Þjóðviljinn - 31.05.1978, Qupperneq 11
Miðvikudagur 31. mal 1978 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 11
Þjódminjavördur:
Líta þarf á gamla mið-
bæinn sem
eina hefld
1 blaðinu Vinaminni sem á-
hugafólk um umhverfisverndun
hefur sent frá sér er m.a. efnis
viðtal við t>ór Magnússon þjóð-
minjavörð um gömul hús i
Reykjavik. Segir hann þaö góðra
gjalda vert að friða einstök hús en
segir að það sem finna megi að sé
að heildarlinu eða heildarplan
vanti. Siðan segir hann orðrétt:
„Það vantar að llta á heil hverfi
og þá sérstaklega gamla miðbæ-
inn sem eina heild. Hér tala menn
um hús, en huga þarf að heilum
hverfum og heildarsvip borgar-
innar”. Þess skal getið i þessu
sambandi að þjóðminjavöröur
sendi áskorun til borgaryfirvalda
þar sem hann fór fram á að frest-
að væri afgreiðslu deiliskipulags
sem gerir ráð fyrir niðurrifi allra
húsanna við Hallærisplan og þar i
grennd. Þessu var engu sinnt og
Birgir tsleifur talaði af litilsvirð-
Þór Magnússon
ingu um bréf þjóðminjavarðar á
borgarstjórnarfundinum þegar
deiliskipulagið var samþykkt.
—GFr.
Kvennasveitín safhar fé
Olympiuskákmótíð í Argentínu
til fararinnar
Vonir standa til, að islensk
kvennasveit muni tefla á
Ölympiuskákmótinu i Argentinu I
haust, og verður þaö þá i fyrsta
sinn sem sveit islenskra skák-
kvenna teflir á ólympiuskákmóti.
Sá er hinsvegar hængur á, að á
fjárhagsáætlun Skáksambands
Islands var ekki gert ráö fyrir
þátttöku kvennasveitarinnar og
var henni þvi ekki ætlað neitt fé.
Að sögn Ölafar Þráinsdóttur, sem
er ein þeirra sem kvennasveitina
skipa, kom það þeim ekki svo
mjög á óvart. Þær hefðu oftast
orðið útundan þegar Skáksam-
bandið úthlutaði fé sinu, enda
væri það etv. ekki óeðlilegt, þvi
hópur skákkvenna væri svo fá-
mennur hér.
Birna Norðdahl gekkst fyrir
fjársöfnun til styrktar kvenna-
sveitinni og er hún nú i fullum
gangi. Þegar hafa safnast 4-500
þúsund kr. Skáksambandið mun
hafa gefið ádrátt um einhverja
aðstoð við kvennasveitina, en
samt sem áöur þurfa þær sjálfar
að leggja fram um 1.2 miljónir
króna.
Þrjár konur skipa kvennasveit-
ina og ein til vara, en karlasveitin
er helmingi stærri. Gert var ráð
fyrir 3 miljónum I útgjöld vegna
Argentinufarar karlasveitarinn-
ar I fjárhagsáætlun Skáksam-
bandsins.
„Við erum auðvitað ekki á-
nægðar með það, að Skáksam-
bandið skuli a.m.k. ekki vilja
stefna að þvi að gera þátttöku
okkar mögulega. Það er hvergi
stafur um það á þeirra blöðum,”
sagði Ólöf Þráinsdóttir.
Ólöf sagði að söfnuninni þyrfti
að vera lokið fyrir júlílok, þvi þá
þyrfti að tilkynna, hvort af þátt-
töku I ólympiumótinu yrði. Sagð-
ist hún vonast til aö endar næðu
saman með stuðningi mennta-
málaráöuneytisins, taflfélaganna
i Reykjavik, auk fjölmargra ein-
staklinga, þannig að islensk
kvennasveit komist á Olympiu-
skákmótið i Argentinu 1978.
—eö«
Barnaþrælkun í Marokkó
29/5 — Mannréttindastofnun
nokkur i Lundúnum, sem berst
gegn þrælahaldi, segir i nýbirtri
skýrslu að barnaþrælkun eigi sér
stað I stórum stn i Marokkó. Séu
börn allt niður i sjö ára aldur látin
vinna allt að 72 klukkustundum á
viku fyrir litið eða ekkert kaup i
verksmiðjum, sem framleiða
teppi til útflutnings til Vestur-
Evrópu og Norður-Ameriku.
Skýrslan er verk hóps, sem
stofnunin gerði út af örkinni til
Marokkó. Hópurinn rannsakaði
ásakanir þess efnis, að stúlku-
börn væru þrælkuð i teppaverk -
72 stunda vinnu-
vika fyrir lítíd
eöa ekkert kaup
smiöjum. Er hér um mikinn
gróðaveg að ræða fyrir eigendur
verksmiðjanna, þar eð mikill
markaður er fyrir marokkönsk
teppi i Vestur-Þýskalandi, Hol-
landi, Sviþjóð, Frakklandi,
Beigiu, Bandarikjunum og
Kanada. ,
Teppaverksmiðjurnar eru
sumar reknar af einkaaðilum, en
aðrar af stjórninni. 1 verksmiðj-
um einstaklingsframtaksins er
aðbúnaðurinn yfirleitt slæmur, að
sögn rannsóknarhópsins, og mörg
barnanna, sem vinna þar, lita út
fyrir að vera vannærð og þjást af
ofþreytu. Svo er látiö heita að
börnin séu iðnnemar og fá sum
alls ekkert kaup, en önnur ekki
meira en svo að það rétt nægir
fyrir brauðhleif á dag. í verk-
smiðjum stjórnarinnar er að-
búnaðurinn sagður miklu betri.
