Þjóðviljinn - 07.07.1978, Qupperneq 3
Föstudagur 7. júli 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
48 hurfu spor-
laust í Argentínu
meöan heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu stóð yfir
6/7 — Rodolfo Matarolo, argen-
tinskur lögmaöur og talsmaöur
þarlendrar mannréttindanefnd-
ar, sagði í dag að öryggislið
Argentlnustjórnar hefði numið
á brott 48 manns, meöan heims-
meistarakeppnin I knattspyrnu
stóð yfir, og hefði ekkert spurst
til neins þeirra siðan. Matarolo,
sem nú býr eriendis, sagði að I
sem
fangelsum Argentinustjórnar
væru nú um 15.000 pólitiskir
fangar, enda þótt herforingja-
stjórnin viðurkenndi ekki hand-
töku nema um 3.500 þeirra.
Lögmaðurinn sagði að herfor-
ingjastjórnin argentinska hefði
reynt að nota heimsmeistara-
keppnina til þess að koma sér i
álit i augum heimsins. Talið er
vist að flestir þeirra, sem
numdir eru á brott af hermönn-
um eða lögreglu stjórnarinnar,
séu myrtir án dóms og laga.
Likum margra hefur verið hent
i fljót, eftir að höfuð og útlimir.
hafa verið höggnir af þeim til
að gera þau óþekkjanleg.
Videla, forsprakki argentinsku
herforingjastjórnarinnar — viö-
urkennir ekki handtöku nema
3.500 af 15.000 pólitiskum föng-
um.
U
Sýrlendingar setja Sarkis
úrslitakosti
Krefjast afvopn-
unar hœgrimanna
6/7— Elias Sarkis/ forseti
LíbanonS/ lýsti því yfir i
dag að hann óskaði að láta
af embætti. Vestrænir
sendiráðsmenn segja að
Sarkis/ sem er kristinn/
hafi gefið þessa yfirlýs-
ingu eftir að Sýrlendingar
höfðu sett þá úrslitakosti
að varðliðasveitir hægri-
manna yrðu afvopnaðar og
sýrlenska gæsluliðið í
Líbanon, sem þar er i um-
boði Arababandalagsins,
fengi að fara hindrunar-
laust um landið og koma
sér upp bækistöðvum hvar
sem það vildi.
Haft er eftir útvarpi falangista
að Sarkis hafi einnig lýst yfir vilja
sinum til afsagnar i mótmæla-
skyni vegna stórskotahriðar Sýr-
lendinga á austurborgina i
Beirút, þar sem kristnir menn
búa og varðliðar falangista og
annarra h'ægrimanna hafa bæki-
stöðvar. Sagði útvarpið að Sarkis,
hefði talað um, að hann gæti ekki
sætt sig við stórskotahrið á ibúð-
arhverfi „undir þvi yfirskini aö
þetta væri gert af öryggisástæð-
um”. Yfir 200 manns hafa sam-
kvæmt ágiskun verið drepnir i
Breiút, siðar bardagar milli Sýr-
lendinga og hægrimanna hófust
þar á laugardaginn, og yfir 500
særst. Beitt hefur verið skrið-
drekum, eldflaugum og stórum
fallbyssum auk smærri vopna. 1
nótt héldu Sýrlendingar uppi mik-
illi stórskotahrið á austurborgina,
og er sagt að um 50 manns hafi þá
látið lifið eða særst.
Siðar i dag fréttist að Sarkis
hefði tekið til greina að hætta við
Sarkis — stjórn hans er valdalltil
og getur fátt gert til að hafa áhrif
á gang mála.
að segja af sér, að þvi tilskildu að
Sýrlendingar slökuöu eitthvað á
skilyrðum sinum. Ambassadorar
Bandarikjanna og Bretlands eru
báðir sagðir hafa lagt fast að
Sarkis að vera áfram i forseta-
embætti. Sýrlenska útvarpið
sagði i dag, að gæsluliðið myndi
halda áfram bardögum við þá,
sem yllu vandræðum i Libanon,
eins og það var orðað. Haft er eft-
ir libönskum embættismönnum
að Sýrlendingar hafi gefið Sarkis
frest til hádegis i dag að gefa
tryggingar fyrir þvi, að varðliöa-
sveitir hægrimanna yrðu afvopn-
aöar og sýrlenska liðið mætti fara
hvert á land sem það vildi i
Libanon.
