Þjóðviljinn - 26.07.1978, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 26.07.1978, Blaðsíða 1
Frá fnndl AlþýAubandalagsmanna { gær. Á myndinni sjást, taliA frá vinstri: GuAmundur J. GuAmunds- son, Helgi Seljan, EAvarA SigurAsson, Kjartan ólafsson, Svava Jakobsdóttir, Benedikt DavIAsson, Jón Hannesson, SigurAur Magnússon, GuArún Helgadóttir, ólafur Jónsson, ólafur R. Grimsson, LúAvik Jós- epsson, Svavar Gestsson, Geir Gunnarsson, Giis GuAmundsson, Jónas Árnason, GuAjón Jónsson, Einar ögmundsson, Snorri Jónsson, Haraldur Steinþórsson, — Ljósm. eik. vandræðum á svæöinu en krefst alla vega stóriðju eða nýs stórútflutnings samræmi viö samþykkta ályktun frá alþingi um rannsókn á gerA nýrrar hafnar á suöurströndinni, en hún studdist við álitsgerðir tveggja stofnana, annars vegar Hafnarmálastofnunar rikisins um hina tæknilegu hliö málsins og hins vegar Framkvæmdastofnun- ar rikisins um þjónustuhlutverk hugsanlegrar hafnar á Suður- landi. Við Dyrhólaey er hægt að byggja hvort sem væri litla höfn fyriralltað 3 þúsund lesta skip og stóra fyrir allt að 60 þúsund lesta skip, en i Þykkvabæ aðeins stærri gerð af höfn. Framkvæmdastofnun segir i sinni skýrslu: ,,Þar sem þörfin (fyrirhöfn) er ekki fyrir hendi, er augljóst að hagræn arðgjöf fram- kvæmdarinnar verður engin”. Athafnalif við slika höfn mundi „bitna á nærliggjandi byggðar- lögum og valda frekari vannýt- ingu og erfiðleikum i rekstri atvinnutækja þar”. „Það eina sem mælir með byggingu nýrrar hafnar á Suðurlandi er að stofnað verði til stóriðju, einhvers konar nýtingar auðlinda Suðurlands eða nýs atvinnurekstrar, sem ekki er til i dag og sem krefst nýrrar hafnar... er þá ekkert sem bendir til að viðkomandi hafnarmann- virki þyrftu að vera neitt svipuö þeim mannvirkjum sem hér er um fjallað”. Nefndin féllst i meginatriðum á þessi sjónarmið. Formaður nefndarinnar var Björn Fr. Björnsson sýslumaður, en aðrir i nefndinni voru Guðmundur Gunnarsson, sira Ingimar Ingi- marsson, Jón I. Sigurðsson og Vernharður Sigurgrimsson. Rit- ari nefndarinnar var Ólafur S. Valdimarsson. —h. f . . \ Heimsmeistara- einvígið Jafntefli í 4. einvígis- skákinni sj^^idu^^ Opinberir aðilar telja að ekki sé þörf fyrir höfn á strandlengju Suðurlands í Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslum, en tæknilega væri hægt að gera hafnir úti fyrir Þykkvabæ og við Dyrhóla- ey. Kostnaður gæti farið niður í 15 miljarða króna við Dyrhólaey en i Þykkva- bæ væri ekki unnt að gera höfn fyrir minna en 50 miljarða króna. Þetta eru I samandregnu máli niðurstöður nefndar sem sam- gönguráðherra skipaði 1975 i Bygging jarðstöðvar hafín Samgöngurádherra tók fyrstu skóflustunguna í gær „Póst- og símamála- stjórnin hefur nú lagt síð- asta strenginn í sjálf- stæðisbaráttu islensku þjóðarinnar", sagði Halldór E. Sigurðsson samgöngumálaráðherra, í lok stutts ávarps sem hann f lutti að lokinni töku fyrstu skóf lustungunnar vegna byggingar jarðstöðvar hér á landi, en stöðin mun rísa undir austurhlíðum úlfarsfells. Athöfnin fór fram siðdegis i gær að viðstöddum samgöngumála- ráöherra, fjármálaráðherra,, embættismönnum og blaðamönn- um. Arið 1976 skipaöi ráðherra nefnd til að hefja samningavið- ræður við Mikla norræna ritsima- félagið i Kaupmannahöfn, sem á og rekur sæstrenginn milli Is- lands og Evrópu, um hugsanlega samvinnu um rekstur jarðstöðvar fyrir gervihnattarfjarskipti til loka einkaleyfistima félagsins