Þjóðviljinn - 31.05.1978, Síða 5
MiOvikudagur 31. mai 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Þorsteinn L. Þorsteinsson,
formaöur Verkalýðsfélagsins i Hornafirði:
Yfirvinnubann
næsta aðgerð
— Ég held að reynslan af út-
flutningsbanninu sé sú, að það
hefur valdið miklum þrýstingi,
sagði Þorsteinn L. Þorsteinsson,
formaður Verkalýðsfélagsins á
Höfn í Hornafirði. — Og ég held,
að atvinnurekendur séu komnir i
verulega erfiðleika vegna banns-
ins. Aðgerðirnar sem siikar eru
þvi áhrifarikar. Þó að seinni
bráðabirgðalögin séu ákaflega
vitlaus, þá eru þau engu að siður
visst undanhald fyrir áhrif þessa
yfirvinnubanns.
— Til hvaða aðgerða telur þú
að Verkamannasambandið eigi
að gripa nú?
— Sú vitleysa, sem birtist i
bráðabirgðalögum rikisstjórnar-,
innar, er náttúrlega skerðing á
yfirvinnutekjum og bdnus. Það er
að sjálfsögðu ótæk aðgerð og
stefnir i 10 'stunda dagvinnu 1
raun. Þá er eðlilegt að álykta sem
svo, að yfirvinnubann verði næsta
aðgerð. Hvort það á að koma til
viðbótar útskipunarbanninu, skal
ég ekki segja um.
— Hvenær ættu þá næstu að-
gerðir að koma til framkvæmda?
— Ég held að næstu aðgerðir,
hverjar sem þær verða, verði að
koma fljótlega til framkvæmda.
Mér finnst að yfirvinnubannið
væri rökrétt svar. En það má
vera, að breyttar aðstæður i þjóð-
félaginu eftir kosningarnar verði
til þess að auðvelda baráttuna.
Mér þætti ekkert óliklegt, að ný-
kjörnar sveitarstjórnir verði fús-
ari til þess að greiða verkafólki ó-
skert laun. Þessi ráðstefna verð-
ur að taka mikilvægar ákvarðan-
ir um næstu aðgerðir i kjarabar-
verdi
Þorsteinn L. Þorsteinsson.
áttunni, og ég held að þær aðgerð-
ir verði að koma fljótt til fram-
kvæmda. —eös
Jón Kjartansson,
formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja:
Stjórnin hefur tekið sér vald
tíl að ákveða laun verkafólks
— Ég tel, að útflutningsbannið
sé einhver sterkasta aðgerð sem
við höfum fundið upp á, sagði Jón
Kjartansson, formaður Verka-
lýðsfélags Vestmannaeyja. —
Það kostar okkur ekki neitt, en
veldur atvinnurekendum alveg
gífurlegum óþægindum og út-
gjöldum. Undanþágur þær, sem
veittar hafa verið, þýða ekki að
við séum með neinn undanslátt,
heldur eru þær veittar vegna
þess, að við viljum ekki láta at-
vinnufyrirtækin stöðvast. En um
þetta virðist hafa gætt nokkurs
misskil nings.
Hvertá að verða næsta skrefið i
baráttunni?
— Næst tel ég að eigi skilyrðis-
laust að banna yfirvinnu og bón-
us, en jafnframt þurfum við að
halda útflutningsbanninu áfram.
Ég tel það svo sterka aðgerð, að
alls ekki megi sleppa þvi. Að
minu mati ætti yfirvinnubannið
að koma til framkvæmda sem
allra fyrst, þannig að menn
þyrftu ekki að vinna eftir þessum
nýju bráðabirgðalögum.
Rikisstjórnin er eiginlega búin
að taka sér það vald, að ákveða
laun verkafólks I landinu, og
samkvæmt hennar kenningum
ætlar hún sér að skera niður yfir-
vinnuálag, þannig að það mun
með sama áframhaldi verða
lægra heldur en dagvinnutekjurn-
ar. Þar með er i raun og veru ver-
ið að afnema 40 stunda vinnuviku
i reynd. Það er lika alveg ókann-
að mál, hvort rikisstjórnin hefur
ekki hreinlega brotið orlofslögin
með þessari skerðingu, vegna
þess að orlofsgreiðslurnar verða
lægri en samningar segja til um.
Hitt er svo aftur annað mál, að
ég reikna ekki með að rikisstjórn-
in éti þetta allt ofan i sig. Hún er
búin að kyngja stórum bita nú
þegar, þótt það hafi kannski verið
mest sýndarmennska.
—eös
Jón Kjartansson.
Jón Agnar Eggertsson,
formaður Verkalýðsfélags Borgarness:
Andvígir því aö stjórnvöld
blandi sér í gerða samninga
Yfirvinnubann
hentar ekki
í Borgarnesi
— 1 Borgamesi er ekki útflutn-
ingshöfn.en við höfum boðið fram
alla aðstoð sem við getum veitt i
sambandi við útflutningsbannið,
sagði Jón Agnar Eggertsson, for-
maður Verkalýðsfélags Borgar-
ness.