Hrossa-
taöi hent
í breska
þingið
Krafíst betri aðbúðar
fyrir ÍRA-fanga
6/7 — Tuttugu minútna hlé varð I
dag á umræöum I neðri málstofu
breska þingsins er hrossataðs-
kögglum tók allt i einu að rigna
yfir þingheim. Voru þar að verki
tvær ungar manneskjur, piltur og
stúlka, og létu þau þessa skothrlö
ganga ofan af áheyrendapöllum
þingsins. Höfðu þau haft áburöinn
með sér þangaö i pokum.
Þingmenn flýðu i skjól hver
sem betur gat, en einn þeirra að
minnsta kosti var hæfður i höfuð-
ið. „Hann meiddist ekki,” er tekið
fram i fréttaskeyti frá Reuter.
Þingverðir hlupu til og fjarlægðu
parið af áheyrendapöllunum. Þau
hrópuðu: „Látið irsku pólitisku
fangana lausa.”
Fyrr um daginn hindruðu fjór-
ar ungar stúlkur varðskipti lif-
varða Bretadrottningar við Buck-
ingham-höll meö þvi að leggjast
út af endilangar fyrir fótum lif-
varðanna. Sá þetta margt manna,
þvi að ferðamönnum þykir gam-
an af að horfa á- varöskiptin.
Stúlkur þessar voru, likt og parið
sem hrossaskitnum henti á þing-
ið, að krefjast betri meðferðar á
um 90 mönnum úr írska lýð-
veldishernum (IRA), sem eru I
breskum fangelsum, svo og þess
að Bretar kalli burt hersveitir
sinar af Norður-Irlandi. Sumir
fanganna hófu hungurverkfall i
dag til að krefjast betri aöbúðar.
ísraelar hóta
Sýrlendíngum
6/7 — israel hefur lýst þvl yfir, að
það muni taka til sinna ráða ef
Sýrlendingar láti ekki af stór-
skotaárásum sinum á stöðvar
Sumarferð
Alþýðu-
bandalagsins
á Vest-
fjörðum
Alþýöubandalagið á Vest-
fjörðum fer sina árlegu sum-
arferð um helgina 8.-9. júli.
Farið verður á Látrabjarg
um Rauðasandshrepp og
víðar. Kvöldskemmtun verð-
ur I öriygshöfn, Patreksfirði
og þar dansað við harmó-
nlkku undirleik.
libanskra hægrimanna i Beirút.
Til þess að undirstrika þessa við-
vörun flugu hijóðfráar israelskar
herþotur óvenjulágt yfir Beirút i
morgun. Gluggar brotnuðu við
þetta I mörgum húsum og særðust
margir af glerbrotum. Skelfing
greip um sig meðal borgarbúa,
sem héldu að loftárás væri aö
skella á, og varð mikill troðn-
ingur á vegum út frá borginni.
Fréttaskýrendur segja að mikil
hætta sé nú á bardögum milli Sýr-
lendinga og tsraela, þar eð Isra-
elar muni ekki láta það liðast að
libanskir hægrimenn, sem eru
nánast einu bandamenn Israels i
Vestur-Asiu, séu brotnir á bak
aftur. Eftir yfirmanni israelsku
leyniþjónustunnar er haft, að
hægrimenn i Beirút séu mjög að
þrotum komnir, enda hafi Sýr-
lendingar um 17.000 manna her i
Beirút og mikið stórskotalið. For-
stöðumaður skrifstofu Begins,
forsætisráðherra Israels, sagði i
dag að Sýrlendingar væru að
fremja fjöldamorð á óbreyttum
kristnum borgurum I Beirút og
myndu Israelar ekki láta það við-
gangast.
Lúövík
Framhald af l', siðu.
stjórn sem situr og hefur meiri-
hiuta þings að baki sér sem verð-
ur að leysa þennan vanda, sem
hún átti þátt i að skapa?
