Þjóðviljinn - 07.07.1978, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 07.07.1978, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. júli 1978 DIÚOVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Berg- mann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Ein- ar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: GunnarSteinn Pálsson Ritstjórn, afgreiðsla auglýs- ingar: Siðumúla 6, Sími 81333 Prentun: Blaðaprent hf. Tíntí uppgjörs eftir „syndafallið” Sú var tið að foringjar Sjálfstæðisflokksins völdu sér mikilhæfa stjórmálaleiðtoga sem fyrirmynd um stjórnhætti. Geir Hallgrimsson hefur aftur á móti valið sér litilsigldan þjóðarleiðtoga sem fyrirmynd, þar sem er Loðvik XV. Loðvik XV hafði einkunnar- orðin: „Syndafallið kemur eftir minn dag”. Synda- fall Geirs Hallgrimssonar hefur þegar séð dagsins ljós. Vitnisburður útgerðarmanna og iðnrekenda um stjórn Geirs Hallgrimssonar, stjórn kaupsýslu- manna i Reykjavik, hvers oddviti Geir er, hefur þegar verið birtur. Vitnisburðurinn hljóðar upp á, að allt sé komið i strand, loka verði frystihúsum og fis kvinnslustöð vum, fella verði gengi krónunnar um 15%. Syndafallið kom 10 dögum eftir kjördag. Rikisstjórn Geirs endaði sinn feril með árás á allt launafólk i landinu, en færði kaupsýslumönnum frjálsa álagningu á silfurfati. Að dómi Geirs átti alþýðan en ékki verslunarauðvaldið að borga. En einn hængur var á stjómlist Greirs sem bendir til lit- illa herstjómarhæ fileika fráfarandi forsætisráð- herra. Á sama hátt og Páfarikið ræður fáum her- deildum, vegur kaupsýslumannastéttin létt i at- kvæðum. Sú tið er liðin að Morgunblaðið sem selt var hálfdönskum reykviskum kaupmönnum fyrir hálfri öld ráði úrslitum um hug kjósenda. Morgun- blaðið dugar ei lengur nema að takmörkuðu leyti til atkvæðaveiða. Kosningaósigur stjómarflokkanna sýndi að launafólkhafnaði forræði kaupsýslumanna jafnt hjá borg og riki. En islenskir útgerðarmenn og iðnrekendur, sem ástunda atvinnurekstur er aflar gjaldeyris, þess gjaldeyris sem kaupsýslumennirnir sóa, lúta enn forræði „gróðapunganna” i Sjálfstæðisflokkn- um, svo notað sé orðalag fráfarandi sjávarútvegs- ráðherra. Nú ólgar i Sjálfstæðisflokknum eftir hmnið niður i 32% atkvæða og að tapaðri Reykja- vik. Þar er nú hver höndin upp á móti annarri, og fyrir dyrum stendur enn eitt uppgjörið i hverju félagi Sjálfstæðismanna. Markús örn Antonsson „hugsar upphátt” á siðum Morgunblaðsins i gær. Hann lýsir togstreitunni innan flokksins og „telur að úrslitin um formennskuna i Sjálfstæðisflokknum hafi ekki enn verið ráðin”. Ljóst er að Geir nýtur þess enn að enginn einn stendur upp sem forystuafl gegn leiðsögn hans. Timi uppgjörs er framundan i Sjálfstæðisflokkn- um. Timi uppgjörs er kominn hjá gjaldj'v,ota at- vinnurekendum sem ekki geta gert upp við launa- fólk,heldur verða að ráðast til atlögu við þá er lagt hafa gróðann i steinsteypu og gjaldeyrissóun. Það þarf að ráðast til atlögu við þá meinsemd sem verslunarauðvaldið er á islenskum þjóðarlikama. En þegar timi uppgjörs fer i hönd velur flokkur samvinnumanna og samvinnuhreyfingin, sem stofnuð voru til höfuðs kaupmannavaldinu, hún vel- ur að halda sér höndum undir forystu ölafs Jóhann- essonar og Vals Arnþórssonar. Brautryðjendur samvinnumanna létu það aldrei um sig spyrjast að þeir sætu hjá er glimt var við kaupmannavaldið. En i dag hefur forstjóravaldið og hermangið dregið vigtennumar úr samtökum samvinnumanna og Fra msóknarflokknum. Launafólk gerði með atkvæði sinu þann 25. júni kröfu til þess að tekist væri á við vandann. Launa- fólk sýndi það skorinort að það telur að alþýða þessa lands geti ekki borið uppi þá yfirbyggingu sem er að sliga þjóðarbúið. Það getur ekki af sinum lágu launum borgað skuldahala svonefndra at- vinnurekenda. Það er verslunarauðvaldið en ekki alþýðansem á að borga. Allt annað væri siðlaust og vitlaust, svo fleyg orð séu notuð. —-óre. Greitt um svör hjá Geir Forráöamenn frysti-iðnaðar- ins i landinu rak i rogastans á þriðjudaginn þegar þeir gengu á fund forsætisráðherra til að tjá honum vandræði sin og yfirvof- andi rekstrarstöðvun. Forsætis- ráðherrann var nefnilega svo glaður og upprifinn. Hvort hann gæti svarað þeim þegar i stað: Þó það nú væri! Svar sitt væri einfaldlega nei. Hann hygðist alls ekki leysa þeirra vanda. Svona skjót og ákveðin svör höfðu þeir hraðfrystu aldrei áö- ur fengið hjá þessum góða Geir. Nú var ekki hikið, stamið og óá- kveönin. Nú lágu linurnar ljóst fyrir. Hvort hann gæti þá alls ekki gert neitt fyrir þá? Jú, hann skyldi glaður bera skila- boð frá þeim hraðfrystu til stjórnmálamannanna sem nú ættu i viðræðum um framtiðar- skipan mála i Stjórnarráðshús- inu. Fréttirnar um vanda frysti- iðnaðarins færu kannske fram hjá þeim ef hann, Geir Hall- grimsson, kæmi ekki að máli viö þá og segði þeim allt af létta. Vilmundarnir og milliliðurinn Vilmundur Gylfason kveðst berjast gegn spillingu. Hann er ekki einn um það i sinni ætt. Vil- mundur afi hans Jónsson, fyrr- um landlæknir, var lika að berj- ast gegn spillingu þegar hann lét bóka eftirfarandi i lands- kjörstjórn fyrir réttum 22 ár- um: „Landskjörstjórn hlýtur að telja sér skylt að halda vörö um þau fyrirmæli stjórnarskrár og kosningalaga, svo og anda þeirra fyrirmæla og tilgang, aö uppbótarþingsætum verði út- hlutaö til raunhæfrar jöfnunar milli þingflokka”. Vilmundur (afi), Jón Ásbjörnsson og Einar Baldvin Guömundsson rituðu með fyrirvara undir kjörbréf Gylfa Þ. Gislasonar og Péturs Péturssonar, landskjörinna þingmanna Alþýðuflokksins, en aðeins 2 kjörstjórnarmenn vildu taka þau gild. Vilmundur og Einar töldu raunar að svipta bæri Alþýöuflokkinn öllum fjór- Vilmundur yngri. Verður hann jafn einarður gegn spillingunni og Vilmundur afi? um uppbótarþingsætunum þannig aö hann hefði aöeins eft- ir 4 kjördæmakosna þingmenn. Meirihluti landskjörstjórnar var nefnilega þeirrar skoðunar að Hræðslubandalagið svo- nefnda, kosningabandalag krata og Framsóknar 1956, væri ólögmætt og bæri vitni um spill- ingu. Meirihluti alþingis taldi þó ekki annað fært en samþykkja kjörbréf Gylfa og félaga, en breyta þyrfti kosningalögum, sem og var gert. Upphafsmenn og reiknimeistarar Hræöslu- bandalagsins (að fá meirihluta á þingi út á minnihluta at- kvæða) voru prófessorarnir Ólafur Jóhannesson sföar dóms- málaráöherra og Gylfi Þ. Glsla- son milliliður Vilmundanna. Gylfi Þ. Gislason var laginn aö skjóta syni sinum upp i þingsæti Alþýðuflokksins hér i Reykja- vik. En það hefur svosem komið fyrir áður, að sonur tæki viö af föður. Hermann Jónasson lét af þingsetu fyrir Vestfirðinga 1967. Vitað er að Steingrimur Her- mannsson keppti þá vel og drengilega að þvi að komast of- arlega á framboöslista Fram- sóknar þar vestra, en sennilega hefur Hermann sett flokkshags- muni ofar ættinni, nema nokkuð er þaö að selabóndinn Sigurvin af Rauðasandi hækkaöi um sæti á framboðslistanum og stýrði liði Framsóknar á Vestfjöröum i það sinn. Vann Framsókn tals- vert á i kjördæminu 1967 en ihaldið setti niður. Nú kemur Steingrimur tiisögunnar 1971 og gerist liðsoddi Framsóknar- manna. I þeim kosningum tapar hann 8 prósentustigum miðaö við það sem Sigurvin hafði haft. Steingrfmur Hermannsson. Og kemur nú fyrir litið að vera son- ur gllmukappa. Enn kemur Steingrimur til Vestfiröinga 1974 og tapar upp- undir lOOatkvæðum til viðbótar, en Ihaldið græddi 300 atkvæöi og fór i fyrsta skipti upp fyrir Framsókn á Vestfjörðum. 300 atkvæði fóru af Steingrimi i kosningunum um daginn, og stendur hann nú eftir með 1.100 atkvæði og hefur tapaö félaga sinum fyrir borð, Gunnlaugi i Hvilft. 