Þjóðviljinn - 31.05.1978, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 31. mai 1978
Umskipti i Kópavogi
Úrslitin kalla á vinstra samstarf
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur
misstu meirihluta sinn i bæjarstjórn, 8 ára
valdaskeiði þeirra er lokið
BæjarfuUtrúarnir I Kópavogi: Björn ólafsson verkfræöingur, Helga Sigurjónsdóttir kennari og Snorri
Konráösson bifvélavirki.
Alþýöubandalagið er nú orö-
inn stærsti flokkurinn i Kópa-
vogi, og þess vegna hlýtur aö
hvila á okkur forustuhlutverk
um myndun nýs meirihluta i
bæjarstjórn á þvi kjörtimabili
sem nú er að hefjast. Rikis-
stjórnarflokkarnir eru komnir i
minnihluta i bæjarstjórn Kópa-
vogs, og er þá lokið valdaskeiöi
þeirra i bænum sem hófst eftir
kosningarnar 1970.
Björn ólafsson, fyrsti
bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins i Kópavogi, mæiti þessi
orð, þegar fréttamaður Þjóð-
viljans tók hann tali i gær ásamt
hinum tveim bæjarfulltrúum
flokksins i Kópavogi, Helgu
Sigurjónsdóttur og Snorra Kon-
ráðssyni.
— Hvernig er útkoma Al-
þýðubandalagsins i Kópavogi?
— Við erum með svipað hlut-
fall greiddra atkvæða nú og sið-
ast eða um 27%. Við höldum þvi
okkar hlut, en um aukningu er
ekki að ræða. Raunar er það
svo, að við margar undan-
gengnar kosningar höfum við,
Alþýðubandalag,og á undan þvi
Félag óháðra kjósenda, verið að
lækka i hlutfalli. Nú er komin
stöðvun á. Innflutningur fólks i
Kópavog hefur verið geysimikill
um langt skeið, og þá helst úr
Reykjavik sem verður að telja
harla hægri sinnað svæði, aö
minnsta kosti til þessa. Aukning
á kjörskrá hjá okkur var um
20% frá 1974 til 1978.
— Það voru margir listar i
framboði i Kópavogi.
— Það voru fjögur hrein
flokkaframboð, en auk þeirra S-
listi „sjálfstæðisfólks” og K-listi
„borgara úr öllum flokkum”.
Sundrungin, i Sjálfstæðisflokkn-
um,sem olli þvi að framboðin
voru tvö á hans vegum, leiddi til
þess að af flokknum hrundi
meira fylgi en gerðist almennt á
landsvisu. A K-lista var efsti
maður úr Samtökunum, en hann
sat siðast á sameiginlegum lista
með Framsókn og komst af hon-
um i bæjarstjórn, en skipaði sér
þar i lið minnihlutans gegn
samstjórn Ihalds og Framsókn-
ar. Á K-listanum var einnig
þingmaður Alþýðuflokksins og
fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, og hefur það
haft sitt að segja um styrkleika
listans.
— Hvað segja úrslitin i Kópa-
vogi um vilja almennings?
— í fyrsta lagi refsa menn
rikisstjórninni og snúa baki við
flokkum hennar, einkum Sjálf-
stæðisflokknum. Fylgi Sjálf-
stæðisflokksins var um 37% i
bæjarstjórnarkosningunum
1974, en þó atkvæðatala S-lista
sé bætt við D-lista nú, nær fylgið,
ekki nema 26% . t öðru lagi
snúa menn baki við þeim meiri-
hluta sem hefur stýrt málefnum
kaupstaðarins i 8 ár.
Alþýðuflokkurinn fær mikinn
byr, en hann er þó enn minnstur
af stjórnmálaflokkunum hér i
Kópavogi.
Nýju framboðin hér, einkum
K-listinn, veittuhægri sinnuðu
fólki tækifæri til að mótmæla
stjórnarstefnunni með atkvæði
sinu, án þess að ganga alla leið
til vinstri og kjósa G. Hins vegar
hefur Alþýðubandalagið lykil-
stöðu nú i bæjarmálunum sem
stærsti flokkur bæjarins og
hlýtur að beita sér fyrir vinstra
samstarfi.
— Þið Björn og Helga eruð
gamalreynd i kosningabaráttu,
en þú ert aftur nýr i þessu,
Snorri. Hvernig fannst þér?
— Þetta var mjög skemmti-
leg reynsla, það var stigandi i
baráttunni og spenna þegar nær
dró kosningum. Mér finnst
ánægjulegt að hafa verið með i
þessu, og nú er bara að ganga til
starfa.
Vinstri menn standi saman
er lærdómurinn sem draga má af kosningaúrslitunum, sagöi Kjartan
Ólafsson er Þjódviljinn hafdi samband vid hann á ísafirdi í gær
Þjóðviljinn haföi samband við
Kjartan Ólafsson, efsta mann á
lista Alþýðubandalagsins I al-
þingiskosningum á Vestfjörðum,
þar sem hann var staddur á Isa-
firöi,til aö leita álits hans á úrslit-
um sveitarstjórnarkosninganna
vestra og möguleikum Alþýðu-
bandalagsins i þingkosningunum
meö tilliti til þeirra.
