Þjóðviljinn - 22.04.1978, Side 12

Þjóðviljinn - 22.04.1978, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22«apríl 1978 Ví&áttumikil fiskimift kringum landið verða ekki nýtt nema með stórum fiskiskipaflota. landshlutum sem harðast yrðu úti við breytinguna. Hinsvegar hefur ekki veriðbentá markað sem biði eftir þessum iðnvarningi. Sumir hafa giskað á, að meirihluti nið- urskurðarmanna hafi stóriðju i huga og telji hana áhugaverðari en fiskveiðar, en séu hinsvegar feimnir við að nefna það úrræði, á meðan ekki lítur betur út en nú horfir um Grundartangaævintýr- iö, og markaðskreppuna, sem liggur eins og mara á stóriðju heimsins. Myndin sem hinir á- hugasömu menn um niðurskurð fiskiflotans hafa dregið upp, að aflokinni þeirriaðgerð, er i höfuð- dráttum þessi: Annað hvort skal bjóða fiskimiðin upp til leigu á einuallsherjar uppboði og slá þau hæstbjóðanda, sem yrði einvald- ur um nýtingu þeirra. Eða að hár auðlindaskattur verði lagður á hvert skip, sem leyfi fái til veiða. Rökstuðningurinn er þessi: Að þegar fiskiflotinn sé orðinn aðeins helmingur þessflota sem nú er að veiðum, þá verði auðvelt fyrir út- gerðarmenn og sjómenn að greiða rikissjóði háa leigu fyrir miðin þar sem afli hvers skips verði tvöfaldur miðað við núver- andi aflamagn. „Þeir koma skrítnir úr skólanum,” á Stefán G. Stefánsson einhverntima að hafa sagt þegar honum ofbauð vitleysan, sem nokkrir skóla- menn létu frá sér fara. Um þetta mætti eitthvað svipað segja. Það er nefnilega ekki svo langt um lið- ið, siðan hópur manna með próf i ýmsum greinum starfaði á vegum Rannsóknarráðs rikisins og komst að svipaðri niðursöðu um tilhögun islenskra fiskveiða sem að framan greinir. Og spekin var að sjálfsögðu gefin út i bókar- formi á rikisins kostnað sem vis- indaleg niðurstaða, Hvað annað. En þegar mér barst sú saga til eyrna að erlendur sérfræðingur i útgerðarmálum hefði hlegið hátt, þegar hann hafði kynnt sér hina islensku visindalegu niðurstööui útgerðarmálum, þá undraði það mig ekkert. En hvernig horfír þá málið við í raunveru- leikanum? Það horfir þannig við, að ef búið væri að minnka fiskiflotann sam- kvæmt niðurstöðum speking- anna, þá mundi hér rikja eymd og volæði i stað atvinnu. Þá er það fjarstæða að afli tvöfaldist við það á hvert skip, ef flotinn er skorinn niður um helming. Það er Framhald á 18. siðu Framtíð íslenskrar menningar er bundinn nýtingu auðæva hafs og lands Sú kynslóð, sem vaxið hefur úr grasi á tslandi eftir endalok sið- ari heimstyrjaldarinnar ætti að öllu eðlilegu að vera betur i stakk búin, heldur en sú kynslóð sem nú ýmist er gengin til hvildar, eða hefur þegar lokið störfum sinum, og orðin að áhorfanda að hvernig framtiðin mótast. Þessi kynslóð, sem ýmist hefur nú þegar tekið viðstörfum, eða gerirþaðá næstu timum, hún hefur notið meiri og almennari skólamenntunar held- ur en eldri kynslóðin hafði, að þvi leyti ætti hún að standa mikið bet- ur að vigi, heldur en eldri kyn- slóðin, ef hún notfærir sér þetta á réttan hátt. Mikilvægast i þessu sambandi er, að þekkja baráttu- sögu þjóðarinnar i landinu i gegn- um þúsund ár, og tileinka sér þá dýrmætu reynslu, sem kynslóð- irnar upplifðu