Þjóðviljinn - 01.08.1978, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 01.08.1978, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 1. ágúst 1978 Þingflokkur Alþýöuflokksins er veikburfta og ósjálfstæftur. — Mynd: Framkvæmdastjóri Alþýftuflokksins. Gylfi Þ. Glslason ræftur enn mestu um stefnu Alþýftuflokksins i efnahagsmálum. Af hverju mistókst ad mynda vinstristjórn? Ástæðurnar til þess að myndun vinstristjórnar mistókst eru margar. Veigamesta ástæðan og sú sem úrslitum réði að lokum 'var þó krafa Alþýðuf lokksins um gengislækkun og síðan 7% kauplækkun. Þessari kröfu hafnaði Alþýðu- bandalagiðað sjálfsögðu. En rætur þess að Alþýðu- flokkurinn tók þessá afstöðu að lokum liggja víða bæði í sögu flokks- ins/ gerð, stefnu og síðast en ekki síst núverandi mannvali í forystu. Þegar Alþýöuflokkurinn loks skaust upp á yfirborðið með kauplækkunarstefnu sina var aðeins réttur mánuður liöinn frá þvi aö hann vann stærsta kosn- ingasigur sinn undir kjörorðinu „Samningana i gildi”. Aldrei hefur einn flokkur á jafn- skömmum tima snúið viö blað- inu eftir jafnstóran kosninga- sigur. Staðreyndin var nefni- lega sú að kosningasigur Alþýðubandalagsins og Alþýðu- flokksins skapaði þeim i sam- einingu yfirburðaaðstöðu til þess að knýja Framsóknar- flokkinn til þess að éta ofan i sig kaupránið i heilu lagi. Þar brást Alþýöuflokkurinn. Hvað gerðist? Hvernig stend- ur á þvi að einn stjórnmála- flokkur hagar sér meö þessum hætti? Hverjar eru skýringarn- ar á pólitiskum loftfimleikum Alþýðuflokksins eftir stærsta kosningasigur eins flokks i sögu lýðveldisins. Með íhaldinu í áratug Til aö svara þessum spurn- ingum er nauðsynlegt að lita nokkuð til baka og virða fyrir sér aödragandann, næstu fortið Alþýðuflokksins. í heilan áratug frá 1960 til 1971 var Alþýðuflokkurinn i rikis- stjórn meö Sjálfstæðisflokkn- um, viðreisnarstjórninni svo- nefndu, sem er eitthvert arg- asta öfugmæli um eina rikis- stjórn sem þekkist fyrr og siöar. Atvinnuleysi varö landlægt. Sjötti til sjöundi hver félags- maður Alþýöusamtakanna var um tima atvinnulaus. Atvinnu- leysi var árvisst i mörgum byggðarlögum landsins. Kaup var lækkað svo landflótti brast á. Atvinnutæki landsmanna sjálfra grotnuðu niöur, tog- araflotinn breyttist i brotajárn. Erlend mengunarstóriðja hélt innreið sina, aðgangseyrir hennar varð smánarverö fyrir raforkuna sem neytendur þurfa að borga með. Erlendir fiski- skipaflotar flykktust á Isiands- mið i vaxandi mæli. Samt mátti ekki heyra á það minnst aö landhelgin yrði færð út vegna þess að viðreisnarstjórnin gerði samning um að Bretar og Vest- ur-Þjóöverjar yröu að samþykkja Utfærslu landhelg- innarúr 12milum. Alþýöuflokk- urinn kallaði tillögu Alþýðu- bandalagsins um útfærslu land- helginnar i 50 sjómilur siðlausa ævintýrapólitik! Hernámiö varð stöðugt umsvifameira, banda- riskt hermannasjónvarp var inni á öðru hverju heimili hér i þéttbýlasta landshlutanum. Kjör aldraðra og öryrkja voru smánarblettur á þjóðfélaginu, blöðin birtu viðtöl við aldraða sem þjáðust af næringarskorti. Svavar Gestsson Svavar Gestsson skrifar Viðreisnarstjórnin varö háska- ieg