóranska sendiráðið i Helsinki, segir skekkju i stefnuUt- reikningi hafa valdið villu flug- vélarinnar, en gefur enga skýringu á þvi, að sú villa skyldi verða svo mikilað flugvélin fór að minnsta kosti 1000 milur af fyrir- hugaðri flugleið. Franskur liösauki til Sjad 21/4 — Frakkland hefur sent um 650 manns Ur Útlendingahersveit- inni og fallhlifasveitunum til Sahara-rikisins Sjad, sem áður var frönsk nýlenda, að sögn áreiðanlegra heimilda Fyrir er i landinu um 500 manna franskt lið. Er þetta gert til stuðnings Sjad- stjórn, sem á i höggi við upp- reisnarmenn i norðurhluta landsins. Þeir fá að sögn stuðning frá Libiu. drepa hann ef stjórnin hefji ekki viðræður við ræningjana fyrir klukkan tvö á niorgun. Mannræningjarnir krefjast þess, að allir „kommUnistar i itölskum fangelsum”, einsog þeir orða það, verði látnir lausir i skiptum fýnr Moro, en óljóst er Moro — taugastríðið um Hf hans heldur áfram. við hverja fanga er átt. KommUnistaflokkurinn lýsti þvi yfir i þessu tilefni að stjórnin ætti ekki að taka i mál að beygja sig fyrir ógnunum hryðjuverka- mannanna. 21/4 — Domstóll i Aschaffenburg i norð-vestanverðu Bæjaralandi dærndi i dag tvo kaþólska presta og roskin hjón til sex mánaða fangelsisvistar, skilorösbundið, fyrir að hafa valdið dauða dóttur hjónanna, sem andaðist úr nær- ingarskorti cftir að prestarnir höfðu i ellefu mánuði rcynt að reka úr henni djöfla, sem þeir voruog eru sannfærðir um að hafi tekið sér bólstað i henni. Fór þetta fram samkvæmt gömlum helgisiðum kaþóisku kirkjunnar. Annar prestanna, faðir Renz, sagðist álita að stúlkan, Anne- liese Michel, hafi viljað deyja til þess að friðþægja fyrir syndir Þjóðverja almennt, og þá sér- staklega æskulýðsins og presta- stéttarinnar. Að sögn prestanna var stúlkan haldin sex djöflum, og taldi hún að þeirra á meðal hefðu verið þeir Hitler, Neró Rómarkeisari, JUdas Iskariot og Satan sjálfur. Faðir stúlkunnar sagði að með- an á þessu stóð hKfði verið mjög reimt i hUsinu, ljós hefðu slokkn- að án þess að nokkur maður kæmi þar nærri og hringt hefði verið til foreldranna i nafni fólks, sem sið- an skýrði frá þvi að það hefði ekki hringt. — í Sýninga- 1 •• 11 • • holhnni Stórglæsilegt úrval bifreiða á 9000 fermetra gólff Ieti —þetta er sýning sem allir verða að sjá BILAHAPPDRÆTTI vinningur MAZDA 323 GESTUR DAGSINS hlýtur sólarlandaferð með Samvinnuferðum STRÆTISVAGNAFERÐIR á 15 mínútna fresti SÉRSTAKAR afsláttarferðir og gisting á vegum Flugleiða AFSLÁTTUR á öllum ferðum sérleyfishafa Dags. Frá kl. Til kl. 14-4 1900 2200 15-4 14°o 22°° 16-4 1400 2200 17-4 15°° 22°° 18-4 15°° 2200 19-4 15°° 22°° 20-4 14°° 2200 21-4 1500 2200 22-4 14°° 2200 23-4 14°° 2200

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.