og sagan geymir. Fyrir alþýðu landsins sem vill stefna að meiri jöfnuði lifskjara heldur en viðgengist hefur fram að þessu, er saga tuttugustu ald- arinnar áreiðanlega mikilvægust, þvi á þessari öld hafa orðið gagn- gerar margvislegar byltingar i atvinnusögu og atvinnuháttum, sem bjóða upp á margs konar möguleika sem áður voru ekki fyrir hendi. Hér hafa islenskir skólar algerlega vanrækt að opna sögusviðið fyrir nemendum sin- um, en einmitt þetta sögusvið, er einna mikilvægast til mótunar framtiðarinnar. Islensk menning eins og sagan og reynslan hafa mótað hana gegnum aldir, er ekkert einangrað fyrirbæri borið uppi af litlum eða stórum hópi einhverra útvaldra i landinu. Nei hún á rætur sinar djúpt i þjóðiifinu, meðal hins breiða fjölda, og þar er hennar lifsvon. Þangað verður ný kynslóð að sækja styrk og lifsfyllingu og auka þráðinn, sem þegar er búið að spinna á snælduna. Menning hverrar þjóðar mótast að stærsta hluta af atvinnuháttum hennar og er samofin sögunni og óaðskiljan- leg frá henni. Landið og fískimiðin An landbúnaðar á lslandi yrði þjóðin eins og fiskur á þurru landi, umkomulaus og litilsmeg- andi, og varnarlaus i striðstryllt- um heimi. Þeir sem tala um að leggja niður islenskan landbúnað, þjóðinni til framdráttar, eru ann- aðhvort í þjónustu óþjóðlegra afla, eða illa að Sér i sögunni, nema hvorttveggja sé. Með þessu er ég ekki að segja, að rekstur is- lensks landbúnaðar þurfi ekki að bæta á ýmsa lund, svo hann geti enn betur en hingað til þjónað hagsmunum þjóöarheildarinnar. Þetta þarf vafalaust að gera, og undirstrikar það aðeins mikil- vægi landbúnaðar i fslenskum þjóðarbúskap. Þar sem landið sjálft endar við ysta fjöruborð, tekur við landgrunnið hallandi út i hafdjúpið á alla vegu. Þetta er sá fótur sem landið stendur á, og hafið leikur um, og án hans væri ekkert Island til. Af þessum sök- um er landgrunnið óaðskiljanleg- ur hluti landsins sjálfs, og á að sjónarhól verður að lita á málin þegar atvinnustefna er mótuð fyrir framtiðina. Það gildir sama lögmál gagnvart þjóð sem ein- staklingi að engin getur lifaö til langframa á lánum, sem greitt er af með nýjum lánum'og þannig alltaf aukið við skuldasúpuna. Þjóðarleiðtogar sem þannig haga sér, vinna ekki i þjóðarþágu, heldur einhverra annarra. En snúum okkur nú að islenskum fiskimiðum og athugum hvers þau eru megnug i islenskum þjóð- arbúskap. Um áratugi á þessari öld sóttu margar vestur-evrópu- efni getum við tekið til fyrir- myndar sjávarjarðbændur sem best héldu utan um hlunnindi jarða sinna i byrjun þessarar ald- ar. Þeir sáu um að halda nýtingu sinni á þeim stofnum sem arðinn gáfu, i eins miklu hámarki og mögulegt var, án þess að stofnun- um sjálfum væri hætta búin. Þannig þurfum við að fara að, gagnvart fiskistofnum okkar, að halda þeim i þeirri stærð að þeir geti á hverjum tima gefið sem besta nýtingu. Ég ber engan kviðboga fyrir þvi að þetta takist ekki þegar fram Um langa framtfð verðum við að byggja sjálfstæöa tilveru okkar útávið, á fiskveiðum og fiskiönaði. vera eign þjóðarinnar um alla framtið, ekki bara til fiskveiða einna saman, heldur líka til sókn- ar i önnur þau auðævi sem kunna að finnast