— Ég vil þá fyrst nota tækifær-
ið til að láta i ljós ánægju mina
með kosningaúrslitin um allt land
og tel að fall borgarstjórnar-
meirihlutans i Reykjavik megi
kallast atburð aldarinnar i is-
lenskum stjórnmálum, sagði
Kjartan.
Um úrslitin á Vestfjörðum er
það að segja að við Alþýðubanda-
lagsmenn megum una mjög vel
við okkar hlut hérna.
A Isafirði fengum við bestu út-
komu sem Alþýðubandalagið og
fyrirrennarar þess hafa nokkurn
tima fengið i bæjarstjórnarkosn-
ingum. Við jukum fylgið úr 163 at-
kvæðum i 246 eða úr 11% i rúm-
lega 16%, sem er um 50% fylgis-
aukning. Okkur vantaði aðeins 8
atkvæði til þess að vinna hér nýj-
an bæjarfulltrúa og hér hefur fólk
greinilega fullan hug á að láta
ekki þannig fara i þingkosningum
að vanti nokkur atkvæði til að
koma manni á þing.
Mjög viða á Vestfjörðum var
um að ræða blandaða lista i fram-
boði og aðeins i einu byggðarlagi
auk ísafjarðar var hreinn flokks-
listi Alþýðubandalagsins. Það var
á Suöureyri i Súgandafirði og þar
var útkoman góð, viö héldum ein-
um manni i hreppsnefnd og vel
það.
1 þremur byggðarlögum þar
sem Alþýðubandalagið hefur
aldrei áður átt neinn hlut að sveit-
arstjórnarkosningum hafa
flokksmenn i Alþýðubandalaginu
nú verið kosnir i hreppsnefnd af
blönduðum listum. Þau eru Flat-
eyri, Bildudalur og Hólmavik.
Viðar á Vestfjörðum hafa
flokksmenn og góbir stuðnings-
menn Alþýðubandalagsins verið
kjörnir i sveitastjórnir af blönd-
uðum listum en allviða er erfitt að
draga ályktanir um fylgi ein-
stakra flokka af fylgi hinna
blönduðu lista.
Ég tel að útkoma Alþýðubanda-
lagsins um allt land sýni að núna
stendur straumurinn frá hægri til
vinstri i islenskum stjórnmálum.
Flokkurinn lengst til hægri, Sjálf-
stæðisílokkurinn, hefur beðið
afhroð, en flokkurinn lengst
til vinstri, Alþýðubandalagið,
er tvimælalaust sigur-
vegarinn i þessum sveitar-
stjórnarkosningum. Þessi
staðreynd hlýtur að styrkja mjög
stöðu Alþýðubandalagsins um allt
land og það gildir ekki siður hér á
Vestfjörðum en annars staðar.
Sveitarstjórnarkosningarnar og
ekki sist borgarstjórnarkosning-
arnar i Reykjavik hafa sýnt
hversu óendanlega mikilvægt það
er að vinstri menn i landinu
standi saman og vænti ég þess að
lærdómurinn sem af þvi má
draga muni m.a. sýna sig i al-
þingiskosnirigum á Vestfjörðum
25. júni. Ég tel miklar likur á þvi
að i þeim geti hæglega oltið á 2
Kjartan ólafsson
eða 3 atkvæðum hvernig úrslit
ráðast og vil treysta þvi aö allt
okkar fólk vinni að undirbúningi
kosninga með tilliti til þess.
—GFr.
BLAÐBERAR
ÓSKAST
AUSTURBORG: VESTURBORG:
Bólstaðarhlið Skjól
MIÐSVÆÐIS
Laugavegur (neðri)
Langahlið afl. i sumar
Eikjuvogur afl. i júní
Afleysingafólk óskast um lengri og
skemmri tima, víðsvegar um borgina.
Vinsamlegast itrekið eldri umsóknir
DJÚÐV/Um
Afgreiðsla Siðumúla 6, simi 8 13 33
Megum ekkert
fyrir alþingiskosningar, segir Gard-
ar Sigurösson alþingismadur um
pólitiskar horfur á Sudurlandi
Hér i Vestmannaeyjum er ó-
hætt aö segja aö viö höfum sigraö
mjög glæsilega og uppi á landi
höfum viö haldið okkar fylgi,
sagði Garðar Sigurðsson þegar
Þjóöviljinn haföi samband viö
hann i Vestmannaeyjum i gær til
aö spyrja hann um kosningahorf-
ur i Suöurlandskjördæmi meö til-
liti til úrslita i sveitarstjórnar-
kosningunum. Hins vegar megum
viö ekkert slaka á til aö halda
okkar fyrra fylgi I alþingiskosn-
ingum, sagöi hann.
I Vestmannaeyjum fengum við
að þessu sinni 20% fleiri atkvæði
en kratar og hlutfall okkar á
móti ihaldinu er nú 2/3 af þeirra
fylgi en var áður á sameiginleg-
um lista okkar og Framsóknar-
manna 1974 aðeins 1/3.
Ég vil taka það skýrt fram,
sagði Garðar, að fólk tekur ekki
sömu afstööu i sveitarstjórnar-
kosningum og alþingiskosning-
um. Sókn Alþýðubandalagsins
um allt land er þó greinileg og
maður þrufti að láta segja sér úr
slitin i Reykjavik tvisvar eða
þrisvar til aö trúa þeim.
-'GFr
slaka á
Garöar Sigurösson