Þjóðviljinn - 31.05.1978, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 31.05.1978, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 31. mai 1978 / Islendingar 21 árs og yngri töpuðu fyrir Noregi i gærkvöld 0:1 Þrautfúll slæmt tap Fyrsti landsleikurinn undir 21 árs, leikur sem vert er að gleyma sem fyrst „Þetta var ekki okkar dagur. Við lékum illa en hefðum þó átt skilið að hljóta annað stigið í leiknum"/ sagði Lárus Loftsson þjálfari íslenska liðsins í knattspyrnu sem tapaði fyrir Noregi í gær- kvöld 0:1. //Máttarstólpar liðsins brugðust okkur og því fór sem fór"/ sagði Lárus. Það er alveg óhætt að segja að þessi úrslit eru okkur íslend- ingum mikil vonbrigði. Liðið er skipað ungum leikmönnum sem eiga að taka við i náinni framtið og ef þeir standa sig ekki betur en raun ber bitni megum við athuga okkar gang. En þrátt fyrir tapið i gærkvöld er engin ástæða til að hengja haus. Við verðum bara að taka okkur á og gera betur næst. Ef við vikjum að leiknum i Noregi i gærkvöld, þá var hann i einu orði lélegur og þvi fátt um hann að segja. Sérstaklega var fyrri hálf- leikurinn slappur en i þeim siðari tóku Islendingarnir sig saman i andlitinu og sóttu mun meira en það dugði ekki. Þeir skorðuð ekki einu sinni þó að þeir stæðu fyrir framan opið markið og þó að það væri mannlaust i þokkabót. Slikt henti Atla Eðvaldsson á siðustu min. leiksins er hann allt i einu stóð einn fyrir opnu marki en einhverra hluta vegna skoraði hann ekki. Var þetta besta tæki- færi islenska liðsins i leiknum. Að sögn Lárusar Loftssonar, sem við höfðum samband við að leiknum loknum, var völlurinn afar slæmur. Varla gestum bjóðandi. Norska liðið væri sæmilegt en á góðum degi ynnum við þetta lið létt. Hann sagði ennfremur, að Jón Þorbjörnsson hefði verið mjög góður i markinu og kemur það englim á óvart sem fylgst hafa með leikjum Skagamanna i leikur og Jón Þorbjörnsson ÍA átti mjög góðan leik gegn Noregi i Fredrekstad I gærkvöld. Hér sést hann verja skot frá félaga sinurn I islenska liðinu, Albert Guðmundssyni Val. sumar. Einnig hefðu Rafn Rafnsson og Einar Ólafsson átt góðan leik. Eins og áður sagði var þetta fyrsti leikurinn hjá þessu liði, en leikmenn eru undir 21 árs aldri. Ekki eru fyrirhuguð nein frekari verkefni fyrir þetta lið i sumar og hlýtur það að vera slæmt fyrir islenska knattspyrnu. Til dæmis verða Norð- menn með prógramm i gangi i sumar, i þvi eru meðal annars leikir gegn Dönum og Vestur- Þjóðverjum. þrfvegis hafa unnið keppnina og eru af mörgum taldir sigur- stranglegir, komu til Buenos Air- es á föstudaginn, ásamt skosku landsliðsmönnunum, gáfu litið i skyn hver framvinda mála verð- ur. Þeir eiga létt verk framundan að komast áfram i 8-liða úrslitin með Svium, Spánverjum og Austurrikismönnum i riðli. Æfingar þeirra fara fram i Mar del Plata sem er ein stærsta borg Argentinu. Þjálfarinn Claudio Coutino gaf blaðamönnum upp liðið sem leikur fyrsta leikinn næstkomandi laugardag við Svia. Það verður þannig skipað: Leo, Toninho, Oscar, Amarel, Edinho, Batista, Cerezo, Rivelino, Gil, Zico, Reinaldo. //Viö munum tala með fót- unum"! Skosku landsliðsmennirnir komu eins og áður