Þjóðviljinn - 07.07.1978, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 07.07.1978, Blaðsíða 7
Föstudagur 7. júll 1978 ÞJÓÐVJLJINN — SIÐA 7 Tætingslegar húsaraöir i gamla miðbænum , óhrjáleg iðnaðarhverfi og ófrágengin hverfi ibúðarhúsa bera sinnuleysinu ófagurt vitni. — Hugarfarsbreyting þarf að eiga sér stað hjá þeim sem byggja hús Guörún Hallgrimsdóttir verkfræöingur FALLEG BORG? A röltimi'nu erlendis um stór- borgir jafnt sem fátækleg sveitaþorp, þar sem hvert skúmaskot ber snyrtimennsku vitni og nosturslegt útlit garöa, gangstétta og húsa vekur at- hygli, hef ég oft velt þvi fyrir mér, hvort hægt sé að afsaka hir&uleysiö og hroövirknina, er blasir alls staöar viö hér, meö veöráttunni einni saman. Vissu- legaer slikt freistandi. Blómum skrýddir garöar, rósir á rósir ofan, ekki þrifst slikt i noröan- garranum. Eöa þá trén, ósköp eru nú kræklóttar birkihrlsl- urnar, sem árlega heyja sina lifsbaráttu viö vorhretin, fátæk- legar I samanburöi viö blómstr- andi ávaxtatré og aldagamlan trjágróöur sem breiöir úr krón- um sinum og varpar skugga á göturnar, vegfarendum til hag- ræöis og yndisauka. Þaö reyndist sumsé ákaflega auövelt aö finna afsakanir fyrir óhrjálegu útliti borgarinnar okkar svo og þorpa viöa um land, þegar hugurinn hvarflaöi heim. Eftir alllanga útivist feröast ég meö strætisvögnum borgar- markanna á milli og jafnvel gef mértima tilað gangabæjarleiö. Sólin skin eins og hún aöeins get- ur skiniö á Islandi, allir iitir skerpast, grasiö er grænt og loftiö tært. Um stund fer ég aö trúa bæklingum, sem prentaðir eru til aö laöa erlenda ferða- menn til landsins. Sundin eru fagurblá, ég sannfæristenn einu sinni um sérstæöa fegurö Esj- unnar, þaö sindrar á Móskarös- hnjúka, Kistufelliö er tignarlegt eins og drottning I hásæti sjöllin á Reykjanesi ásamt Vlfilfelli og Hengli loka umgjörðinni. Seiðmagnaöur Snæfellsjökull dregur mig ýmist niöur aö sjó eöa upp f Hlíöar, þar sem hann blasir viö I öllu sinu veldi. En drottinn foröi mér frá aö lita mér nær. Ekki eru þessi ósköp veöráttunni aö kenna. Tætingslegar húsaraöir i gamla miöbænum, óhrjáleg iönaðar- hverfi og ófrágengin hverfi ibúöarhúsa bera sinnuleysinu ófagurt vitni. Hús hafa verið rifin og i þeirra staö ýmist byggö ný i æpandi ósamræmi viö þaö sem fyrir var eöa grunn- ur sléttaöur fyrir bllastæöi. Má ekki á milli sjá hvort er ljótara, húsin eöa stæöin, enda er hvoru tveggja ófirágengiö og hefur oft veriö um árabil. Nægir hér að benda á Hverfisgötuna, er nema von aö fávis kona spyrji, hvort allt sé leyfilegt, bara ef maöur telst eigandi lóöar. Um langan aldur hefur Borgartúniö veriö ein aöalum- feröargata borgarinnar og um leið ein ljótasta. Fyrir tiu árum gekk undirrituö daglega úr Hllöunum út I Laugarnes. NÓa- túniö og Borgartúniö höföu aö vlsu veriö malbikuö en aö ööru haföi ekki veriö hugaö. Allt eftir veöri og vindum náöi forin I ökla eöa moldviörið fyllti öll vit. Eina breytingin sem siöan hefur átt sér staö er bygging glæsi- legra gatnamóta, sem «iginn kemst yfir nema fuglinn fljúg- andi og svo náttúrulega bilarn- ir. Gangstéttargerö viröist ekki hvarfla aö yfirvöldum né annar nauösynlegur frágangur. Gang- braut lögö til bráöabirgöa frá Klúbbnum i áttina til Nóatúns er öll úr sér gengin og sjálfsagt lifshættuleg þeim, sem valtir eru á fótum. Sömu sögu má reyndar segja um flestar gang- stéttir, einnig þær sem eiga aö heita varanlegar. Viröist þar einu gilda hvort um lagöar eöa steyptar stéttir er aö ræöa. Mis- sig og sprungur gera þær erf- iöar yfirferöar, ekki vildi ég þurfa aö aka barnavagni um borgina. Hvert sem augaö litur sjást ófrágengin mannvirki, hrófa- tildur, skúrar ogdrasl. Hvarfiar helst aö manni, aö enginn búi I þessari borg, hér sé aöeins unniö myrkranna á milli og aldrei litiö upp. Sumarleyfinu er slöan eytt á sólarströnd.ljót- leikann sér enginn. Auövelt er aö skilja, aö fólk sem by ggir yfir sig, eigi ekki mikiö afgangs til aö fegra I kringum sig. En örlitil snyrtimennska kostar ekki pen- inga. Hjá iön- og verslunarfyrir- tækjum hefur lengst af rlkt sú hefö aö ljúka aöeins þvl nauö- synlegasta, þvl sem aröbært er, annað er ekki tekið með i kostnaðaráætlun. A höfuöborgarsvæöinu er þó eitthverfisem afberogsýnir aö heildarsvip má fá og ekki þarf allt aö vera hálfkláraö. A ég þar viö Flatirnar. Nú gætu margir sagt, aö ég hugsi eins og Fegrunarfélag Reykjavikur og verölauni aöeins millana. Þaö er ekki rétt. En sú hugarfars- breyting veröur aö eiga sér staö, aö áætlanir um bygginga- kostnað nái einnig til frágangs á húsum og til umhverfis. A móti mætti draga úr kostnaöi innviöa eöa minnka fyrirhugaö mann- virki. Hlutverk borgarinnar sjálfrar er stórt og vanrækt. Ekki er vist, aö nýr borgarstjórnar- meirihluti geti I bráö sinnt skyldum sinum viö gangstéttar- gerö og frágang lóöa. En ein- hverntlma kemur aö þvi,aö þeir semja slna eigin f járhagsáætlun og mættum viö þá biöja um raunhæfar aögeröir til bóta I staö innantómra loforöa um græna byltingu. Guörún Hallgrimsdóttir. Norræn ráðstefna stúdentaráðsformanna Atvinnuhortur til umræðu • Fáir þurfa að búa við eins ömurleg kjör og islenskir námsmenn: • Samþykktir gerðar um Arabísku stúdenta- nefndina í Jerúsalem og málefni Suður Afríku 'Dagana 16.-19. júní s.l. var haldin i Reykjavik norræn ráö- stefna stúdentaráðsformanna, svonefnt NOM (Nordisk Ordför- ande Möte). Raðstefnuna sóttu af háifu Stúdentaráðs Háskóla ts- lands (SHÍ) þau: Sórún Gisla- dóttir, Boili Héöinsson, Óskar Guömundsson, Tómas Einarsson, Sigrún Páisdóttir, Bragi Guö- brandsson ogGisli Fannberg. Frá Finnlandi var mættur Jarmo Heimo, formaður finnska sf.údentaráösins (SYL), frá Dan- mörku (DSF) þeir Ole Erik Han- sen, Kurt Keller og Poui Ivan Sörensen. Frá Noregi Sven Molle- kleiv formaður stúdentaráösins norska (NSU), Kjell Roland og Dagfinn Haavik. Frá Sviþjóð mættu þeir Anders Frostell for- maður sænska stúdentaráðsins (SFS) og Johan Bent Paahisson. Þess má geta að fulltrúar allra Noröurlandanna nema Sviþjóðar og Finnlands eru iitaöir nokkuð svipaö póiitiskt tii vinstri. Sænsku Enn fellur dollarinn 4/7 — Enn heldur Bandarikjadoll- arinn áfram aö slga gagnvart japanska jeninu og komst I dag niður I 201.30 jen. Astæöurnar til þessa eru einkum glfurlega hag- stæöur viöskiptajöfnuöur Japana viö útlönd og aö sama skapi óhag- stæöur viöskiptajöfnuöur Banda- rikjanna. og finnsku stúdentaráöin eru hins vegar I höndum hægri manna. Voru umræöur allar hinar gagnlegustu og menn sammála um ágæti þess að hittast á þennan hátt reglulega og ræöa málin. Var rætt um atvinnuleysi meöal stúdenta og einnig um atvinnu- horfur aö námi afloknu. Er þaö óviöa jafn algengt og á Islandi aö stúdentar vinni svo mikiö meðan á námi stendur og einnig I öllum þeim frium er gefast frá skól- anum. Var einnig rætt um fj- ármögnun náms og hvernig þeim málum væri komiö á Noröurlöndum. Er þaö ekki ofmælt aö segja aö sennilega þurfa fáir aö búa viö jafn ömurleg kjör og islenskir námsmenn, þ.e. aö þurfa aö taka vfeitölubundin námslán til þess eins aö þurfa aö fjármagna nám sitt. Var einnig rætt um þetta atriöi meö tilliti til þeirra er stunda þurfa nám i ööru landi en heimalandinu. Vöktu íslensku