— Að sjálfsögðu hvilir ábyrgð-
in á þessari rikisstjórn. Hún hefur
réttilega meirihluta og ber enn á-
byrgð á stjórn landsins. Auk þess
hefurhún sérstaka ábyrgð I þessu
máli, vegna þess hvernig það er
til komið.
En kjarni málsins er, að þetta
dæmi sýnir vel að öll efnahags-
mál þjóöarinnar voru komin I al-
gjört öngþveiti hjá rikisstjórn
Geirs Hallgrimssonar. Þetta sýn-
ir að frystiiðnaðurinn gekk á al-
gerum bráðabirgöaúrræðum til
skamms tima. Og menn geta svo
getið sér þess til, hvað hefði verið
gert af hálfu rikisstjórnarflokk-
anna, ef hún hefði haldið velli.
En þetta dæmi úr frystiiðnaðin-
um segir aðeins part af öllu á-
standinu i efnahagsmálunum.
Fyrir liggur aö verðlagsvisitalan
mun hækka um 9-10% minnst eftir
tvo mánuði með tilheyrandi
kauphækkunum. Og 6-8% koma
þar til viðbótar eftir aðra þrjá
mánuði. Nýtt fiskverö kemur
samkvæmt lögum 1. okt. Það ætti
öllum að vera ljóst, að vandamál
sjávarútvegsins liggja algerlega
óleyst. Þar skilur rikisstjórnin viö
allt i rúst og viðskilnaöurinn i öðr-
um greinum efnahagsmála er
svipaður.
Nú er talið að verðbólgan muni
vaxa um 38% frá byrjun ársins til
loka þessa árs, en um 50% á milli
áranna 1977 og 1978, ef tekið er
meðaltal hvors árs. Þetta er al-
gert met. Þannig er viðskilnaöur-
inn er Geir Hallgrimsson segir af
sér. Algert öngþveiti, hvergi ból-
ar á góða blómlega búinu sem tal-
að var um fyrir kosningar. Hann
hefur haft það af að sigla efna-
hagsmálunum i algert strand.
óre.
Sumarferð Alþýðubandalagsins á
Norðurlandi vestra 29.-30. júli
Leirhverasvæði I Kerlingarfjöllum.
Að þessu sinni liggur leiðin
að Hveravöllum, i Þjófadali
og Kerlingarfjöll.
Farið verður kl. 10 á laug-
ardagsmorgni frá Svartár-
brú i Laugadal og inn á Auð-
kúluheiði hjá Friðmundar-
vötnum og suður á Hvera-
velli. Á leiðinni verður sér-
staklega skoðað svæði það á
Auökúluheiði, sem tillögur
hafa verið uppi um að leggja
undir umdeilt uppistöðulón:
Blönduvirkjunar. Um kvöld-
ið veröur ekið i Þjófadali og
tjaldað. Verður þar eldur
kveiktur og dagskrá flutt
með söng og dansi.
A sunnudagsmorgni geta
menn farið i skoðunarferöir i
ýmsar áttir, meðal annars
gengið að Fögruhliö við ræt-
ur Langjökuls. Siðan veröur
ekið i Kerlingarfjöll og það-
an norður Kjalveg aftur i
Laugadal og komið að Svart-
árbrú um kl. 9 á sunnudags-
kvöld.
Verð: 6.000,- kr. og hálft
gjald fyrir börn yngri en 14
ára.
Væntanlegir þátttakendur
láti skrá sig og fái nánari
upplýsingar hjá eftirtöldum:
Hvammstangi: Þórður
Skúlason, Hvammstanga-
braut 19, simi 1382.
Blönduós: Guðmundur
Theódórsson, Húnabraut 9,
simi 4196.
Skagaströnd: Eðvarð Hall-
grimsson, Fellabraut 1, simi
4685.
Varmahiíð: Hallveig Thorla-
cius, Mánaþúfu, simi 6128.
Sauðárkrókur: Rúnar Bach-
mann, heimasimi 5684, simi
á verkstæöi 5519.
Ilofsós: Gisli Kristjánsson,
Kárastig 16, simi 6341.
Siglufjörður: Júlíus Július-
son, Túngötu 43. simi 71429.
KJÓRDÆMISRÁÐ Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra