Þjóðviljinn - 15.07.1978, Side 4
4 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Laugardagur 15. júll 1978
WOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: CJtgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Berg-
mann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Ein-
ar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaöi: Arni Bergmann.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiösla auglýs-
ingar: Siöumúla 6, Sfmi 81333 Prentun: Blaöaprent hf.
Réttarhöldin í Sovét
Fátt er algengara en að fulltrúar Sovétrikjanna
kvarti yfir „sovétfjandskap” sem svo er nefndur.
Og enginn er iðnari við að skapa efni i þennan
sovétfjandskap en sovésk stjórnvöld sjálf.
Þegar þessar linur eru skrifaðar hefur Alexandr
Ginzburg fengið dóm sem hljóðar upp á átta ára
þrælkunarvinnu og útlegð að auki og Litháinn Petk-
us fimmtán ára dóm, en búist er við enn þyngri
dómi yfir Sjaranski á hverri stundu. Þeir menn sem
fyrr voru nefndir, eru fyrst og fremst ásakaðir um
andsovéskan áróður, „óhróður” um Sovétrikin.
Við getum vel hugsað okkur, að einhver fari með
„óhróður” til dæmis um islenskt eða sænskt þjóð-
félag. En það er um leið alveg ljóst, að slikur „ó-
hróður” mundi aldrei leiða til fangelsisdóma, hvað
þá dóma sem að hörku eru á við þá sem upp eru
kveðnir fyrir manndráp. Með þessum samanburði
er reyndar alls ekki verið að gefa til kynna, að þeir
Ginzburg eða Petkus hafi farið með staðlausa stafi.
Við vitum af fyrri málaferlum og meðferð á andófs-
mönnum, að ráðamenn i Moskvu þola enga aðra
túlkun á sovéskum veruleika en þá sem er rækilega
innan ramma þeirra eigin ritskoðunar. Og réttar-
höldin nú eru enn ein staðfesting á þvi, að þeir ætli
að berja niður með harðri hendi alla viðleitni til að
rjúfa hið stranga rikiseftirlit með ræðu og riti.
Um leið sýna sovésk yfirvöld með réttarhöldum
þessum megna fyrirlitningu sina á almenningsáliti i
heiminum. Þau munu sem fyrr reyna að skjóta sér
á bak við það, að það séu einkum „borgaraleg öfl”
sem mótmæli réttarhöldum sem þessum. Vesal-
dómur þeirra undanbragða er öllum augljós. Og
sovésk yfirvöld munu þessa daga, eins og stundum
áður, þurfa að taka úr umferð þau fáu vestrænu
kommúnistablöð sem seld eru i helstu borgum
landsins — til að fela það fyrir sovéskum borgur-
um, að sósialistar og kommúnistar á ítaliu, i
Frakklandi og fleiri löndum, eru framarlega i hópi
þeirra sem fordæma þá skrumskælingu á réttarfari
sem nú hefur farið fram i Vilnius, Moskvu og
Kalúga.
Þvi um leið og fram er reidd fyrirlitning á al-
menningsáliti i heiminum, þá er beitt fyrirlitlegum
aðferðum i réttarsal. Það kemur fram i fréttum af
málaferlunum nú, og einnig er skemmst að minnast
málaferlanna yfir andófsmanninum Júri Orlof, að
hinir ákærðu eiga fárra kosta völ i málsvörn sinni.
Þeir fá ekki að kjósa sér verjendur, þeir fá ekki að
leiða fram þau vitni sem þeir kjósa, dómarar gripa
fram i fyrir þeim með dólgshætti, á áheyrenda-
bekkjum situr valið lið sem hefur það hlutverk að
hæða og svivirða hina ákærðu, og ef einn eða tveir
af nánum ættingjum hins ákærða fá að vera við-
staddir, þá mega þeir þakka fyrir ef þeim er ekki
misþyrmt af þessu leiguliði.
Það er kannski út i hött að fara i tilefni þeirra ó-
tiðinda sem úr Sovétrikjunum koma nú með tilvis-
anir i mannréttindaskrár, sem einnig Sovétrikin
hafa undirritað. Réttarhöld sem þessi eru i pólitisk-
um skilningi fyrst og fremst yfirlýsing um það, að
Sovétrikin ætli að túlka slik skjöl eins og þeim list
best, skammta sjálfum sér hrikalegt lof og sáralitla
gagnrýni svo langt sem vald þeirra nær. Að likind-
um á þetta að sýna styrk hins sovéska rikis. í reynd
opinbera réttarhöldin á einstaklega nakinn hátt
pólitiska veikleika Sovétrikjanna, hrikalega sið-
ferðilega kreppu.
Það er sjálfsögð skylda islenskra sósialista að
taka af heilum huga undir þá öldu mótmæla og for-
dæmingar sem þessi réttarhöld hafa vakið um við-
an heim.
—ÁB
Fyrstu fréttir Morgun-
blaösins af „skátasirkus-
inum"
Stærsta og útbreiddasta dag-
blaö landsins, Morgunblaöiö,
hefur allt til þessa ekki séö
neina ástæöu til aö birta fregnir
af fjármála-umsvifum skáta i
sambandi við breska sirkusinn
sem lék hér listir sinar á
dögunum. Hins vegar birti
Morgunblaðið i gær opiö bréf til
Bandalags islenskra skáta
(B.l.S.) frá einum af stjórnar-
mönnum skátafélags á tsafiröi.
Þeir lesendur Morgunblaösins
sem ekki sjá önnur blöö, hljóta
aö hafa furðað sig nokkuö á
þeim fréttum sem fram komu I
þessuopna bréfi um „fjármála-
hneyksli á vegum Bandalags
islenskra skáta”, eins og bréf-
ritari komst að orði. Hér veröur
engum getum leitt aö þvi, hvers
vegna Morgunblaöiö hefur ekki
sjálft séö fréttagildi „fjármála-
hneykslisins, en hitt er þó gleði-
legt aö blaöiö skuli birta þetta
skörulega bréf.
Svona þurfa skátar aö
vera
Bréfritarinn af tsafirði telur
aö einstaklingar sem ætla sér aö
hagnast persónulega á fjár-
öflunarstarfsemi skátahreyf-
ingarinnar séu ekki hæfir i
trúnaðarstööur innan hennar.
Aöfarir þeirra brjóti i bága viö
skátalögin. „Sem betur fer er
starfsemi skátafélaganna á
tslandi ekki á þeim villigötum
sem fjáröflunarstarfsemi B.l.S.
viröist vera”, segir bréfritari og
nefnir hann dæmi því til staö-
festingar. Segir hann isfirska
skáta hafa frá fyrstu tiö unniö
endurgjaldslaust aö fjáröflun
fyrir félög sin eins og hverju
ööru skátastarfi. Svona muni
þetta vera viöa um land. „Þaö
eru áreiöanlega til farsælli
leiöir til aö leysa fjárhagsvanda
B.t.S. heldur en aö fela þau i
hendur ævintýramönnum.”
Tillögur bréfritara eru þessar:
1) Visa „jókerskátunum” úr
trúnaöarstööúm hjá skáta-
hreyfingunni. 2) Greiöa aö fullu
skemmtanaskatt af sirkusnum.
3) Kalla saman aukaþing til aö
ræöa fjármál B.I.S. og hvernig
réttur skuli viö sá álitshnekkir
sem hreyfingin hefur oröiö
fyrir”.
Klippari Þjóöviljans er bréf-
ritara sammála um aö slikar
aögeröir séu vænlegar til aö
leiða fram þaö heilbrigða i
skátahreyfingunni. Vonandi eru
viðhorf bréfritara rikjandi
meðal skáta.
Benedikt formaður
barðist gegn vinstri villu
Morgunblaðiö heiörar Bene-
dikt Gröndal formann Alþýöu-
flokksins i gær meö þvi aö birta
af honum „svipmynd” i opnu
blaösins. Er Benedikt ein-
Benedikt formaftur heiðraftur i
Morgunblaðinu.
kenndur þar meö oröunum
„atvinnupólitikus af lifi og sál”,
og munu flestir sósialistar telja
þaö harla borgaralegt einkenni
á manni, sem keppir að
almannatrúnaöi. Rakinn er ævi-
ferill Benedikts, minnst á
Amerikudvöl, Alþýöublaösskrif
og vistina hjá Framsóknar-
mönnum: „1951 ... gekk hann á
mála Sambandsins og varö rit-
stjóri Samvinnunnar næstu 7
árin”. (Þess má geta að yngri
bróöir Benedikts ritstýrir nú
Samvinnunni). Meöan Hannibal
var formaöur Alþýöuflokksins
var Benedikt varaformaöur” og
þegar Hannibal tekur vinstra
hliöarsporið til samvinnu viö
sósialistana er Benedikt i þeim
hópi sem hvaö haröast baröist
gegn Hannibal”. Rakinn er
þingmennskuferill Benedikts og
hvernig hann leysti Gylfa af
hólmi i forustu flokksins eftir
ófarir flokksins i kosningunum
1974. Samt sé þaö „staöreynd aö
þaö er fyrst á siöustu mánuöum
sem verulega hefur reynt á póli-
tiska hæfileika hans”. Er þá
haft i huga prófkjöraævintýrið:
„mátti ekki miklu muna aö
Benedikt formaöur félli
sjálfur”.
Er Morgunblaðið að spá í
,/lausa fylgið"?
Viö lok þessara Morgunblaös-
skrifa um Benedikt formann er
vikiö að vanda hans viö aö
mynda stjórn. Erfiðleikar hans
eru settir i samband viö þaö,
„hversu laust fylgi flokksins er
eftir öllum sólarmerkjum að
dæma. Þar reynir fyrst fyrir
alvöru á stjórnkænsku Bene-
dikts”. Hitt lætur Morgunblaöiö
ósagt hvert hiö ,,lausa fylgi”
muni fara, ef Benedikt mis-
tekst. Kannske má segja aö þaö
skiljist fyrr en skellur i tönnum.
Allar leiðir eru nú haföar opnar
fyrir lokadóminn um Benedikt
formann. „Sumir segja aö hann
sé heldur léttvægur stjórnmála-
maöur og tækifærissinni, en
aörir aö maöurinn sé ekki allur
þar sem hann sé séöur og
slóttugri en ætla mætti”.
Hvers konar viðræður
vildi Geir Hallgrimsson?
Svo sem frá var greint 1
útvarpsfréttum sl. miövikudag
fól forseti tslands Benedikt
Geir Hallgrlmsson. Var hann of
seinn meft svarift, efta var hann
rétt mátulegur I þvi?
Gröndal þá um morguninn aö
gera tilraunir til myndunar
meirihlutastjórnar. Benedikt
lýsti þvi yfir þá þegar að hann
mundi stefna að myndun rikis-
stjórnar meö Sjálfstæöisflokki
og Alþýöubandalagi. Klukkan
hálf-niu á miövikudagskvöld
barst formanni Alþýöubanda-
lagsins bréf frá Benedikt þar
sem Alþýöubandalaginu var
boöið til slikra þriflokka-
viöræöna. Klukkan tiu á
fimmtudagsmorgun hófst
fundur i þingflokki Alþýðu-
bandalagsins þar sem ákveðið
var aö hafna boöi Benedikts um
viöræöur um samstjórn meö
Sjálfstæðisflokknum. Bréf var
samiö til formanns Alþýöuf-
lokksins og þvi komiö á fram-
færi viö hann klukkan aö ganga
tvö. Um 3-leytiö er fjölmiölum
afhent fréttatilkynning frá
Alþýöubandalaginu með afriti
af þvi bréfi. Samkvæmt
Morgunblaöinu i gær tók Sjálf-
stæöisflokkurinn máliö fyrir
klukkan 16 siödegis á fimmtu-
dag. A þeim fundi miöstjórnar
og þingflokks Sjálfstæöismanna
var samþykkt aö taka boöi
Benedikts, og ritaöi Geir Hall-
grimsson bréf til Benedikts
Gröndals þvi til staðfestingar.
Bréf Geirs er samiö og ritaö
eftir aö vitaö var um viöbrögö
Alþýöubandalagsins. Þess
vegna er eðlilegt aö spurt sé:
Var Geir aö svara þvi játandi aö
fara i tviflokkastjórn meö
Alþýöuflokknum? Var hann
fyrir sitt leyti að hvetja til
myndunar nýrrar „viðreisnar-
stjórnar”?