fúlltrúarnir máls á þessu vegna hins gifurlega fjölda felenskra námsmanna erlendis og þvl aö um einn þriöji allra íslenskra stúdenta skuli sækja nám erlendis. Svo aö ekki sé nú talað um hinn mikla sparnaö sem islenska rikiö veröur fyrir meö þvi að koma þessum fjölda náms- manna af sér yfir á aðrar þjóöir. Stúdentaleiötogarnir létu ekki þar viö sitja aö ræöa hin þrengri hagsmunamál norrænna stúdenta, heldur létu alþjóöamál einnig til sín taka. Var samþykkt efirfarandi ályktun i tilefni mannréttinda-skeröingar er Arabiska stúdentanefndin i Jerúsalem varö fyrir: „Mótmæli gegn árásum á Arabisku stúdentanefndina. Stúdentasamtökin á Noröurlönd- um sem sitja mót i Reykjavik vilja mótmæla þeim ofsóknum sem Arabiska stúdentanefndin viö Hebreska háskólann I Jerú- salem hefur oröiö að þola. 1 janúar 1978 ákvaö Arabfska stúdentanefndin aö efna til mót- mælaaðgerða fyrir framan Knesset og fundar i Breska há- skólanum I Jerúsalem til aö and- mæla heimsókn Sadats til Israel. Stjórn háskólans bannaöi arabisku stúdentunum að halda fund á umráöasvæöi háskólans. Mótmælaaögeröirnar voru einnig bannaöar. Greinilegt er aö stjórn háskól- ans viðurkennir ekki lengur til- verurétt Arablsku stúdenta- nefndarinnar. Arabisku stúdentanefndinni veröur að tryggja sjálfsögöustu mannréttindi, svo sem funda- og tjáningarfrelsi. Stúdentasamtökin á Noröur- löndum krefjast: — aö Arabiska stúdentanefndin fái aftur rétt sinn til aö halda fundi á umráðasvæöi háskólans. — aö banninu við aö dreifa ritum á háskólasvæöinu veröi aflétt. — aö Arabíska stúdentanefndin fái aftur rétt sinn til aö efna til samkoma á háskólasvæðinu”. Einnig var borin upp eftirfarandi tillaga um málefni Suöur-Afriku. „Stúdentasamtökin á Noröur- löndum á fundi I Reykjavlk 17. júni 1978 lýsa yfir samstööu meö hörundsdökku fólki og stúdentum i Suöur-Afriku og baráttu þeirra gegn kynþáttastefnunni. Stúdentasamtökin á Noröur- löndum lýsa einnig yfir fullum stuöningi viö alþýöu Namiblu og frelsishreyfingu hennar SWAPO, er berst fyrir sjálfstæði landsins. Spurninguna um stöðu Namiblu ætti aö leysa i samræmi viö ákvarðanir Oryggisráös Sam- einuöu Þjóöanna. Stúdetnasam tökin leggja áherslu á aö mál veröa ekki til lykta leidd i Zimbabwe án þátt- töku bjóöfrelsishreyfingarinnar. Stúdentasamtökin á Noröur- löndum styöja baráttu frelsis- hreyfinga Isyðri hluta Afriku sem beinfet aö þvi aö tryggja hinum svarta meirihluta lýöræöisleg réttindi og raunverulegt frelsi.” Voru báöar þessar tillögur sam- þykktar samhljóöa af öllum sam- tökunum' Norsk Studentunion, Stúdetnaráði Háskóla Islands, Sveriges Förenade Student- kaarer, Suomen Ylioppilaskunt- ien Liitto og Danske Studerendes Fællesraad. Eru ráöstefnur þessar haldnar til skiptis á Norð- urlöndunum og veröur næsta for- mannaráöstefna haldin i Osló I desember n.k. Gunnlaugur Viihjáimsson. Lýst eftir manni Lögreglan i Reykjavik lýsir eftir 25 ára gömlum manni, Gunnlaugi Viihjáimssyni, Miklu- braut 70, Reykjavik. Gunnlaugur er um 179 cm á hæð, grannur, skolhæröur, stutt- hærður. Gunnlaug vantar vinstri handlegg frá olnboga, notar krók. Gunnlaugur var klæddur i hvita lopapeysu, meö bekk, ljósar gallabuxur og var i sandölum. Þeir sem einhverjar upplýs- ingar geta gefið um feröir Gunnlaugs eftir 18. júni s.l. eru vinsamlegat beðnir um aö láta lögregluna I Reykjavik vita. HESTAMENN Gerist áskrifendur að Eiðfaxa mánaðarbiaði um hesta og hesta- mennsku. Með einu símtali er Áskriftarsimi 85111 Pósthólf 887, Reykjavík. Frá Norrænu Stúdentaráðsformannaráðstefnunni 17. júnl s.l.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.