Menntaskólinn við Sund
prófárangur
Skólastarf er öflugt I Menntaskól a num viö Sund. Hér er veriö aö vigja
nýja nemendur inn I skólann.
Góður
Nema í 1. bekk
Menntaskólanum við Sund var
slitiö i niunda sinn miðvikudag-
inn 24. mai 1978. Rektor skólans,
Björn Bjarnason, flutti skóla-
slitaræðu við brautskráningu i
Háskólabiói. Þar kom m.a. fram,
að I vetur stunduðu nám 845 nem-
endur, en vorpróf þreyttu 780
nemendur. 1 1. bekk þreyttu 207
nem. próf, 215 i 2. bekk og i 3.
bekk 189 nemendur.
Heildarniðurstöður milli-
bekkjaprófa urðu þær, að 79,2%
stóðust i 1. bekk, 93% i 2. bekk og
99% I 3. bekk.
170 nemendur hófu stúdents-
próf, 169 þreyttu öll próf, þar af 3
utanskóla.
A málakjörsviöi brautskráðust
22 nem.
Á félagssviði máladeildar 31
nem.
A félagssv. stærðfræðideildar
21 nem.
A náttúrufræðikjörsviði 69 nem.
A eðlisfræöikjörsviði 24 nem.
1 nem. á ólokið prófum, og 1
stóðst ekki fullnaðareinkunn.
Hæstu einkunnir hlutu:
A málakjörsviði Helgi Grims-
son 8,5.
A félagssv. máladeildar Auður
Olafsdóttir 9,0, sem jafnframt var
hæsta einkunn á stúdentsprófi að
þessu sinni.
A félagssv. stærðfr.deildar
Daviö Björnsson 8,4.
A náttúrufræðikjörsviði Asta
Melitta Urbancic 8,8.
A eölisfræðikjörsviöi Sigriöur
Einarsdóttir 8,3.
VÉLSKÓLI ÍSLANDS
Inntökuskilyrði
1. stig: a) Umsækjandi hafi náö 17 ára aldri, b) Umsækj-
andi sé ekki haldinn næmum sjúkdómi eöa hafi likams-
galla sem geti oröið honum til tálmunar viö starf hans, c)
Umsækjandi kunni sund.
2) stig: 1) Umsækjandi hafi náö 18 ára aldri, b) sama og
fyrir 1 stigc) sama og fyrir l.stigd) Umsækjandi hafilok-
iö miöskólaprófi eöa hlotiö hliöstæöa menntun, e) Um-
sækjandi hafi eitt af þrennu. 1. lokiö vélstjóranámi 1. stigs
meö framhaldseinkunn. 2. öölast a.m.k. tveggja ára
reynslu I meöferö véla eöa i vélaviögeröum og staöist inn-
tökupróf viö skólann, 3. Lokiö eins vetrar námi i verknáms-
skóla iönaöar i málmiönaöargreinum og hlotiö a.m.k. 6
mánaöa reynslu aö auki i meöferö véla eöa vélaviögeröum
og staöist sérstakt inntökupróf.
Umsóknir
Umsóknareyöublöö liggja frammi i skrifstofu skólans I
Sjómannaskólanum, 2. hæö. Umsóknir berist skólanum
fyrir 10. júnl 1978. Kennsla hefst I byrjun september.
Skólastjóri.
Aí*-
Mælingamaður
— sumarstarf
Keflavikurbær vill ráða mælingamann til
starfa i sumar við framkvæmdaeftirlit
með gatnagerð og veitulögnum og skyld-
um verkefnum.
Nánari upplýsingar eru veittar á tækni-
deild Keflavikurbæjar að Mánagötu 5,
Keflavik.
Bæjartæknifræðingur
w
SIÁVARÚTVEGS-
BRAUT
á framhaldsskólastigi verður í Hagaskóla
næsta skólaár 1978-1979.
Námstimi er einn vetur. Brautin skiptist i
tvær deildir með sameiginlegum kjarna
skipstjórnardeild og fiskvinnsludeild.
Námið er bæði bóklegt og verklegt og fer
hluti af verklega náminu fram á vinnu-
stöðum.
A. Skipstjórnardeild:
1. Er undirbúningur fyrir nám i Stýri-
mannaskóla íslands.
2. Veitir skipstjórnarréttindi á skip allt að
30 tonnum, þegar nemandi hefur lokið
siglingartima.
3. Veitir allt að 6 mánaðar styttingu á
siglingartima þeim (24 mán.) sem kraf-
ist er til inngöngu i Stýrimannaskólann.
4. Auðveldar allverulega nám i 1. bekk og
allt framhaldsnám i Stýrimannaskólan-
um.
B. Fiskvinnsludeild:
1. Er undirbúningur fyrir nám i Fisk-
vinnsluskóla íslands.
2. Er undirbúningur fyrir störf i fisk-
vinnslu án frekara náms.
3. Styttir nám i Fiskvinnsluskólanum um
eina önn.
Tekið verður við umsóknum og nánari
upplýsingar veittar i Miðbæjarskólanum
simi 1-29-92 dagana 1. og 2. júni kl. 13-18 og
ennfremur i fræðsluskrifstofu Reykjavik-
ur til 10. júni n.k.
Fræðslustjóri.