sagði á föstu- daginn og þeir munu koma til með að verja heiður breskrar knattspyrnu. Framkvæmdar- stjóri skoska liðsins gaf ekki út neinar yfirlýsingar við komuna og var jafnvel hinn óþægilegasti viö blaðamenn, hreinlega neitaði þeim um allar upplýsingar. Það eina sem hann sagði við komuna var: „Viö munum tala með fótun- um” En blaðamennirnir hrein- lega hefndu sin með þeim afleið- ingum að skosku knattspyrnu- mennirnir eru nú manna óvinsæl- astir i Argentinu. Raunar minnir þetta allt á durgslega framkomu Sir Alfs Ramsey i Mexikó 1970 er Englendingar biðu algert skip- brot i keppninni. Skotar ættu að eiga mjög góða möguleika á að komast i 8-liða úrslitin en þeir eru i riðli með Hollendingum, Perú og tran. Heimsmeistararnir V-Þjóð- verjar hafa hægt um sig i Cor- doba þar sem þeir dveljast við æf- ..Viö yrðum sigurvegarar værum viö með” — segja vonsviknir Englendingar, en eins og kunnugt er féli lið þeirra úr keppninni fyrir hendi ttala. Þessi mynd var tekin á Wembley-leikvanginum fyrir nokkru er Englendingar og Brasilfumenn léku saman. Leiknum lauk með jafntefli 1:1, en allir viðstaddir voru á einu máli um yfirburði enska liðsins. Hér er einum leikmanna þess brugðið gróflega innan vitateigs en ekkert er dæmt. ingar fyrir fyrsta leikinn við Pól- land á fimmtudaginn. Þeir eru i riðli með Túnis og Mexikó auk Pólverja. Okkar eina takmark er að verja titilinn sögðu þeir. Erfiðasti og tvisýnasti riöill ÖLL LIÐIN MÆTT TIL LEIKS Það hefur gengiö á ýmsu siöustu daga í Argentínu varöandi Heimsmeistara- keppnina í knattspyrnu sem hefst i Buenos Aires næstkomandi fimmtudag 1. júní. öll liöin eru mætt til leiks en fram á það síðasta hefur jafnvel verið vafa- samt með þátttöku nokk- urra þjóða. Svíar t.d. voru lengi vel í vafa um hvort þeir ættu að senda lið til leiks en á endanum varð uppá að svo verður. Síð- asta þjóðin sem átti í ein- hverjum brösum voru svo Austurríkismenn en þeir gera sér allgóðar vonir um sæti í 8-liða úrslitunum. keppninnar er tvimælalaust 1. riðill en i honum eiga sæti ítalir, sem svo eftirminnilega slógu England út, Ungverjaland, Ar- gentina og Frakkland. Eitt at- hyglisveröasta liðið er tvimæla- laust það franska. Þjálfari þess taldi möguleika liðsins á að kom- ast i 8-liða úrslitin ekki mikla „Við sjáum bara hvað setur”, sagði hann. —hól. Langt fram eftir siðustu viku stóð i stappi milli Austurriska knattspyrnusambandsins og leik- manna um greiðslur vegna keppninnar. Var komiö i svo hart að jafnvel leit út fyrir að Austur- riki yrði alls ekki með i keppn- inni. A siðustu stundu björguðust þó málin en grunnt er á miskliö milli leikmanna og forráðamanna knattspyrnusambandsins. Það kom vel fram er varaforseti Austurriska knattspyrnusam- bandsins sagði blaðamönnum að hann væri mjög bjartsýnn á að hinir ungu leikmenn Austurrikis myndu spjara sig. Þeir eru snöggir, haröir, ákveönir, sagði hann en einn leikmanna liðsins sem stóð við hliðina á honum muldraði aðeins i barm sér „Þvi miður, það eru hinir llka” En ekki geta Austurrikismenn talist ýkja liklegir til árangurs i Argentinu. Brasiliumenn, sem

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.