á hafabotni land- grunnsins. Með útfærslu fisk- veiðilandhelginnar i 12 milur sið- an i 50 milur og að siðustu i 200 milur, hafa verið stigin þýðingar- mestu spor i þjóðarsögunni til tryggingar atvinnulegri upp- byggingu við sjávarsiðuna hring- inn i kringum landið. Það er mikilvægi þessarar nýfengnu aðstööu sem þjóðin þarf að meta rétt svo hún komi að fullkomnu gagni. Fiskveiöar okkar og fískiðnaður Um langa framtið verðum við byggja sjálfstæöa tilveruokkar út ávið, á fiskveiðum og fiskiðnaði. Sjávarafurðir verða að vera þess megnugar að standa undir meg- inhluta innflutnings til landsins, og við útflutningsgetu okkar verðum við að byggja sjálfstæða tilveru okkar útá við, á fiskveið- um og íiskiðnaði. Sjávarafurðir verða að vera þess megnugar að standa undir megin hluta inn- flutnings til landsins, og við út- flutningsgetu okkar verður inn- flutningurað miðast. Frá þessum þjóðir á okkar fiskimið með ó- grynni fiskiskipa, þannig að talið er að Bretar einir haf i haldið úti á tslandsmiðum allt að 350 togskip- um þegar flest var. Nú eru islensk fiskimið laus við hina erlendu veiðiflota af miðunum og þvi er eðlilegt að reiknað sé með því að miðin nái sér hvað afla viðkemur að ákvenum tima liðnum. Það getur að sjálfsögðu tekið nokkur ár, og fer eftir sterkum eða veik- um árgöngum, sem komast i gagnið. Ég skil vel áhyggjur is- lenskra fiskifræöinga gagnvart þorskstofninum, enda ber þeim skylda til að aðvara um hættu ef þeir telja hana framundan. Við höfum t.d. slæma reynslu af þvi þegar þorskveiðar voru leyfð- ar með nót við suður og suðvest- urlandið um árið. Eins höfum við mjög slæma reynslu af þvi, þegar ótakmörkuöum snurpu- skipaflota voru leyfðar hér haust- sildarveiðar án takmörkunar á veiði, sem endaði með þvi að sunnlenski sildarstofninn hrundi niður i ekki neitt. Við verðum að sjálfsögðu að forðast mistök af þessu tagi, og byggja okkar þýð- ingarmestu fiskistofna upp i hæfi- legar nýtingar stærðir. Þetta á að vera hægt þegar við einir ráðum miðunum. En við megum heldur ekki vannýta miðin þvi þar getur lika verið hætta fólgin. I þessu liða stundir ef við á hverjum tima skipuleggjum veiðarnar og höf- um stjórn á þeim. Náttúrlega geta breyttir hafstraumar við landið, gert strik i mannlega út- reikninga, og þessvegna er það án vafa m jög mikilvægt að það rann- sóknarsvið sé vel starfrækt. Er íslenski fiskiskipaflotinn of stór? Þessari spurningu svara ég hiklaust neitandi. En okkur vant- ar hinsvegar betri skipulagningu og stjórnun á fiskveiðum okkar. Allskonar menn sem eiga það eitt sameiginlegt, að telja sjálfa sig spekinga á flestum sviðum þjóð- lifsins, eru nú farnir að syngja i kór að i'slenski fiskiflotinn sé allt- of stór, og að öli vandræði þjóðar- búsins séu þaðan runnin. Helstu áhugamál þessa að öðru leyti ósamstæða hóps, er niður- skurður fiskiflotans um helming eða jafnvel meira. Þetta er þeirra bjargráð. Litið heyrist frá þess- um mönnum um hvaða atvinna skuli koma i hlut sjómanna og fiskiðnaðar.fólks að afloknum þessum niðurskurði, nema að Kristján Friðriksson iðntekandi, hefur bent á smáiðnað í þeim

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.