„Mikil og alvarleg
ábyrgð" Arna
Gunnarssonar
„Meö tilliti til bréfs Benedikts
er meö ólikindum hvernig
Alþýðubandalagið treysti sér til
aö neita tilmælum hans”, segir
á forsiðu litla Alþýöublaösins i
gær. I ritstjórnargrein segir
Arni Gunnarsson alþingis-
maöur: „Alþýöubandalag og
Framsókn reyna nú aö telja
þjóöinni trú um, aö Alþýöu-
flokkurinn eigi þá ósk heitasta
aö fara i nýja viöreisnarstjórn.
Þetta er sagt gegn betri vitund.
Alþýðuflokkurinn hefur lýst yfir
þvi, að hann telji hugmyndina
um viðreisnarstjórn óraunhæfa.
Slik stjórn hefði ekki þaö afl og
þá breidd sem nauðsynlegt er til
aö takast á viö hinn stórfellda
efnahagsvanda sem viö blasir”.
t framhaldinu útmálar Arni
meö mörgum fögrum orðum,
hvaö Sjálfstæöisflokkurinn sé
búinn mörgum kostum sem
samstarfsaöili en færir ekkert
samsvarandi fram um Alþýöu-
bandalagiö. Ekkert minnist
Arni á vinstri stefnu eöa mögu-
leika þess aö koma stefnu-
málum vinstri manna og sósfal-
ista 1 framkvæmd i samvinnu
viö Sjálfstæöisflokkinn. Hins
vegar drepur hann á nýsköp-
unarstjórnina fyrir 30 árum og
fer loflegum oröum um þá
Brynjólf Bjarnason og Einar
Olgeirsson fyrir þaö aö þeir hafi
ekki látiö þröngsýni stjórna at-
höfnum sinum og geröum. Hitt
skortir gersamlega að Arni geri
nokkurn raunverulegan saman-
burö á aöstæöum fyrir 30 árum
og nú, og veröur þetta þvi aö
dæmast gersamlega marklaust
oröagjálfur. Vitaskuld ræöur
Arni Gunnarsson ekkert viö
sögulegan samanburö, en til
hins mætti ætlast aö hann skýröi
hreinskilnislega frá þvi, hvaö
hann á viö með oröalaginu aö
Alþýöubandalagið hafi „bakaö
sér mikla og alvarlega ábyrgö”
með þvi aö hafna samstjórn
með Sjálfstæöisflokknum.
Heldur Vilmundur opinni
leið til Framsóknar?
Vilmundur Gylfason viörar
stjórnarmyndunarhugmyndir
sinar i Dagblaöinu i gær, og er
hún sennilega skrifuð um þaö
leyti sem dr. Kristján Eldjárn
var að tala viö Benedikt
Gröndal á miðvikudagsmorgni.
Vilmundur segir aö „viö” þurf-
um viönámsstjórn, hún þurfi að
sporna gegn eyöslu og þenslu.
Hitt skipti ekki máli hvort
stjórnin kallist vinstri eöa
hægri, enda séu þau orð úrelt og
lýsi ekki flokkakerfinu. „Ekki
veröi séð aö afstaöan til varnar-
mála hafi aö minnsta kosti
sögulega nokkuð aö gera meö
hægriog vinstri”. Verkefnin eru
að mati Vilmundar þessi: aö
hreinsa til i bákninu, að endur-
skoöa reksturinn, aö gjörbreyta
efnahagsstefnunni, aö breyta
kjördæmaskipan. — Hins vegar
þarf alls ekki að breyta neinu i
sambandi við utanrikis- og
sjálfstæöismál, ef dæma má
eftir þvi að Vilmundur getur
þeirra mála að engu ööru en þvi
sem aö ofan greinir. —
Vilmundur rékur ramman
áróöur fyrir þriflokkastjórn
meö Sjálfstæöisflokknum.
Af vinstri stjórnar „módel-
inu” telur hann vera slæma
reynslu, en segir siöan: „Komi
þessi möguleiki uppá aftur, þá
veröur þaö að vera á allt öörum
efnahagslegum forsendum en i
hin tvö fyrri skipti”. Um Fram-
sókn segir hann: „Að Fram-
sóknarflokkurinn sé „vinstri”-
flokkur er einhvern veginn
ósköp litiö I takt viö raunveru-
leikann”.