efnahagslegu og stjórn- málalegu sjálfstæöi landsins. HUn gróf undan trú fólksins á getu Islendinga til þess aö búa sem sjálfstæð þjóð i þessu landi. Viðreisnarstjórnin tefldi raun- verulegu sjálfstæöi þjóðarinnar i tvisýnu. Endurreisnarstarf vinstristjórnarinnar Þaö tókst ekki fyrr en i kosn- ingunum 1971 að koma viðreisn- arstjórninni frá. Astæðan var sú aö hinn róttæki armur Islenskr- ar verkalýðshreyfingar var meira og minna lamaöur vegna innbyrðis átaka á sjöunda ára- tugnum. 1971 reis Alþýðubanda- lagið upp eftir margra ára innri vandamál og bætti við sig þrem- ur þingsætum. Vinstristjórnin var mynduð. Alþýöuflokkurinn hafnaði þátttöku i þessari stjórn vegna þess að flokkarnir þrir sem unnu nýjan meirihluta settu þaö skilyrði að landhelgin yrði færð Ut i 50 sjómilur. Vinstristjórnin komst vel af án Alþýðuflokksins, sem haföi tap- að öðru hverju atkvæði og var kominn niður i sex manna þing- flokk. Vinstristjórnin færði landhelgina út i 50 sjómilur og lagöi grundvöllinn aö útfærsl- unni i 200 milur. Hún lokaði bandariska hermannasjónvarp- inu. HUn beitti sér fyrir þvi að kaupmáttur launa efldist um 20%, um leið og elli- og örorku- lifeyrir tvöfaldaðist að kaup- mætti. Vinstri stjórnin beitti sér fyrir framkvæmd nýrrar islenskrar atvinnustefnu: Endurskipulagning iðnaöarins hófst, islensk orkustefna var hafin til vegs, fiskiskipaflotinn endurnýjaður og fiskvinnslan i landi var bætt að tækni og nýt- ingarmöguleikum. Umbætur vinstristjórnarinnar og endur- reisnarstarf hennar mætti lengi telja. Þær setja mark sitt á allt islenskt þjóðlif og munu gera um ókomin ár hvaö svo sem vondar rikisstjórnir komast til valda i landinu. Með vinstri- stjórninni 1971-1974 urðu straumhvörf: Þjóðin öðlaðist á ný trú á afl sitt og auðlindir til þess aö hér væri unnt að lifa mannsæmandi lifi. Það er reisn yfir stjórnartima vinstristjórn- arinnar 1971-1974. „Farið hefur fé betra" Vinstristjórnin bjó við ósvifna og sterka stjórnarandstöðu Sjálfstæöisflokksins sem hafði þá sem fyrr og siöar Urslitavald I atvinnurekendasamtökum og vaxandi itök i verkalýðshreyf- ingunni sjálfri. Einn þriggja flokka vinstristjórnarinnar samtök frjálslyndra og vinstri- manna komst inn með 5 manna þingflokk 1971: vorið 1974 höfðu þingmennirnir fimm skipt sér i jafnmarga hópa. En það er athyglisvert að þeir þrir þing- menn SFV sem harðast beittu sér gegn vinstristjórninni vorið 1974 eru nú allir I Alþýðuflokkn- um. Vinstristjórnarflokkarnir þrir töpuðu tveimur þingsætum i kosningunum 1971 og þar með möguleikum til þess að stjórna án viöbótarstyrks. Leitað var til Alþýöuflokksins, sem hóf þátt- töku i viðræðum viö flokkana þrjá hangandi hendi. Tilraunin 1974 mistókst i fyrsta lagi vegna andstöðu Framsóknarflokksins viö að leita samráös viö verka- lýöshreyfinguna og i öðru lagi vegna óheilinda Alþýðuflokks- ins. Hann hafði tapaö einum í heilan áratug var Alþýftuflokkurinn i rikisstjórn meft Sjálfstæftisflokknum. Sfftan eru liftin 7 ár, en samt eru enn greinileg pólitisk tengsl milli þessara tveggja flokka. Mynd: Viftreisnarstjórnin.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.