Þjóðviljinn - 22.04.1978, Síða 13

Þjóðviljinn - 22.04.1978, Síða 13
Laugardagur 22 apríl 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13 51. árbók Ferða- félags íslands Árbók 1978 FERÐAFÉLAG JSLANDS Arbók Ferðafélags tslands fyr- ir 1978 er komin út. Þetta er 51. Arbók Ferðafélagsins og er efni hennar þriþætt: 1. Lýsing S,- Þingcyjarsýslu austan Skjálfandafljóts, rituð af Jóhanp.i Skaptasyni, frv. sýslumanni á Húsavik. 2. Um jarðmyndanir á Tjörnesi, ritaö af Þorleifi Einars- syni, jarðfr. 3. 50 ára saga Feröa- félagsins, sem er skrifuð af dr. llaraldi Matthiassyni á Laugar- vatni, en sagan kom út sem sérprent á 50 ára afmæli félagsins 27. nóv. sl. tölusett og árituð. Auk þess eru i bókinni ársskýrslur og reikningar félagsins. Arbókin er 216 siður að stærö prentuð á vandaðan pappir og prýdd fjölda ljósmynda bæði svart/hvitra og litmynda. Árbók- in er prentuð i tsafoldarprent- smiðju, en myndirnar eru unnar af Prentmyndastofunni Litróf, Offsetmyndum sf. (litmyndir) og Myndamót hf. (litgreining). Svip- myndir fyrir ofan helstu kafla bókarinnar eru teiknaðar af Gunnari Hjaltasyni. Einnig eru 2 uppdrættir: Yfirlitskort af þvi svæði sem er meginefni bókar- innar og jarðfræðikort af Tjörnesi. Það hefur verið stefna stjórnar F.t. að ávallt séu allar árbækur Ferðafélagsins fáanlegar og þvi hafa bækurnar verið ljósprentað- ar jafnóðum og frumútgáfurnar seljast upp. Arbækur félagsins eru einhver besta tslandslýsing, sem völ er á. Ritstjóri Arbókarinnar er Páll Jónsson, bókavörður og hefur hann séð um úgáfu hennar i ára- raðir. Félagasamtökin Vernd Ránargata 10 gefur góða raun Félagasamtökin Vernd héldu aðalfund sinn i Gimli við Lækjar- götu i febrúar s.l. Frú Þóra ein- arsdóttir gcrði grein fyrir starf- semi samtakanna, sem hafa starfað með svipuðum hætti og á- vallt áður. i starfseminni iná grcina nokkra þætti, og eru þessir helst- ir: HeimsókniraðLitla-Hrauni og i önnur fangelsi. Skrifstofustjóri samtakanna, Davið Þjóðleifsson, annast þessar heimsóknir og nota allfelstir fanganna sér viðtals- timann við fulltrúa Verndar. Skrifstofa Verndar tekur á móti fyrrverandi föngum og reynir að útvega þeim vinnu og húsnæði, og veitir margs konar aðstoð. Fataúthlutun er til skjólstæð- inga Verndar og annarra einstæð- inga. Húnfer fram að Grjótagötu 9 i húsnæði Félagsmálastofnunar Reykj av ikur borgar. Hátiðasamkoma á aðfanga- dagskvöld er fastur liður i starf- seminni og er mjög vinsæl meðal þeirra sem til þekkja. Samkoman erhaldin i húsi Slysavarnafélags- ins á Granda og þangað koma ár- lega um 60 einstæðingar og úti- gangsmenn. f nokkur ár hefur verið starf- rækt vitheimili að Ránargötu 10 og hefur það gefið góða raun. Nú hefur öryrkjabandalagið, sem á húsið og hefur látið það i té endur- gjaldslaust,boðið Vernd að kaupa það á sanngjörnu verði. Arsrit Verndar er nú i prentun og mun koma útbráðlega. Það er stutt af f jölda kvenfélaga um land allt og fleiri stofnunum. Af út- komu ritsins hefur alltaf verið nokkur hagnaður. Félagasamtökin Vernd eru studd til starfa af rikinu og nokkr- um bæjar- og sveitarfélögum auk aðildarfélaganna sinna. Skal öll- um þakkað. Allt þetta starf fer fram undir stjórn frú Þóru Einarsdóttur, sem verið hefur formaður Verndar af lifi og sál alla tið. Á siðasta ári lést frú Sigriður Magnúsdóttir, ein af stofnendum Verndar og var hennar minnst af formanni. 