900 atkvæöi hefði hann þurft að hafa til viðbótar til að veröa jafnoki Sigurvins 1967. Tíöindin góðu 1974 „Hér hafa mikil tiðindi gerst”, sagði Þjóðviljinn I rit- stjórnargrein 23. mars 1974. Att var við það samkomulag sem gert var i rikisstjórninni tveim dögum áður um brottflutning hersins og nýskipan mála á Keflavikurflugvelli. Þetta var orðin langþráð frétt fyrir les- endur Þjóðviljans, þvi aö I meira en tvö ár höfðu menn beð- ið eftir þvi að gerðar væru ráð- stafanir i samræmi viö ákvæöið i stjórnarsáttmálanum frá 1971: „Varnarsamningurinn við Bandarikin skal tekinn til end- urskoðunar eða uppsagnar i þvi skyni að varnarliðið hverfi frá Islandi I áföngum. Skal að þvi stefnt aö brottför liðsins eigi sér stað á kjörtimabilinu”. Samkomulagið um brottför hersins Samkomulagið I mars 1974 milli ráöherra Alþýðubanda- lagsins, Framsóknarflokksins og Samtakanna um herinn og Völlinn var i þrem liðum. 1 fyrsta lagi um brottflutning hersins: Herinn skyldi hverfa frá Islandi I fjórum áföngum á tveim árum. Fyrsti fjórðungur liðsins fyrir árslok 1974, annar fjórðungur fyrir mitt ár 1975, þriðji fjórðungurinn fyrir árslok 1975 og afgangurinn fyrir mitt ár 1976. Alltaf drepur hann af sér mann einn og tvo i róðri Annar liöurinn fjallaði um skuldbindingar gagnvart At- lantshafsbandalaginu, en Al- þýöubandalagið hafði fallist á lands i NATO þrátt fyrir ein- dregna andstööu viö hernaðar- bandalagiö. Skyldi haldinn fyr- irvarinn frá 1949 aö hér væru engar herstöðvar, en eftirlits- flugvélar NATO hefðu lending- arleyfi i Keflavik þegar þurfa þykir að mati islenskra stjórn- valda. Vegna slikra lendinga hafi NATO leyfi til að hafa á Keflavikurflugvelli 100-200 manna hóp flugvirkja og ann- arra tæknimanna. Islendingar taki við starfrækslu radarstöðv- anna á Suðurnesjum og i Horna- firði ef þurfa þykir. Þriðji liöur samkomulagsins fjallaði um það að aftur yrði tekin upp eðlileg Islensk lögsaga á flugvellinum, þannig að hann heyri undir isiensk ráðuneyti eins og við á hverju sinni. Enn fremur að sjónvarp . hersins yröi þegar i stað takmarkað við völlinn einan, en þvi yrði alveg lokaö á miðju ári 1975. Þagað gat ég þá með sann Málgögn stjórnmálaflokk- anna hföðu ekki tækifæri til að fjalla um samkomulagið um brottför hersins 1974 eins og vert hefði verið, þar eð nokkrum dögum eftir að það var gert heyrinkunnugt skall á prentara- verkfall sem stóð nær 7 vikur. En fyrsta frétt dagblaðanna eftir hið langa hlé var þingrof og nýjar kosningar til alþingis. Þeir flokkar sem stóðu að vinstri stjórninni áttu aðeins 2 dagblöö, Timann og Þjóðvilj- ann. Timinn fjallaöi ekki um samkomulagið i ritstjórnar- grein, en Þjóðviljinn gerði það einu sinni og fagnaði þvi mjög, þótt skuldbindingarnar við NATO brygðu þar nokkrum skugga á. Alþýðublaðið fjallaði ekki um málið frekar en ekkert hefði gerst, .en Morgunblaöið geisaði að vanda, enda helsjúkt af viöhorfum VL-manna um þær mundir. Sé einhverí vafa „Sjálfstæðisflokkurinn fékk afar slæma útreið.... Umræður Sjálfstæðisfólks um úrslit kosn- Markús örn: Þaft á ekki aft sýna hann Geir utan flokksins! inganna hafa meira og minna beinst að flokksforustunni og sérstaklega stöðu formanns.... Agreiningur þeirra Geirs Hall- grimssonar og Gunnars Thor- oddsens undanfarin ár er kom- inn beint upp á yfirborðið.... einnig staða Alberts..Uppgjör milli Geirs og Gunnars hefur farið fram i nánast hverju ein- asta félagi Sjálfstæðisfólks i höfuðborginni..... Mikiö og vandasamt starf biður for- manns flokksins...aö sameina flokksmenn og efla flokksstarf- ið... Sé einhver i vafa um að Geir Hallgrimsson sé maðurinn til að vinna þaö verk, spyr ég: „Hver annar?” ....Honum sjálf- um og flokknum öllum er án efa hollast, aö hann starfi á innan- flokksvettvangi”. (Markús örn Antonsson hugsar upphátt I Morgunblaðinu 6. júli 1978).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.