— Við gerðum samning við
Borgarneshrepp um kjör verka-
manna, og gildir samningurinn
frá 1. marstil 1. september. Þetta
var fyrsti samningur sem undir-
ritaður var eftir að bráöabirgða-
lögin voru sett og með þessum
samningi fá verkamenn fullar
verðlagsbætur á laun. Ég held að
þessi samningur hafi vakið eftir-
tekt og orðið til að hvetja önnur
sveitarfélög til að ganga til samn-
inga við starfsmenn sina.
Við höfúm lýst harðri andstöðu
viö kjaraskerðingarlög ríkis-
stjórnarinnar, sem ég tel að hafi
veriö stór mistök. Viö erum and-
vigir þvl, að stjórnvöld séu að
blanda sér i gerða samninga. Það
verður aðeins til þess, að fólk
missir trúna á gildi samninga.
— Hvað finnst þér um næstu
aðgerðir Verkamannasambands-
ins?
— Mér li'st ekki vel á að setja
yfirvinnubann hvað varðar mitt
félag, þótt ljóst sé, að megingall-
ar bráðabirgðalaganna séu
tengdir yfirvinnunni. Aðstæður
eru þannig hjá okkur, aö erfitt
yrði að framfylgja yfirvinnu-
banni, og þar að auki erum við
búnir að semja fyrir nokkurn
hluta félagsmanna. Það er erfitt
að koma á yfirvinnubanni vegna
mjólkurflutninga og vöru-
flutninga. Margir mjólkur-
bilátjórar og vöruflutningabil-
stjórar eru i félaginu, og það er
miklum erfiöleikum bundið að
setja yfirvinnubann á slika vinnu.
En það kann vel að vera, að
yfirvinnubann henti öðrum félög-
um, þótt það henti ekki fyrir okk-
ur. Það kæmi hins vegar vel til
greina aö setja nætur- og helgar-
vinnubann og bann á bónuseös
Jón Agnar Eggertsson.
Kúpavogskanpstaðiir !S1
Frá Grunnskólum
Kópavogs
FRAMHALDSNÁM i grunnskólum. Kópa-
vogs næsta vetur og innritun i unglinga-
deildir.
FRAMHALDSNÁM:
A skólaárinu 1978-’79 munu verða framhaldsskóladeildir I
grunnskólum Kópavogs (Vighólaskóla og Þinghólsskóla)
með eftirtöldum námsbrautum, ef næg þátttaka verbur:
VIÐSKIPTABRAUT — HEILSUG ÆSLUBRAUT —
UPPELDISBRAUT — HUSSTJÓRN ARBRAUT og
FORNAM.
Umsóknir þurfa að berast ofangreindum skólum eða
Skóiaskrifstofu Kópavogs, Digranesvegi 10 fyrir 10. júni
n.k. Umsóknareyðublöð og upplýsingar um námið fást I
skólunum eða skólaskrifstofunni.
Skipting deilda og námsbrauta i framhaldsnáminu milli
skólanna verður ákveðin þegar umsóknir eru komnar
fram.
Innritun i 7. 8. og 9. bekk grunnskóla:
Þeir nemendur 7. 8. og 9. bekkjar grunnskóla Kópavogs
næsta vetur, sem ekki hafa þegar iátið innrita sig, eru
minntir á að gera það FYRIR 10. JCNI i skóiunum. Eink-
um eru nýfluttir nemendur, eða þeir sem flytjast munu f
Kópavog i sumar minntir á þetta. Slika innritun má einn-
ig tilkynna i Skólaskrifstofu Kópavogs simi 41863.
Skrifstofur skólanna eru opnar fyrir hádegi alla virka
daga.
Afrit eða ljósrit af siðasta prófskirteini þarf að fylgja nýj-
um innritunum.
Kópavogi 30. mai 1978,
Skólafulltrúinn i Kópavogi.
Frá skólum Reykjavíkurborgar
Innritun
í framhaldsnám
Skólaárið 1978-’79 er áformað að eftirtald-
ar námsbrautir verði starfræktar ef að-
sókn leyfir:
Hússtjórnarbraut Heilsugæslubraut
Sjávarútvegsbraut Uppeldisbraut
Fornám Viðskiptabraut
Tekið verður við umsóknum og nánari
upplýsingar veittar i Miðbæjarskólanum,
simi 129 92, dagana 1. og 2. júni n.k. kl. 13-
18. Jafnframt verður tekið við umsóknum
i fræðsluskrifstofu Reykjavikur, Tjarnar-
götu 12, til 10. júni n.k.
Umsókn fylgi ljósrit eða staðfest afrit af
prófskirteini.
Innritun i Fjölbrautaskólann i Breiðholti
fer fram i húsi skólans við Austurberg sbr.
auglýsingu frá skólanum.
Innritun i Iðnskólann i Reykjavik fer fram
i húsi skólans á Skólavörðuholti sbr. aug-
lýsingu frá skólanum.
Fræðslustjóri.
Iðnaðarlóðir —
Hafnarfjörður
Úthlutað mun verða á næstunni lóðum fyr-
ir iðnaðarhús i nýju hverfi austan Reykja-
nesbrautar. Umsóknum skal skilað á þar
til gerð eyðiblöð eigi siðar en 16. júni 1978.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa
bæjarverkfræðings Strandgötu 6. Eldri
umsóknir þarf að endurnýja.
Frá Garðyrkjuskóla
ríkislns
Umsóknir um skólavist þurfa að berast
fyrir 10. júni næstkomandi.
Skólastjóri