Þjóðviljinn - 26.07.1978, Page 2
2S1ÐA — ÞJ6ÐVILJINN Miðvikudagur 26. júll 1978
4
SKAK
Umsjón Helgi Ólafsson
Meöan stórmeistararnir
Karpov og Kortsnoj gera allt
sem i þeirra valdi stendur til að
slá heimsmet i röð jafntefla,
vekur fátt meiri athygli i sam-
bandi við einvigi þeirra, en hin
sérstæöa deila sem kom upp
varðandi át heimsmeistarans á
jógúrt. Eins og alkunna eij
kvartaði Kortsnoj og lið hans yf-
ir þvi að Karpov væri fært jó-
gúrt svo að segja alveg uppúr
þurru er 2. skákin var tefld.
Töldu þeir að skiiaboð fælust I
jógúrtinu og átöldu dómarann,
Lothar Schmid, harölega fyrir
að leyfa þessa birgða-
flutninga” til Karpovs. I fyrstu
var haldið að hér væri aðeins
um einskonar brandara að ræöa
en i ljós hefur komið að Kortsnoj
og menn hans standa á þessu
fastari fótunum. Neyddist Lot-
har Schmid, sem er íslending-
um aö góðu kunnur úr einviginu
hér heima árið 1972, að meina
Jógúrtætan Karpoy fær ekki ad vera í fridi
...og getur ekki valið um bragðtegundir nema með leyfi dómarans
•••
Karpov að velja um bragðteg-
undir nema með samþykki sinu.
Já, ekki er öll vitleysan eins, en
liklega hafa þó jógúrtframleið-
endur aldrei fengið jafn ódýra
auglýsingu fyrir vöru sina og
einmitt nú
Allt gekk sinn vanagang i 4.
skákinni sem tefld var i gær og
keppendur sömdu um 4ða jafn-
teflið i röð. Eru menn farnir að
hugsa alvarlega til maraþons-
einvigis á borð við einvigi þeirra
Aljekin og Capablanca árið 1927
en þá fengust ekki úrslit fyrr en
eftir 34 skákir. Reglur voru með
sama sniði og nú, þ.e. sá teldist
heimsmeistari er fyrr ynni 6
skákir.
•
Menn hafa verið að spyrja
mig hvernig ég noti upphrópun-
armerki i skýringum. Flestir
standa i þeirri meiningu að hér'
sé einungis átt við góðan leik og
ivo "!!” við afar góðan leik, þá
venjulega vinningsleik eða leik
sem hefur mjög afgerandi áhrif
á gang mála. Allt þetta er að
sjálfsögðu rétt en ég bæti einnig
upphrópunarmerki aftan við
leik ef um nýjung er að ræða,
óvæntan leik i byrjuninni
o.s.frv.
LÁDEYÐANí
HÁMARKI
Hún var sannarlega
ekkert augnayndi 4. ein-
vígisskák Karpovs og
Kortsnojs sem tefld var í
Baguio á Filippseyjum í
gær, Keppendur endur-
tóku fyrstu 14 leikina frá
2. skák en þá fyrst breytti
Kortsnoj útaf. Við þetta
var eins og Karpov færi
úr öllu sambandi enda
greinilega með eitthvað
lúsugt í pokahorninu frá
eftirköstum 2. skákar.
Eftir að Kortsnoj varð
fyrri til með endurbót tók
Karpov þá ákvöröun að
tef la til jafntef lis og eftir
19 leiki sættust keppendur
á skiptan hlut. Sannar-
lega leiðinleg skák og er
þá vægt til orða tekið.
Væri óskandi að
keppendur færu að brýna
vopnin svo skákáhuga-
menn um allan heim
drepistekki úr leiðindum.
En sjón er líklega sögu
rikari þó að ég hvetji svo
sem engan til að liggja
lengi yfir þessari logn-
mollu:
4. einvigisskák:
Hvltt: Anatoly Karpov
Svart: Viktor Kortsnoj
Spænskur ieikur (Opna af-
brigðið)
1. e4-e5
(Enn á ný kýs áskorandinn að
hverfa frá sinu beittasta vopni,
frönsku vörninni.)
2. Rf3-Rc6
3. Bb5-a6
4. Ba4
Algengasti leikurinn. A sinum
tima dustaði Fischer rykið af
vopni sem staðið hafði óhreyft i
áraraðir, nefnilega uppskipta-
afbrigðinu 4. Bxc6. Hann vann á
þvi nokkra fallega sigra og af-
brigöið varð geysivinsælt. Þess
má einnig geta að þegar Korts-
noj vann Brasiliumanninn
Mecking i einvigi árið 1974
tapaði hann aöeins einni skák og
henni gegn uppskiptaafbrigð-
inu! Hvenær skyldi koma að
Karpov að hverfa til þess frá
þaulkönnuðum afbrigðum
spænska leiksins?)
4. .. Rf6
(1 20. einvigisskák Karpovs og
Kortsnojs i einvigi þeirra 1974
reyndi Kortsnoj hina tvieggjuðu
leikaðferð 4. — f5! ? en slapp
mikið skrámaður frá velli.)
5. 0-0 Rxe4
(Aftur og nýbúinn! Kortsnoj er
hvergi hræddur við hugsanlegar
endurbætur heimsmeistarans.
Reyndar verður hann fyrri til að
koma meö endurbót. Það þarf
varla að taka það fram að opna
afbrigðið varð einnig uppi á ten-
ingnum i 2. skák.)