1 stjórn fyrir næsta starfstima- bil vorukosnir: Frú ÞóraEinars- dóttir, formaður, sr. Arelius Ni- elsson, Pétur Jónsson, viðskipta- fræðingur, Bjarki Eliasson, yfir- lögregluþjónn, Lára Sigurojörns- dóttir, frú, Alfreð Gislason, lækn- ir og Hanna Jóhannessen, frú, Jón Grétar Óskarsson, lektor og Asgeir Jóhannsson, forstjóri. Lærid lífgun á einu kvöldi Reykjavikurdeild Rauða kross. Islands gengstfyrir námskeiðum i blástursaöferð. Hvert þeirra stendur yfir i eitt kvöld, hiö fyrsta næstkomandi mánudag kl. 8 e.h. i Heilsuverndarstöð Reykjavikur við Baronsstig, inngangur frá baklóð. Sýnd verður kvikmynd og kennt með brúðum. Fleiri sams- konar námskeið (en öll eruþau ó- keypis) verða haldin næstu kvöld á eftir og fer það eftir aðsókn. Fólk þarf að tilkynna strax um þátttöku i sima RKI 28222. Kenn- ari verður Jón Oddgeir Jónsson. Formaður Reykjavikurdeildar er Ragnheiður Guðmundsdóttir læknir. Japani óskar eftir pennavini 19 ára japanskur stúdent hefur skrifað okkur og segist elska Island og islenska menningu, hvorki meira né minna. Stúdent- inn er karlkyns og vill komast i kynni við islenska pennavini. Ahugamál hans eru mótorhjól. rafmagnsgitar, saga og skiöi. Hann biður um að skrifað sé á ensku og mynd látin fylgja, ef hægt er. Nafn og heimilisfang er: Tooru Maeta, 663-10, 1-ku Matsuzaki, Togo-cho, Tohaku-gun, Tottori-ken 689-07 JAPANÚ AÐAL- FUNDUR Hins íslenska prentarafélags, er i dag, laugardaginn 22. april, i félags- heimilinu Hverfisgötu 21 og hefst kl. 13.15. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þannig virkan þátt i af- greiðslu og umræðum um sin eigin mál- efni. Stjórnin. Garðabær — Kjörskrá Kjörskrá til alþingiskosninganna er fram eiga að fara 25. júni n.k. liggur frammi al- menningi til sýnis, á skrifstofu bæjarins Sveinatungu v/Vifilsstaðaveg, alla virka daga frá 25. april til 23. mai n.k., frá kl. $30 f.h. til kl. 4 e.h. Þó ekki laugardaga. Kær- ur vegna kjörskrárinnar skulu hafa borist undirrituðum eigi siðar en 3. júni n.k. Bæjarritari Norræn listmiðstöð i Finnlandi. Auglýsing um stöðu forstöðumanns Að tilhlutan Norrænu ráðherranefndarinnar mun sumarið 1978 verða stofnuð norræn listmiðstöð, er hafa mun aðset- ur að Sveaborg við Helsingfors. Hlutverk stofuunarinnar er að efla og samræma norrænt samstarf á sviði málara- listar, höggmyndalistar, teiknunar, graflistar, listiðnar og hönnunar — og er stefnt að samstarfi hinna ýmsu list- greina og að auðga norrænt menningarumhverfi. Listmiðstöðin er ein af norrænum menningarstofnunum, sem sinnir menningarsamstarfi 1 samræmi við norræna menningarmálasáttmálann. Kostnaður við þessa starf- semi greiðist úr samnorrænum sjóði. Ilér nteö er auglýst eftir umsóknum um stöðu forstööu- manns listmiðstöövarinnar og skal hann bera ábyrgð á daglegum rekstri stofnunarinnar og listrænni starfsemi hennar. Ætlast er til að umsækjandi hafi viðtæka reynslu á þvi starfssviði, er hér um ræðir. Staðan veitist frá 1. júli n.k. Ráðningartimi er fjögur ár og árslaunin 78 þúsund finnsk rnörk. ibúð verður til umráða, en önnur kjör samkvæmt samkomulagi. Þess skal getið, að samkvæmt sérstökum samningi milli Norðurlandarikja, hafa rikisstarfsmenn, er ráðnir eru til starfa i öðrum norrænu landi, rétt á launalausu leyfi I fjögur ár og halda á meðan öllum réttindum rikisstarfs- manna i heimalandinu. Umsóknir stilist til stjórnar Norrænu listmiðstöðvarinnar i Finnlandi, en sendist til Norrænu menningarmálaskrif- stofunnar (Sekretariatet for nordisk kulturelt samar- bejde), Snaregade 10, DK—1205, Köbenhavn K. (Simi 01/114711) i siöasta lagi 15. mai 1978. Norræna menningarmálaskrifstofan. xiöifis Vornámskeið Heimilis- iðnaðarfélags Islands 1. BALDERING — 29. april til 27. mai Kennt laugardaga kl. 14.00—17.00. 2. TÓVINNA — 9. mai til 6. júni. Kennt þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20.00—23.00 3. ÞJÓÐBÚNINGASAUMUR — fullorð- inna 22. maí til 9. júni. Kennt mánudag, miðvikudag og föstudag kl. 20.00—23.00 4. ÞJÓÐBÚNINGASAUMUR — barna 18. mai til 15. júni. Kennt þriðjNtaga og fimmtudaga kl. 14.00—17.00 Innritun fer fram hjá ÍSLENSKUM HEIMILISIÐNAÐI HafnarstiNti 3. Kennslugjaid greiðist við innriÉMÍ.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.