og um uppsögn samstarfs árið 1985. Rikisstjórnin féllst á samnings- drög nefndarinnar en I þeim segir að Mikla norræna legði fram stofnfé I jarðstöðina en haldi rekstri sæstrengsins, til 1985. Eftir það endurgreiði rlkisstjórn- in félaginu stofnframlag þess. — Samkvæmt ákvæðum I nefndum samningi skipaði ráö- herra 3 embættismenn Pósts og sima i bygginganefnd stöövarinn- ar en Mikla norræna skipaði tvo menn. Nefndin ákvað að bjóða verkið út, og sendu 7 heimsþekkt fyrirtæki tilboð i jarðstöðina. Akveðið var að taka lægsta til- boöinu sem var frá I.T.T. (International telegraph and tele- phone) Space Communications Inc. Tilboðið hljóðaði upp á 970 miljónir. Islenskur undirverk- taki, Istak, annast byggingu loft- netshúss. Heildarkostnaöur er um 1350miljónir, en ráðgert er að stöðin taki til starfa i lok ársins 1979. Verður stöðin þá tekin 1 notkun fyrir öll venjuleg simavið- skipti við Evrópu. Stöðin verður ennfremur útbúin tækjum fyrir móttöku og sendingu sjónvarps- efnis, en það er svo á valdi Rikisútvarpsins að panta sllka fyrirgreiðslu hverju sinni eins og tiðkast i þvi kerfi sem jarðstöðin er tengd við en það er hið svo- nefnda Intersat-gervihnattakerfi. Halldór E Sigurösson samgönguráöherra tekur fyrstu skóflustunguna aö jaröstööinni. Hjá honum standa embættismenn Pósts og sima, þ.á.m. Jón Skúlason póst- og sfmamáiastjóri, t.h. -ljósm. Leifur. djoovhhnn Miðvikudagur 26. júli 1978 — 157. tbl. 43. árg. Staða stjórnarmyndunarviðrœðnanna: Óvissa um stefnu í efnahagsmálunum Söluheimsmet í Hull Skuttogarinn Engey RE seidi fyrir 60,5 miljónir I gær og fyrradag. I gær kl. 2 eftir hádegi var haldinn fundur í viðræðunefnd flokkanna þriggja sem nú leita mögu- leika á vinstra samstarfi. Komu þar fram almennar hugmyndir frá Alþýðu- f lokknum, um það, hvernig unnið skuli að efnahags- og kjaramálum í viðræðu- nefndunum. Sameigin- legum fundi verður fram haldið eftir hádegi í dag. 1 þeim frumdrögum að mál- efnasamningi sem Benedikt Gröndal lagði fram á mánudag var alger eyða við þann vanda sem við er að eiga i efnahags- málum. Þessi frumdrög voru hans persónulegu hugmyndir og var þeim ekki dreift i þingflokk- unum. Nú þegar réttur mánuöur er. liðinn frá alþingiskosningunum er rikjandi óvissa um lausn efna- hagsvandans og stefnuna i efna- hagsmálum. Enn hefur Alþýðu- flokkurinn, sem á að leiða vinstri viðræðurnar,engar beinar tillögur lagt fram i þessum efnum. Igær kl. 17 var fundur hjá þing- flokki, framkvæmdastjórn og stjórn verkalýðsmálaráðs Alþýöubandalagsins þar sem i sameiningu var fjallað um stöðuna i viðræöunum. Skuttogarinn Engey frá Reykjavik setti heimsmet i sölu ísaðs fisks í Hull i Englandi i gær. Togarinn seldi þar rúm 275 tonn af isuðum þorski fyrir 121.480 sterlingspund, en það eru 60,5 miljónir. Meðalverðið var 220 kr. fyrir hvert kiló. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðiö afiaði sér hjá Jónasi Haraldssyni skrifstofustjóra Landssambands islenskra út- vegsmanna, er hér um hæsta verð sem fengist hefur fyrir isfisk svo vitað sé. 1 lok júni hafði togarinn Júni fengiö 103 þúsund sterlings- pund fyrir isfisk, en metiö átti togarinn Ogri sem seldi fyrir 116 þúsund pund árið 1976. —Þig Skýrslur opinberra aðila um hafnar- gerð á suðurströndinni: Tækralega hægt en rokdýrt og óhagkvæmt Slík höfn mundi valda byggðaröskun og Gervihnattafjarskipti:

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.