6. d4-b5
7. Bb3
(Athyglisverður möguleiki er 7.
d5?!, en hann er þó liklega
aðeins athyglisveröur. Svartur
svarar best með 7. — bxa4 8.
dxc6 d6 og stendur betur.)
7. .. d5
8. dxe5 Be6
9. c3
(Karpov er greinilega meö
endurbót á 2. skák i rassvas-
anum. Annað framhald mjög
vinsælt er 9. De2 ásamt 10. Hdl
og c4. Það leiðir þó liklega til
tafljöfnunar ef marka má
siöustu rannsóknir.)
9. .. Bc5
10. Rbd2-0-0
11. Bc2-Bf5
12. Rb3-Bg4
13. Rxc5-Rxc5
14. Hel
(Karpov er greinilega með
endurbót á taflmennsku sinni i
2. skákinni á reiðum höndum.
Fyrir þann sem þessar linur
skrifar er einnig gott tækifæri
að leiörétta smá misskilning.
Eins og kunnugt er lék Kortsnoj
hér 14. — d4i 2. skákinni og er sá
leikur nýjung en haföi ekki
komið fyrir i skák Karpovs og
Beljavskis i Leningrad á siðasta
ári. Þar lék Beljavski 14. — He8
og eftir 15. Bf4 d4 16. h3 Bh5 17.
cxd4 Bxf3 18. Dxf3 Rxd4 19. Dc3
Rxc2 20. Dxc2 Re6 il. Hadl De7
De7 22. Be3 stóð hvitur mun
betur.)
14. .. Bh5!
(Enn á ný hristir Kortsnoj
óvæntan leik fram úr erminni.
Leikurinn mun þó ekki vera
alveg nýr af nálinni. Hann sást
,siðast i stórmeistarapraksis
árið 1945 i skák milli Bronsteins
og Flohr. Þá stýrði Bronstein
hvitu mönnunum til sigurs á
glæsilegan hátt.
En nú gerist dálitið merki-
legur leikur. Karpov hefur
greinilega ekki athugað þennan
leik sem skyldi og tekur þá
ákvörðun að endurtaka leiki og
stýra skákinni til jafnteflis-
hafnar. Ástæðan er örugglega
sú að hann vill ekki taka neina
áhættu I þessu afbrigði, láta
aðstoöarmennina hrekja tafl-
mennsku Kortsnojs og koma svo
til borðsins albúinn til að fást
við þennan leik. Af þessari
ástæöu tel ég liklegt að Kortsnoj
láti Opna afbrigðiö kyrrt liggja i
næstu skákum.)
15. h3-He8
(Eftir 15. — d4 hefði komið upp
sama staðan og i 2. skák.)
16. Bf4-Re6
17. Bd2-Rc5
(Kortsnoj hugsaði sig um i 33
minútur áður en hann lék
þessum leik, sem opinberar ósk
hans um jafntefli.)
18. Bf4-Re6
19. Bd2
— og um ieið og Karpov lék
þessum leik bauð hann jafntefli
sem Kortsnoj þáði. Skákin stóð
nákvæmlega i 90 minútur.
Staðan: Karpov 2 — Kortsnoj 2.
Gat Kortsnoj unnið?
Það hefur vist ekki farið á
milli mála hjá neinum sem
skoðaði 3ju einvigisskák Kort-
snojs og Karpovs sem tefld var
á laugardaginn að Kortsnoj fór
mjög langt með að vinna skák-
ina. Hann fékk þegar i byrjun
yfirburðastöðu en náði ekki að
finna afgerandi framhald enda
vörn Karpovs afburðagóð. Ein
af hugmyndunum til að betrum-
bæta taflmennsku Kortsnojs
kom frá breska skákmeistaran-
um Golombek. Litum á stöðuna
eftir 20. leik Karpovs Dxb6.
Kortsnoj á leik:
Hvítt: Kortsnoj
Svart:Karpov
t þessari stöðu lék Kortsnoj
21. g4 en komst ekkert áleiðis. t
stað þess leiks stingur Golom-
bek uppá 21. f5! Við skulum
kikja nánar á hann möguleika.:
Það er alveg augljóst mál aö
Karpov getur ekki látið þetta
peð óhreyft. Hvitur hótar ekki
aðeins 22. f6 heldur einnig að
vinna peð með 22. fxe6.Svartur á
þvi þrjá möguleika til aö drepa
peðið: A: 21 .. exf5?? 22. Hxe7
og vinnur
B: 21. .. Rxf5 22. Bxf5 gxf5 (Ef
22. — exf5 þá 23. Rxd 5! og vinn-
ur.) 23. Hg3+ Kf8 24. Dh6+ Ke7
25. Hg7! og svartur er i úlfa—
kreppu vegna hótunarinnar 26.
Dxe6+.
C: 21. .. gxf5! 22. Hh3 (Hvitur
verður að haía skjót ráð þvi
svartur hótar Rg6, Dc7 og f6) 22.
.. Rg6 23. Dh6 ( Annars kemur
23. xx — Dc7 og f6.) 23. .. Dxd4!
24. Dxh7+ Kf8 og ekki er að sjá
að hvitur geti notfært sér kóngs-
stööu svarts. Rakinn vinning er
þvi ekki að vinna.
Næsta
skák
5. skákin i einvigi þeirra
Karpovs og Kortsnojs verður
tefld á fimmtudaginn. Þá hefur
Kortsnoj hvitt.